Vísir - 28.05.1971, Side 4
4
V í SIR . Föstudaguv 28. maí 197*
Sólgleraugu
Dömu og herrasólgleraugu í glæsilegu úrvali. Verzlun-
in Pöll, Veltusundi 3 (gegnt Hótel ísland bifreiða-
stæðinu). Sími 10775.
Frá skólagöröum
Reykjavíkur
Innritun í skólagarða fer fram sem hér segir:
Laugardalsgarða miðvikudaginn 2. júní kl.
1—3 fyrir böm búsett austan Kringlumýrar-
brautar og norðan Miklubrautar. í Alda-
mótagarða við Laufásveg fimmtudaginn 3.
júní kl. 1—3 fyrir böm búsett vestan Kringlu
mýrarbrautar. í Ásendagarða föstudaginn 4.
júní kl. 1—3 fyrir börn búsett sunnan Miklu-
brautar og austan Kringlumýrabrautar ásamt
Breiðholtshverfi og Blesugróf. j Árbæjar-
garða föstudaginn 4. júní kl. 10—12 fyrir
börn úr Árbæjarsókn.
Innrituð verða börn fædd ’59 til ’62 að báðum
árum meðtöldum. — Þátttökugjald kr. 450,
greiðist við innritun.
Skólagarðar Reykjavíkur
AlíGUJVég hvili * !■ JJj,
rneó gleraugum frá iWl! F
ISLAND 5kr
LJfc. A. M. M M. AAA. M . A .* J
Austurstræti 20. Sími 14566.
Frumlegu
frímerkin
Enn eitt frfmerki er að koma
út, og er þess vart að vænta aö
íslenzkir teiknarar hressist mjög
við komu þess, en þeir hafa
mjög kvartað yfir ófrumleika í
frímerkjaútgáfunni. Það eru 5
og 7 króna merki, sem gefin eru
út í tilefni af gíróþjónustu pósts
og síma. Merkin koma út 22.
júní.
Fasteignamati
enn frestað
Ráðgert var, að hið nýja fast-
eignamat tæki gildi hinn 1. júní
n.k Með því að enn er ekki
gengið frá ýmsum formsatrið-
um við birtingu matsins, frest-
ast löggilding þess enn um sinn.
Er þess vænzt, að löggilding
getj farið fram í júnímánuði.
Tekið skal fram, að Yfirfast-
eignamatsnefnd hefir lokið úr-
skurðum á kærum.
Framtakssamir
krakkar
Nýlega tóku nokkrir krakkar
í Kópavogi sig saman og héldu
hlutaveltu. Högnuðust börnin
um kr. 3.000.00, sem þau
færðu síðan Styrktarféiagj van-
gefi'nna að gjöf.
Ánægjulegt er að börnin
skuli vilja vinna’ góðtí' iíjálcfni ’
jið og þetta framtak þeirra sýn-
ir að þau vita að hinir heil-
brigðu verða að hjálþa þeim,
sem minna mega sín.
Börnin, sem ö!l eiga heima
við Hiíðarveg og Reynihvamm
í Kópavogj heita: Katrín Inga-
dóttir, Fjóla Rut Rúnarsdóttir,
Dóra Vilhelmsdóttir, Kristján
Björnsson, Dan’iel Þ. Magnús-
son, Gunnar Már Óskarsson og
Ingólfur Vilhelmsson.
Styrktarfélaginu berast alltaf
góðar gjafir og áheit og er listi
yfir gefendur sendur ársfjórð-
ungslega til dagblaðanna til
birtingar.
Dúxar frá Hótel
Loftleiðum og
Hótel Borg
Tólf nemendur luku burt-
fararprófi frá Matsveina og
veitingaþjónaskólanum að þessu
sinni, en skólinn verður í fram-
tíðinni hótelskóli, og útskrifar
menn sem koma til með að
verða mikilvægir í hinni sl-
auknu ferðamannamóttöku hér
á land. Að þessú sinni urðu
þeir efstir á brottfararprófum
Georg A. Hauksson á Hótel
Loftieiðum með 8.55 í mat-
reiðsludeiid, en Sigurður S.
Bárðarson á Hótel Borg I fram-
reiðsludeild. Sigursælí Magn-
ússon (Sælakaffi), gaf' skólanum
50 þús. krónur við skólaslitin,
— og eiga peningarnir að veröa
vísir að bókasafni við skólann.
219 skólameyjar í
Kvennaskólanum í
Rvík síðasta vetur
Kvennaskóiameyjar kvöddu
skóla sinn á laugardaginn var,
— sumar aðeins yfir sumarið,
en sumar fyrir fullt og aiit.
'Grélhfegrvár þó á þeim fjölda,
sem sótti skólann heim við
skólaslitin, að böndin milli
skólans og gamalla nemenda
eru sterk. Skólastjórinn, dr.
Guðrún P. Helgadóttir, flutti
skólaslitaræðuna og skýrði frá
gangi prófa. Alls 219 skóla-
meyjar settust í skólann i haust
og 32 brautskráöust úr skólan-
um ’i vor. Landspróf þreyta 48
stúlkur og ungiingaprófi iauk
61 stúlka. Skólanum bárust
gjafir frá mörgum eldri nem-
enda, sem héldu upp á afmæli
brautskráningar frá skólanum.
Hæsta einkunn á burtfarar-
prófi hlaut Margrét Theódórs-
dóttir 9,23. í 3. bekk hlaut Sig-
rún G Arndai hæsta einkunn
8,60, í 2. bekk Dögg Pálsdóttir
9,16, í 1. bekk Ásdís Hildur
Runólfsdóttjr 9,15.
Nýr skólastjóri
Vélskólans
Andrés Guðjónsson, tækni-
fræðingur, hefur verið skipaður
skólastjóri Véiskóla íslands frá
1. sept., í stað Gunnars Bjama-
sonar, er þá lætur af störfum
fyrir aldurs sakir.
Andrés hefur verið vélfræði-
kennari við Vélskóla Islands s.l.
15 ár. Hann er tæplega 50 ára
gamall, fæddur í Hafnarfírði,
sonur Guðjóns Þorkelssooar
vélstjóra.
Myndin er a-f Andrési.
VÍSIR í VIKIÍLOKIN
er orðin 360 síðna litprentuð bók í fallegri möppu,
sem inniheldur allt sem viðkemur konunni og
heimilinu.
VÍSIR í VIKULOKIN
fylgir aðeins til fastra áskrifenda.
Vönduð mappa getur fylgt á
kostnaðarverði.
VÍSSR í VIKULOKIN
er afgreiddur án endurgjalds frá byrjun
til nýrra áskrifenda.
(nokkur tölublöð eru þegar uppgengin)