Vísir - 13.01.1971, Blaðsíða 1
BORGIN
KAUPIR
SLYSAGILDRU
Samningar hafa nú lofcs tekizt
um kaup á Fossvogsbletti 36, húsi,
sem stendur alveg inn á Bústaöa-
veg og hefur verið talið valda auk
inni slysahættu við götuna.
Staðið hefur í þrefi við annan
eiganda hússins um kaupin frá
1966, en hann taldi ekki vera nóg
boðið í húsið. Hins vegar tókust
samningar við hinn eigandann fyr-
ir íiáiifu öðru ári. — Upphaflega
neffíi átt að rffa húsið 1967, enda
staóíð fyrir vegaiframkvæmdum við
Bústaðaveg. Nú verður húsið rifið
viö fyrsta tækifæri eða f marz n. k.
—VJ
Póstur úr GULLFOSSI
grandskoðaður í morgun
— leif að hassi hafði jbó engan árangur borið
Póstur, sem kom með Gullfossi
til landsins í fyrradag, hefur
verið grandskoðaður af tollvörð-
um með tilliti til þess að hass
eða önnur fíknilyf finnist í póst-
inum. í morgun var búið að fara
í gegn um allan póstinn og að-
eins eftir þrír pokar af „kross-
böndum“ eða smápökkum og
bréfum samkvæmt því sem Sig-
urmundur Gíslason fulltrúi á
Tollpóststofunni tjáði blaða-
mönnum Vísis niðri á Tollpóst-
stofu í morgun.
Sagði Sigurmundur að tilkynning
yrði send út um þessa pakka og
þeir skoðaðir, þegar viðkomandi
kæmu til að ná í þá. Ef móttak-
andi neitar að láta opna pakkann
munu tollverðir krefjast fógetaúr-
skurðar til þess að opna pakkana.
Þessi könnun tollvarða er sú um
fangmesta, sem verið hefur á skipa
pósti en sennilegt er að slík könn-
un verði framkvæmd við og við
í framtíðinni.
„Megnið af þessu gefur ekki til-
efni til stöövunar", sagði Sigur-
mundur og horfði yfir póstinn þar
sem hann lá í bingjum, „þetta er
mestmegnis dæmigerður póstur,
sem enginn vafi leikur á. Það er
t. d. heilmikið af almanökum, sem
fyrirtæki senda, blaðapóstur frá við
urkenndum blöðum og póstur frá
opinberum stofnunum. Það er ekki
fyrr en kemur að einhverjum Jóni
Jönssyni, sem enginn veit deili á
og bréfið virðist þykkt og feitt,
að það er tekið frá.“ —SB
*
„Þessi er mjúkur,“ sagði Sigur
mundur um einn pakkann í hrú{
unni og virtist dálítið tortrygg
inn um ágæti innihaldsins.
Stóraukið samstarf Norð-
urlanda um menn ingarmál
Skátamir hrinda á flot báti sínum inni við Sundahöfn í morgun. Sem betur fer fannst drengurinn
tveim tímum síðar á rölti við Kjörgarð á Laugavegi (Ljósm. Vísis, BB).
Aöspurður um ferðir sínar
gaf drengurinn þá skýringu, að
hann hefði lagzt fyrir undir
beru lofti í nótt. En nánari
skýringu hafði hann ekki gef-
ið á þessu uppátæki sfnu, þegar
blaðið fór í prentun í morgun.
Þess skal getið. að drengur-
inn er frá góðu heimili og kenn
arar hans gefa honum gott orð
fyrir ástundun og nám í skól-
anum. — GP
Miövtkudagur 13. januar 1971. — 9. tbi.
61. árg.
bau ætla að veria 500 millj. til Jbess árið 1972
Menntamálaráðherrar Norður-
landa samþykktu á fundi í
Kaupmannahöfn í gær sáttmála
samstarf. I ráði er að auka
mjög samvinnu landanna í þeim
efnum. — Nefnd, er ráðherrarn-
um norrænt menningarmála- ir skipuðu, hafði gert drög að
Dauðaleit að Wáradreng■
fannst á gangi á Laugavegi
Hafði skilið skólafóskuna sina eftir á hús-
tr'óppunum heima hjá félaga sinum i gær-
morgun — Fannst kl. 11 i morgun
□
Á meðan f jöldi manna
var að leita 10 ára
rlrengs í morgun, sem sakn
■ið var síðan í gærmorgun,
fann lögregluþjónn á varð-
göngu drenginn á Lauga-
veginum. — Drengurinn
var á gangi hjá Kjörgarði
á Laugaveginum um kl. 11
í morgun, þegar hann
fannst, heill á húfi og alls
ekki illa haldinn.
Með birtingu í morgun hóf
30 manna leitarflokkur frá Hjálp
arsveit skáta leit að drengnum,
sem saknað var síðdegis í gær,
þegar hann ekki kom heim.
„Við munum byrja á því aö
' leita með fjörum hérna inn með
Vogunum, og flokkur frá okkur
byrjar um leið að leita á svæð-
inu hjá Rauðavatni — umhverf-
is bústaðina þar,“ sagði Tryggvi
Páll Friðriksson, sveitarforingi,
þegar blm. Vísis hitti hann að
máli í morgun í þann mund, sem
leit var að hefjast.
Foreldrar drengsins tilkynntu
lögreglunni um hvarf hans í gær
kvöldi kl. 23, þegar farið var
að óttast um að hann skilaði
séf ekki sjálfur af eigin ramm
leik.
„Drengurinn sást síðast í
grennd við miðbæinn ijm kl. 11
í gærmorgun. og eru það síð-
ustu spurnir, sem við höfum
haft af honum,“ sagði Magnús
Eggertsson, aðst. yfirlögreglu-
þjónn hjá rannsöknarlögregl-
unni, sem stjórnar rannsókn-
inni á hvarfi drengsins.
Drengurinn hafði ekki komið
í skólann í gærmorgun, þar sem
hann átti að mæ,ta um morgun-
inn. Hefur slíkt aðeins hent
hann einu sinni eða tvisvar áð-
ur. — Skólataska hans fannst
á húsatröppum heima hjá kunn-
ingja hans og miði hjá henni
með orðsendingu til kunningj-
ans um að koma töskunni heim
til hans.
Lögregluþjónninn, Stefán
Tryggvason frá Akureyri, sem
ásamt öðrum nemendum úr Lög
regluskólanum, er allir fóru til
leitar að drengnum, kom auga
á hinn týnda á Laugaveginum
og bar kennsl á hann af lýs-
ingum. Um betta leyti voru
tugir leitarmanna að fara af
stað í ieitina.
sanikomulaginu- — Mikilvægur
þáttur í tillögum hennar er, að
stofnuð verði norræn ráðherra-
nefnd, sem skuli hafa álcvörð-
unarvald um framkvæmdir inn-
an ramma samningsins um
menningarmál. Þá verði haldnir
reglulega fundir menntamálaráð
herra landanna, þar sem rætt
verði um þróun þ'essara mála.
Nefndin leggur til, að nefnd em-
bættismanna verði komið á fótog
fjal'li hún um samvinnu landanna.
Ráðherrarnir voru sammála niður-
stöðum nefndarinnar og yrði stefnt
að því, að þessi samvinna kæmi til
framkvæmda árið 1972. Verði sam-
tals varið nærri 500 miHjónum ísi
króna til norrænnar samvinnu um
menningarmál árið 1972.
Greinargerð um afstöðu ráð-
herranna verður nú send Norður-
landaráði, en menningarmálin
verða efst á baugi á fundi ráðs-
ins í Kaupmannaböfn í næsta mán-
uði.
Dr. Gylfi Þ. Gíslason mennta-
málaráðherra sat fundinn fyrir Is-
lands hönd. —HH
Eiga hönnuðirnir
að fá verðlaunin
— eða gripirnir?
Þessi spurning kemur upp í blað
inu í dag í sambandi við fegurð
arkeppnina. Sjá þáttinn Lesend-
ur hafa orðiö — Sjá bls. 6.