Alþýðublaðið - 07.12.1976, Page 6
6 FBÉTTIB
Þriðjudagur 7. desember 1976 bla^fð'
Raftækjaverzlun bætist
í verzlanahóp Glæsibæjar
Raftækjaverzlunin Ljós og raf-
tæki er nýstofnuö verzlun, sem
bæzt hefur i hóp þeirra verzlana,
sem eru undir einu þaki i verzl-
anamiöstöðinni Glæsibæ við Suð-
urlandsbraut.
Eigandi verzlunarinnar er Jón
Bjarnason, en hann hefur rekið
rafverkstæði i Hafnarfirði ásamt
raftækjaverzlun við Strandgötu
frá árinu 1962.
Jón kveðst munu bjóða við-
Athugasemd Framkvæmdastofnunar ríkisins
vegna skrifa um atvinnuástandið á Bíldudal
skiptavinum sinum allar upplýs-
ingar og leiðbeiningar um með-
ferð rafmagnsáhalda, sem menn
óska.
1 verzluninni Ljós og raftæki
verður hægt að fá flestallar raf-
magnsvörur og það sem viðkem-
ur heimilistækjum, en samt verð-
ur i verzluninni fyrst og fremst að
finna úrval ljósabúnaðar, lampa
og ljósakróna.
Eigendaskipti hjá
Gardínubrautum hf.
brauta og stanga fyrir glugga-
tjöld.
Hjá Gardinubrautum h.f. er
nú boðið upp á einnar, tveggja,
þriggja og fjögurra rása brautir
i öllum hugsanlegum lengdum
og tvenns konar kappa, annars
vegar sþónlagða viðarkappa og
hins vegar kappa, sem gerðir
eru úr krossviði með álimdri
plastþynnu með margs konar
viðarliki.
Yfirleitt hafa ekki fengist hér-
lendis eins fjölbreytilegar
brautir og boðið er upp á hjá
þessu fyrirtæki og ýmsir þvi
orðið að kaupa gardinubrautir
með fleiri rásum, en þeir hafa
þurft á að halda og þvi fjárfest
óþarflega mikið i brautunum.
Það má einnig benda á, að lít-
ið sem ekkert hefur verið á
markaðinum af viðarköppum á
gardlnubrautir og fólk þvi yfir-
leitt þurft að láta sérsmiða þá,
ef það hefur haft áhuga á að fá
sér slika kappa.
Þess má einnig geta, að hjá
gardinubrautum h.f. eru á boð-
stólum margs konar gardinu-
stengur úr tré, plasti og málm-
um, þar á meöal sérstæðar
stengur úr smiðajárni, sem eru
nú mjög i tisku viða á megin-
landi Evrópu. Þessar siðast-
nefndu stengur og margar hinna
tegundanna fást einungis hjá
Gardinubrautum. Verslunin er
að Langholtsvegi 128 og er sim-
inn þar 85605.
Nýir eigendur hafa nú tekið
við fyrirtækinu Gardinubrautir
h.f. að Langholtsvegi 128 og
aukið mjög fjölbreytni þess
varnings, sem þar er á boðstól-
um.
Það eru hjónin Jóhannes Jó-
hannesson og Auður Guðmunds-
dóttir, sem nú eiga og reka
Gardinubrautir og hafa um leið
tekið við einkaumboði hér á
landi fyrir hið heimskunna
þýska fyrirtæki Gardinia, sem
framleiðir fjölbreytt úrval
Jóhannes Jóhannesson setur
saman gardínustöng ilr tré, en
stengur af þessari gerö hafa
gengið undir nafninu ömmu-
stengur. Mjög fjölbreytt úrval
er af margs konar stöngum,
brautum og köppum hjá
Gardinubrautum h.f.
Að undanförnu hafa málefni
Bildudals verið allmikið til um-
ræðu i fjölmiðlum. Það er ekki
ætlun Framkvæmdastofnunar
rikisins að blanda sér i þær um-
ræður. Hins vegar eru gefin til-
efni til, að stofnunin taki fram, að
hún hefir lagt sig i framkróka um
að reisa við atvinnulíf byggðar-
lagsins. Vonir standa til, að nú
verði breyting á til batnaöar, en
til þess að svo mætti verða hefir
Byggðasjóður þurft að veita að-
stoð umfram það, sem venjulegt
getur talizt.
Framkvæmdastofnunin leitast
við að veita aðstoð bæði beint og
i samvinnu við aðra opinbera
aðila þegar erfiöleikar steðja að i
atvinnumálum byggðarlega eftir
þvi sem tök eru á, en til of mikils
væri ætlazt, að vænta þess, að
lausnar hvers byggðavanda sé að
leita hjá Framkvæmdastofnun-
inni.
Við það er að sjálfsögðu ekkert
að athuga, að verk Fram-
kvæmdastofnunarinnar séu rædd
á opinberum vettvangi. Fram-
kvæmdastofnunin kostar kapps
um að skýra sem skilmerkilegast
frá starfsemfsinni i ársskýrslum
stofnunarinnar, og á ári hverju er
flutt á Alþingi skýrsla um starf-
semi hennar. Málefnalegar um-
ræður eru vissuiega góðra gjalda
verðar.
öðru máli gegnir þegar verk
stofnunarinnar og starfsmanna
hennar eru stórlega afflutt eins og
gerzt hefir i málefnum Bildudals.
Á þetta alveg sérstaklega við um
þann starfsmann Framkvæmda-
stofnunarinnar, Karl Bjarnason,
sem mest og bezt hefir unnið að
uppbyggingarmálum Bildudals
að undanförnu. Hans verk og hag-
sýni eiga veigamikinn þátt i að ný
ogfullkomin fiskvinnslustöð hefir
verið byggð á Bildudal. Fram-
kvæmdastofnunin telur mikils
virði að hafa i störfum mann með
þá hæfni og reynslu, sem Karl
Bjarnason hefir, enda nýtur hann
fyllsta trausts stofnunarinnar.
Von manna er, að nú megi Bild-
dælingar horfa fram til bjartari
tima i atvinnumálum og upp-
byggingu allri. Og um leið og
þeir fá nú i hendur ný tæki að
starfa með, og skip að sækja sjó,
þá ættu þeir að senda út á sextugt
djúp sundurlyndisfjandann.
Breytingar í Glæsibæ
Miklar breytingar hafa átt sér
stað eftir að húsgagnaverzlunin
Dúna flutti úr Glæsibæ, þvi flest-
ar þær verzlanir sem voru þá I
kjallara hússins hafa siðan fært
sig um set og eru komnar þar sem
Dúna var áður. Þessar verzlanir
eru Vogue, Hannyrðabúðin Lilja,
Barnafataverzlunin Rut, Undra-
land, og svo nýjasta verzlunin:
Ljós og raftæki. í Glæsibæ er opið
til klukkan 22 á föstudagskvöld-
um.
—BS.
Sunnlenzkir bændur bjóða gagnrýni velkomna en fordæma sleggjudóma
BÆNDA ÞRENGJAST
• •
Fyrir skemmstu (þriðjudag
30. nóv.) var haldinn almennur
bændafundur að Hvoli á Hvols-
velli að frumkvæði nokkurra
bænda i Rangárþingi. 1 forystu
fyrir þeim hópi var Magnús
Finnbogason, bóndi á Lágafelli.
A fundinn mættu töluvert á
þriðja hundrað manns, aðallega
bændur úr Rangárþingi. Fund-
arstjöri var skipaður Jón Egils-
son á Selalæk, en fundarritari
Sigurður Haraldsson, Kirkjubæ.
Gestir fundarins voru þeir
Arni Jónasson, erindreki Stétt-
arsambands bænda, Gisli
Andrésson, formaður stjórnar
Sláturfélags Suðurlands, Egg-
ert Ólafsson, formaður stjórnar
mjólkurbús Flóamanna og
Agnar Guðnason, blaðafulltrúi
bændasamtakanna.
Magnús Finnbogason bauð
fundarmenn velkomna og lýsti
tilgangi fundarins, en það væri
að treysta samstöðu bænda i
kjaramálum, en á stéttina hefði
verið hallað með sifellt þrengri
kjörum varðandi greiðslur fyrir i.
afurðir þeirra. Þegar svo væri
komið, að bændur þyrftu að biða
töluvert á annað ár eftir fullnað-
aruppgjöri fyrir sláturafurðir,
þá væri ekki lengur hægt að
sitja hjá. Bændur fá ekki um-
samið verð fyrir afurðir sinar,
og það þýðir tugþúsunda kjara-
skerðingu á hvern bónda.
Magnús lagði áherzluá,að þessi
fundur væri aðeins upphaf að
öflugri mótmælaöldu um allt
land gegn kjaraskerðingar-
stefnu rikisstjórnarinnar.
Árni Jónasson skýrði frá
greiðslu afurðalána og ræddi al-
mennt um verðlagsmálin. Þeir
Gisli Andrésson og Eggert
Ólafsson ræddu um stöðu sölu-
samtakanna á Suðurlandi og þá
greiðsluerfiðleika, sem þau ættu
við að striða i dag.
Fundurinn stóð yfir i 7 klst. og
haldnar voru um 30 ræður.
Eftirtaldar ályktanir voru
samþykktar á fundinum:
„Fundur sunnlenzkra bænda,
haldinn að Hvoli 30. nóv. 1976,
átelur mjög þær árásir á
stefnu og starfshætti landbún-
aðarins, sem birzt hafa i fjöl-
miðlum. Atelur og mjög þá
mistúlkun og rangfærslur,
sem virðast settar fram i
þeim tilgangi einuni að sanna
neytendum, að landbúnaðar-
framleiðslan sé baggi á
þjóðarbúinu.
Jafnframt lýsir fundurinn þvi
yfir, að heilbrigö gagnrýni,
byggð á þekkingu en án for-
dóma, getur aldrei skaðað
neinn atvinnuveg og fagnar
hverjum þeim, sem bent get-
ur á leiðir til farsællar lausn-
ar á þeim vanda, sem við er
að glima hverju sinni. Hún
verður ætið til framdráttar
þjóðinni i heild.”
2. „Almennur fundur bænda,
haldinn i Hvoli 30/11 1976
skorar á fulltrúa sina i Fram-
leiðsluráði að vinna að þvi, að
afurðalán til bænda verði
hækkuð þannig, að sláturleyf-
ishöfum verði gert kleift að
greiða minnst 80% af skila-
verði á haustnóttum og
mjólkurbúum á neyzlumjólk-
ursvæðum að greiða 90% á
framleiðsluárinu.”
3. „Almennur fundur bænda,
haldinn i Hvoli 30/11 1976 telur
óviðunandi ástand að ekki
skuli nú þegar lokiö uppgjöri
liðins árs á sauðfjárafurðir.
Fundurinn krefst þess að úr
þessu verði bætt fyrir 20. des.
n.k.”
4. „Almennur fundur bænda,
haldinn i Hvoli 30/11 1976
beinir þvi til fulltrúa sinna hjá
Sexmannanefnd, að þeir vinni
að þvi, að fjármagnsliður
visitölubúsins verði réttilegar
metinn en nú er og vaxtapró-
senta færð i eðlilegt horf.”
5. „Almennur fundur bænda,
haldinn á Hvoli 30.11 1976 tel-
ur, að i ljós sé leitt, að verð-
lagskerfi það, sem bændur
búa við, tryggi þeim ekki þá
afkomu, að við verði unað og
hætta sé á, að landbúnaðar-
framleiðslan dragist saman
að óbreyttu skipulagi. Fund-
urinn telur þvi koma til álita,
að Stéttarsambandið taki upp
beina samninga við rikis-
stjómina um verðlagsmálin.”
6. „Almennur bændafundur i
Rangárvallasýslu, haldinn að
Hvolsvelli 30/11 1976, sam-
þykkir að beina þeirri áskor-
un til stjórnar Mjólkurbús
Flóamanna og Sláturfélags
Suðurlands að myndaðar
verði 20 bænda trúnaðar-
nefndir, sem starfi stjórnun-
um til halds og trausts og séu
boðnar til funda, þegar á-
stæða þykir til og ekki sjaldn-
ar en 2svar á ári.”
7. „Almennur fundur sunn-
lenzkra bænda, haldinn af
Hvoli 30. nóv. 1976, skorar
eindregið á rikisstjórnina aö
semja ekki við neina þjóð um
heimild til fiskveiða innan 200
milna efnahagslögsögu.”