Vísir - 29.05.1971, Síða 9
V í SIR . Laugardagur 29. maí 1971.
• Annað mál, sem athygli Vís
is var vakin á, mun sömu
leiðis bráölega verða tekið fyrir
af hreinsunardeildinni.
Þar er um að ræða eitt hrika
legasta ruslasafti í Revkjavík í
hinni gömlu griótnámu hersins
í öskjuhlíð — eða í næsta ná-
grenni við Loftleiðahótelið á
slóðum þar sem erlendir gestir
eru gjarna að spranga og skoða
sig um.
Sveinbjöm sagði, að þarna
yrði hreinsað til duglega, svo
að innan skamrns veröur þama
ekkert drasl til leiðinda fyrir
erlenda eða innlenda fagurkera
og skemmtigöngumenn.
Karl Júlíusson, veitingamaður f
Kaupmannahöfn: — Vænlegast
til árangurs teldi ég vera það,
að senda Reykvikinga til Dan
merkur sem snöggvast og við
það held ég, að huganfarsbreyt
ing mundi eiga sér stað til
betri vegar. Það er svo dæma
laust hreinlegt
Pétur Björnsson, viðskiptafræð
ingur: — Viðast finnst mér þrifn
aðurinn vera í lagi, en eins og
alltaf eru ýmsir lassar innan
um. Það verður bara að senda
jarðýtur á ruslahaugana þeirra
og láta þá borga brúsann. —
Það er svo annað mál, en mér
finnst að götur og gangstéttir
mættu víöa taka stakkaskiptum.
Hreinsunarherferðin:
vfeœm
— Hverja teljið þér heppi-
legustu aðferðina til að fá
Reykvíkinga til að þrífa í
kringum sig?
Jón Magnússon, bréfberi: —
Með því að skipuleggja hreins
unaraðgerðir í samráði vi? hús
eigendur. Þá sem ekkj taka þátt
í hreinsuninni verður svo að
beita hörku. Láta bara þrifa
í kringum þá á þeirra kostnaö.
Hannes Helgason: — Viðast
hvar finnst mér mjög snyrti-
legt í kringum hús og bygging
ar, en þaö er samt allt of
víða, sem maður sér ruslahauga
í miöjum verksmiðju- eða íbúða
hverfum. Áhugaleysi ruslahauga
eigendanna á hreinni borg
held ég að sé þar um aö kenna
og því legg ég til að gerð verði
herferð til að ýta við viðkom-
andi.
Um bjálkann og flísina,
úlfaldann og mýfluguna
Það var þetta með bjálkann og flísma... Óhætt
mun að fullyrða, að hreinsunarherferð Vísis hefur
vakið eftirtekt. Síminn hringir í sífellu á ritstjórn-
inni:
Hildur Gústafsdóttir, afgreiöslu
stúlka: — Ég held, að rusla-
haugar hafi margir hverjir
myndazt og veriö látnir af-
skiptalausir sökum athugunar-
leysis viðkomandi húseigenda.
Það þarf bara að vekja þá ...
„Er hægt að fá að tala við manninn, sem sér um
hreinsunina?“ „Það er hjá yklcur, sem maður getur
klagað yfir lélegri umgengni?“ „Hafið þið nokkuð
tekið eftir draslinu á...?“
1 þessari gömlu grjótnámu frá stríðsárunum getur nú að líta emhvem stórkostlegar
haug í Reykjavík, þar sem sprækir Loftleiðagestir leggja einkum leið sína á morgung _...
Innan skamms mun þó hreinsunardeild borgarinnar fjarlægja þá skúlptúra sem þama er að
finna.
• Sem betur fer virðist mikil
hreyfing í þá átt, að um-
hverfismengun sé útrýmt í
Reykjavík þótt mikið sé ennþá
eftir. Til að flýta fyrir og hjálpa
ættu allir Revkvfkingar að leggi
ast á eitt með þvf aö taka upp
þá afstöðu að spyria siðlfan sig:
„Hvað get ég gert tH að að-
stoða?“ í stað þess að horfa sí-
feMt haukfránum augum yfir f
garð nágrannans mættu menn
gjaman svipast dálftfð um í sín
um eigin garði. —ÞB
9 Svana gengur það til allan
guðslangan daginn, og þann
ig hafa blaðinu borizt fjölmarg-
ar þarfar ábendingar, sem það
hefur leitazt við að koma á fram
færi, annaöhvort við hlutaöeig
andi aðila eða þá opinberlega.
Ábendingamar em þó ekki
allar jafnþarfar. Sumir eru óskap
lega róttækir og vilja helzt dauð
hreinsaReykjavíkmeð þaðsama,
að því er manni skilst, og búa á
skurðstofum.
Einn ágætur borgari hringdi
í tilefni þess, að gatan hjá hon-
um hafði nýlega verið malbikuð,
og nú stóð fyrir dymrn að hellu
leggja gangstéttimar og sandi
hafði þess vegna verið ekið að.
Maðurinn sagði, að þetta væri á-
kaflega heiisuspiliandi, og böm
in í hverfinu væru gífurlegir
mengunarvaldar, þegar þau
væru að leika sér í sandinum og
þyrluöu upp rykinu.
Maðurinn benti réttilega á,
hversu hættulegt ryk er heilsu
manna og vellíðan, og hafði þvf
mikið til stos má'ls, þótt sumir
mundu kannski segja, að hann
hefði gert úlfalda úr mýflugu.
# Mergurinn málsins er sá, aö
ekki er laust við að þess
gæti hjá fólki í sambandi við
hreinsunarherferðina sem aðra
hluti, að það er gjarnt á að sjá
betur flísina í garði annars
manns en bjálkann í sínum eig-
in, svo að kunnum orðskvið sé
ofurlftið bapirætt.
Til þess að það takist aö gera
Reykjavík að heimsins hrein-
ustu borg, eins og takmarkið
hlýtur að vera, er ekki nóg að
vera vakandi yfir því, sem af-
laga fer hjá öðmm og sífeMt
reiðubúinn að benda á það, held
ur er nauðsynlegt að hver og
einn leggi sitt af mörkum og
gangi á undan með góðu for-
dæmi.
• Hreinsunarherferðinni er
ekki einungis stefnt gegn lé
legri umgengni á lóðum og öör
um svæðum, heldur er henni
einnig ætlað að vekja athygli
manna á nauðsyn þess að vera
ætíð tillitssamir í allri umgengni.
Það er ekki nóg að eiga hrein-
an og fallegan garð, ef maður
hefur það fyrir sið að tæma ösku
bakkann úr bílnum sinum H ’göí-“
una.,.
En svo að aftur sé vikið að
ýmsurn umkvörtunum, sem Vísi
hafa borizt og virðast vera fylli
lega réttmætar og tímabærar má
ýmislegt tína til.
# Kona ein hringdi út af húsi
sem stendur í umdeildri
húsaþyrpingu hér í borg, Bern-
höftstorunni, og þetta hús mun
kallað „Landshöfðingjafjósið",
þótt það hýsi ekki mjólkurkýr
nú á dögum.
Konan sagöi, að þama hefði
komið upp eldur fyrir nokkru,
og þá hefðu lögreglan og slökkvi
liðið rofið eat á húshomið til að
Höfðaborgin hefur aldrei þótt vera helzta prýði höfuðborgar-
innar, hvað þá umhverfi hennar, nú eru húsin smám saman að
víkja, og draslið sömuleiðis.
urmiJiio íi aiitóDiitóti
komast að, ráðið niðurlögum elds
ins og síðán háTdið' s’iná ’ leið.
Síöan hefur þetta op verið d
húsinu, og þykir börnum einkar
góð skemmtun að príla inn um
gatið og draga ýmiss konar
rusl út úr húsinu, og sömUleið
is er ekki laust viö, að bömun-
um finnist þetta ákjósanlegur
staður til að fikta með eldspýt-
ur.
Það kom upp úr dúmum, að
þetta hús heyrir undir fjármála
ráðnueytið, þar sem deildar-
stjóri varð fyrir svörum, er
blaðamaður hringdi.
Ábendingunni var vel tekið og
því heitiö, að ráöuneytið mundi
nl U , ,, ,
bregöa við og grfþa tiT viðeíg-
andi ráöstgfang.jd^j , ,* - „ • , i [, ,
‘ Aðrar af eftirtektarverðari á-
bendingum, sem blaöinu hafa
borizt vom til dæmis varðandi
slæma umgengni við Höfðaborg
ina.
Sveinbjörn Hannesson hjá
hreinsunardeild borgarverkfræö
ings sagði blaðamanni Vísis, að
hreinsunarflokkar kæmu innan
tíðar til með að þrffa svæðið viö
Höfðaborgina, en þar liggja bil
hlöss af drasli á tjá og tundri.
Ennfremur sagði Sveinbjöm, að
í ráði væri að rffa eitthvað af
þeim húsum, sem enn standa eft
ir.