Vísir - 15.01.1970, Síða 16
VISIR
_MU í . 1
Flmmtudagur 15. janúar 1970.
en hvað gera Friðrik og Guðmundur?
Maður slasast
í reynsluferð
nýju Heklu
Lenti með höndina
blókk og missti
framan af 3 fingrum
CJ Yfirverkstjórinn i slippnum á
Akureyri, Þorsteinn Þorsteinsson
slasaðist um borð í nýju Heklunni
í fyrstu reynsluferð hennar á Eyja-
firði í gaerdag.
Missti hann framan af þrem fingr
um og varð skipið að snúa við til
Akureyrar aftur til þess að flytja
hánn til læknis, en síðan hélt skipið
aftur út.
Slysið vildi til, þegar Þorsteinn,
verkstjóri, ásamt öðrum, ætlaði að
reyna, hvort björgunarútbúnaður
skipsins væri í fullkomnu lagi, og
átti að „fíra niður“ einum björgun
arbátnum Lenti Þorsteinn með
höndina í blökk i „davíðunni" með
fyrrgreindum afleiðingum.
□ JLJGÓSLAVINN Matu-
lovic, 34 ára skákmað-
ur, er álitinn sigurstrang-
legur á alþjóðaskákmótinu
sem hefst í Hagaskóla í
Reykjavík í kvöld kl. 18.30
en þá mun menntamálaráð
herra setja mótið og Geir
Hallgrímsson leika fyrsta
leikinn. Engin ástæða er
þó til að álíta Júgóslavann
svo öruggan fyrirfram, ef-
laust mun margt óvænt og
skemmtilegt gerast næstu
3 vikumar á þessu mikla
og erfiða móti.
Á mótinu verður teflt frá 18.30
til 23.30 alla daga nema laugar-
daga og sunnudaga, þá milli 14 og
19. Biðskákir verða tefldar á
þriðjudögum og föstudögum.
Eins og fyrr er getið veröa tveir
erlendir stórmeistarar með og fjór
ir alþjóölegir meistarar, en að auki
er Friðrik Ólafsson stórmeistari
meðal þátttakenda, en við hann og
Guömund Sigurjónsson 0/2 alþjóö-
legur meistari) binda íslendingar
miklar vonir. Margir álíta reynd-
ar aö nú mun; í fyrsta sinn virki-
lega koma í ljós hver er sterkasti
skákmaðurinn okkar en margir
hafa álitið að Guðmundur hafi náð
Friðrik, en úr þessu fæst væntan-
lega skorið.
Þess skal getið að í gærkvöldi
bárust fréttir af vali liös Heimsins
gegn liði Sovétríkjanna, en áformað
er að þessi lið mætist í keppni síð-
ar. Er Matulovic þar á 8. borði
en 10 skákmenn skipa liðið. Fyrsti
varamaður var valinn Friðrik Ólafs
son.
1 sambandi viö mótið í Hagaskóla
verður komið á getraunum á hverju
kvöldi og er ekki aö efa að þær'
munu njóta vinsælda. Að lokum:-
Þetta verður líklega fyrsta alþjóð-.
lega skákmótið þar sem algjört
reykingabindindi verður meðal á-
horfenda. Það kom upp úr dúrn-
um að skólastjóri Hagaskóla sá sér
ekki fært að leyfa reykingar í húsa-
kynnum sínum. Hins vegar verður
keppendum leyft að nota tóbak, —
enda talið útilokað aö halda mót.
nema slíkt sé leyft.
Þátttakendur á alþjóðlega mótinu. Friðrik fremst til vinstri, en Matulovic fremst tu hægri. Guð-
mundur Arnlaugsson er fyrir miðju, en hann verður mótsstjóri. Þjóðverjinn Hecht er við hlið Frið-
riks, en fyrir ofan Guðmund Arnlaugsson er Guðmundur Sigurjónsson. Fyrir ofan Matulovic er
Kanadamaðurinn Bruce Amos, en hann koht hingað beint frá prófborðinu. Hinir þrír útlending-
arnir voru ókomnir, en væntanlegir, þegar myndin var tekin.
?Fyrir skömmu4
reyndist vera
24. júní!
Bjórn Olafsson gerir athugasemd við ummæli
bjóðleikhússtjóra i sjónvarpsumræðunum
„Gamlir og góðir44 Reyk-
víkingar 30 ára
Ný atriði og mótsagnir bætast
stöðugt við í „brúðkaupsmáli“
Þjóðleikhússins. Nú er komið í
Ijós, að þjóðleikhússtjóra og
Birni Ólafssyni ber ekki saman
um það, hvenær Björn sagði sig
úr tónlistarnefnd Þjóðleikhúss-
ins.
Eins og kom fram í frétt blaðs-
ins af sjón”'-—’sumræðunum I gær
sagði þjóðleikhússtjóri í sjónvarp-
inu, að Björn hefði sagt si- •'■r
nefndinni fyrir skömmu Blaðinu
nerur nú borizt yfirlýsing Björns
þar sem har segir sig úr tón-
lis' -nefndinni og er hún dagsett
24. júní í sumar. Yfirlýsingin er
svohljóðandi: „Með tilvísun til sam
talr sem éa átti við yður, þjóð-
leikhússtjé-i, ' heimili dr Fáls *s-
ólfssonar í s.l. mánuði, leyfi é” mér
hé með að fara þess á leit að
verða „stur frá störfur. ! tón-
listarnefnd Þjóðleikhússins. Virð-
ingarfyllst. Björn Ólafsson. 24. júní
1969.“
í 92.000 manna byggðarlagi eru
aðeins 500, sem virkan áhuga hafa
á sögu þess, samtíð og framtið og
leggja verulega rækt við átthaga
sína.
En þessir 500 félagar í Reykvík-
ingafélaginu hafa hins vegar hver
og einn áhuga og eldmóð á við
marga, svo að þaö vegur nokkuð
upp og með fjörugu félagslífi und
anfarin ár, hafa þeir laðað æ fleiri
í hópinn.
I kvöld halda þessir átthaga-
tryggu félagar upp á 30 ára af-
mæli Reykvíkingafélagsins í Súlna-
salnum á Hótel Sögu með kvnning-
ar- og skemmtikvöldi. Þar munu
skemmta gestum m.a. ungfrú Sigr-
íður Magnúsdóttir söngkona, sem
syngur einsöng. Þór Magnússon,
þjóöminjavörður sem flytur stutt
erindi, Vilhjálmur Þ. Gfslason, for
seti félagsins, sem flytur stutt ávarp
og Gunnar Hannesson, sem sýnir
Datt af
hestbaki
— skarst illa
% Maöur datt af hestbaki hjá Geit
hálsi síðdegis í gær og var lögregl
an og sjúkralið kvödd til aðstoðar
manninum, en í ljós kom, að hann
var sem betur fór ekki alvarlega
slasaöur, þótt hann hins vegar
hefði skorizt nokkuð á þjóhnöppun
um við byltuna.
litmyndir frá Reykjavík og ná-
grenni.
Snaran varð
Svavari
að falli
■ Ekkert fæst staðfest um
hina raunverulegu ástæðu
fyrir því að þáttur Svavars
Gests fór ekki gegnum hreins
unareld sjónvarpsins á dög-
unum. Hins vegar hefur blað-
ið eftir góðum heimildum að
ástæðan eða ástæðumar séu
þær, að Svavar hafi haft
í frammi „brandara“, sem
ekki þótti hæfa.
Hann hafi minnzt þess að 10
ár væru liðin frá fyrsta útvarps
þætti sínum og geislabaugur
ætti að vera farinn að leika um
höfuð hans. Geislabaugurinn
var siðan borinn inn á sviðið af
einum sviösmannanna, — snara
handa Svavari. Um þessar
mundir var þetta talsvert til-
'inningamál að því er virtist
vegna auglýsinga frá Thule, og
'iótti ekki hæfa.
Þá mun Svavar hafa komið
fram með einn af skemmtikröft-
;m SG-hljómplatna, en það er
ein'.-afyrirtæki Svavars. Loks
þótti auglýsingakeimur af pott-
um, sem hafðir voru í "erðlaun.
23 Hjörvar Bjorgvinsson, verkStjón, var etnn þeirra lánsömu, sem hrepptu happdrættisvinning
fyrir jólin. Vann hann lúxusgerð af Volvo — Volvo 164, nærri hálfrar milljón kr. virði í Happ-
drætti vangefinna, sem dregið var í á Þorláksmessu. Á myndinni er Hjörvar og frú með fjögur
myndarleg börn, sem þau elga. Þau eru nýbúin að byggja sér lítið íbúðarhúsnæði í Hraunbæ og
þessi barnmarga fjölskylda ætlar að selja bílinn til að hafa upp í útgjöldin af húsnæðinu.