Alþýðublaðið - 12.11.1976, Side 8
8 FRÉTTIR
Föstudagur 12. nóvember 1976
alþýöu-
'blaoíð 1
SKS!,
>.j Föstudagur 12. nóvember 1976
FRÉTTIR 9
NYR SENDIHERRA ARGEN-
TÍNU Á ISLANDI
Nýskipaöur sendiherra Argentlnu hr.
Juan Angel Pena Gaona afhenti i dag
forseta tslands trúnaöarbréf sitt aö
viöstöddum utanrikisráöherra Einari
Agústssyni.
Siðdegis þá sendiherrann boð
forsetahjónanna að Bessastöðum
ásamt nokkrum fleiri gestum.
Loftleiðir:
BAHRAIN FLUGI FRESTAÐ
Aætlunarflugi Loftleiða til Bahrain,
sem ákveðið var aö hæfist hinn 24.
þessa mánaðar hefur nú verið frestaö
fram yfir áramót og mun hefjast 12.
jánúar 1977.
Ástæöan fyrir þessari breytingu er
að undirbúningur reyndist viðameiri
en gert var ráð fyrir og ennfremur að
um jól og nýár raskast áætlun nokkuð
vegna aukaferða og helgidaga.
Bahrainflugiö veröur tengt Chicago-
flugi Loftleiða þannig að sama þotan
flýgur frá Chicago á þriðjudagskvöldi,
kemur viö á Keflavikurflugvelli á
miðvikudagsmorgni og heldur áfram
til Luxemborgar. Þaðan heldur þotan
svo áfram til Bahrain og kemur
þangað um kvöldið. A fimmtudags-
morgni verður svo flogið frá Bahrain,
með viðkomu i Luxemborg og Kefla-
vik, til Chicago.
Aðal-
fundur
FEF
Aöalfundur félags einstæöra for-
eldra veröur haldinn mánudags-
kvöldiö 15. nóv. kl. 21.
Jóhanna Kristjónsdóttir, formaður
FEF flytur skýrslu fráfarandi
stjórnar, lagðir verða fram reikningar
félagsins og fram fer kjör nýrrar
stjórnar.
Að loknum aðalfundarstörfum
verður flutt skemmtiefni og jólakort
FEF afhent.
Fundurinn er haldinn að Hótel Esju.
AB
Ötrúlega
margir elds-
voðar stafa
af íkveikju
Arið 1975 voru útköll Slökkviliös
Reykjavikur samtals 432, flest i april
— eða 49. Orsakir eldsvoöa f Reykjavík
eru flokkaðar gróflega i árbókinni, og
kemur fram, að i 46% tilfella er um
Ikveikjuað ræða, sem hlýtur að teljast
furðu hátt hlutfall. Aörar helztu orsak-
ir eldsvoða eru taldar eldfæri og ljósa-
tæki, raflagnir og rafmagnstæki, en
ýmsar orsakir og óþekktar eru f 24%
tilvika.
Þjóðminjasafnið:
Allsherjar viðgerðir og endurbyggingar
gamalla húsa víðs vegar um landið
- óhemju dýrt, en menningin kostar peninga,
segir Þór Magnússon þjóðminjavörður
Þjóðminjasafnið
i
Reykjavik, hefur unnið
mikið og gott starf i
þágu verndunar og frið-
unar gamalla bygginga,
viðs vegar um landið.
Alþýðublaðið hafði i
gær samband við Þór
Magnússon þjóðminja-
vörð og spurði hann hver
hefðu verið helztu verk-
efni sumarsins og hvað
væri helzt framundan.
Af fornleifarannsóknum ber
fyrst aö telja, að Gísli Gestsson
lauk uppgreftri á bæ i Alftaveri,
austast á Mýrdalssandi. Bær
þessi fór i eyði um 14 hundruð, að
þvi er talið er. Við uppgröftinn
kom i ljós skýr og greinileg
bæjargerö þessa tima, en áöur
höfðu menn aöeins óljósar heim-
ildir um gerð svo gamalla bæja.
Er þetta fyrsti bærinn sem Þjóö-
minjasafn grefur upp, sem gefur
svo góöa heildarmynd af bæjar-
gerð þessa tima. Auk stórs
bóndabæjar var grafin upp
kirkja ffa sama tima. Er þetta
fjórða sumarið sem unnið er að
uppgreftri á þessum stað, en að-
stæður þarna eru allar hinar
erfiðustu.
Á Keldum var unnið að endur-
nýjun bæja. Nauösynlegt er að
gera allsherjar viðgerö og endur-
nýjun á nokkurra ára fresti, og er
þetta annað sumarið i röð sem
unnið er að viðgerðum aö Keld-
um. Reynt er að nota eins mikið
af gamla efninu og mögulegt er,
en það er skiljanlega mjög tak-
markað sem nothæft er af svo
gömlu.
t Vatnsfirði var vandlega tekin
i gegn kirkja, sú eina sinnar teg-
undar, sem safnið lætur gera viö.
Einnig var gerð lagfæring á
framhlið bæjarins i Laufási I
Eyjafirði, fyrirhugað er aö taka
til við afgang hússins næstu sum-
ur, en það mun allt að þriggja ára
verk.
Viöimýrakirkja I Skagafiröi,
var siðast tekin I gegn 1935. Var
þvi ekki orðin vanþörf á aö huga
lítils háttar að kirkjunni, sem
mun vera oröin um 140 ára göm-
ul. Var það sami maður sem tók i
gegn kirkjuna nú og fyrir 40 ár-
um, en hún var yfirfarin allt frá
grunni.
Kirkjan á Möðruvöllum i Eyja-
firði, er slðan um 1840. Hún fauk
af grunni sinum fyrir þremur ár-
um, og var af mörgum talin
algerlega ónýt. Þjóöminjasafn
vildi þó ekki láta þessa gömlu
kirkju alveg eyðileggjast, og var
það úr að Gunnar Bjarnason
gerði við skemmdirnar og færði
kirkjuna aftur á nýjan grunn.
Kirkjan er tilbúin að utan en eftir
er að fullgera framkvæmdir inn-
andyra.
Að Sjávarborg i Skagafirði hafa
staðið yfir viðgerðir i nokkur ár.
Þar var unnið að viðgerðum I
sumar, en ekki lokið við. Vonast
er til að framkvæmdum ljúki
næsta sumar.
Nokkur flutningur hefur verið á
gömlum húsum I sumar. Frá
Reykhólum var færð gömul
kirkja til Saurbæjar. Kirkja þessi
er mjög vandað og fallegt hús, og
þegar fullkomlega verður lokið
við að koma henni upp, mun hún
verða sóknarkirkja þeirra Saur-
bæinga.
Tvö hús frá Vopnafirði voru
flutt I nokkrum hlutum á
Árbæjarsafn. Hús þessi þurftu að
vikja fyrir nýbyggingum. Búið er
að koma öðru húsinu fyrir, en lok-
ið veröur við að endurreisa hitt
„Rækjustríð á Axarfirði”:
SAMKOMULAG UM
LEYFISVEITINGAR
Tilhæfulaus fréttaflutningur Þjóðviljans
Vegna fréttar á bak-
siðu Þjóðviljans 11.
nóvember s.l. um
rækjustrið á Axarfirði
ásamt viðtali og mynd
af Kristjáni nokkrum
Ásgeirssyni á Húsavík,
viljum við undirritaðir
starfsmenn sjávarút-
vegsráðuneytisins taka
fram eftirfarandi:
Það er með öllu tilhæfulaust,
að ráðherra hafi veitt „stærri”
bátum leyfi til veiða á 120-
tonnum á rækju, sem flutt sé til
vinnslu hjá K. Jónssyni og Co. á
Akureyri. Hefðu biaðamenn
Þjóðviljans getað reynt sann-
leiksgildi þessarar æsinga-
fréttar með þvi að hafa sam-
band við ráðuneytið, en ekki
hefur það passaö i kramiö þar
sem enginn ráðuneytismanna
hefur veriö um þetta spurður.
Oft er það þó svo, aö einhver
flugufótur finnst fyrir slikum
skrifum þótt þau birtist les-
endum siðan i liki úlfalda. Það
rétta i þessu máli er, að Sölu-
stofnun lagmetis hefur nú um
nokkurt skeið mjög eindregið
fariö þess á leit við sjávarút-
vegsráðuneytiö, að það heimili
K. Jdnssyni og Co. að kaupa
rúmlega 100 tonn af rækju úr
Axarfirði til þess að bjarga
mjög mikilvægum sölusamn-
ingum á niöursoðinni rækju,
sem að öðrum kosti yrðu van-
efndir vegna skorts á hráefni.
Eins og endranær þegar svo
ber undir hafði ráðuneytið sam-
ráð við viðkomandi aðila um
erindi þetta og um siðustu helgi
héldum við undirritaðir fundi
með forsvarsmönnum rækju-
vinnslustöðvanna á Kópaskeri
og Húsavik ti að ræða málið. Á
fundinum á Húsavik voru auk
þess mættir 14 af 16 umsækj-
endum um rækjuveiðileyfi á
þessari vertið, enda átti einnig
að ræða úthlutun veiðileyfa til
Húsavikurbáta. Erskemmst frá
þvi að segja, að á báðum
þessum fundum sýndu menn
skilning á vandamáli Sölustofn-
unar lagmetis og K. Jónssonar
og Co. vegna ofangreinds
hráefnaskorts rækjuniður-
suðunnar og varö enginntil þess
að mótmæla þvi að K.Jónsson
og Co. fengi vegna þessa umrætt
magn af kvóta hvorrar verk-
smiðju á Kópaskeri og Húsavfk.
Hins vegar tóku menn skýrt
fram á báðum þessum stööum,
að þótt þeir myndu sætta sig við
þetta nú, þá þýddi það alls ekki
viðurkenningu af þeirra hálfu á
þvi að K. Jónsson og Co eða
aðrir en verksmiðjurnar á
Kópaskeri og Húsavik hefðu
eignast nokkurn rétt til Axar-
fjarðarrækjunnar. Þessir tveir
staðir ættu nú og i framtiöinni
að eiga allan forgang til veiða
og vinnslu á þessari rækju.
A Húsavikurfundinum varð
auk þess samkomulag um það
hvernig haga skyldi leyfisveit-
ingum til Húsavikurbáta meö
tilliti til þess að þeir veiddu þá
rækju er fari til K. Jónssonar og
Co.
Viö undirritaðir gáfum
ráðherra skýrslu um ofan-
greinda fundi og niðurstöður
þeirra s.l. mánudag, en engin
ákvörðun var þá tekin i málinu.
Seinna þann sama dag brá siðan
svo við, að nokkrir menn
hringdu i ráðuneytið til þess að
mótmæla þvi, sem þeir höfðu
sjálfir samsinnt á fundinum.
Hefur ráðherra siðan borist eitt
simskeyti frá Kópaskeri og
annað frá Húsavik þar sem
mótmælter þvi, sem gengið var
út frá á fundunum, að
K.Jónsson og Co. fengi nokkra
rækju úr Axarfirði.
Ráðherra og ráðuneyti hans
hefur þetta mál nú til athugunar
og hefur engin ákvörðun verið
tekin um það hvort farið veröi
eftir niðurstöðum ofangreindra
funda eða hvort ofangreind
mótmæli og hótun verkalýðs-
félags Húsavikur um beitingu
samtakamáttarins breytir ein-
hverju þar um. Hitt er ljóst, að
viðbrögö sumra fundarmanna á
Kópaskeri og Húsavik eftir að
við vorum farnir þaðan, eru
okkur undirrituðum þó nokkuð
áfall i þeirri viðleitni okkar að
gefa mönnum úti á landi kost á
að tjá sig og ræða við okkur um
þau þeirra mál sem við höfum
til umfjöllunar i ráðuneytinum.
Þórður Ásgeirsson skrifst.stj.
Jón B. Jónasson deildarstj.
næsta sumar.
Nokkur samvinna hefur verið á
milli Þjóðminjasafns og Arbæjar-
safns. Sagðist Þór Magnússon
þjóðminjavörður vonast til að sú
samvinna gæti oröið meiri og
betri. — Það er ekkert i vegi fyrir
þvi að færa hús utan af landi á
Arbæjarsafn og hafa þar meö
sýnishorn af fleiri húsum en ein-
göngu úr Reykjavik, sagði Þór.
Helzta vandamál Þjóöminja-
safnsins er aö fá menn til vinnu,
sem eitthvaö kunna til verka i
endurbyggingu gamalia bygg-
inga. Þar sem hús þau sem verið
er að lagfæra og endurreisa eru
orðin svo gömul, er ekki um
marga að ræða sem eitthvað
hafa vit á hvernig þau eru byggö
og hlaðin.
Húsfriðunarnefnd svokölluð, er
ekki beint á vegum safnsins,
sagöi Þór, en þó hefur þjóöminja-
safnið eitthvaö þar að segja. 1
bigerð er að friöa fleiri hús en
verið hefur. Hörður Agústsson og
Þorsteinn Gunnarsson lögðu
fram tillögur um að friða viss
hverfi og byggingar i Reykjavik
og á Akureyri. Ekki eru allar
þeirra tillögur komnar i fran\-
kvæmd, en eru I athugun.
Um hvað framundan væri, gat
Þór ekki alveg sagt til um, en þó
yrði haldið áfram við að lagfæra
þau hús sem ókláruð væru, viðs
vegar um landið. 1 Þverá i Laxár-
dal þyrfti að setja kraft i fram-
kvæmdir þar sem um stórmerk-
ilega stofnun væri að ræða. Þar
stofnuðu Þingeyingar sitt fyrsta
kaupfélag.Einnig verður tekið til
við Glaumbæ I Skagafirði og
Laufás i Eyjafirði, svo og Möðru-
vallarkirkju og Þingeyrarkirkju.
Sögualdarbærinn er nú að
mestu tilbúinn. Verið er að setja i
hann hita, og verður hann
væntanlega tilbúinn næsta sum-
ar, til sýnis fyrir almenning. En
Þór vildi lltið segja okkur um
þann bæ, þar sem það væri mest
Hörður Agústsson sem sæi um
framkvæmdir þar.
Allar þessar miklu viðgerðir og
endurbyggingar eru auðvitaö
kostnaðarsamar, en eins og Þór
Magnússon komst að orði, þá
kostar menningin peninga.
—AB
Auglýsing í símaskránni:
Áhrifamikil, en dýr
Auglýsing i simaskrá ku vera
afskaplega áhrifamikil. En hún
er ekki eingöngu áhrifamikil, þvi
hún eróhemju dýr. Auglýsingar I
nafnaskrá simaskrárinnar er
hægt að fá i þremur stærðum. 1
dálkur x 30 mm og kostar þannig
auglýsing 42.000.- 2 dálkar x 30
mm kostar 84 þúsund og 3 dálkar
x 30 mm kostar aöeins 126.000,-
Auglýsingar I atvinnuskrá
kosta, 15 mm x 1 dálkur kr.
21.000.- og 7000,- fyrir hverja 5
mm til viðbótar. Ekkert smáverð
það. 260 mm x 1 dálkur I atvinnu-
skrá, þ.e. 26 cm x 1 dálkur kostar
kr. 364.000,-
Til fróöleiks birtum við hér með
verðskrá slmaskrárinnar, allt frá
15 mm upp i 50 mm.
Sfmaskráin er gefin út i um 95
þús. eintökum, og fer inn i öll
fyrirtæki og nánast hvert heimili
á landinu. Simaskránni hafa bor-
izt fjölmargar fyrirspurnir varö-
andi auglýsingar, og eru fyrirtæki
þá að tryggja sér stað i sima-
skránni, sem þeir munu siðan
halda I framtiðinni. I sima-
Sigfús en
ekki Sveinn
t grein I Alþýöublaðinu fyrir
skömmu um Snorra Sigfús
Birgisson, pianóleikara, var
Snorri sagður heita Snorri
Sveinn. Sveins-nafniö er rangt, en
Sigfúsar-nafnið rétt. Beðiö er vel-
virðingar á þessum mistökum.
skránni má sjá, að auglýsingar
þessar eru mikið notaðar, þrátt
fyrir hátt verö. AB
15 mm
21.000
20 mm
28.000
25 mm
35.000
30 mm
42.000
40 mm
56.000
50 mm
70.000
Söltun Suðurlandssíldar:
20 ÞUSUIMD TUNNUM
MEIRI EN í FYRRA
Nú hefur verið saltað um þaö
bil 20.000 tonnum meira af suð-
urlandssild en á sama tima i
fyrra. A miönætti aðfararnótt
sunnudags 7.. nóvember nam
heildarsöitun suðurlandssildar
samtals 81.081 tunnu, en var á
sama tima i fyrra 60.974 tunnur.
Þetta kemur fram i nýútkomnu
fréttabréfi Sildarútvegsnefndar
Hér á eftir fer yfirlit um sölt-
unina á hinum einstöku stöðum:
Söltunarstaðir
Hr ingnótasíld
Landsaltað Sjósaltað Samtals
Reknetasíld Samtals
Seyðisfjörður
Neskaupstaður
Eskifjörður
Fáskrúðsfjörður
Stöðvarfjörður
Djúpivogur
Hornafjörður
Vestmannaeyjar
Þorlákshöfn
Grindavík
Sandgerði
Garður
Keflavík
Hafnarfjörður
Kópavogur
Reykjavík
Akranes
Rif
Siglufjörður
1784
3270
5493
1655
583
12025
347
5971
1940
371
7226
660
1857
9795
3937
1533
1607
1310
1784
3270
5493
1655
583
12025
347
7281
1940
371
7226
660
1857
9795
3937
1533
1607
496
940
15850
2254
61
116
1784
3270
5493
2151
583
940
15850
14279
347
7281
1940
371
7287
660
1857
9795
3937
1649
1607
Samt. tnr. 6.11. '76 60054 1310 61364 19717 81081
Samt. tnr. 7.11. '75 43878 12598 56476 4498 60974
Óvænt stórsíldarganga við bæjardyrnar hjá
Svíum
Samkvæmt fréttum, sem Sild-
arútvegsnefnd hafa borizt frá
Sviþjóð, hefir allmikið veiðst af
góðri söltunarsild „rétt við bæj-
ardyrnar” hjá sænsku sildar-
niðurlagningarverksmiðjunum
i Kungshamn. Blaðið „Bohu-
slaningen” birti nýlega fréttir
af þessari óvæntu sildargöngu
og segir i fyrirsögn „Vattnet vid
Vaderöarna kokar nu av stor-
sill”. 1 október munuhafa veiðst
á þessu svæöi 12—15.000 tunnur.
Nokkuð af sildinni hefur verið
kryddsaltað i Sviþjóö, en hluti
fluttur á uppboðsmarkað i Dan-
mörku, þar sem hærraverð fæst
þar fyrir fersksildina en i Svi-
þjóð. Samkvæmt tveim fitu-
mælingum, sem SÚN er kunn-
ugt um að gerðar hafa verið,
hefir fitumagn sildarinnar
reynzt 20—22% miðað við sild-
ina heila.
Luodúoaíefo ídes. á tn.39.eoo
'TSamvtnnuferðir
Ferðaskrifstofa-Austurstræti 12 simi 27077
Bændaför á landbúnaóarsýninguna
í London 4.-11. des. Morgunveróur innifalinn.
Fararstjóri: Agnar Guónason. Pantió nú.