Alþýðublaðið - 07.12.1976, Side 5
VETTVANGUR 5
5S^JTjÞriðjudagur 7. desember 1976
Listdanssýning í Þjóðleikhúsinu:
1 ólalj 6s í dimmnm
desembermániiði
Ég setti eitt sinn i
bland með öðrum orð-
um, linur um islenzka
dansflokkinn og nem-
endur Listdansskóla
Þjóðleikhússins og
virðist hafa verið ákaf-
lega glaður. Ég er enn
glaðari i dag, þegar ég
hripa þakklætisorð til
allra þeirra sem tóku
þátt i listdanssýning-
unni sl. fimmtudag, og
átti að sýna aftur á
föstudag og siðan slútt.
Auðvitað kann ég engin
skil á göldrum þeim
notuðum við rekstur
eins þjóðleikhúss en
hefði gaman að vita af
hverju flokkurinn fær
ekki að draga til sin á-
horfendur eins og þeir
endast að koma. Eins
og móttökur voru á
fimmtudagskvöld, svo
og öll „stemning” eins
og það heitir á leikhús-
máli eða hugblær eða
hvað viljum við kalla
það, yrðu sýningar
mun fleiri en tvær.
Islenzki dansflokkurinn hefur
starfað i hálft fjórða ár og nýtur
nú styrks frá þingi og stjórn til
að létta starfið og þar með
viðurkenningarogi dilk dreginn
með öðrum þeim sem fremja
list á Islandi.
Það eina sem á skorti var
reynslan, að dansa fyrir áhorf-
endur. Sú reynsla fæst ekki með
þvi að hlaupa á svið svona
sturidum af þvi þaö vantar spor
i myndina. Reynsla fæst ekki
heldur með nemendasýningu
tvisvar á ári eða varla það. Nú
þarf að hamra járnið meðan
heitt er, skapa dönsurunum að-
stöðu, styðja þá til dáða, ljá
þeim skjól til náms og þak yfir
svið, en æ, hvað þarf ekki að
gera á þessu landi bak við tungl
ogstjörnur? Hérbiða söngvarar
i löngum röðum og óperuhús er
svo gamall draumur, að menn
eru að gleyma honum. Vont er
að nefna til heiðurs dansara, en
ekki verður gerð nein tilraun til
að dæma, heldur bara fullyrða
að ég naut hverrar minútu,
stúlkurnar allar hver annarri
betri, og karldansarar athygli
verðir. I fyrsta verkefninu,
svitu Ur Svanavatninu, 2. þætti,
komufram Auður Bjarnadóttir
og gestur kvöldsins, Per Arthur
Segerström og var mikiö yndi
að sjá þau tvö. Það var eins og
þau bæru mikið traust hvort til
annars, virtust þekkja leikni
hvors annars og kannski tak-
mörk. Gott samspil.
Þá langar mig að nefna ólöfu
Bjarnleifsdótturog ungan dans-
ara Einar Svein Þórðarson og
ákaflega varð ég hrifinn af
rússneskum dans sem þær
dönsuðu Helga Bernard, Kristin
Björnsdóttir, Birgitta Heide,
Nanna ólafsdóttir og Ingibjörg-
Björnsdóttir. Helga er glæsileg-
urdansari. Ásdis Magnúsdóttir
og örn Guðmundsson
dönsuðu vel dans eftir Natalie
UR LEIKHUSINU
Konjus, Styttur bæjarins við
tónlist Spilverks þjóðanna. Þá
var atriði úr Gosbrunninum i
Bakchisarai, svita og þriðja
þætti Svanavatnsins og sýning-
unni lauk með Les Sylphides.
Auk nemenda Listdansskóla
Þjóðleikhússins, voru virkjaðir
til spora, leikararnir Harald G.
Haralds og Sigmundur örn
Arngrimssonog tek ég ofan hatt
minn fyrir þeim.
Nýr ballettmeistari er nú
starfandi hjá Þjóðleikhúsinu,
Natalie Konjus og á hún að
baki langan feril og litrikan.
Þegar linnulaust lófatak,
þakklátra og glaðra áhorfenda,
fyllti salinn, og aðstandendur
tóku við, saknaði ég þess, að
ekki skyldi vera „lifandi” mús-
ikúr gryfjúnni.Það var „triste”
aðheyra músikina alla af glym-
skratta.
Leikmynd var eftir Sigurjón
Jóhannsson, litil en smekkleg,
og ákaflega voru búningarnir
hans fallegir, svo skrautlegir og
honum mjög til sóma.
í dimmum mánuði, var þessi
sýning eins og jólaljós.
6. des 1976
Jónas Jónasson
Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi á 15 ára afmæli Auglýsingastofunnar h.f.:
Leiðarvísir að
þj óðf élagi
Ein af áhrifameiri auglýsing- Alþjóðlegt samstarf
um i Reykjavikurborg kann að
vera á hliðum strætisvagnanna.
En hvað ætli slik auglýsing kosti.
Samkvæmt heimildum i
kynningarbæklingi Auglýsinga-
stofunnar hf. (Gisli B. Björnsson)
kostarþað 353.625 krónur að hafa
auglýsingu, 50 sm á hæð og 250 sm
á lengd á 75 vögnum i heilan
mánuð. Þessu til viðbótar kemur
svo kostnaður af gerð auglýsing-
arinnar og silkiprentun hennar á
plastfilmur, sem limdar eru á
vagnana.
1 bæklingnum Advertising in
Iceiandsem gefinn er út á ensku
má finna margvislegar upp-
lýsingar um islenzkt þjóðfélag
(neyzluþjóðfélag) og leiðir til að
koma vöru og þjónustu á fram-
færi við islenzka kaupendur.
Birtar eru upplagstölur dag-
blaðanna, nokkurra timarita og
skýrt frá auglýsingaverði, getið
möguleika og verðs i útvarpi og
sjónvarpi og stiklað á helztu
öðrum leiðum, svo sem útiaug-
lýsinga, eins og greint hefur verið
frá. Þó eru ekki nefndar aug-
lýsingar i tengslum við iþrótta-
leiki, hvorki á búningum leik-
manna né auglýsingaspjöldum
við leikvelli.
Þá er i sérstökum kafla fjallað
um sérkenni islenzks markaðar
og nefnd 11 sérstök atriði, sem
vert er fyrir erlenda framleið-
endureða auglýsendur að átta sig
á. Svo sem eins og kaupgetu
námsfólks og þess kaupæðis sem
stundum gripur um sig i fylgd
verðbólguóttans.
Auk fyrrgreinds bæklings hefur
Auglýsingastofan gefið út
vandaðan kynningarbækling um
starfsemi stofunnar, en um þess-
ar mundir eru 15 ár liöin frá
stofnun hennar. Sá bæklingur er
prentaður á ensku og islenzku og
sýnir margvisleg verkefni
stofunnar, þar sem greint er nafn
auglýsanda, hvað auglýst var,
birtingarstað og stund.
1 ritinu, sem nefnist Augiýsing-
ar i 15 árer gerð grein fyrir þvi i
hver ju starfsemi auglýsingastofu
er fólgin og hvað vinnst með þvi
að skipta við slik fyrirtæki.
Útgáfa þessara bæklinga
tveggja stendur einnig i sam-
bandi við „skref sem Auglýsinga-
stofan hf. hefur stigið”, en á
þessu ári var stofnað hliðarfyrir-
tæki til að annast gerð sjónvarps-
auglýsinga, SÝN hf„ — og Aug-
lýsingastofan hf. hefur gerzt aðili
að norrænu sambandi aug-
lýsingastofa,Scan Viking, og
einnig alþjóðlegu sambandi aug-
lýsingastofa, AAAI (Affiliated
Advertising Agencies Inter-
national).
Aðild að þessum samtökum
gerir stofunni kleift að njóta sam-
starfs, fyrirgreiðslu og upp-
lýsinga um auglýsingastarfsemi
og markaðsmál i helztu
viðskiptalöndum okkar.
Núverandi stjórn Auglýsinga-
stofunnar skipa: Gisli B. Björns-
son, Halldór Guðmundsson og
Guðjón Eggertsson. Hjá stofunni
starfa nú 14 manns og fjöldi
þeirra hefur starfað þar i mörg
ár. —BS
r
V.
Ritstjórn Alþýðublaðsins er í
Síðumúla 11 - Sími 81866
íslenzku neyzlu-
Auglýsingastofan hf. gerftist aftili
aft Scan Viking, sem er keftja aug-
lýsingastofa á Noröuriöndunum.
Myndin sýnir undirritun
samningsins. Á myndinni eru tal-
ift frá vinstri: Carl Gunnar Thor,
Sviþjóö, Halidór Guftmundsson,
lslandi, Gisli B. Björnsson, ís-
landi, Knud Kanstrup, Dan-
mörku, Matti Viherjuuri, Finn-
landi, Arto Liinaa, Finnlandi,
Matti Larres, Finniandi, og
Sverre Sunde Noregi.
Starfsfólk Auglýsingastofunnar hf. í nóv. 1976: Talið frá vinstri: Guðjón Eggerts-
son, Gerður Ragnarsdóttir, Edda V. Sigurðardóttir, Hildur Steinþórsdóttir, Ásta H.
Lúðviksdóttir, Halldór Guðmundsson, Gunnar Snæland, Hjálmtýr Heiðdal, Fanney
Valgarðsdóttir, Þóra Baldu sdóttir, óli örn Andreassen, Gisli B. Björnsson, Anna
Margrét Björnsdóttir, Jón Baldvinsson, Pétur Behrens.