Alþýðublaðið - 03.12.1976, Side 7
Föstudagur 3. desember 1976
;
Allende var myrtur. Þá er
sterkur krataflokkur í Kanada
(The New Democratic Party)
sem stjórnar nokkrum vestur-
fylkjum, og verður næsta þing
alþjóðasambandsins haldið i
Vancouver.
Siðan þarf að koma viða við.
Það er bezt að sleppa viljandi úr
þessari upptalningu öllum
Norðurlandamönnum, af þvi að
þeir eru þekktir á íslandi, en voru
þarna vel mættir, allir nema
Anker Jörgensen, sem var að
bjarga þjóðarskútu sinni úr enn
einni verkfallskreppunni. Það er
ljóta ástandiði Danmörku,en ætli
það verði betra hér á landi fram
eftir næsta ári? Hver veit nema
Geir ætti að láta sér vaxa skegg
eins og Anker?
Ég getekkidregið dul á, að hafi
einn maður, sem ég ekki áður
þekkti, haft meiri og betri áhrif á
mig en aðrir á þessu þingi, þá var
það Yitzhak Rabin, forsætisráð-
herra ísraels. Hógværð og mann-
lega velvild hef ég sjaldan fundið
svo sterka hjá stjórnmálamanni
— en jafnframt skýrleik og dipló-
matiska hugsun i ræðu sem af
bar. Hann hefur ekki hinn óstöðv-
andi lífsþrótt Ben Gurions, né
hina ótrúlegu þrautseigju á bak
við kvenlegan karakter Goldu
Meyer, en mér fannst hann jafn-
ingi þeirra beggja. Israelitar eru
þjóð i raunum, sem bregzt við
raunum sinum, og ættum við
Islendingar að taka þá um margt
til fyrirmyndar — við sem erum
þjóð i raunum, sembregztekkivið
raunum slnum og höfum um
c by men and peoples by peoples is unknown. for a world in which the development of the individual personality
Tákn þingsins
árabil haft sviplausa forustu mið-
að við Ben Gurion, Goldu Meyer,
og Rabin.
Þýzkir jafnaðarmenn hafa,
siöan þeir samþykktu Bad Godes-
berg stefnuskrána og hurfu frá
hefðbundnum marxisma, verið
einn stærsti og eru nú án efa
áhrifamesti jafnaðarmanna-
flokkur heims. Willy Brandt er
þar enn formaður og hann setti
fyrrverandi
Bretiands.
Harold Wilson,
forsætisráöherra
Oiof Palme, fyrrverandi
forsætisráðherra Sviþjóðar.
Bruni Kreisky, kanslari Austur-
rikis.
lýðræðis og stöðva sókn einræðis-
kommúnisma.
Ég gæti talið ýmsa fleiri jafn-
aðarmenn, sem eru frásagnar-
verðir, stóra og smáa, en verð að
láta hér við sitja, Þó vil ég geta
þess, að kvennasamtök jafnaðar-
manna héldu þing á undan þessu,
og gerð þar ýmsar samþykktir.
Konurnar okkar hér heima eru
með dugmestu deildum flokksins,
en geta enn ekki sent þátttak-
endur á slik mót, þótt það verði
vonandi i næstu framtið.
Formaður alþjóðasamtaka
kvenna (sem nú eftir lagabreyt-
ingar fær sæti i stjórn alþjóða-
sambandsins) er glæsileg,
belgisk kona, sem heitir Iréne
Pétry, og hún hopar ekki fyrir
neinum karlkurfi i umræðu, ef á
reynir.
Viljandi hef ég rætt um persón-
ur frekar en málefni i þessari
grein, af þvi að það er forvitni-
legra, og málefnin skila sér
smám saman á einn eða annan
hátt. Samþykktirnar hafa sin
áhrif um allan heim eins og þeim
er ætlað að gera.
Ég ræddi fyrr um áform
Norðurlandanna og Þýzkalands
um að endurvekja alþjóðasam-
bandið. Það fór allt eftir áætlun á
fundum þingsins, þrátt fyrir
nokkra sviptivindi á lokuðum
fundum á undan. Willy Brandt
varkosinn forseti án andstöðu, og
varaforsetar voru kjörnir marg-
ir, auk þess heil hjörð af heiðurs-
forsetum af leiðtogum fyrri
kynslóða. Svo var kosinn aöalrit-
ari Sviinn Bengt Carlsson, sem
□GONGRESS
svip á allt þetta þing. Hann
stendur undir þvi, og þvi meir
sem maður sér til hans, þvi meiri
virðingu fær maður fyrir honum.
A löngum kvöldfundi, þegar
klukkan var yfir niu og fundir
höfðu staðið frá þrjú, hlustaði
hann af einlægni og þolinmæði á
raunir undirokaðra jafnaöar-
manna i Paraguy, Dominikanska
lýðveldinu, Argentinu og fleiri
fjarlægum stöðum. Þegar óþolin-
móðir fulltrúar, sem þurftu að
komast i kvöldverðarboð, töldu
þetta „óþinglegt”, sagði Willy, að
stjórnarmenn væru ekki of góðir
til að lofa þeim að tala, sem
komnir væru um langan veg til að
leita aðstoðar hjá félögum sinum,
jafnaðarmönnum, gegn einveldi,
ofriki og kúgun i heimalöndum
sinum. Það er þetta mannúðlega
viðhorf, sem framar öllu öðru
gerir Willy Brandt svo dáðan sem
raun ber vitni.
Ekki get ég sagt, að ég hafi haft
tækifæri til að kynnast Mario
Soares, forsætisráðherra
Portúgals, þótt um stutt samtöl
væri að ræða. Hins vegar ber
hann með sér svip foringja, að
visu dálitið i átt við erkiengla
gamallar listar, en það hlýtur að
búa i honum harka, eins og hann
barði portúgölsku kommúnistana
niður og hefur leikið valdataflið
siðan. Annars er Portúgal glöggt
dæmi um nýja samstöðu jafn-
aðarmanna á alþjóðlegum vett-
vangi, þvi Soares hlaut geysi-
mikla aðstoð frá flokksbræðrum I
álfunni. Það felst ekki I þessari
stefnu að nein þjóð sé að seilast til
áhrifa hjá annarri. Fjármunir
koma yfirleitt frá verkalýðs-
hreyfingunni (nema á Islandi).
Þeim fylgir engin skuldbinding,
aðeins von um að auka svið
Leopold Senghor, forseti Senegal, tók sæti á þinginu sem fulltrúi
Jafnaðarmanna i Senegai.
Jafnaðarmenn i Senegal eru fyrstir Afrikubúa til að ganga i
Alþjóöasamband jafnaðarmanna.
hefur verið utnarikisfulltrúi
sænska flokksins. Hann sagði i
ræðu sinni, að hann mundi stefna
að fjórum markmiðumj
1) Að gera alþjóðasambandiö
virkara i samböndum milli jafn-
aðarmannaflokka.
Marfo Soares, forsætisráðherra
Portúgals.
2) Að koma á fót miðstöð fyrir
rannsóknir, upplýsingar og
skráningu.
3) Að auka verulega samstarf við
flokka þriðja heimsins, og
4) Að auka stuðning við jafn-
aðarmenn, sem ofsóttir eru i
heimalöndum sinum, t.d. Chile.
Ekki verður dregið i efa, að
þetta alþjóöaþing jafnaðarmanna
i Genf markar timamót. Undir
stjórn Willy Brandts mun hefjast
nýtt timabil, og Bengt Carlsson
mun stýra þróttmikilli skrifstofu
til að styðja við bak forsetans til
stórræða. Vera má, að skrifstofan
verði flutt frá London til að gefa
henni nýtt lif, þótt það sé engan
veginn vist.
Meginverkefnið framundan er
að ná sambandi við þriðja
heiminn og auka áhrif lýðræðis-
legrar jafnaðarstefnu þar. Flest-
ar hinna nýfrjálsu þjóða hafa trú
á sósialisma langt umfram
kapitalisma sem stjórrikerfi, en
margar þeirra skilja ekkl til hlit-
ar muninn á lýðræðislegum
sósialisma eða einræðiskerfi
kommúnismans. Takist þessi
sókn hins nýskapaða alþjóðasam-
bands jafnaðarmanna, getur það
styrkt lýðræði til mikilla muna og
hindrað einræði og ofbeldi i aö ná
yfirtökum yfir öllu mannkyni á
næstu áratugum.
Benedikt Griindal.
og Francois Mitterand, leiðtogi
franskra sósialista.