Alþýðublaðið - 21.12.1976, Side 16
DOMUR í KLÚBBMÁLINU KVEÐ-
INN UPP í SAKADÓMI í GÆR
- Sigurbjörn dæmdur í sex milljón kr. sekt
- Magnús sviptur veitingaleyfum
í gær var kveðinn
upp i 'Sakadómi
Reykjavikur dómur i
máli sem ákæruvaldið
höfðaði hinn 27. febrúar
síðast liðinn, á hendur
þeim Sigurbirni Eiriks-
syni, veitingamanni og
Magnúsi Leopoldssyni,
framkvæmdastjóra,
vegna ætiaðra skatt-
svika og bókhaldsbrota
við rekstur veitinga-
hússins Glaumbæjar og
veitingahússins að
Lækjarteigi 2.
I ákæru var þeim báöum gefiö
aö sök aö hafa á timabilinu 1.
janúar 1970 til 1. oktober 1972
svikiö undan söluskatti samtals
aö f járhæö kr. 3.484.694.
Þá var Sigurbirni gefiö aö sök
aö hafa vanrækt skil á launa-
framtölum til skattstjóra á lög-
boönum skýrslum (launafram-
tölum) um starfslaun i veitinga-
húsunum árin 1970 og 1971, þar
meö talin laun framleiöslu-
manna og námu þessi laun sam-
tals kr. 29.596.605 samkvæmt
ákærunni.
Einnig var Sigurbirni gefiö aö
sök aö hafa vanrækt aö telja
fram til tekjuskatts og eigna-
skatts fyrir skattárin 1970 og
1971 og meö þvi komizt hjá
greiöslu tekjuskatts og útsvars
samtals aö fjárhæö kr. 4.745.499.
1 niöurstööum slnum fjallar
dómurinn fyrst um refsiábyrgð
hinna ákærðu á rekstri framan-
greindra veitingahúsa, en hún
var sögö meö ýmsum hætti.
Taldi dómurinn aö aöild og þátt-
taka Sigurbjörns I rekstrinum
hafa allan umræddan tima veriö
meö þeim hætti að full refsi-
ábyrgö yrði á hann lögö, en
breytingar á rekstriaraöild
hans beri keim af þvl aö þær
hafi verið til málamynda.
Þannig beri til dæmis aö llta á
timabil er sambýliskona Sigur-
björns rak Glaumbæ.
Varöandi Magnús taldi
dómurinn ekki unnt aö leggja á
hann refsiábyrgö á þeim tima er
reksturinn var á nafni Sigur-
björns eöa sambýliskonu hans.
Hins vegar var hann talinn
ábyrgur vegna söluskattsskila á
þeim tima er Bær h.f. var aðili
aö rekstrinum, þar sem hann
var i varastjórn félagsins og
prókúruhafi auk þess aö vera
virkur þátttakandi i daglegu
starfiog aö sjá aö verulegu leyti
um gerö söluskattsskýrslna á
þessum tima.
Niðurstöður dómsins.
Taliö var sannaö aö um
undanskot söluskatts á öllu
timabilinu heföi numið eigi
lægri fjárhæð en kr. 2.939.290.-.
Var Sigurbjörn talinn ábyrgur
fyrir allri þeirri fjárhæö, en
Magnús fyrir kr. 590.129.-.
Töldust þeir hér hafa gerzt brot-
legir við 26. grein laga nr.
10.1960 sem I gildi var er brotin
voru framin. Refsing sam-
kvæmt þeirri grein er varðhald
eða sekt allt aö kr. 100.000.-.
Þá var talið sannað aö meö
þvi aö vanrækja aö telja fram til
tekjuskatts og eignaskatts fyrir
skatt árin 1970 og 1971 hafi
Sigurbjörn komizt hjá greiöslu
tekjuskatts sem næmi eigi lægri
fjárhæö en kr. 929.492,- og út-
svars kr. 762.435.- eöa samtals
kr. 1.691.927,-
Aö lokum var Sigurbjörn
fundinn sekur um bókhaldsbrot
þar sem mikil óreiöa hafi veriö
á öllu bókhaldi hans og jafn-
framt hafi ýmsum gögnum
veriö haldið skipulega undan viö
færslur. Voru þessi brot talin
varða viö refsingu samkvæmt
262. grein almennra hegninga-
laga nr. 19,1940.
Varðandi þá sakargift i
ákæruskjali, að Sigurbjörn hafi
vanrækt skil á launaframtölum
til skattstjóra samtals aö upp-
hæð kr. 29.596.605, taldi dómur-
inn sannað aö svo væri. Taldist
þaö varöa viö 3. m.gr. 48. grein
laga um tekjuskatt og eigna-
skatt. Viö ákvörðun refsingar
vegna þessa brots var hins veg-
ar tekið tillit til þess, að ekkert
annaö haföi komiö fram í mál-
inu,en að viðkomandi starfsfólk
hafi greitt opinber gjöld af laun-
um þessum og þvi hafi brot
þetta ekki leitt til tjóns fyrir hiö
opinbera svo sannaö væri.
Refsing Sigurbjörns var
ákveöin varöhald i 4 mánuöi og
sekt i rikissjóö, kr. 6.000.000.- og
komi varðhald 110 mánuöi i staö
sektarinnar verði hún eigi
greidd innan fjögurra vikna.
Refsing Magnúsar var ákveö-
in varöhald i 40 daga skilorðs-
bundið og sekt í rikissjóö kr.
90.000.- og komi varðhald I 25
daga i hennar stað verði hún
eigi greidd innan fjögurra
vikna.
Leyfissviptingar
Þá haföi rikissaksóknari gert
þá kröfu aö ákæröu yröu sviptir
vinveitinga- og veitingahúsa-
leyfum. Varöandi þá kröfu kom
fram, aö Sigurbjörn hafði ekki
lengur nein slik leyfi þar sem
hann hafði ekki endurnýjaö þau
er þau runnu út, þannig aö slik
leyfissvipting kom ekki til
greina. Hins vegar var Magnús
Leopoldsson sviptur bæöi vin-
veitinga- og veitingahúsaleyf-
um sem hann hafði fengiö áriö
1974.
Aö lokum voru ákæröu
dæmdir til aö greiöa málskostn-
að þar meö talin málsvarnar-
laun verjenda sinna.
öðrum málskostnaöi var
skipt þannig á milli þeirra aö
Sigurbirni er gert að greiöa 3/4
hluta hans en Magnúsi 1/4 hluta.
Dóminn kváöu upp Haraldur
Henrýsson, sakadómari og
meðdómsmennirnir Ragnar
Ólafsson hrl. og Ami Björnsson
hdl.
—GEK
Kosið í bankaráð ríkisbankanna
STJÓRNARFLOKKARNIR STÓÐU
SAMAN
1 gær fóru fram á Alþingi kosn-
ingar i bankaráö rikisbankanna.
Sjálfstæöisflokkur og Fram-
sóknarflokkur stiiltu upp sam-
eiginlegum lista og tókst þannig
aö fá fjóra menn kjörna i öll
bankaráöin. Auk þeirra náöi
einnig kosningu einn bankaráös-
maður i hvert bankaráö, og voru
þeir studdir af þingmönnum
stjórnarandstööunnar.
Enda þótt kosningarnar hafi
farið á þann veg, sem hér segir,
var vitaö aö alimikil átök uröu
um máliö innan Sjálfstæðis-
flokksins áöur en til kosninga
kom.
Niöurstöður kosninganna uröu
sem hér segir:
Búnaðarbanki tslands.
Af Alista: Friöjón Þóröarson,
Stefán Valgeirsson, Gunnar
Gislason og Agúst Þorvaldsson.
Af B lista var kjörinn Helgi Selj-
an.
Varamenn voru kjörnir: Pálmi
Jónsson, Jón Helgason, Steinþór
Gestsson og Magnús ólafsson af
A lista og Svavar Gestsson af B
lista. A listi hlaut 42 atkvæði en B
listi 11 atkvæöi. Þá var borinn
fram listi skipuöum Karli Arna-
syni og hlaut hann 6 atkvæöi.
Einn seöill var auður.
Landsbanki íslands
Af A lista: Arni Vilftjálmsson,
Kristinn Finnbogason, Kristján
G. Gislason, Margeir Jónsson. Af
B lista var kjörinn Einar Olgeirs-
son.
Varamenn voru kjörnir, af A
lista: Matthias Á.Mathiesen, Her-
mann Hansson, Daviö Sch. Thor-
steinsson og ómar Kristjánsson.
Af B lista var kjörinn Lúövik
Jósepsson. A listi hlaut 41 atkvæði
og B listi hlaut 18 atkvæöi, einn
seöill var auöur.
Seðlabanki íslands
Af Alista: Sverrir Júliusson,
Jón Skaptas* Pétur Sæmundssen
og Halldór Asgrimsson. Af B lista
var kjörinn Ingi R. Helgason.
Varamenn voru kjörnir, af A
lista: Olafur B. Thors, Geir
Magnússon, Jón G. Sólnes og Ei'*-
rikur Tómasson. Af B lista var
kjörinn Haukur Helgason. A listi
hlaut 42 atkvæði, B listi 18 at-
kvæði.
tJtvegsbanki islands.
Af A lista hlutu kosningu:
Ólafur Björnsson, Alexander
Stefánsson, Guölaugur Gislason
og Jón Aöalsteinn Jónsson. Af B
lista var kjörinn Halldór Jakobs-
son.
Varamenn voru kjörnir, af A
lista: Gisli Gislason, Páll Guð-
mundsson, Valdimar Indrióa
son og Ólafur Þóröarson. Af B
lista var kjörinn Garðar Sigurös-
son.
—BJ
Öryggismál Reykjavíkurhafnar:
Nefnd til starfa eftir
áramótin
t
Nýlega var samþykkt
á fundi hafnarstjórnar
Reykjavikurhafnar, að
skipa nefnd til að gera
tillögur til úrbóta i
öryggismálum hafnar-
Nokkur blaða-
nefningum lyki stuttu upp úr ára-
mótum, og myndi nefndin þá þeg-
ar taka til starfa, en hún á aö fara
yfir þaö sem fram hefur komiö
um öryggismál hafnarinnar og
vera til ráðuneytis hafnarstjórn-
inni i þeim málum.
Þeirsem fulltrúa eiga aö skipa,
eru Verkamannafélagiö Dags-
brún, Sjómannafélag Reykja-
vikur, Farmanna- og fiskimanna-
samband Islands, Slysavarnafé-
lag Islands, öryggiseftirlitiö,
Lögreglan I Reykjavik og
Hafnarstjórn.
—hm.
mnar.
skrif hafa verið um það
öryggisleysi sem þar
rikir eftir að vinnu á
hafnarsvæðinu lýkur og
hefur Alþýðubiaðið gert
úttekt þar á og birt
greinar um málið.
Blaöiö haföi samband viö
Gunnar B. Guömundsson hafnar-
stjóra nýlega og spurðist fyrir,
hvaö liöi skipun fulltrúa i þessa
nefnd. Hann kvaö málið vera
nánast á byrjunarstigi og enn
væri ekki búið aö fá tilnefningu
frá öllum þeim, sem eiga aö hafa
fulltrúa i nefndinni, en undirtektir
hefðu hins vegar veriö góðar.
Sagðist Gunnar búast við aö til-
ÞRIÐJUDAGUR
21. DESEMBER 1976
alþýðu
blaðið
Lesið: 1 Alþýðumanninum
á Akureyri: „Þessi visa
kom fram á hinum fræga
Maraþonfundi ASÍ þings,
en eins og allir vita urðu
miklar sviptingar á þeim
fundi i sambandi við miö-
stjórnarkjör:
Atkvæðasmali út um sali
oft fer brokkandi.
Hrund og hali hann tekur
tali
með tilboö lokkandi.”
Séö: Aö lögð hafa verib
fram i bæjarráöi Kópavogs
fyrstu drög aö fjárhags-
áætlun fyrir næsta ár.
Samkvæmt þeim eru niður-
stöðutölur 1276 milljónir
króna, en voru á áætlun
þessa árs 932 milljónir .
Hækkunin ^pemur 344
milljónum krona, eöa rúm-
lega 35 af hundraði. Talið
er, aö fjárhagsáætlunin
verði ekki afgreidd i bæjar-
stjórn Kópavogs fyrr en i
febrúar.
Tekiö eftir: Að útflutningur
á æöardúni hefur meira en
tvöfaldast frá þvi I fyrra. í
ár nemur útflutningurinn
1271 kilógrammi, en i fyrra
var hann 622 kilógrömm.
Eftirspurn eftir æöardúni
erlendis hefur veriö mikil.
Lesiö: t Sambands-
fréttum: Aö horfur séu á
þvi að bókfæröar iðgjalds-
tekjur Liftryggingafélags-
ins Andvöku fari yfir 100
milljónir króna á þessu ári.
Þaö er um 50% aukning frá
þvi i fyrra. Hlutafé i
Endurtryggingafélagi
Samvinnutrygginga h.f.
hefur verið aukiö úr 20
milljónum króna I 40
milljónir. Jafnframt hefur
félagiö fest kaup á einni
hæö i húsinu Austurstræti
12 I Reykjavik.
Tekið eftir: Að á sama
tima og heildarskatttekjur
hins opinbera, sem hlutfall
af vergri þjóðarfram-
leiðslu, hafa hækkað frá
meðaltali áranna 1960-’64
úr 27,4% i 36,1% á yfir-
standani ári, hafa bætur
lifeyristrygginga og niður-
greiðslur, sem hlutfall af
vergri þjóðarframleiðslu,
lækkað úr 7,1% I 5,8% og er
spáð enn meiri lækkun á
næsta ári.