Alþýðublaðið - 03.12.1976, Page 2
2 STJÖRNMÁL
Föstudagur 3. desember 1976
issar
alþyöu'
blaöiö
tjtgefandi: Alþýöiiflokkurinn.
Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Árni Gunnarsson. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggsson.
Aðsetur ritstjórnar er i Síðumúla 11, simi 81866. Augiýsingadeiid, Alþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906.
Áskriftarsimi 14900. Prentun: Blaðaprent h.f. Áskriftarverð: 1100 krónur á mánuði og 60 krónur i laúsasöiu.
Söguleg norræn stefnuskrá
I síðastliðinni viku var
haldið í Helsinki Norrænt
alþýðuþing, þar sem
saman voru komnir full-
trúar alþýðuflokka og
verkalýðshreyf ingar allra
fimm Norðurlanda. Að
þessu sinni var megin-
verkefni þingsins að af-
greiða sameiginlega
stefnuskrá fyrir hreyf-
ingar þessara fimm
landa til að starfa eftir á
grundvelli Norðurlanda-
ráðs, en allt bendir til
þess, að vaxandi árangur
hins norræna samstarfs
muni innan skamms leiða
til þess, að f ulltrúar í ráð-
inu flokkist meira eftir
skoðunum en eftir lönd-
um.
Hin sameiginlega nor-
ræna stefnuskrá jafnað-
armanna í flokkum og
verkalýðshreyf ingu
hefur átt langan aðdrag-
anda. Upphaf hennar er
að finna á síðustu fund-
um Norðurlandaráðs í
Reykjavík, en þá hittust
þessir aðilar og ákváðu
að hefja starf að sam-
eiginlegri stefnuskrá,
þeirri, sem afgreidd var
á þinginu í Helsinki.
Alþýðuf lokkurinn
hefur frá upphafi verið
flokkur hins norræna
samstarfs á (slandi, og
ekki alltaf verið þökkuð
sú stefna. Nú kveða allir
flokkar þá Lilju, en
Alþýðuf lokkurinn leitar
eftir raunhæfara sam-
starfi á málefnagrund-
velli en nokkru sinni fyrr.
Að sjálfsögðu sendi
Alþýðuf lokkurinn full-
trúa til þingsins í Hel-
sinki, og fengu þeir um
leið sérstakt tækifæri til
að kynnast starfsemi
finnska flokksins,
fræðslusambandsins og
alþýðusambandsins.
Sendinefndin tók mjög
virkan þátt í starfi þings-
ins. Gylfi Þ. Gíslason,
sem er formaður
menningarmálanefndar
Norðurlandaráðs, flutti
inngangserindi um þau
mál. Bjarni AAagnússon,
fræðslufulltrúi flokksins,
gegndi formannsstarfi í
einni af nefndum þings-
ins. Benedikt Gröndal
f lutti aðalræðu af íslands
hálf u á þinginu. Auk þess
tóku Islendingarnir,
Kristín Guðmundsdóttir,
Jón Karlsson frá Sauðár-
króki og Jón Helgason f rá
Akureyri þátt í nefndar-
störfum og lögðu fram
skemmtikrafta í lokahófi
— ungt söngfólk úr FUJ í
Haf narf irði.
Það er í raun og veru
heimsviðburður, að jafn-
aðarmannaflokkar fimm
þjóða og að mestu verka-
lýðshreyf ingar sömu
fimm þjóða skuli hafa
komið sér saman um
eina, róttæka stefnuskrá.
Hún byggist á jafnaðar-
stefnu eins og hún getur
verið bezt, frelsi og
mannréttindum, félags-
legu öryggi, heilbrigðum
vinnustöðvum og lífsum-
hverfi og öðrum baráttu-
málum samtímans. Þetta
er ekki stefnuskrá
draumóra, heldur raun-
hæf starfsáætlun, sem
telja verður líkur á að
framkvæma megi f næstu
framtíð, ef tekið er mið
af því, sem norrænir
jafnaðarmenn hafa þeg-
ar komið í verk.
í ræðu sinni á þinginu
benti Benedikt Gröndal á,
að samkvæmt hefð-
bundnum hugmyndum
væru Norðurlöndin fimm
ríki með mismunandi
þjóðum tungumálum,
utanríkis- og viðskipta-
stef nu. Sé hins vegar lifið
á Norðurlöndin frá
sjónarhóli hins einstaka
Norðurlandabúa, séu þau
ein heild, þar sem hann
getur ferðazt án skilríkja,
hef ur víðtækt vinnufrelsi,
nýtur sameiginlegra-
trygginga og réttinda og
lifir innan samræmds
réttarkerf is.
Þessi sameining nor-
rænu ríkjanna er komin
neðanfrá, frá fólkinu
sjálf u, og byggist á stuðn-
ingi og vilja þess.
Heimurinn mun á kom-
andi árum veita þessu
samstarfi vaxandi
athygli, af því að það er
einmitt á þennan hátt,
sem unnt er að gera
drauminn um Sameinuðu
þjóðirnar að veruleika, og
engan annan.
Benedikt Gröndal benti
á, að þetta samstarf á
vettvangi Norðurlanda-
ráðs mundi óhjákvæmi-
lega vekja mikla alþjóð-
lega athygli á komandi
árum. Það ætti sérstak-
lega erindi til þróunar-
landanna, þar sem f lestir
ráðamenn og flokkar
virtust aðhyllast sósíal-
isma, en ekki allir gera
sér grein fyrir því, hve
mikla yfirburði lýðræðis-
sósíalismi hefur umfram
einræði og kúgun komm-
únismans. Þess vegna
þyrfti að kynna vel í þró-
unarlöndunum starf
jafnaðarmanna á
Norðurlöndum , sagði
Benedikt Gröndal.
AAeð þinginu í Helsinki í
vikunni sem leið var stig-
ið stórt skref í átt til nán-
ara og raunhæfara nor-
ræns samstarfs en áður.
AAeðal þeirra einstöku
atriða, sem þar voru
samþykkt sem stefnu-
mark norrænu jafnaðar-
mannaf lokkanna og
ver ka I ýðsh rey f i nga nna
er að styðja frárfestingu
á yztu svæðum Norður-
landa svo sem (slandi
með nýrri myndun f jár-
festingasjóða, og er það
eitt ekki lítill árangur
fyrir sendinefnd Alþýðu-
flokksins, þegar höfð eru
í huga hin miklu áhrif
flokkanna og verkalýðs-
hreyfinganna á hinum
Norðurlöndunum.
(slendingar lifa milli
steins og sleggju risa-
veldanna tveggja, þar
sem kjarnorkuvígvélar
þeirra í undirdjúpunum
mætast á úthafinu. Þess
vegna er íslenzku þjóð-
inni ekkert þýðingar-
meira í utanríkismálum
en að eiga góðan þriðja
vin. Sá vinur eru hin
Norðurlöndin. Hann
hef ur oft reynst okkur vel
i raun og hann á eftir að
reynast okkur vel um
langa framtíð. —j—
Merk nýjung í starfi MFA:
Handbók verkalýðs-
félaga er komin út
Menningar- og
fræðslusamband
alþýðu hefur gefið út
Handbók verkalýðsfé-
laga. í formála Björns
Jónssonar fyrir bókinni
kemur fram, að að-
dragandi þessarar bók-
ar er orðinn alllangur.
Hafa verið gerðar sam-
þykktir á ýmsum
mannfundum verka-
lýðssamtakanna sið-
asta áratug um slika
útgáfu, en ekki hefur
orðið af fyrr en nú.
Otgáfa þessi er vissulega
merkur áfangi I fræöslumálum
verkalýöshreyfingarinnar og
ber aö fagna henni og vona, aö
fleira fylgi á eftir. I útgáfunefnd
þessarar bókar áttu sæti, þau
Magnús L. Sveinsson, Bolli A.
Olafsson, Guöjón Jónsson, Þórir
Danielsson og Þórunn
Valdemarsdóttir, en útgáfan
mun hafa hvilt aö mestu á herö-
um Stefáns ögmundssonar for-
manns MFA. Auk þess var Egill
Sigurgeirsson lögfræöingur ASI
til ráöuneytis varöandi lög-
fræöileg atriöi.
Bókin skiptist i átta kafla, og
heita þeir eftirfarandi nöfnum:
1. kafli: Alþýöusamb Islands.
2. kafli: Orlof.
3. kafli: Löggjöf um réttindi
verkafólks.
4. kafli: Heilbrigöis- og
öryggismál.
5. kafli: Tryggingar.
6. kafli: Lifeyrissjóöir.
7. kafli: Húsnæöismál.
8. kafli Hagnýt minnisblöö.
Þessir kaflar skiptast svo I
marga kafla hver um sig,
þannig aö hér er á feröinni mjög
þarflegur fróöleikur fyrir félaga
verkalýöshrey finga rinnar.
Aftan á bókarkápu eru les-
endur bókarinnar beðnir aö
koma á framfæri athuga-
semdum við bók þessa og til-
lögum um efni og efnisþætti.
Vilji menn gera svo, er utaná-
skriftin: Handbók verkalýðs-
félaga, Pósthólf 5281 I Reykja-
vik eða Menningar- og
fræöslusamband alþýðu,
Laugavegi gavegi 18, Reykjavik
EIN-
DÁLKURINN
Sorpblaða-
mennska í
bókstaflegri
merkingu
þess orðs
Striö sumra blaöanna um upp-
lagstölur er komiö niöur á þaö
stig aö geta talizt sorpblaöa-
mennska, í þess orös bókstaflegri
merkingu. Nýlega dvaldi einn
blaöamaöur Þjóöviljans daglangt
i prentsmiðju Árvakurs viö aö
telja upplag Dagblaðsins, og nú
hefur annar fréttamaður sama
blaös eytt vinnudegi á sorphaug-
um Reykjavikurborgar vijj aö
telja búntuö afgangsblöö ViSis og
Morgunblaðsins, sem aö talningu
lokinni reyndust vera „nokkur
þúsund” — og þvi til sönnunar eru
birtar myndir af einum hundrað
eintökum eöa svo,
Ekkihefur sorpfréttamennskan
leitt i ljós hvort þarna var um aö
ræöa eingöngu eintök sama tölu-
blaösins, eöa hvort þetta kynnu
aö vera afgangar mánaöar af
sölustööum borgarinnar. Þjóö-
viljinn gekk þó úr skugga um aö
blöðin höfðu ekki verið lesin.
Nú hefur Þjóðviljinn stungið
upp á þvi aö upplagseftirlit dag-
blaöanna veröi til húsa viö sorp-
haugaReykjavfkur. Þaö væri þá
kannske ekki úr vegi aö siöanefnd
Blaðamannafélagsins fengi aö
setur á sama staö.
Dag skal að
kveldi lofa
Morgunblaöiö kvartar undan
þvi I leiðara i gær aö „rauöskjöld-
óttir” stúdentar hafi ekki minnzt
þess viö hátiðahöld sin aö rikis-
stjórnin hafi fært þjóöinni 200
milna fiskveiöilögsögu án erl-
endra veiöiskipa aö gjöf á full-
veldisdaginn.
Þaö er aö visu rétt, aö hvergi
var á þennan áfanga minnzt i
ræöum i Háskólabiói i fyrradag.
En þá er þess lika aö gæta aö is-
lenzka þjóöin er ekki búin aö fá
fullvissu fyrir þvi aö fiskvciöilög-
saga okkar veröi virt af erlendum
stórveldum. t evrópskum fjöl-
miölum er daglega greint frá þvi
aö þótt Finn Olov Gundelach hafi
ekki tekizt aö ná samningum fyrir
Breta um áframhaldandi veiöar
brezkra togara innan Islenzkrar
landhelgi þá sé hann vongóöur
um aö ná einhverjum árangri i
næstu lotu.
Það er þetta sem veldur þvi aö
islenzk þjóö jafnt iaunafólk sem
„rauöskjöldóttir” námsmenn, er
ekki reiöubúin að fagna unnum
sigri. A.m.k. ekki meðan Bretar
eiga bandamenn i islenzkri rikis-
stjórn. —BS
••••••••••••••••••••••