Alþýðublaðið - 12.11.1976, Side 14
14 LISTIR/MENNING
Föstudagur 12. nóvember 1976
u*
ó
Nýjar bækur:
Lewis og
Clark
og ferðin yfir
Norður-Ameríku
eftir David Holloway í þýð-
ingu Örnólfs Thorlacius
Bókaútgáfan örn og örlygur
hefur gefið út þriðja bindið i
bókaflokknum Frömuðir landa-
funda, sem Sir Vivican Fuchs rit-
stýrir og nefnist það LEWIS OG
CLARK og ferðin yfir Norður-
Ameriku. Aður eru komnar i
þessum flokki bækurnar MAG-
ELLAN og fyrsta hnattsigling og
KAPTEINN SCOTT og harmleik-
urinn á Suðurskautinu.
I bókinni eru 116 myndir sem
sýna mannlif og landslag i „hinu
villta vestri” á þeim árum er stór
hluti Norður-Ameriku var enn ó-
kannaður.
Sá leiðangur sem hér er sagt
frá er ekki jafn viðfrægur og
hnattsigling Magellans eða pól-
ferðir þeirra Amundsens og
Scotts. Þó jafnast fáar landkönn-
unarferðir á við ferðalag þeirra
Lewis og Clarks um sögulegt
mikilvægi — og fáar ferðasögur
eru fróðlegri og skemmtilegri en
saga þeirra leiöangurs.
Þessi bók greinir eigi aðeins frá
frækilegri könnunarferð. Saga
þessarar ferðar er jafnframt
saga fágætrar samvinnu og sam-
heldni. Vinátta og gagnkvæmt
traust Meriwethers Lewis og
Williams Clarks brást aldrei á'
langri og stundum erfiðri leið.
Leiðangur þeirra markar þátta-
skil i sögu Bandarikjanna: i
fyrsta sinn horfðu bandarikja-
menn til vesturs um frekari út-
þenslu rikis sins.
Er Thomas Jefferson haföi látið
kaupa af frökkum óhemjuvið-
áttulands, sem þá nefndist
Louisiana, vestur af Missisippi-
fljóti, gerði hann út leiðangur
undir stjórn Lewis og Clarks að
kanna þessar nýfengnu lendur og
komast allt til Kyrrahafsstrand-
ar. Þeir ferðuðust hátt á annan
tug þúsunda kilómetra um ókann-
að land og sættu oft harðræði,
rysjóttu veöri og ýmsum háska. Á
þriggja ára ferð þeirra dó aöeins
einn þeirra og einungis einn
strauk. Siöari hluta árs 1804 lagði
hópurinn af stað frá St. Louis upp
Missourifljót i leit að ókunnum
upptökum þess. Atján mánuðum
siðar voru þeir við mynni Colum-
biufljóts á strönd Kyrrahafs. Þeir
höfðu ferðast, mest á barkarbát-
um, um torfær en stórkostleg
svæði inn á meginlandi Norður-
Ameriku, hitt þar fyrir fjölmarg-
ar þjóðir indjána, sem sumar
hverjar höfðu aldrei fyrr kynnst
hvitum mönnum,og lent i aðstæð-
um sem kröfðust ýtrasta snar-
ræðis og hugrekkis. Þeir sneru
við og komust aftur til St. Louis
haustiö 1806 og höfðu þá meðferð-
is verðmætt safn sýna og visinda-
legra athugana.
Ritstjóri þessa nýja og mynd-
skreytta bókaflokks, er fjallar um
ævintýri hinna miklu landkönn-
uða, sir Vivian Fuchs, er fyrir
löngu kunnur fyrir að hafa veitt
forustu ýmsum meiri háttar leið-
angrum á vorum dögum, þ.á m.
visindaleiðangri þvert yfir Suður-
skautslandið á árunum 1955-1958,
en það var i fyrsta skipti sem sú
leið var farin.
Bókin er sett i prentstofu G.
Benediktssonar en prentuð og
bundin i Bretlandi.
Fjölbreytt dagskrá
Kammersveitarinnar í vetur
TVÖ VERK
FRUMFLUTT
Kammersveit
Reykjavíkur er nú að
hefja sitt þriðja starfs-
ár. Starfsemi sveitar-
innar verður með liku
sniði nú og verið hefur.
Haldnir verða fernir
reglulegir tónleikar.
Fyrstu tónleikar vetrarins
verða haldnir 14. nóvember.
Verða þar eingöngu flutt tónverk,
samin á þessari öld. Tónverkin
eru misgömul, en yngst er verk
Leifs Þórarinssonar, Angelus
Domini.
Aðrir tónleikar verða 12.
desember i Kristskirkju. Þeir
tónleikar eru helgaöir barokktón-
list. Ekkert verk þessara tón-
leika, utan jólakonsert Corellis,
hefúr áður verið flutt hér á landi.
A þriðju tónleikum kammer-
sveitarinnar, sem haldnir verða
20.febrúar verður frumflutt við-
frægt verk eftir Oliver Messiaen.
Verkið nefnist Quatuor pour la fin
du Temps. Verk þetta samdi
Messianen i striðsfangbúðum i
seinni heimstyrjöldinni.
Seinustu tónleikar vetrarins
verða svo 27. marz 1977. 26. marz
er 150. ártið Beethovens, og verða
tónleikarnir einnig minningar- og
hátiðatónleikar. Flutt verður ma.
Septett op. 20 eftir L.v. Beet-
hoven. A þessum hátiðatónleikum
verður einnig frumflutt tónverk
eftir norska tónskáldið KetilSæ:
verud, en Sæverud samdi verkið
sérstaklega fyrir kammersveit-
ina og nefnist það Tilbrigði fyrir
Kammersveitina. Þriðja tónskáld
lokatónleikanna verður Jón Leifs,
en eftir hann verður flutt Mors et
Vita.
Allir tónleikar Kammer-
sveitarinnar verða haldnir i sal
Mentaskólans i Hamrahliö, nema
desembertónleikarnir, sem verða
eins og fyrr segir i Kristskirkju.
Aðgangur að tónleikunum er
kr. 800 á einstaka tónleika, en
hægt er að fá áskrift að öllum
fernum tónleikunum á kr. 2.400.
Börnum og skólanemendum
verður veittur afsláttur, geta þau
fengið áskriftarkort á kr. 1.500 og
einstaka miða á kr. 500.
Askriftarkort eru til sölu i bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar
og á fyrstu tónleikum kammer-
sveitarinnar. —AB
Tækni/Vísindi
I þessari viku: Virkjun bylgjuorku 4.
Mikil aðsókn að
SÓLARFERÐ alltaf
fyrir fullu húsi
Óvenja mikil aðsókn hefur
verið að Þjóðleikhúsinu i
októbermánuði, alls komu um
15 þúsund manns á sýningar
leikhússins. Fádæma aðsókn
hefur verið að hinu nýja verki
Guðmundar Steinssonar,
SÓLARFERÐ, sem verður sýnt
i 25. skipti á laugardagskvöldið.
Hefur verið uppselt á allar
sýningar verksins til þessa og
leikritinu veriö mjög vel tekið.
Þetta er þriðja verk höfundar,
sem sýnt er i Þjóðleikhúsinu.
Leikstjóri er Brynja Benedikts-
dóttir og hefur miklu lofsorði
verið lokið á leikstjórn hennar i
sýningunni. Aöalhlutverkin,
hjónin Ninu og Stefán, sem eru i
sólarfrii á Spánarströnd, leika
þau Þóra Friðriksdóttir og
Róbert Arnfinnsson, en meðal
annarra leikenda eru Bessi
Bjarnason, Guðrún Stephensen
og margir fleiri. Eyþór
Þorláksson og Sveinn
Eyþórsson leika spænska tónlist
fyrir sýningu og í hléi og til þess
að auka á sólarlandastemn-
inguna, eru málverk eftir
Tryggva Ólafsson frá sólar-
löndum til sýnis i anddyri.
ÍMYNDUNARVEIKIN
i 40. skipti
Þá hefur ímyndunarveiki
Moliéres einnig notið mikilla
vinsælda i haust og nálgast
sýningar nú 40. Verkið var
frumsýnt i vor og sýnt i leikför i
sumar og hefur mikil aðsókn
verið að sýningunum nú i haust;
hafa nemendur framhaldsskól-
anna fjölmennt á sýninguna og
mikil kátina rikt á sýningum.
Þær breytingar hafa orðið á
hlutverkaskipan, að Margrét
Guðmundsdóttir hefur nú tekið
við hlutverki Béline, eiginkonu
hins Imyndunarveika.af Sigriði
Þorvaldsdóttur. Bessi Bjarna-
son er Argan og Herdis Þor-
valdsdóttir Toinette. Leikstjóri
er Sveinn Einarsson en tónlist
eftir Jón Þórarinsson.
LITLI PRINSINN
á förum
Nú eru aöeins eftir þrjár
sýningar á barnaleikritinu
LITLA PRINSINUM, sem sýnt
er á Stóra sviðinu á sunnudags-
eftirmiðdögum. Það eru stúlkur
úr Leikbrúðulandi sem stjórna
brúðunum i þessari sýningu, en
leikarar Þjóöleikhússins flytja
textann. Þar eö brúðurnar og
sviðsbúnaður er fenginn að láni
hjá Mariónettuleikhúsinu i
Stokkhólmi til takmarkaðs
tima, verður ekki unnt að hafa
fleiri sýningar á þessari fallegu
sýningu. Næsta sýning er kl. 15
á sunnudag.
BALLETTSÝNING
UM MÁNAÐAMÓTIN
SÆNSKUR
GESTADANSARI
Hinn nýi ballettmeistari Þjóð-
leikhússins, Natalie Konjus frá
Sovétrikjunum æfir nú Islenska
dansflokkinn ásamt nokkrum
fleiri dönsurum fyrir heils
kvölds ballettsýningu, sem
verður frumsýnd um næstu
mánaðamót. Verður þá fluttur
ballettinn LES SYLPHIDESvið
tónlist Chopins og dansar
sænskur sólódansari, Per
Arthur Segerström þar sem
gestur leikhússins. Hann dansar
einnig i fleiri atriðum, sem flutt
verða i þessari ballettsýningu,
m.a. prinsinn i SVANA-
VATNINU við tónlist Tsjæ-
kovskis. Per Arthur Segerström
starfar við óperuna I Stokk-
. hólmi og þykir fremsti karl-
dansari þar um þessar mundir.
Þess má geta aö uppsétning
Natalie Konjus á Svanavatninu
hefur nú verið sýnd I 12 ár i
Þjóðleikhúsinu
Sviðsmynd úr Sólarferö: Tveir spánskir verkamenn væta kverk-
arnar (Þórarinn Guðmundsson og Rlkharð Þórarinsson).
Stokkhólmsóperunni. A efnis-
skránni á ballettkvöldinu verða
fleiri dansar, m.a. nokkrir eftir
Natalie Konjus sjálfa.
ÆFINGAR HAFNAR
Á JÓLALEIKRITINU
Æfingar eru nú hafnar á jóla-
leikriti Þjóðleikhússins, sem að
þessu sinni er GULLNA
HLIÐIÐ eftir Davið Stefánsson,
en nú er liðið á annan áratug,
siðan verkið var siðast fært á
svið I leikhúsinu. Að þessu sinni
er það Sveinn Einarsson, sem
leikstýrir og Björn Björnsson,
sem gerir leikmyndir. Með hlut-
verk kerlingar fer Guðrún Step-
hensen, Helgi Skúlason leikur
Jón bónda og óvinurinn er
leikinn af Erlingi Gislasyni.
Frumsýning verður annan dag
jóla.
Vökvadæla
önnur tegund útbúnaðar til
þess að virkja bylgjuorku var
fundin upp af Sir Christopher
Cocerell (þess sem fann upp
loftpúðaskipið).
Þetta gerir þaö að verkum að
flekarnir rugga fram og aftur
miðað við næsta fleka við
hliðina.
'X
Veltiöxull
Bylgjuhreyfingar
Lengjur af samtengdum
flekum liggja út frá strönd-
inni, og fylgja bylgju-
hreyfingum sjávar.
Veltiöxull
Vökvadælur á samskeytum
flekanna breyta hreyfiorku
þeirra i vökvaþrýstipúlsa,
sem sendir eru til strandar
eftir þrýstihosum. Þar eru
hosurnar tengdar stórum raf-
al, sem er knúinn áfram af
vökvapúlsunum._____________