Vísir - 28.05.1971, Qupperneq 5
ÍTf SI R. Föstudagur 28. maí 197i.
Nú verður það f j ölskyldutrimm
í Laugardalnum í júlí-mánuði
í júnímánuði getur öll fjöl-
skyldan farið í trimm f Laugar-
da] í Reykjavík, þvi þá gangast
iþróttakennararnir Guðmundur
Þorsteinsson og Höskuldur
Goði Karlsson fyrir námskeið-
um þar i samvinnu við ÍSÍ og
verða þar einnig fleiri íþrqtta-
kennarar m.a, stúlkur, sem taka
að sér að sjá fyrir ungu börn-
unum meðan foreldrarnir
trimma.
Þetta kom fram á blaða-
mannafundi í gær, sem Sigurður
Magnússon, útbreiðslustjóri
’ ÍSÍ, stóð fyrir. Hann sagði, að
allir Reykvíkingar, sem vilja
gætu tekið þátt í þe^sum trimm-
námskeiðum, konur, karlar, börn
og fullorðnir Fimm námskeið
eru á dag þrisvar í viku —
mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga — og geta þátttak-
endur verið í Laugardalnum
eins lengi og þeir vilja — en
hvert námskeið stendur í 50 mín.
undir leiðsögn kennara. Ef þátt-
takendur vilja svo trimma á-
fram, hlaupa, synda svo eitt-
hvað sé nefnt, þá geta þeir það.
Aðalkosturinn er, að þarna
getur öll fjölskyldan verið sam-
an 'i trimmirtu — barnanna verð
ur gætt og þau látin leika sér
— og eins er sérstakur tími eftir
hádegi, aðallega liugsaður fyrir
mæður, sem þá gsétu komið með
börn sín með sér og tekið þátt
í hollum æfingum.
Námskeiðin verða í Sundlaug-
unum í Laugardalnum og næsta
nágrenni. Fyrsti tíminn hefst
kl. 7.50 að morgni — sá næsti
8.40. Þriðji tíminn er kl. tvö
eftir hádegi — sn'ðan 5.10 og kl.
sex. Þarna er sem sagt hægt
að trimma áður en fólk fer f
vinnu — eða þá, þegar það hef-
ur lokið störfum sínum.
Innritun á námskeiðin verður
á skrifstofu ÍSÍ f Laugardaln-
um — símar 30955 og 83377, og
einnig í Sportvöruverzlun Ing-
ólfs Óskarssonar að Klapparstfg
44 — simi 11783. Sérstök skír-
teini eru gefin út. Námskeiöin,
sem standa allar júnímánuð
kosta 550 kr. fyrir fullorðna —
275 kr., fyrir börn á aldrinum
8—14 ára, en ókeypis fyrir börn
yngi en átta ára, sem eru ’i
fylgd með foreldrum sínum.
Skírteinin gilda jafnframt sem
aðgöngumiði að sundlaugunum.
Helztu verkefni á þessum
trimm-námskeiðum verða próf
un á þreki og þoli, sem Jón Ás-
geirsson mun annast, leikfimi-
æfingar, skokk, knattleikir,
sund og svo fjallganga á Esju
í námskeiðislok.
Nauðsynlegt er fyrir þátttak-
endur að hafa létt og þægileg
föt með sér f trimmið og góða
skó. Æfingabúningar eru æski-
legir, en þó ekki nauösynlegir.
Og svo að lokum: Trimm fyrir
alla í Laugardal í júnímánuði.
— hsím.
Floyd er
enn seigur
Cleveland, Ohio. — Hinn 36 ára
gamli Floyd Patterson, fyrrum
hejmsmeistari í þungavigt V hnefa-
lei'kum, vann í gær sinn fjórða
sigur í röð, þegar hann sigraði hinn
tíu árum yngrj Terry Daniels á
stlgum hér í Cleveland í keppni,
sem var tiu lotur. Fyrir nokkrum
mánuðum hóf Floyd „gentleman"
Patterson keppni á ný eftir tveggja
ára hlé. Síðustu árin héfur hann
verið búsettur í Svíþjöð og er
kvæntur sænskri stúlku. Hann
fékk ofurást á Svíum, þegar Inge-
mar Johnnsson vann af honum
heimsmeistaratitilinn hér á árum
áður, en Floyd vann hann svo aftur
af Ingemar — eina heimsmeistar-
anum í þungavigt, .sem það hefur
tekizt; Gamla slagorðið „þeir koma
aldrej aftur“ féll þá dault og ó-
merkt.
Leika aftur
í kvöld
Fyrri úrslitaleikurinn i borga-
keppni Evrópu milli Juventus frá
Torinó á Ítalíu og Leeds United
verður háður í kvöld f Torinó.
Ejns ■. g skýrt var frá hér á sfðunni
í gær léku liðin 51 m'ín. á mið-
vikudag, én dómarinn varð þá að
stöðva leikinn vegna úrhellisrign-
ingar. Einn leikmaður Leeds, Eddie
Gray, meiddist þá á öxl það alvar-
lega, að hann getur ekki leikið V
kvöld ' Walskf ’Taridsliðsmaðurinn
Yorath tekur stöðW/tians f liði Leeds
eins og á miðvikudaginn. Að öðru
leyti eru allir beztu leikmenn Leeds
með og einnig Juventus, en þar
eru þekktastir Þjóðverjinn Helmut
Haller, sem lék hér á Laugardals-
velli 1960 — 18 ára að aldrj —
og Anastasia, sem Juventus keypti
fyrir 440 þúsund sterlingspund
fyrir nokkrum árum eða 920
milljónir fslenzkra króna,' Von, að
ftlösku liðin séu „á hausnum",
þegar þau standa í slíkum kaupum.
Þessar myndir tók ljósmyndari Vísis BB í gærkvöldi, þegar í fyr sta skipti var keppt í 25 km hlaupi á móti hér á landi. Þátttak-
endur voru tveir, HalldórGuðbjörnsson, KR, sem sigraði í hlaupinu og setti þar með íslandsmet, en tími hans var ein kist. 29 mín.
58,2 sek. og GunnarSnoiTason úr Kópavogi á 1:35,43,2. Tími Halldórs er nokkuð góöur, en hlaupið var eftir ýmsum götum í
borginni.
Bjarni hljóp 100 m. á 10.8 sek.
Ágætur árangur náðist í
hlaupum á fimmtudags-
mótinu á Melavellinum í
gærkvöldi. Bjarni Stefáns-
son, Á, hljóp 100 m á 10,8
sek-.-Æg Valbjörn Þorláks-
son, Á, náði 14,9 sek. í 110
metra grindahl. en þessi
tími er þó ekki löglegur,
þar sem vindur var aðeins
of mikiB, þegar hlaupin
fóru fram — en sýnir þó
vel, að við ýmsu má búast
af þessum köppum í sum-
ar.
Bjarni náði slæmu viðbragöi í
100 m. hlaupinu og var lengi vel
á eftir Valbirni, en reif sig svo
fram úr honum á siðustu metrun-
um Valbjörn hljóp á 11.0 sek. 1
110 m. grindahlaupinu varð Borg-
þór Magnússon annar á 15.3 sek.
Guðmundur Hermannsson varp-
aði kúlnnni pnn vfir 1 v trwnlra —
náðj bezt löglegu kasti upp á 17.19
metra. í spjótkastinu sigraði Páll
Eiríksson og kastaði hann lengst
54.82 m., en Valbjör„ varð annar
með 53.81 m. Fimmti f greininni
varð Óskar Jakobsson, ÍR. sem
setti nýtt sveinamet — kastaði
51.28 m., en Óskar er aðeins 16
ára, svo þarna er von að við eign-
umst loks spjótkastara.
Nú, í öðrum greinum er helzt
aö minnast á 400 m. hlaupið. Þar
sigraði Siguröur Jónsson, HSK, á
51.5 sek., en tveir næstu menn
hlupu á frægum tíma 52.6 sek. —
pn ha* '/í,r lan/ri fcúandsrnpt Sveins
Ingvarssonar — þeir Lárus Guð-
mundsson, USAH, og Trausti
Sveinbjörnsson, USK. EVias Sveins-
son. I'R, sigraði í hástökki, stökk
nú 1.85 m.,'en sömu hæð stökk
einnig S.tefán Hallgrímsson.
I 1500 m. hlaupinu varð Ágúst
Ásgeirsson, ÍR, fyrstur á 4:18.4 mín.
en Einar Óskarsson varð annar á
4:21.0 mín. Kar] Stefánsson var
eini keppandinn í þrístökki og stökk
hann lengst 14.21 m. 1 100 m.
hlaupi kvenna náöi Sigrún Sveins-
dóttir ágætum tima 13.0 sek., en
Lilja Guðmundsdóttir varð önnur
a .13 * selr — hcím
Tvö íslnndsmet í
nýjum boðhluupum
Frjálsíþróttadeild ÍR gekkst fyrir
innanfélagsrhóti á Laugardalsvelli
á miðvikudag og var þá keppt í
fyrsta sinn hér á landi í 3x800
m. og 4x400 boðhlaupi kvenna.
Verða því tímar KR-sveitarinnar í
þessum hlaupum skráð sem Islands-
met.
I 3x800 m. hlupu þær Anna
Haraldsdóttir, Katrín ísleifsdóttir
og Lilja Guðmundsdóttir á 9:07.2
mfn' Lilja náði beztum tíma 3:00.5
mfn. Timinn í 4x400 metrum var
5:15.5 rhín. og þar hlupu Björk
Eiríksóttir, sem náði beztum tíma,
Bjarney Árnadóttir, Katrín ísleifs-
dóttir og Lilja Guðmundsdóttir,
en tvær þær'síðasttöldu komu næst
um beint úr fyrra boðhlaupinu, en
stutt var á milfi boðh’aupanna.'
Bezt í Noregi
Torolf Krueger hljóp 400 m
grindahlaup á S*-8 sek. f gær á
móti í Þrándheimi og er það bezti
tími í greininni t ár í Noregi, og
norðurnorskt met. Á sama móti
| hljóp sveit Ranheim 4x100 m
I boðhlaup á 42.8 sek. þrátt fyrir
miöo clípm»r cVintinapr