Vísir - 28.05.1971, Side 7
I
SPl SIR . Föstudagur 28. maí 1971.
cýWenningarmál
fcr
Kristján Bersi Ólafsson skrifar um sjónvarp
■ í
Framboð og flokkar
Eiriar Hákonarson
Verðlaun
fyrir
grafík
ÖÖastliðihn vetor 'V»r, hatdin
■ álþjöðieg sýnmg á 'grafiskri
list, „Segunda Bienal Intemaci-
onal Ðel Grábado De Buenos
Áires“, í Argentínu.
Fimm meðlimir félagsins „ís-
Lenzk grafík" áttu verk á þess
ari sýningu, Anna S. Björnsdótt
ir, Bragi Ásgeirsson, Einar Há-
konarson, Jens Kristleifsson og
Valgerður Bergsdóttir.
Dómnefnd veitti viðurkenníngu
f formi medalín, sem var gerð
af myndhöggvaranum Antonio
Pujia. Fimmtán listamenn frá
ýmsum löndum hlutu þessa við
urkenningu, þ. á m. einn íslend
ingur, Einar Hákonarson. Þetta
er í þriðja sinn, sem Einar h-lýt
ur viðurkenningu fyrir list sína
erlendis.
jyjér þótti flokkskynningin hjá
Framsóknarflokknum vera
langtum lengri en hjá öllum
hinum flokkunum. Þó hefur hún
án efa tekið jafnlangan tima í
flutningi, mælt í mínútum. En
framsóknarmenn eru nú einu
sinn; framsóknaimenn, og þeir
eru sjaldan skemmtilegir og
aldrei upplifgandi. Þeim vana
brugðust ekki fuMtrúar flokks-
ins á sjónvarpsskerminum á
miðvikudagskvöldið. Þó var þátt
ur þeirra ekki alveg laus við
að vera spaugiiegur, en það var
ekki þeirra dyggð, heldur gerð-
ist óvart, og f rauninni urðu
viðræðurnar þá einna spaugileg-
astar er þeim var ætlað að vera
hvað alvarlegastar Eilíf innskot
og áherzluhljóð inn í ræður
hvers annars voru til dæmis tals
vert grin í þættinum, og minnti
einna helzt á hallelújaköll
og fresunarrokur á sam-
komum sértrúarflokka. Það
leyndi sér hins vegar ekki
hver taldi sig fyrirliöa þeirrar
sveitar, sera þarna birtist. Tóm
as Karlsson endurtók pg endur
sagði flest ummæli félaga sinna,
og það var í rauninni greinilegt
að hann kærði sig ekki um að
þeir hefðu mjög mikið til mál-
anna að leggja, sjálfsagt hefði
hann kosið að vera einn á skerm
inum allan tímann minnsta kosti
‘utugekkst hann þá eins og .
kúnnáttulitla unglinga; sem að;
visú yrði að þola hjá sér, en
þyrfti þó stöðugt að fylgjast
með og leiðrétta. Og fyrir bragð
ið varð heildarsvipur þáttarins
sá, að þarna væru ekki menn,
sem ætluðu sér að sannfæra
kjósendur, heldur væru að
reyna að sannfæra hver annan.
Útlendingur, sem ekki skilur ís-
lenzku, hefði áreiðanlega haldið
við að sjá þáttinn að þetta væri
umræðuþáttur andstæðinga,
ekki ár<>öursþáttur samherja.
Annars var það ekki ætlun
mm hér aö fara að dæma
frafrtmistöðu einstakra flokka i
flokkakynningunni. Hjá flestum
var þetta heldur áferðarfalfeg .
skrautsýning. Ragnhildur Helga
Framboðsflokkurinn í sjónvarpi — velheppnað spott um kosningabaráttuna
dóttir brosti svo mikið og
fallega að við lá það yrði ó-
þægilegt á að horfa, og Gunnar
Eyjólfsson gerði sér svo mikið
far um að vera ekki að leika,
að hann leit aidrei upp úr
biöðunum, sem hann las af.
Hannibalistarnir voru heldur
stirðir í svörum, og ekki fannst
niér tiltakanlega mikið að greeða ,
á skáldunum hjá Alþýðubanda-
laginu, jafnvel þótt Stefán Jóns
son reyndi að segja nokkra
brandra i landsfrægum stfl sín
um. Þó hygg ég að þáttur Al-
þýðubandalagsins og trúlega
þáttur Sjálfstæðisflokksins hafi
verið einna bezt geröir af þátt-
um flokkanna, einfaldir í sniðum
og þátttakendur kunnu hlutverk
in utanbókar, en þurftu ekki að
lesa þau upp af blöðum, eins
og til að mynda þátttakendurnir
í viðhafnarskrautsýningu Al-
þýðuflokksins gerðu flestir.
Jgn það sem mestri eftirvænt
ingu olli fyrirfram voru
ekki prógrömm stjórnmálaflökk
anna, heldur þáttur Framboðs-
flokksins. Ýrnsar sögur voru á
kreiki um það, hvers væri þar
að vænta, og voru þær nægjan-
Iega ískyggiiegar tii þess að
fulltrúar stjórnmálaflokkanna í
útvarpsráöi samþykktu að
banna að annað kæmi fram í
flokkakynningunum en venjul,
talað íslenzkt mái. Þar með var
komið í veg fyrir söng eða hljóð
færaslátt. notkun mynda og
Hnurita og fleira þess háttar í
áróðursskyni. Nú er það svo að
vfsu, að venjúlegt mælt mái tek
ur sig sjaldnast betur út í sjón
varpi en í útvarpi eða jafnvél á
prenti, og hefði því þegar af
þeirri ástæðu verið tímabærtað
leita eftir öðrum formum fyrir
flokkakjTininguna en ræðuhöld
um eingöngu. Um það hefðu
flokkamir átt að fá að hafa
algjörlega frjálsar 'hendur, innan
skynsamlegra velsæmistakmarka
aö sjáifsögðu. En stjórmnála-
flokkumim hefur greinilega þótt
tryggast að halda þessum um-
ræðum ölium á sama flatneskju
planinu og þeir kunna bezt vlð
sig á sjálfir og hætta ekki á
að reyna neitt nýtt.
JT'ramboðsflokkurinn er skop-
stæling á íslenzkum stjóm-
málaflokki og kosningabarátta
flokksins skopstæling á kosn-
ingaharáttu. ^jórnmálaflokk-
anna. Og þessi skopstæling hef-
ur til þessa veriö býsna kunn-
áttusamlega gerð, í þættinum á
þriðjudaginn voru þátttakendur
að vísu nokkuð misgööir, og að
eins bar á því, að ýkjur skop-
stælingarinnar væru ekki nógu
hnitmiðaðar, svo að hægt var
að halda að allt í einu væri
byrjað að tala í alvöru. En það
mestu leyti tókst þarna þó að
halda leiknum gangandi f sama
stfl og tfl hans var stofnað í
upphafi. Og sumir punktamir,
sem komið var með, voru frábær
fr, tfl að mynda skopstæfingam
ar á nokkrom sjönvarpsawgfýs-
ingum af því tagi, sem Ringu
eru orðnar fendspTága.
Útboð
Tilboð óskast í að byggja hús fyrir Lands-
banka ísiands á Húsavík.
Útboðsgögn verða afhent gegn kr. 5.000.00
skflatryggingu frá og með þriðjudeginum 1.
júní í útibúi Landsbankans Húsavík og í skipu
lagsdeild Landsbankans, Austurstr. 10, Rvk.
Athygli skal vakin á því að heimilt er að
bjóða í leiðslukerfi hússins sérstaklega.
Tilboð verða opnuð samtímis í útfbúi Lands-
bankans Húsavík og í skipulagsdeild bankans
í Reykjavík, þriðjudaginn 15. júní ld. 16.oo.
L
SENDUM
__ BÍLINN
^2? 37346
<
Hvítasunnuferðir.
1. Snæfellsjökull
2. Þórsmörk.
Farmiðar á skrifstofunni, Öldn-
götu 3. Simar 19533 og 11798.
Feröafélag íslands.
Útboð
Tilboð óskast í byggingu verksmiðjuhúss að
Draghálsi 1 Reykjavík. Uppsteypt með frá-
gengnu þaki. Útboðsgagna skal vrtja hjá Al-
mennu verkfræðistofunni hf., Suðurlands-
braut 32 gegn 2.000 kr. skilatryggingu. Tfl-.
boð verða opnuð þriðjudaginn 15. júní kl.
14 á sama stað.