Vísir - 28.05.1971, Blaðsíða 10
10
V I S I R . Fösludagur 28. mai 1971.
flkvÖLD j 1 j DAG 1l IKVÖLD | I DAG M ! XVÖLD
BELLA
dinroniunijomsveu isianus 1 nasKuiauiui.
ÚTVARP KL. 22.40:
Fiðlukonsert eftir Tsjaikovsky
Ef eltthvað er til í þessu með
ást við fyrstu sýn, þá er ég að
hugsa uni að giftast fótboltalands
liðinu.
8IFREIÐASK0SUN •
Bifreiðaskoðun: R-8101 til R-
8250.
Á dagskrá útvarpsins í kvöld
eru kvöldhljómleikar Sinfóniu-
hljómsveitar íslands. Hljómleikar
þessir voru haldnir í Háskólabíói
í gærkvöldi. Fluttur verður fiðlu-
konsert í d-dúr opus 35 eftir
Pjotr Tsjaikovsky. Stjórnandi er
Bohdan Wodiczko. Einleikari með
hljómsveitinni er Mayumi Fuji-
kawa frá Japan. Mayumi fæddist
í Japan árið 1946. I fyrstu naut
hún leiðsagnar föður sins i tón-
listarnáminu, en síðar prófessor-
anna Sog og Saito við tónlistar
skólann í Tokyo. Hún hlaut styrk
og gat hún þess vegna gerzt neni
andi Franz Wigys, prófessors við
tónlistarskólann í Antwerpen. —
Þar útskrifaðist hún með framúr
.skarandi vitnisburði.
Árið 1970 hlaut Mayumi 2.
verðlaun á alþióðlegu' tónlistar-
keppninni í Moskvu. Fujikawa hef
ur haldið fjölda tónleika víða um
heim. Síðan hún fékk verðlaunin
í Moskvu, m.a. í Frakklandi, Hol-
landi, Þýzkaíandi og víðar. Nú
ekki alls fyrir löngu hélt hún
sína fyrstu tónleika f Bandaríkj-
unum. Þar lék hún með hljóm-
sveitinni í Fíladelfíu undir stjórn
Eugene OiTnandy, en þar hlaut
hún frábærar móttökur.
Siðustu tónleikar Sinfóníuhljóm
sveitarinnar á þessu starfsári
verða haldnir í Háskólabíói mánu
daginn 31. maí. Tónleikamir hefj
ast kl. 8.30. Einleikari verður
þýzki píanóleikarinn Wilhelm
Kempff, og mun hann leika píanó
konserta eftir Ba-ch og Mozart.
Stjórnandi verður Bohdan Wo-
diczko.
■t
frfí?T>5»oH rrortnf*
Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur vinarhug vió
andlát i
Kjartans Ólafssonar frá Hafnarfirói
Sigrún Guðmundsdóttir
Alfheiður Kjartansdóttir,
Magnús Kjartansson og fjölskyldur.
ámihs 112 mémm
Á 100 KÍLÓMETRA
Hvcr hcfur ckki ]>nrf fyrir flcst heimilistæki þó að hann cigi bifreið?
SKODA bifrcirtar gcra yður klcift frcmur öðrum að cignast
hvorttvcggja.
Miðað við aðra algenga 5 manna bifreiö, sparið þér 16.000.00
krónur árlega í benzíni ( miöað við 20.000 km árlegan akstur),
sem þér getið varið til kaupa á heimili.stækjum eða ööru því,
sem hugurinn girnist, t. d., sumarleyfisdvöl á Kanaríeyjum.
SKODA 100
Glæiilegt dæmi um hagkvsemni og smekk. Innríningar og frágangur í sérfiokki. Diskahemlar
— Tvöfalt bremsukerfi — 4ra hraða þurrkur — Bamalrsingar Radial hjólbarðar
OG EYÐIR AÐEINS 7 LtTRUM A 100 KM.
VJÐGERÐAWÖNUSTA — VARAHLUTAÞJONUSTA 5 ÁRA RYÐKASKÖ.
SKÖDA 100 CA KR. 211 .000.00
SKODA 100L — KR. 221.000.00
SKODA 110L - KR. 228.00000
.tcanni.
ÆOSS^-
/S\ TEKKNESKA BIFREIÐAUMBODIÐ
Qy Á ÍSLANDI H.F.
AUÐBREKKU 44-46 KÓPAVOGI SlMI 42600
j SLANK
PROTRIM
losar yöur við mörg kg
á fáum dögum með þvi aö
það sé drukkið hrært út
í einu glasi af mjólk
eöa undanrennu, fyrir eða
í stað máltíðar.
Og um leið og þér grennið
yður nærið þér líkamann á
nauðsynlegum efnum.
PRO TRIM-siank er sérlega
mettandi og nærandi.
Sendist i póstkröfu. —
Verð kr. 290 hver dós.
Faest hjá:
Heilsuræktarstofu Eddu.
Skipholti 21. (Nóatúnsmegin)
8ANKAR •
Landsbnnkinn Austurstratti 11
opið kl 9 30-15.30
Samvinnubankínn Bankastræti
7: Opinn KÍ. 9.30—12.30. 13-16
og 17.30—18.30 (innlánsdeildir)
(Jtvegshankinn Austurstræti 19
opið kl 9.30—12.30 og 13—16
Sparisióðurinn ”->ndið ff'anna’
stíg 27 opið kl 10—12 og 1.30—
_3.30 laugardaga kl 10—12
SKEMMTISTAÐIR •
Sigtún. Gömludansahljómsveit
Rúts Kr. Hannessonar leikur.
Röðuh. Hijömsveit Magnúsar
Ingimarssonar.
Hótel Saga. Hljómsveit Ragn-
ars Bjarnasonar.
Ingólfscafé. Gömlu dansarnir
Hljómsveit Garðars Jóhannssonar
Glaumbær. Örlög. Diskótek.
TILKYNNINGAR •
Eaoíuglar — ferðamenn — hvita
sunnan:
1. Ferð í Þórsmörk.
2. Ferö á Kötlu.
Skrifstofan opin á miðvikudags
og föstudagskvöldum frá kl. 20.30
til 22. — Farfuglar.
Námsmeyjar Húsmæðraskóla
Reykjavíkur veturinn 1965—66.
Mætiö á Hótel Esju föstudaginn
28. maí kl. 8.30 eða hringið í
Sollu, sími 82200.
VEÐRIfi
í DAG
Hæg austan átt
og heiðríkt fram
eftir degi, en síð
an suð-vestan
gola og skýjað.
Hitj 4—10 stig.
Veitingahsi Lækjarteig 2. —
Hljómsveit Jakobs Jónssonar.
VXSIR
50
Í9rir
arum
Tilkynning: A Laugaveg 2 (stein
húsinu) fæst alltaf glænýtt smjör
líki frá hf. Smjörlíkisgerðinni, isl.
smjör og egg. Þar er einnig af-
greiðsla á smjörlíki til þeirra,
sem eru fastir pantendur hjá
Smjörbúðinni. Alltaf tekið á móti
nýjum Pantendum og fá þeir þá
smjörlítiö sent heim þá daga, er
þeir óska án frekari fyrirháfnar,
alltaf glænýtt.
Visir 28. maí 1921.
Benedikt Halldórsson, trésmiður,
Hamrahlíð 27, andaðist 20. maí 61
árs að aldri, Hann verður jarðsung
inn frá Háteigskirkju kl. 10.30 á
morgun.
Selma Gunnarsdóttir, Meðalbraut
12, andaðist 20. maí, 30 ára að
aldri. Hún verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju kl. 10.30 á morgun.