Alþýðublaðið - 03.12.1976, Page 4
4 FRÉTTIB
Föstudagur 3. desember 1976 S&£S"
Félag einstæöra foreldra efnir
til sins árlega jólabasars að
Hallveigarstöðum laugardaginn
4. desember og hefst hann kl. 2.
Fjáröflunarnefnd FEF hefur
undirbúiö basarinn og verður
þar margt girnilegt til gjafa og
eigu á boðstólum. Þar verðar
seldar kökur, tertubotnar,
formkökur og smákökur sem
félagsmenn hafa bakað f hóp-
vinnu. Seldar verða tusku-
dúkkur sem eftirsóttar eru jafn-
an á jólamörkuðum FEF,
tuskufiskar og prjónaðir
bangsar, sprellihestar, litagraf-
ikmyndir eftir barnateikn-
ingum, púðar, glæsileg hekluð
teppi, tizkuprjónavesti á börn,
peysur og sokkaplögg og svo
mætti lengi telja. Þá verða
iþróttatreflar og jólakort FEF
seld á markaðnum, og er þó fátt
eitt nefnt sem þarna verður.
Allur ágóöi rennur i Húsbygg
ingarsjóð FEF og þvi meira
sem inn kemurþvi hraðar munu
ganga viðgerðir á Skeljanesi 6,
þar sem neyðarhúsnæðifer senn
aö taka til starfa.
Erfólk hvatt tilað koma, gera
góð kaup og styrkja verðugt
málefni.
Aðventukaffi og basar
Vestfirðingafélagsins
- í safnaðarheimili Bústaðakirkju
Mörg átthagafélög i Reykjavik
hafa slikan kaffidag árlega. Þar
mæla sér mót vinir og kunningjar
úr átthögunum, sem annars sjást
sjaldan og fá sér kaffi saman.
Börn koma með foreldrum
sinum, afa og ömmu, þar er
ekkert kynslóðabil. Þessir dagar
hafa verið mjög vinsælir. Vest-
firðingafélagið hefur ekki haft
slikan kaffidag fyrr, en vildi nú
gefa Vestfirðingum kost á að hitt-
ast i safnaðarheimili Bústaða-
kirkjukl.3 á sunnudaginn kemur,
5.des. og fá sér góðar veitingar,
sem verða á boðstólum.
Félagið býður Vestfirðingum 67
ára og eldri, sem vildu og gætu
komið, og væntir þess að yngri
kynslóðin fylgi þeim þangað eða
mæti þeim þar, sem allra fjöl-
mennastir.
Smá basar verður einnig þar,
sem góðir munir fást fyrir litinn
pening.
Ef vinir eða félagsmenn vilja
gefa kökur eða basarmuni tali
þeir við einhvern úr stjórn félags-
ins sem fyrst.
Basar Félags einstæðra foreldra
kisa,
V Mðla.
Sven Aage Madsen
í Norræna húsinu
Þessa dagan dvelst danski rit-
höfundurinn Svend Age Madsen
hér á landi f boði Norræna húss-
ins. Hann er hingað boöinn í til-
efni af hinni árlegu kynningu á
bókum frá Norðurlöndunum, en
laugardaginn 4. desember kl.
16.00 veröa kynntar bækur frá
Noregi og Danmörku f Norræna
húsinu. Svend Age Madsen mun
þá sjálfur fjalla um og lesa upp
úr bók sinni „Tugt og utugt f mell-
emtiden”, en hún er talin einn
helsti bókmenntaviðburður árs-
ins I Danmörku.
Þriðjudaginn 7. desember kl.
20.30 mun Svend Age Madsen
fjalla ftarlegar um rithöfunaferil
sinn og bókmenntaviðhorf sitt, I
Norræna húsinu á vegum þess og
Rithöfundasambands íslands.
Svend Age Madsen er aöeins 37
ára gamall og hóf rithöfundaferil
sinn 1962. Þegar frá upphafi þótti
hann með bestu rithöfundum
Dana, og hann hefur alltaf fengið
mikið lof gagnrýnenda. Eftir
hann hafa komið út tiu skáldsög-
ur, tvö smásagnasöfn, ein barna-
bók og eitt leikrit. Auk þess hefur
hann samið tilraunaleikrit fyrir
sviö og sjónvarp. Af þessu má
helst nefna skáldsöguna „Sæt
verden er til”, en fyrir hana var
honum veitt verðlaun dönsku
Akademiunnar, og skáldsöguna
„Dage med Diam”, sem er með
einkar sérstaka og skemmtilega
uppbyggingu. Tilraunaskáldverk
Svend Age Madsen hafa lengi þótt
með þvi athyglisverðasta á þessu
sviði i Danmörku, en siðasta bók
hans virðist einnig hafa náð hylli
almennings. „Tugt og utugt i
mellemtiden” er þegar komin út i
öðru upplagi, en auk þess hefur
hún hiotið verðlann dagblaöa-
gagnrýnenda i Danmörku og
verður annaö framlag Dana til
bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs. Með þessari bók hefur
Svend Age Madsen tekist að brúa
bilið milli tilraunabókmennta og
lesenda. Það verður ánægjulegt
að kynnast Svend Age Madsen
bæði fyrir islenzka rithöfunda og
fslendinga almennt.
Bókmenntakynn-
ing að Kjarvals-
stöðum
Fjórða bókmenntakynning Rit-
höfundasambands íslands og
Kjarvalsstaða verður sunnudag-
inn 5. desember á Kjarvals-
stöðum kl. 4 siðdegis.
. Þar munu lesa úr verkum sfnum:
Liney Jóhannesdóttir, Sigvaldi
Hjálmarsson, Þorgeir Þorgeirs-
son og Þórunn Elfa Magnúsdóttir.
Fara í náms- og kynn-
isferð til Danmerkur
- halda kökubazar til að fá upp í
ferðakostnaðinn
Næstkomandi laugardag halda
nemendur i Þroskaþjálfaskóla
tslands kökubasar til eflingar
feröasjóði nemendafélagsins.
Námstimi i Þroskaþjálfaskól-
anum er nú 3 ár og afráðið er að
nemar fari I náms- og kynningar-
för til Danmerkur áður en þeir
ljúka fullnaðarprófi.
Með þroskaleikföng I likingu við
þessa einföldu raðmynd er unniö
aö kennslu þroskaheftra.
Málefni þroskaheftra og velferö
þeirra mun vera komin i betra
horf I nágrannalöndum okkar.
Mikilvægt er að islenzkir þroska-
þjálfar eigi þess kost að kynnast
stefnumótun og starfsemi vegna
vangefinna þar sem málefni
þeirra eru komin enn betur á veg
en hér á landi.
Nemendafélagið fjármagnar á
eigin spýtur námsferðina til
Danmerkur i vor. Til þess að
standa straum af ferðakostnaðin-
um verður haldinn kökubasar
næsta laugardag i húsakynnum
dagheimilisins að Lyngási, Safa-
mýri 5 og hefst kl. 14.00.
Það er von nemendafélags
Þroskaþjálfa skólans að sem
flestir borgarbúa sjái sér fært að
styðja framtakiö og leggja leið
sina að Lyngási á laugardaginn
kemur og kaupa sér kökur.
Jólakaffi Hringsins
Komist i jólaskap og drekkið eftirmið-
dagskaffið hjá Hringskonum að hótel
Borg, sunnudaginn 5. des. kl. 3.
Þar verður einnig á boðstólum:
Skemmtilegur jólavarningur, jólakort
Hringsins, jólaplattar Hringsins, skyndi-
happadrætti með fjölda góðra vinninga,
m.a. ferð til Kaupmannahafnar.
Kvenféiagið Hringurinn.
Minnst full-
veldisdags
Finna 6. des.
Fullveldisdagúr Finna er 6.
desember nk. Af því tilefni efnir
Finnlandsvinafélagiö Suomi til
fagnaöar i Norræna húsinu á
mánudagskvöldiö kl. 20.30
Avarp flytur formaöur félags-
ins, Barbro Þóröarson og aöal-
ræöu kvöldsins Ragnhildur
Helgadóttir, forseti islandsdeild-
ar Noröurlandaráös.
Þá koma gestir frá Finnlandi
álenzkir visnasöngvarar, Pia-
Gunn Ancar og Borje Lang. Þau
eru hér gestir félagsins og Nor-
rænahússins og syngja viö undir-
leik Carls Billich.
Sýning veröur á finnskum
skartgripum, sem stúlkur frá
Karon-samtökunum kynna. Einn-
ig veröa sýndar finnskar borö-
skreytingar og ofin veggteppi.
i hléi er kaffi fram borið og
finnsk terta, og aö loknum dag-
skráratriöum snædd létt máltið
og leikin tonlist af plötum.
HORHID
Skrifið eða hringið
í síma 81866