Vísir - 13.01.1971, Blaðsíða 16
Ætlunin að reisa við-
byggingu við íþróttahöllina j
— sýningasamtökin þurfa meira rúm i Laugar-
dalsh'óllinni, áætlað að taka nýja skálann i
notkun á alþjóðasýningunni i haust
ÞriBjudagur 12. fanúar 1971.
Saksóknari tekur
nauðgunarkæruna
til meðferðar
Rannsókn hefur staöið yfir und-
anfarna daga vegna kæru, sem
kona hafði lagt fram á hendur
tveim mönnum, og sagt hefur verið
frá áður í Vísi. Yfirheyrslum er
lokið, en báðir aðilar héldu fast við
sinn fyrri framburð, þar sem fram-
burður mannanna stangaðist á í
mikilvægum atriðum við framburð
konunnar. Mennimir höfðu verið
úrskurðaðir [ gæzluvaröhald, en
beim var sleppt lausum um helgina.
Gögn málsins hafa nú verið send
saksóknara rikisins til ákvörðunar
um, hvort frekari rannsóknar sé
börf, áður en ákveðiö verður, hvort
höfðað verður mál á hendur mönn-
unum. — GP
Sýningasamtök atvinnu-
veganna munu að öllum
líkindum koma upp 1200
fermetra sýningaskála í
sumar. — Mun skálinn
standa austur af íþrótta-
höllinni í Laugardal. —
Þegar er búið að gera
frumteikningu að skál-
anum.
Davfð Soheving Thorsteinsson
formaður sýningasamtakanna
sagði f viðtáli við Vfsi að ekki
væri búið að taka endaniega á-
kvörðun um byggingu skálans,
en það verði gert seinna í mán-
uðinum.
Ragnar Kjartansson tjáði Vísi
í morgun að skálinn yrði iíklega
notaður við stóra aiþjóöa vöru
sýningu, sem verður haldin
seinnipart sumars frá 26. ágúst
til 12. september. Sagði Ragnar,
að þegar væri ijóst að stækka
þurfi sýningarsvæðið, en sýnt
verður í Laugardalshöllinni og
á töluverðum hluta útisvæðis-
ins. Þetta verði stærsta vöru-
sýning, sem haildin hefur verið
hér, ef nýi skálinn kemst upp
til þess að hægt veröi að nota
hann í sambandi við sýninguna.
Þegar hafa um 60 sýnendur lát-
ið skrá sig á sýninguna en um R
sóknarfrestur er eikki enn út-
runninn. Eru flestir þeirra er-
lendir, og má þar nefna fyrir-
tæki eins og IBM og John Man-
ville, auk þess er þegar ákveð-
ið um litla Danmerkursýningu,
en Danir munu sýna helzitu og
þekktustu gæðavörur sínar, þær
sem hafa þótt beztar með tilliti
tiil hönnunar. Innan sýningarinn
ar verður einnig lítiil sjávarút-
vegssýning. Verzlunarráðið í
London hefur sýnt áhuga á að
taka þátt í sýningunni en bú-
ast má við að 10—15 fyrir-
tæki muni sýna frá því. —SB |
Alþjóðleg fegurðarsam-
keppni haldin hér 1972?
— ungfrú Gleym mér ei 1971 valin i
fegurðarsamkeppninni i kv'óld
Itöðugt fjölgar þeim titlum,
;em íslenzkar stúlkur hafa tæki-
færi til að næla sér f í feguröar-
samkeppnum hérlendis. Samtals
munu þeir vera í dag tíu að tölu
— sá tíundi, Módel ársins 1971,
bættist við f gær, er til landsins
kom Japaninn Charlie See. —
Hann kom hingað til að sitja í
'ómnefnd þeirri, sem að Sögu f
kvöld mun velja fulltrúa Íslands
f keppnina um titilinn „Miss
International“ og „Miss Young
Intemational“. Skýrði See frá
því við hingaðkomuna, að hann
vildi einnig fá valið f kvöld
Módel ársins 1971, limafagra
stúlku, sem síðar á þessu ári
gæti svo tekið þátt í keppninni
Módel módelanna, en það er
keppni, sem stúlkur frá 15 lönd-
um taka þátt í.
í spjalli við Vísi í morgun sagði
See, að hann heföi mikinn áhuga á
að halda keppnina Model of Mod-
els hér á íslandi, vegna þess hve
landið er miðsvæðis. Kvaðst hann
hafa boðið hlutaðeigandi aðilum
þaö nú þegar og orðið var mikils
áþuga. Líklegast þykir honum, að
keppnin geti farið hér fram strax
á næsta ári. „Aðspurðar hafa allar
þær stúlkur, sem ég hef haft tal af
bls. 10
Auðvelt að skattleggja
keðjubréfagróðann
— Skattarannsóknadeildin laumaði sér inn
i keðjubréfahringinn i haust
» „Það er nokkuð auðveldur
« leikur fyrir okkur hjá Skatt-
• rannsóknadeildinni að koma
sem menn hafa haft af keðju-
bréfum,“ sagði Ólafur Nils-
son skattrannsóknastjóri, er
„Þegar þessi keðjubréfafar-
aldur gekk yfir í haust, gerðum
við ráðstafanir til að afla gagna
um gróða — jafnt þeirra, sem
stóðu að þessu sem hinna, sem
tóku þátt í slíkum keðjum. —
Aö vfsu vantar nokkuð inn í
hverja keðju, en við getum séð
af þeim, hvað vantar — það
er auðvelt að rekja slg eftir
keðjunni og fylla í eyður eftir
eðli málsins.
Nú, þá höfum við einnig kraf-
izt þess, að okkur verði leyft
með dómsúrskurði að fá aðgang
að þeim gögnum sem póstmála-
stjórnin hefur undir höndum
varðandi þessar keðjur — bæði
innlendar og erlendar. Sú krafa
okkar er nú í athugun hjá saka-
dómi“, sagði skattrannsókna-
stjóri að lokum. — GG
4 í þessum fornfálegu húsa-
kyrwium að Stekk fyrir sunn-
an Hafnarfjörð var milljónum
velt. Nú telja skattamenn sig
hafa öll gögn til að innheimta
það, sem þeim ber, — bæði
frá forráðamönnum veltunn-
ar og eins þeim, sem högn-
uðust á henni.
„Þið eruð frá blaðinu með bláa hausnum. Það blað sé ég oft i
Hollywood,“ sagði Charlie See, er fréttamenn Vísis bar að. Hér
sést See ásamt Henný Hermannsdóttur líta í „blaðið með bláa
hausnum“.
Samtök ferðaskrif-
stofanna tvístrast
Ný samt'ók, sem berjast fyrir „heiðarlegum sam
skiptum" nýlega stofnuð af þrem ferða-
skrifstofanna
Ferðaskrifstofumenn í Reykja-
vík virðast tví- eða þríklofnir
um þessar mundir. Fram til
þessa hafa þeir haft með sér
eitt féiag, Félag íslenzkra ferða-
skrifstofa, en formaður þess yf-
irstandandi ár er Kjartan Helga-
son í Landsýn, en með honum
i félaginu eru Guðni Þórðarson
í Sunnu. Ferðaskrifstofa Akur-
eyrar og Úlfar Jakobsson.
í síðasta mánuöi var svo stofnaö
annað félag, Samtök islenzkra
feröaskrifstofa og er tilgangur
þeirra að vinna að og gæta sam-
eiginlegra hagsmuna aöilanna,
einnig að efla heiðarleg samskipti
og vinna að auknu samstarfi og
skilningi aðila.
Aðilarnir að þessu nýja félagi
eru Ferðaskrifstofan Úrval, Ferða-
skrifstofa Zoega og Ferðaskrifstof-
an Útsýn. Formaður er Tómas
Zoega.
Tvær ferðaskrifstofur standa ut-
an allra samtaka, það er Ferðaskrif
stofa ríkisins og hin nýstofnaða
ferðaskrifstofa Loftleiða. — JBP