Alþýðublaðið - 12.11.1976, Blaðsíða 15
ið Föstudagur 12. nóvember 1976
SJÖNMM8IÐ15
Bíóin / Leikhúsin
hafnarb! *S 16-444 W B ID
31
Robert Aitman's
Images,
Susannah
York
Spennandi og afar sérstæö ensk
Panavision-litnynd, sem hlotið
hefur nikið lof, um unga konu og
afar mikið hugarflug og hræðileg-
ar afleiðingar
Leikstjóri: Robert Altmanæ
ISLENZKUR TEXTI.
Bönnuð innan 16 ára
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
S 2-21-40
Byltingaforinginn
Villa Rides
Söguleg stórmynd frá Paramount
tekin i litum og panavision.
ISLENZKUR TEXTI.
i Aðalhlutverk Vul Brinner, Robert
Mitchum.
Bönnuð innan 12 ára.
Sýnd. kl. 5 og 9.
LEIKFÉLAG 2|2
REYKJAVÍKUR ^ “
«•
SKJALDHAMRAR
i kvöld. — Upþselt., >
Þriðjudag kl. 20,30.
ÆSKUVINIR
4. sýn. laugardag. — Uppselt.
Blákort gilda.
5. sýn. mibvikudag kl. 20,30. '
Gul kort gilda.
STÓRLAXAR
sunnudag kl. 20,30.
Fimmtudag kl. 20,30.
Miðasalan i Iðnó kl. 14-20,30. Simi
1-66-20.
VIPPU - BltSKURSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við jnúrop:
|Jæð;210 sm x breidct: 240 sm
2K) - x - 270 snri
Aðror »tá»rðir. smiSaáar eftir beiðrtá
QLUÍÓAS MIÐJAN
w Slðumúla 20, slmi 38220
ISLENZKUR TEXTI.
Ein hlægilegasta og tryllingsleg-
asta mynd ársins gerð af háð-
fuglinum Mel Brooks.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Hækkað verð.
Sýnd kl. 5, 7,15 og 9,30.
“lonabíó
0*3-11-82
Tinni og hákarlavatnið
Tin Tin and
the Lake of Sharks
Ný skemmtileg og spennandi
frönsk teiknimynd, með ensku
tali og ISLENZKUM TEXTA.
Textarnir eru i þýðingu Lofts
Guðmundssonar, sem hefur þýtt
Tinna-bækurnar á islenzku.
Aðalhlutverk Tinni, Kolbeinn
kafteinn.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sími 11475
Arnarborgin
eftir Alistair MacLean.
Hin fræga og afar vinsæla mynd
kominaftur með íslenzkum texta.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 5 og 9.
® 3-20-75
Að fjallabaki
True love is
beautiful
...soyouworít feel
ashamed to cry.
Ný bandarisk kvikmynd um eina
efnilegustu skiðakonu bandarikj-
anna skömmu eftir 1950.
Aðalhlutverk: Marilyn Hassett,
Beau Bridges o.fl.
Stjórnandi skíðaatriða: Dennis
Agee.
ÍSLENZKUR TEXTI
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Nakið lif
Mjög djörf dönsk kvikmynd með
ÍSLENZKUM TEXTA
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 11.
Ath. myndin var áður sýnd i
Bæjarbió.
Will Penny
Technicolor-mynd frá Para--
mountum lifsbaráttuna á sléttum
:vesturrikja Bandarikjanna.
Aöalhlutverk: Charlton Heston,
Joan Hackett.
Sýnd kl. 9
S 1-89-36
SERPIC0
ISLENZKUR TEXTI.
Heimsfræg sannsöguleg ný
amerisk stórmynd um lögreglu-
manninn Serpico. Kvikmynda-
handrit gert eftir metsölubók
Peter Mass. Leikstjóri Sidney
Ljimet. Aðalhlutverk: A1 Pacino,
John Randolph.
Mynd þessihefuralls staðar fengið
frábæra blaðadóma.
Bönnuð innan 12 ára.
Hækkað verð.
Sýnd kl. 6 og 9.
Ath. Breyttan sýningartinva.
HVI EKKI
BREYTA TIL ?
Eini úrkosturinn?
A undanförnum timum hafa
dunið yfir, næstum i öllum fjöl-
miðlum, fregnir um kröfur á
hendur samfélaginu, að reisa nú
i stórum stil svokölluð ,,dag-
vistunarheimili” um allar jarð-
ir.
Þetta er vitanlega rökstutt
með þvi, að knýjandi þörf sé á
að þjóðfélagið geti hagnýtt sér
vinnukraft húsmæðranna til
fram leiðslustarfa. Hér skal ekki
efast um þeirra gagnmerka
framlag i ýmsum framleiðslu-
greinum, þó hinsvegar sé
enganveginnsvoástatt um allar
útivinnandi húsmæður. En þaö
er önnur saga.
1 annan stað má vera, að hér
sé á ferðinni angi af svokallaðri
jafnréttisbaráttu kvenna, eink- ■
um þeirra sem þrúgast undir
erfiðinu á eigin heimilum.
Heyrzt hefur undir væng, að nú
ætli rauðsokkahreyfingin að
hefja nýja og stórslegna herferð
fyrir framgangi þessara bygg-
inga barnaheimila.
Anauð húsmæðra á eigin
heimilum er vissulega sérstak-
ur kapituli, sem hér skal ekki
ræddur frekar, en þegar allir
endar koma saman, verður að
draga stórlega i efa, aö meö nú-
tima lifsháttum, sem — þvi bet-
ur — hafa búið velflest heimili
út með þægindum, sem taka
sárasta erfiðið af við heimilis-
verkin.
Hlutskipti húsmæöranna er
þessvegna allt annað og stórum
betra en formæðurnar áttu við
að búa.
Talsvert ber á þvi, að þau rök
séu fram borin, að húsmóðirin
þurfi sannarlega að hafa sin
tækifæri til að blanda geði við
utanheimilisfólk, sem vissulega
skal ekki dregið i efa, og loks er
ekki þvi að neita, að fjárhags-
legir erfiðleikar margra heim-
ila knýja á um meiri fjáröflun
ensvokölluð „fyrirvinna” getur
af mörkum látið.
En þrátt fyrir allt er þó eins
og einn aðilinn á heimilinu hafi
færzt óþægilega mikið i
skuggann - börnin.
Þetta er þvi furðulegra, sem
varla lýkur nokkur svo upp
munni um þessi mál án þess að
viðurkenna, að börnin séu isenn
dýrasta eign hvers þjóðfélags
ogmikill hamingjuauki þar sem
allt er með felldu. Það virðist
þvi vera mikil þverstæöa, að
ekki þurfi að huga meira að
þeirra þörfum en svo, að þau
séu umsvifalitið sett á opinber-
ar, eða hálfopinberar stofnanir
til „trausts og halds”. Hér skal
enginn dómur lagður á starf-
semi og kunnáttu hinna svo-
nefndu fóstra, sem vinna á dag-
heimilunum. Eflaust er þar um
að ræða góðan vilja og getu, en
sú spurning er þó næsta áleitin,
hvort þetta fóstur geti nokkru
sinni jafnast á viö umhyggju
góðra foreldra.
Oddur A. Sigurjónsson
Þvi hefur alltaf verið haldið
fram, sem fullgildum sannleika,
þó dapur sé, að alltof mörg
he.mili séu með meiri losara-
brag en vera ætti, og þess hljóti,
einkum ungviðið að gjalda —
auðvitað misjafnlega Sárt, en
sárt samt.
Fullkomin ástæöa viröist vera
til, að velta fyrir sér og i alvöru,
hvort engar aðrar úrbætur sé aö
finna i þessum margþætta
vanda, heldur en að sigla sem
nú horfir.
Þarna eru góð ráð eflaust dýr,
en það raskar ekki þvi, að lak-
asta ráðið er að gefast upp.
Fram til þessa höfum við búið
við fastmótaðar vinnuhefðir, og
auðvitað er ætið erfitt að glima
við slikt. En er ekki kominn timi
til að hugleiða, hvort breyta
megi þessum gömlu hefðum á
þá lund, aö öðruhvoru foreldr-
anna gæti ætið gefizt kostur á að
vera heima og annast heimilið
og ungviðið, þótt hitt stundi
vinnuna. Þetta er þannig að
skilja, að foreldrarnir skiptust á
um úti- og innivinnuna, en ann-
að væri ekki ætið „tjóðrað” á
sama stað — heima — ef svo
þætti hlýða aö komast að orði.
Ekkiþarfað draga það i neinn
efa,aðhér væri á ferðinni mikil
skipulagsbreyting á vinnutima
fólks, og eflaust kæmu æði mörg
ljón i ljós á veginum.
í öllum þeim tilburðum til
skipulagningar, sem nú eru
hvarvetna uppi, ætti það þó að
vera kleift með góðum vilja.
Það er litill vafi á, að hér væri á
ferðinni eitthvert mesta jafn-
réttismál allra aðila. Og hvers-
vegna ekki aö huga vandlega að
þvi?
En aðalatr. er, að eins og nú
standa sakir ætti hagsmunum
barnanna að vera stórum betur
borgið á þennan hátt en ella.
Það er trú min, að heimilis-
böndin myndu styrkjast stór-
lega við þessa hætti, og væru þá
fleiri flugur en ein, slegnar i
sama höggi.
Það skal fram tekið, að þó
þetta sé hér lauslega viörað,
liggur ekki að baki nein full-
mótuð hugmynd -um, hvernig
leysa eigi málið, nema i höfuð-
atriðum. Vitanlega þyrfti það aö
ræðast og ménn að velta þvi fyr
ir sér rækilega. Þar myndi auð-
vitað sannast, að enginn einn
hefur iundið upp ,allt púðriö”.
Enþað erforn, islenzkur háttur,
að beztu manna yfirsýn, geti
leyst vanda, sem einstaklingi sé
um megn.
1Í HREINSKILNI SAGT
Ritstjórn Alþýðublaðsins
er í j Síðumúla 11
i - Sími 81866
Mastiwihf
Grensásvegi 7
Sími 82655.
lnaUnNti*«liip«l leið 0
Ul IðnxtiðNkiptn
BIÍNAD/XRBANKI
' ÍSLANDS
Austurstræti 5
Sími 21,-200
Hatnartjar&ar Apótek
Afgreiðslutimi:
Virka daga kl. 9-18.30
'Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsing^simi 51600.