Vísir - 13.01.1971, Qupperneq 10
10
VISIR. Miðvikudagur 13. janúar 1971.
Samkeppni
af bls. 16.
lokið upp einum munni um það, að
það yröi stórkostlegt, aö fá aö taka
þátt í alþjóðlegri feguröarsam-
keppni, sem haldin yrði á íslandi“
sagöi See.
„Ég á heima í Hollywood", sagöi
Chariie, „og ég fæ Vísi sendan
þangað. íslendingar, sem þar búa,
þýða fyrir mig úr Visi — þannig
að ég kannast viö ykkur, piltar
mínir“.
Varðandi stúlkurnar tólf, sem
þátt munu taka í fegurðarsam-
keppninni í kvöld, sagði See, að við
fyrstu sýn hefði sér virzt þær
mjög glæsilegar, bæði háar og vel
vaxnar. „Þær þrjár stúlkur, sem
úr þeim hópi verða valdar I kvöld
koma áreiöanlega til meö að veita
stöllum sínum f alþjóðlegu fegurð-
arsamkeppnunum harða sam-
keppni“, bætti hann við. ,.Það sem
kom Henný í fyrsta sæti „Miss
Young International“-keppninnar í
fyrra, tel ég að hafi verið hin
geislandi æskufegurð hennar og
ferskt útlit og framkoma. Stúlk-
urnar gætu mikið lært af henni“,
sagði See aö lokum.
Auk þeirra þriggja titla, sem
áður er að vikið, verður einn titill
í viðbót veittur i kvó’ld. Er það
titilinn „Ungfrú Gleym mér ei
1971“, en það er sokkaverksmiójan
„Gleym mér ei“, sem stendur aö
þeim titli. Þá stúlku, sem hlýt-
ur j>ann titil hyggst fyrirtækið svo
fá til að auglýsa framleiðslu þeirra
á þessu ári. — ÞJM/GP
ATKUGIÐ
FINNSK ÚRVALS
VARA
KÆLISKÁPAR
FR YSTIKISTUR
— eldavélaviftur, olíu-
ofnar, gaseldavélar, gas-
kæliskápar. — Einnig
gas- og rafmagnskæli-
skápar fyrir báta og bíla,
méð öryggisfestingum.
tióðir greiðsluskilniálar og
staðgreiðsluafsiáttur.
Póstsenðum um land allt.
RAFTÆKJAVERZLUN H. G. GUÐJONSSON
Stigahlíð 45—47
Suðurveri. Sími 37637
[HÁRTINGl
spennustillar
HARTING-verksmiðjurnar i V-Þýzkalandi hafa sér-
hæft sig í smíði spennustilla enda gæöin slík að vér
hikum ekk’ við að veita
6 múnaða ábyrgð
HARTTNG-verksmiöjurnar selja framleiðslu sína utn
allan heim og kemur það neytendum mjög til góös, þvi
hin gífurlega umsetning gerir kleift að bjóöa
rniklu lægra verð
6 - 12 24 voll
BENZ — FORD - OPEL
HENSCHEL — LAND-
ROVER - MOSKVITCH
SKODA — VOLVO
W — WILLYS O. FL.
Aðalumboð:
HÁBERG
umboðs- og heödverzlun.
RAFVER HF
Skeiíunni 3 E
Sfeni: 82415.
Bl&ðaskákin
TA—TR
Svart: Taflfélag Reykjavíkur
Leifur Jósteinsson
Bjöm Þorsteinsson
* * 'r t m i W i
Wií
m m w
igtg fff r' W
& M & M ð 11 s W.
Hvítt: Tafifélag Akureyrar
Gunnlaugur Guðmundsson
Sveinbjörn Sigurðsson
1. d2 d4 Rf6
íþróttir —
bls. 5
gegn WH, þrátt fyrir þá staðreynd,
að liðiö hefur ekki unniö á Upton
Park f Lundúnum síðustu þrjú ár-
in, alltaif jafntefli, en 1967 vann
Leeds 1—0.
®
Wolves—Coventry 1
Tvö lið frá Miðlöndunum. Coven
try sigraði í báðum leikjunum í
fyrra, en Ulfarnir hafa rvú hlotið
hálfa hefnd með því að sigra í
Coventry í ágúst. Sennilega fuli-
komna þeir hefndina nú og mark-
hæsti leikmaður Olfanna, Coven-
try-pilturinn Bobbv Gould hefur á-
reiðaniega mikinn hug á því að
skora hjá sínum fyrri félögum.
Úrslit síðustu 4 árin Q—1, 1—1,
2—0 og 1—3.
©
Portsmouth—Cardiff 2
Tvö lið úr 2. deild, heimaliðið
er meðál hinna neðstu en Cardiff
frá Waíes er í fimmta sæti. Cardiff
liefur sigraö í Portsmouth annað
hvert ár aö undanförnu og sam-
kvæmt reglunni á liðið að sigra nú,
úrslit sfðustu 4 árin 3—0, 1—3,
3—1 og 1—2. Cardiff hefur nú
unnið 5 leiki á útivelli, tapað fjör-
iim, en gert 2 jafntefli, en Ports-
mout'h er sterkt heimalið. hefur
unniö 7 leijci, tapað tveimur og
gert tvö jafntefli. Erfiður leikur,
sem sennilega er bezt að kasta upp
á, ef maður lætur ekki regluna
gilda. —hsfm
fyrit
arvrm
Liverpool : Manch.
City 0:0 í gærkvöldi
EINN leikur fór fram í gær-
kvöldi í 1. deild ensku knatt-
spymunnar og urðu úrslit þau,
að Liverpool og Manchester
gerðu jafntefli, hvorugt liðanna
skoraði mark.
Unglingameistora-
ntót Reykjnvíkur
í sundi
Unglingameistaramót Reykjavík-
ur í sundi verður haldið miðviku-
daginn 27. janúar I Sundhöll
Reykjavikur. Raðað verður niöur i
mótið miðvikudaginn 20. janúar.
Keppt verður i eftirtöldum grein-
um:
100 m flugsundi stúlkna, 100
m flugsundi drengja, 100 m bringu-
sundi telpna, 100 m skriðsundi
sveina, 200 m fjórsundi stúlkna.
200 m fjórsundi drengja, 100 m
baksundi telpna, 100 m1 baksundi
sveina, 100 m skriðsundi stúlkna,
100 m brinsu.sundi drengia. 4x100
m fjórsundi stúlkna, 4x100 m
fjórsundi drengja.
Sundknattleiksmeistaramót
Reykjavfkur hefst snemma í febr-
úar og verður úrslitaleikurinn háð-
ur 16. febrúar. Þátttökutilkynning-
ar berist Erlingi Þ. Jóhannssvni.
Sundlaug Vesturbæjar eigi siðar
en 29. janúar.
VEÐRIÐ
I DAG
Suðvestan stinn-
ingskaldi og
skúrir fyrst,
styttir upp og
lægir síðdegis en
vaxandi austan
átt í kvöld. Hiti
3—5 stig.
TILKYNNINGAR
— Hvernig á maöur að hafa
hugmynd um hvað mann langar
í, þegar það er ekki einn einasti
verðmiði?
VISIR
50
Svunta með silfurspennu tapað
ist á leiðinni milli Finnbogahúss
og Rauðarárstlgs. (auglýsing).
Visir. 13. jan. 1921
r SKEMMTISTAÐIR •
o
«u;:. Þócscafé..-B. J. og Mjöll Hólm.
Hjörtur Bæringsson, Klepps-
spítala, lézt 31. des., 59 ára aö
aldri. Hann veröur jarðsunginn frá
Fossvogskirkju kl. 1.30 á morgun.
Haraldur Ágúst Jðhannsson,
skrifstofumaður, Kleppsvegi 66,
lézt 8. janúar, 49 ára að aldri.
Hann veröur jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni kl. 1.30 á morgun.
Elín Davíðsson, Krosseyrarvegi
7, Hafnarfirði, lézt 8. janúar, 60
ára að aldri. Hún verður jarðsung-
in frá Fossvogskirkju kl. 3 á morg-
un.
Kvennadeild Slysavamafélags-
ins í Reykjavík heldur fiand
fimmtudaginn 14. janúar kl. 8.30
að Hótel Borg. Til skemmtunaT
verða sýndar litmyndir frá Reyfcja
vfk Gunnar Hannesson sýnÍT. —
Fjöimennið. — Stjómin.
Spilakvöld templara Hafnar-
firði. Féiagsvistin í Góötemplara-
húsinu í kivöld kl. 8.30.
Hörgshlíð 12. Almenn samkoma.
Boðun fagnaðarerindisins í kvöld
kl. 8.
Kristniboðssambandið. Sam-
koma í kristniboöshúsinu Betaníu
Laufásvegi 13, í kvöld kl. 8.30.
Jóhannes Sigurðsson prentari tal-
ar. Allir velkomnir.
Kvenfélag Árbæjarsóknar. Mun
ið bingófundinn sem haldinn verð
ur i Árbæjarskóla kl. 8.30 í kvöld.
Fjölmennið og takið með ykkur
gesti.
Fundur verður I Sálarrann-
sóknafélaginu í Hafnarfirði i
kvöld kl. 8.30 í Alþýöuhúsinu.
Fundarefni annast Gunnar M.
Magnúss rithöfundur og Úffur
Ragnarsson læknir.
Kvennadeild Flugbjörgunar-
sveitarinnar. Fundur verður hald-
inn í kvöld kl. 8.30. Spilaö verðui
bingð.
Kvenfélag Ásprestakalls. Opið
hús fyrir aldraöa í sökninni í Ás-
heimilinu Hólsvegi 17 alla þriðju-
daga kL 2—5 e.h. Þá er einnig
fótsnyrtingin og má panta tíma
á sama tfma { síma 84255.
Félagsstarf eldri borgara i
Tönabæ. Miðvikudaginn 13. jan-
úar veröur opið hús frá ld. 1.30
— 5.30 en auk venjulegra dag-
skrárliða verða umferðarmál
rædd.
Kvenfélag Breiðholts. Fundur
í Breiðholtsskóla miðvikudaginn
13. janúar kl. 8.30. Frú Marianne
Schram snyrtisérfræðingur sýnir
andlitssnyrtingu. — Stjðrnin.
Kvenfélag Óháða safnaðarins.
Nýársfagnaður eftir messu n. k.
sunnudag. Sigriður Hagalín leik-
kona les upp, Árni Johnsen syng-
ur þjóðlög og leikur með á gítar.
Kaffiveitingar. Félagskonur eru
minntar á aö taka með sér aldrað
fólk. AUt safnaðarfólk velkomið.
Ksf;
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi
BJÖRGVIN HERMANNSSON, húsgagnasmiður
Óðinsgötu 5
andaðist í Landakotsspítala að morgni þriðjudagsins
12. janúar.
Sigurrós Böðvarsdóttir,
börn, tengdaböm barnabörn
og barnabarnabörn.
Útför
ÞURÍÐAR HALLDÓRSDÓTTUR,
Skóiavörðustíg 33,
veröur gerö frá Fossvogskapellu föstudaginn 15. jan.
klukkan 15.
Kristbj'órn Tryggvason.
I