Alþýðublaðið - 03.12.1976, Síða 11
sbs* Föstudagur 3. desember 1976
UTLOWP 11
Brezka Ijónið f kröggum:
ERLEND LAN MUNU AUKA AHRIF BANDA-
RÍKJANNA A EFNAHAGSSTEFNU BRETA
Stóra-Bretland var
einu sinni eitt af mestu
iðnrikjum heims og eitt
af sterkustu aðilum á
gjaldeyrismarkaði
heimsins. Um þessar
mundir er staðan önnur
i þeim herbúðum, þvi
að Bretland er mjög
hrjáð af kreppu þeirri
sem plagað hefur
Vesturlönd að undan-
förnu.
krata, en stjórnin sú hafði á
prjónunum áætlun um ýmsar
umbætur i landbúnaðarmálum,
meðal annars uppskiptingu
landsvæða i eigu stóreigna-
manna og fleira i þá áttina.
þessar ráðagerðir köfnuðu i fæð
ingu og er talið aö það sem aðal-
lega hafi orðið til þess hafi verið
þrýstingur frá Alþjóða gjald-
eyrissjóðnum vegna umsóknar
um lán úr sjóðnum sem Chile--
stjórn lagði þar inn á sama
tima. Þegar Allende-stjórnin
var viö völd i Chile, var mjög
þrengt að fyrirgreiðslum varð-
andi lán úr AG og komst þá
lánsupphæðin niður i 80 milljón-
ir dollara — liklega vegna þess
James Callaghan heldur um stjórnvöl bresku þjóöarskútunnar sem
stendur. Erfiðleikar I efnahagsmálum landsins gætu þó orðið tii
þess aðhann yrði að láta stjórnina í hendur öðrum.
Bresk stjórnvöid hafa sóttum
lánupp á 14 milljarða dollara til
Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og
einnig til Bandarikjanna. Bret-
land verður þvi liklega fyrst i
röðinni af vestrænum iðnrikjum
til þess að lenda i aðstöðu, sem
beinlinis neyðir stjórnvöld að
hlýða ábendingum um aðgerðir
i gjaldeyrismálum landsins, en
fá i staðinn lán til þess að bjarga
efnahagnum. Ef fer sem horfir,
mun Italia liklega fylgja á eftir
mjög fljótlega.
Þróunin bendir eindregið til
þess að vaxandi ameriskra
áhrifa gæti i pólitisku og efna-
hagslegu lifi Bretlandi, sérstak-
lega þegar þess er gætt að
Bandarikin leggja langstærsta
skerfinn af öllum löndum til
Alþjóða gjaldeyrissjóðsins
(AG) og hafa neitunarvald i öll-
um ákvörðunum sjóðsins.
Hingað til hafa aðilar hins al-
þjóðlega peningamarkaðar látið
nægja að hafa strangt eftirlit
með þeim lánþegum sem til-
heyra „þróunarlöndunum”.
Hins vegar hefur AG hert mjög
eftirlitmeð innflutningi og opin-
berum gjöldum i löndum eins og
Argentinu, Suður-Kóreu og
Zaire á siðustu árum.
Fyrir ári siðan sameinuðust
margir bandariskir bankar i
einkaeigu um það að bjóöast til
þess að veita stjórn Perú nokkra
aðstoð, en þó með þvi skilyrði að
hin vinstri sinnaöa stjórn sem
þá sat i landinu, breytti um
stefnu (gagnvart Bandarikjun-
um væntanlega).
A siðasta áratug var við völd i
Chile stjórn kristilegra demó-
að Allende visaði ýmsum kröf-
um sjóðsins um eftirlit með
innanrikismálum Chile alger-
lega á bug. Herforingjastjórnin
sem nú situr i Chile er hins veg-
ar mun samvinnuþýðari við
Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og
nemur lán sjóðsins til hennar
alls um 2.5 milljörðum dala.
Nú eru svo Bretland og ttalia
komin á vergang, sem liklega
hefði þótt heldur ótrúlegt fyrir
fáeinum árum. Þar með munu
áhrif Bandarikjamanna á
innanrikismál nánustu banda-
lagsþjóða þeirra i NATO fara
vaxandi. Þróun stjórnmála i
löndum þessum hefur undanfar-
ið valdið talsverðum áhyggjum
hjá ráðamönnum vestra, en sér-
staklega hafa þeir þó lýst
áhyggjum vegna þróunar mála
á ttaliu.
Það þykir mörgum það frem-
ur kaldhæðnislegt, að Bretar
skuli nú þurfa að leita á náðir
Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, þar
sem að stofnun sjóðsins árið
1944 hafi einmitt orðið upphafið
að erfiðleikum Breta á efna-
hagssviðinu. Um leið og sjóður-
inn varstofnaður, var enda doll-
arinn gerður að aðalviðmið-
unargjaldmiðli heimsins i stað
breska pundsins, og sjóðurinn
skyldi sjá um að jafna út allar
sveiflur er kynnu að koma i
gjaldeyrismálum heimsins.
Nú hafa hinar 130 aðildarþjóð-
ir sjóðsins lagt i hann samtals
um 21.2 milljarða dollara, enúr
honum geta þær svo fengið lán
sem nemur allt að 145% af
framlagi þeirra. Hins vegar
hefur stjórn sjóðsins heimild til
að setja hverjum umsækjanaa
um lán strangar reglur, sér-
staklega ef um er að ræða gaml-
an skuldunaut sjóðsins.
Neitunarvald Banda-
rikjanna
Til þess að hljóta samþykki,
þarf tillaga um lán úr Alþjóða
gjaldeyrissjóðnum að hljóta
85% atkvæða stjórnarfulltrúa,
en tala þeirra er svo i réttu hlut-
falli við framlag hvers lands til
sjóðsins. Bandarikin leggja
fram 20% af heildarfjármagni
til hans og hafa neitunarvald i
öllum ákvörðunum varðandi
fjármagnið og áhrifavald á
setningu skilyrða og reglna
vegna lána úr sjóðnum.
Skilyrðum þessum er ætlað að
tryggja örugga endurgreiðslu
lánanna og einnig það að reyna
að sjá til þess að lánin geri það
gagn sem þeim er ætlað.
BeiðniBreta um 3.9 milljarða
dollara lán frá sjóðnum, auk 10
milljarða láns frá Banda-
rikjunum, Þýskalandi og öðrum
stórum viðskiptaaðilum, mun
fylla lánskvóta Breta. En það
sem ef til vill er þýðingarmeira
að skoða i þessu sambandi, er
að Bretar verða liklega til-
neyddir að láta Alþjóða gjald-
eyrissjóðinn stjórna efnahags-
málum sinum óbeint — en sú
staða gætisvohaft i för með sér
pólitiska kreppu á Bretlands-
eyjum, klofning Verkamanna-
flokksins, fall rikisstjórnar-
innar og fleira.
Lánamálin i
brennipunkti
Umræðan um lánsskilyrði
Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og
viðskipti Breta við hann er
þegar orðið höfuðmál stjórn-
málabaráttunnar i Bretlandi.
Væntanlega munu umræður enn
harðna innan skamms tima,
þegarfulltrúarsjóðsinskoma til
Lundúna til að fjalla um við-
skiptin við breska aðila.
James Callaghan og
fygirrennari hans i embætti,
Harold Wilson, hafa báðir hall-
ast að þvi að beina efnahags-
stefnu' rikisstjórnarinnar inn á
svipaðar brautir og ihaldsmenn
hafa á sinni stefnuskrá — aö
veita fjármagni til stórra og
smárra einkafyrirtækja: að
reyna að hressa upp á einka-
framtakið. Þetta er liklega gert
i þeim tilgangi að reyna að
friða lánadrottnana i vestri. A
siðasta ári stóð Wilson til dæm-
isaðþviaðveita dótturfyrirtæki
’bandariska stórfyrirtækisins
Chrysler i Bretlandi lán og
gjaldfresti á skuldum fyrirtæk-
isins.
Callaghan hefur varið mikl-
um tima til þess að reyna að fá
Alþýðusambandið breska til
þess að taka upp „ábyrga
stefnu” i kjaramálum, að hafa
hemil á kauphækkunum (tak-
marka þær við 4.5% á ári). n
Callaghan hefur sagt að á
næstu þremur árum verði út-
gjöld á f járlögum rikisins skorin
talsvert niður, en félagar i
Verkamannaflokknum eru hins
vegar alls ekki á eitt sáttir um
afstöðu til þeirrar yfirlýsingar.
Stjórn Verkamannaflokksins
hefur þannig sætt vaxandi
gagnrýni vinstri arms flokksins
og alþýðusamtakanna, og hefur
meðal annars verið bent á að-
stoð stjórnarinnar við einka-
reksturinn sem einna ámælis-
verðustu efnahagsaðgerðina.
Þrátt fyrir að forysta alþýðu-
samtakanna hafi tekið vel i þau
tilmæli stjórnarinnar að halda
aftur af kaupkröfum, þá hefur
hún lýst áhyggjum sinum varð-
andi framtiðarþróun i efna-
hagsmálum i Bretlandi. Er
einkum nefnt, að rikisstjórnin
kunni að gripa á næstunni til
niðurskurðar á einhverjum
stórum útgjaldaliðum rikisins,
svo sem að draga úr framlögum
til sjúkratrygginga,
Vinstrisveiflan
A árlegu þingi Verkamanna-
flokksins i október visaði vinstri
armurflokksins algerlega á bug
hugmyndum Callaghans um
niðurskurð opinberra útgjalda.
Talsmenn vinstri manna vildu
taka öðru visi á vandamálum
Breta, til dæmis að auka fram-
lög til samfélagslegra verkefna
og þjóðnýta bankana.
Alan Fisher, leiðtogi samtaka
opinberra starfsmanna, sagði:
„Ég vil taka upp stefnu í efna-
hagsmálum sem stiar okkur frá
umheiminum”. Þar átti hann
einkum við það, að herða að
mun eftirlit með innflutningi og
innleiða frjálsari samninga um
kaup og kjör en tiðkast hefur til
þessa.
Járnfrúin Margaret Tatcher,
leiðtogi íhaldsflokksins, hefur
notfært sér erfiðleika stjórn-
valda I Bretlandi til þess að
herða enn áróður fyrir nýjum
kosningum og íhaldsstjórn.
Gjaldkeri Verkamanna-
flokksins og einn af leiðtogum
vinstri armsins, Norman Atkin-
son, sagði við sama tækifæri:
„Við munum aldrei geta upp-
fyllt allar kröfur þeirra sem
sækjast nú eftir að lána okkur
peninga”.
Vinstri menn segja að hug-
mynd þeirra um aukið aðhald i
innflutningi myndi leiða til mun
hagstæðari jöfnuðs i vöruskipt-
um Breta við önnur lönd. Þeir
segja lika, að þjóðnýta beri
banka og tryggir.gafélög með
auknar fjárfestingar i fram-
leiðslunni i huga (nýjar verk-
smiðjur o.s.frv.) Einnig þurfi
hert eftirlit með óarðbærum
gróðafyrirtækjum og stöðva eigi
þann straum fjármagns sem nú
er frá Bretlandi.
Margaret Tatcher, leiðtogi
Ihaldsflokksins, hefur haldið
mjög á lofti stefnu i efnahags-
málum, sem stangast algerlega
á við hugmyndir vinstri sinna i
Verkamannaflokknum. Hún tal-
ar mikið um aukinn niðurskurð
opinberra útgjalda og skal sá
niðurskurður einnig ná til ým-
issa útgjalda rikisins vegna
samfélagslegra þarfa. Hún hef-
ur hamrað mjög á þvi undanfar-
ið, að flokkurinn verði að búa
sig undir kosningar á næstunni
og visar þá gjarnan til þess
klofnings sem sjáanlegur er i
röðum Verkamannaflokksins.
Astandið i Bretlandi varðar
hagsmuni Bandarikjanna ekki
litið, þar sem þesslensk fyrir-
tæki hafa fjárfest á Bretlands-
eyjum fyrir 14 milljarða dollara
og árlegur útflutningur Banda-
rikjamanna til Bretlands nemur
4.5 milljörðum dollara.
Þegar ákvörðun verður tekin
um það, hvaða skilyrði beri að
setja Bretum, vegna lántöku úr
Alþjóða gjaldeyrissjóðnum, þá
standa embættis- og stjórn-
málamenn sjóðsins og Banda-
rikjanna frammi fyrir tveimur
möguleikum: annað hvort að
ganga hreint til verks og lýsa
yfir stuðningi við stefnu ihalds-
samari arms Verkamanna-
flokksins undir forystu Callag-
hans forsætisráðherra, eða að
auka enn þrýsting á breytingar
á fjárhagsáætlun rikisins, auk-
inn niðurskurð opinberra gjalda
o.s.frv. Þessi valkostur kynni
hins vegar að kljúfa Verka-
mannaflokkinn enn meira en
orðið er og það gæti svo leitt til
þess að thaldsflokkurinn kæm-
ist i rfkisstjórn á nýjan leik.
Vist er um það að hugsanleg
rikisstjórn thaldsflokksins
myndi siður en svo vera erfiður
ljár i þúfu fyrir Bandarikja-
menn. Hins vegar vita þeir það,
að slik rikisstjórn myndi auka
væringar á vinnumarkaðnum i
Bretlandi meira en orðið er og
þar myndi fljótlega loga allt i
verkföllum og vinnudeilum. Þvi
er það, að margir álita að aðeins
Verkamannaflokkurinn sé þess
megnugur að lappa upp á efna-
hag Bretlands á þessari stundu
og samtimis halda aftur af
kjarakröfum verkalýðshreyf-
ingarinnar og vinstri sinna i
flokknum.
Sumir stjórnmálamenn i
Bandarikjunum, þar á meðal
Henry Kissinger, vilja lita á
lausn efnahagsvanda Breta i
ljósi framtiðarþróunar i land-
inu. Þeir hafa lýst áhyggjum
sinum vegna hugmynda um að
rjúfa Bretland að einhverju
leyti úr sambandi við alþjóða-
verslun og-vöruskipti — eins og
vinstri arraur Verkamanna-
flokksins hefur sett á oddinn.
Þetta segja þeir muni hafa ill á-
hrif á eininguna i aiþjóða-
versluninni og einnig að það
gæti leitt til þess að margar lok-
aðar verslunarblokkir myndist i
heiminum. Þetta hafi gerst á
árunum á milli heimsstyrjald-
anna og leitt til siðari heims-
styrjaldarinnar.
(Byggt á grein eftir banda-
riska tjlaðamannainn Peter
Wiley, en liann hefur sérhæft sig
i vandamáluni í alþjóðasam-
skiptnm á efnahagssviðinu og
hefur skrifað mikið um þau
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Sim i 7 1200 — 7 4201
%C<'
£
^ "'Q
POSTSENDUM
TRULOFUNARHRINGA
JtotMimcs TLriisson
l.uigiiurgi 30
íé'imi 10 200
Dúnn
Síðumúla 23
/ími 84100
i
Heimiliseldavélar.
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Oðmstoig
Simai 25322 og 10322
Birgir Thorberg
malarameistari
simi 11463
onnumst alla
málningarvinnu
— uti og inni —
gerum upp gomul husgbgn