Alþýðublaðið - 03.12.1976, Qupperneq 8
8 VERKALÝÐSMÁL
Föstudagur 3. desember 1976^!a^fi>*
Föstudagur 3. desember 1976
9
■TO
,,öll yfirvinna á
að vera skattfrjáls"
100 til 150 þúsund á mánuöi á
aO vera lágmark I dagvinnu”,
sagði Jóhann G. Mölier.
„Þaö er ekki hægt fyrir verka-
fólk a6 lifa af launum sinum i dag.
Það sér hver heilvita maður.
Hinsvegar sjáum við verkafólki
þrælað út með yfirvinnu og næt-
urvinnu, sem er meiri en nokkur
skynsemi er i,” sagði Jóhann G.
Möller fulltrúi Vöku á Siglufirði.
„Það er skoðun min. að verka-
fólk eigi að geta lifað af dagvinnu,
sem ætti alls ekki að vera minni
en 100 til 150 þúsund á mánuði fyr-
ir 40 stunda vinnuviku.” Og Jó-
hann bætti við: „Nætur- og eftir-
vinna á siðan að vera skatt-
frjáls.”
Jóhann sagði að það væri órétt-
látt að láta verkafo'lk greiða háa
skatta af næturvinnu og annarri
yfirvinnu. Hér væri um að ræða
aukaframlag’sem fólk leggði af
mörkum og sliti sér út við. Það
væri vissulega þjóðhagslegt
framlag þegar verkamenn tækju
að sér mikla næturvinnu þegar
þörfværiá miklu vinnuafli. „En
þessi vinna á þá að vera skatt-
frjáls.” sagði Jóhann G. Möller.
„Ég llt á útilokunarstefnuna i verkalýðshreyfingunni sem algera fjar-
stæðu” sagOi GuOrún ólafsdóttir, formaOur Verkakvennafélags Kefla-
víkur og NjarOvikur.
„Fólk er
ekki spurt
um stjórn-
mólaskoð-
anir þegar
það gengur
í verka-
Verkalýðshreyfingin er farin að gera lýðsféiag"
ser grein
Jón Karlsson, forseti Alþýðu-
sambands Norðurlands, sagði
þegar blaðamaður Alþýðublaðs-
ins hitti hann á þinginu i gær, að
sér f yndist mikilvægt hvað verka-
lýðshreyfingin væri farin að
vakna til meðvitundar um gildi
fræðslustarfsins.
Jón sagðist hafa haft tækifæri
til að kynna sér nokkuð fræðslu-
starf verkalýðshreyfingarinnar i
Finnlandi. „Þá sá ég hversu langt
við erum á eftir i þessum málum.
Hér er mikið verk að vinna,”
sagði Jón Karlsson. „Og eg held
að við höfum farið vel af staö. Við
erum sem sagt rétt búnir að
byggja grunninn. Nú er að byggja
ofaná.”
Jón lagði mikla áherzlu á um-
ræðurnar um kjaramálin. „Ég
vona að þau mál fái viðunandi af-
greiðsiu,” sagði Jón Karlsson.
Þá vék Jón að stefnuskránni.
„Þar er einnig verið að stiga mik-
„Hér er mikiö verk aö vinna”,
sagöi Jón Karlsson forseti Al-
þýðusambands Noröurlands.
fræðslustarfs
ilvægt spor fram á við.” Jón
sagðist þvi miður ekki hafa getað
fylgzt með öllum umræðunum,
enda væri margt annað sem þing-
fulltrúar gerðutheldur en rétt það
sem fram færi i sjálfum salnum
og það munu vera fleiri en forseti
Alþý ðusambands Norðurlands
sem þannig er ástatt með.
Málefni öryrkja
mesti smánarblett-
ur þjóðfélagsins
AOalheiOur Bjarnfreösdóttir, for-
maður Sóknar.
Það verður ekki annað sagt en
að hún Aðalheiður Bjarnfréðs-
dóttir hafi veriö i sviðsljósinu að
undanförnu. Hún hefur lika verið
á eilífum þönum ekki aðeins á Al-
þýðusambandsþingi, heldur hefur
hún einnig verið að halda ræður
hjá stúdentum, tala i útvarp og
hitta fólk að máli hér og þar.
Aðalheiður segir aö málefni ör-
yrkja séu stærsti smánarblettur
þjóðfélagsins i dag. „Við i Sókn
höfum verið að vekja athygli al-
mennings á þeirri sviviröilegu
meðferð sem láglaunafólk sætir.
Svo er þaö með ellilifeyrisþeg-
ana. Það er annað hneyksliö,”
sagði formaður Sóknar, Aðalheið-
ur Bjarnfreðsdóttir.
Aðalheiður sagðist vilja beita
öllum sinum ráðum til þess að fá
Alþýðusambandið til að taka á-
kveðna afstöðu til þessara mála
og framfylgja þeim.
Guðrún ólafsdóttir Verka-
kvennafélags Keflavikur og
Njarðvikur, sagði að þetta væri
mikið og gagnlegt þing. Umræð-
urnar um fræðslumálin hefðu
verið góðar.
„Fræðslumálin eru stórmál og
ég er mjög ánægð með þá stefnu
sem verkalýðshreyfingin hefur
tekið i sambandi við þau,” sagði
Guðrún.
Þá vék hún að handbókinni,
sem MFA hefur gefið út. „Þessi
bók þyrfti að komast i hendurnar
á sem allra flestum i verkalýðs-
hreyfingunni”, sagði Guðrún
ólafsdóttir.
Hún sagði aö það væri átakan-
legt hve almenningur væri fáfróð-
ur um rétt sinn i þjóðfélaginu.
Þessi bók bætti vissulega nokkuð
úr þeim vanda.
Blm.: —Hvað segirðu annars
um pólitikina og kosningu til mið-
stjórnar?
GÓ.: „Verkafólk er ekki spurt
um stjórnmálaskoðanir þegar
það gengur i verkalýðsfélag. Ég
lit á útilokunarstefnuna i verka-
lýðshreyfingunni sem algera
fjarstæðu. Ég er á móti öllu of-
beldi gegn minnihlutahópum og
ég er á móti þvi að reka fulltrúa
fjölmennra minnihlutahópa út úr
miðstjórn Alþýðusambandsins.”
Guðrún ólafsdóttir sagðist ekk-
ert fara dult með sinar pólitisku
skoðanir, en i verkalýðshreyfing-
unni og i hennar verkalýðsfélagi
væri réttur allra hinn sami, hver
svo sem stjórnmálaskoðun þeirra
væri.
Auk Guðrúnar ólafsdóttur sitja
fimm aðrar konur Alþýðusam-
bandsþing, en þær eru: Guðbjörg
Þórhallsdóttir, Guðrún Arnadótt-
ir, Maria G. Jónsdóttir, Maria L.
Jónsdóttir og Sonja Kristjansen.
HEF EKKI ORÐIÐ
FYRIR VONBRIGÐUM
„Félk tekur þetta starf alvar-
lega”, sagöi Ragna Bergmann
„Þetta hefur verið mjög mál-
efnalegt þing”, sagði Ragna
Bergmann þegar blaðam. Al-
þýðublaðsins hitti hana á þinginu
i gær.
„Það er margt sem hefur kom-
ið inn i sviðsljósið og þá fyrst og
Texti; Bragi Jósepsson
fremst umræðurnar um kjara-
málin og i þeim málum verðum
við að gera eitthvað róttækt. Þá
er alveg nauðsynlegt að rétta viö
lifeyrissjóðina og bæta kjör aldr-
aðra og öryrkja,” sagði Ragna
Bergmann.
Þá vék hún að stefnuskránni.
Hún sagðist ekki vera viss um að
það tækist að ná samstöðu um
hana á þessu þingi. Betra væri
einnig að visa henni til milli-
þinganefndar heldur en sam-
þykkja eitthvað, sem menn gætu
ekki verið ánægðir með.
„Þetta er i fyrsta sinn sem ég
sit Alþýðusambandsþing og ég
hef svo sannarlega ekki. orðið
fyrir vonbrigðum. Hér er mikið
að gerast og fólk tekur þetta starf
alvarlega”, sagöi Ragna Berg-
mann fulltrúi Verkakvennafé-
lagsins Framsóknar.
,,Pólitíkin ræður
ekki öllu í verka-
lýðshreyfingunni'
— sagði Sigurður Óskarsson
fulltrúi frá Hellu
„Ýmsir
glepjast
manna”,
son.
stjórnmálamenn láta
af kröfupólitik náms-
sagöi Siguröur óskars-
Sigurður Óskarsson, Verka-
lýðsfélaginu Rangæingi, deildi
mjög hart á kröfupólitik náms-
manna. „Það á aö styrkja þá eina
til náms sem eru i skólunum til
þess að nema,” sagði Sigurður.
„En það á lika að styöja og
styrkja verkafólk til að læra,”
bætti hann við.
Þegar blaðam. Alþýðublaðsins
Rætt samðn á ASt-þingi: Björn Jónsson forseti, Jón
Karlsson formaöur Alþýöusambands Noröurlands og
Stefán úgmaindsson formaöur Menningar- og fræöslu-
sambands alþýöu.
„Leiðin í fræðslu-
málum verður að
liggja í gegnum
vinnustaðina og
verkalýðsfélögin"
1 framsöguræðu sinni um
fræðslustarf Alþýðusambandsins
sagði Stefán Ogmundsson að
nauðsynlegt væri aö byggja upp
svo traust trúnaðarmannakerfi á
islenzkum vinnustööum að það
reyndist verkalýðssamtökunum
sú brjóstvörn sem enginn fengi
bugað.
„Vinnustaðurinn er okkar ann-
að heimili en víð eigum lika að
gera þetta heimili að gróðurreit
fyrir hugsjónir og lif samtak-
anna. Við eigum að krefjast þess
að fá þar mannsæmandi aðbúnað
og fullkomna félagslega aðstöðu.
Þar eigum við meðal annars að
ræða kröfugerð og stefnumótum i
kjarasamningum og samninga á
svo til hverju stigi. Samningar
siðustu ára taka til sifellt fleiri
mála af félagslegum toga: hús-
næðismála, skattamála trygg-
inga orlofsmála og heilsuvernd-
ar. öll þessi mál eiga að ræðast á
vinnustað og siðan I verkalýðsfé-
laginu. Oll stærstu málin sem
— sagði Stefán
Ögmundsson,
formaður MFA
fjallað er um i borgar- og sveitar-
stjórnum auk fjölmargra þing-
mála eru málefni sem varða
verkafólkið á vinnustað og verka-
lýðsfélagið beinlinist og ættu aö
ræðast þar. Og þaðan á aö beina
þrýstingi til viðkomandi valda-
stofnana. Það er fátt sem er
vinnustaðnum og verkalýðsfélag-
inu óviökomandi. Pólitiskt kjörn-
um fulltrúum þings og sveitar-
stjórnar höfum við aldrei gefið
neinn einkarétt á þvi að fjalla um
þá þætti lifskjaramála alþýðu,
sem ráðið er til lykta ,í pólitisk-
um valdastofnunum þjóðfélags-
ins.
spurði Sigurð hvort hann hafi ekki
kveðið of hart að, i sambandi við
baráttu námsmanna, sagöi hann:
„Kannski er sannleikurinn harð-
ur.”
Sigurður sagði að ýmsir stjórn-
málamenn létu glepjast af kröfu-
pólitik námsmanna vegna þess að
þetta væri fjölmennur hópur. Ef
menn færu að skoða þessi mál i
alvöru ogkynna sérhvað um væri
að ræða mundu menn sjá hvilik
fásinna hér væri á ferðinni.
Blm.: — Hvað finnst þér annars
um störf þingsins?
SÓ.: „Mér finnst það málefna-
legt og litið um málþóf. Mér
finnst að hér riki yfirieitt meiri
friðurheldurenég hafðilátið mér
detta i hug. Þetta er fyrsta þingið
sem ég sit,” sagði Sigurður Ósk-
arsson.
Sigurður sagði að pólitikin réði
alls ekki öllu i verkalýöshreyfing-
unni eins og oft væri sagt. Að visu
væru átök um einstök mál, „og
órólega deildin losnar stundum
við jörðina vegna þess að hún hef-
ur svo miklar hugsjónir.”
Að lokum sagði Sigurður ósk-
arsson: „Ég er sannfærður um að
það verður alger eining um kosn-
ingu i miðstjórn Alþýðusam-
bandsins, enda eru það margir al-
vörumenn hérna á þinginu, sem
fara ekki út i leikaraskap.”
Auk Sigurðar eru tveir aðrir
fulltrúar frá Verkalýðsfélaginu
Rangæingi á Hellu, en þeir eru
Hilmar Jónasson og Ingvar
Agústsson.
Frá fólkinu á vinnustööum og
trúnaöarmönnum þess eiga for-
ystumenn verkalýðsfélaganna að
fa hugmyndir og tillögur og þrek
til að bera þær fram til sigurs.
Það'er lika að minu viti óhugs-
andi fyrir verkalýðshreyfingun
að rækja fræöslustarf i verka-
lýðshreyfingunni að nokkru
markiánþessaöeiga trausttrún-
aðarmannakerfi og lifandi vinnu-
staðastarf. A stuttum ferli MFA
höfum við kynnst þvi að rödd aug-
lýsingarinnar i fjölmiðlum nær
skammt i dag, nema hrópað sé
með tilstyrk fjármagns sem engir
ráða yfir nema sterkustu gróða-
öflin I þjóöfélaginu. Leið okkar I
fræðslumálum verður þvi fyrst og
fremst að liggja i gegnum vinnu-
staðina og verkalýðsfélögin.
Það mun sennilega veröa nokk-
ur bið á því að islenzkt verkafólk
sem stjórnar vélum og framleiðir
verðmætin eignist þær og ráöi yf-
irþeim.Enöðru getum viðráðið.
Við getum ráðið anda vinnu-
staðarins. Það er á okkar valdi.
Þar getum við látið hugsjónir
og markmið verkalýöshreyfing-
arinnar ráða, anda samhjálpar
þekkingar og einingar.
Af þessu þingi skulum við láta
þann skilning breiöast út um
landið allt, að vinnustaðurinn sé
eign verkafólksins I þessum
skilningi. Eignaréttur atvinnu-
rekandans nái aöeins til dauðra
hluta.”
Þetta voru lokaorð Stefáns Og-
mundssonar i framsöguræðu um
fræðslumál Alþýöusambandsins.
Myndir: Axel T. Ammendrup