Vísir - 23.09.1971, Side 1
61. árg. — Fimmtudagur 33. september 1971. — 216. tbl.
Austur-
strætisdætur
í HÆTTU?
af menguninni, segir ein af Aust
arstrætisdætrum í bréfi V dálk
inum Lesendur hafa orðið. —
.Loftið var svo mettað stybb
unn,- frá bílunum, sambland af
bensínlykt og svo eimurinn af
útblástursreyknum. — Maður
gat varla dregið andann“, seg-
ir stúlkan um þetta. Telur hun
að Austurstrætisdætrum fcti
fækkandi ef þetta eigj aö við-
gangast.
— Sjá bls. 6
86 óra ung-
lamb aug-
lýsir Islands-
lamb ,
Það er ekkj mjög venjulegt að
86 ára gamall maður taki þátt
í kapphlaupum. Þetta gerðist
þó á dögunum, þegar einn dansk
ur dánumaður hljóp 14 kiló-
metra hlaup, en á brjóstinu bar
hann auglýsingu fyrir I’slands-
lambið.
Sjá bls. 2
Þúsund
milur
Þetta er nafn á leikriti útvarps
ins í kvöld, en ekki ný krafa
um stærri landhelgi. Þeir Lár-
us Sigurbjörnsson og Tómas
| Guðmundsson fundu á slnum
tíma handritið að þessu leikriti
Kambans hjá bróður skáldsins. í
kvöld kl. 20.05 er það leikið 1
útvarpinu.
Sjá bls. 11
Óskýrar
línur i
dönsku
kosningunum
Siá bls. 8
Mafiuleið-
togi myrtur
Sjá bls. 2
Þröngt mega
sáftir sitja
— eða hvað?
Það liggur kannski beinast við að
halda, að svona sé orðið þröngt á
bílastæðunum í borginni, en þessi
uppstilling bilanna er þó ekkj þann
ig til komin. Hún orsakaðist af
árekstri á mótum Bólstaðar- og
Stakkahlíðar í gærkvöldi. — Reynd
ar var það 3. bíllinn, sem ekki sést
á myndinni, er ók framan á stóra
fólksbílinn og hratt honum aftur á
bak upp á framenda Volkswagen
bl'lsins.
Bótakrafa fyrír árekstur
nemur alls nær 4 milljónum
Mestu bótakröfur, sem
gerðar hafa verið á
þessu ári ennþá vegna
eins bifreiðaáreksturs,
nema hartnær 4 milljón
um króna — og er þó
ekk: öllu til skila haldið.
„Það er jafnvel hugsanlegt að
þær verði á fimmtu milljón ef
allar mögulegar kröfur verða
lagðar fram, en einnig er hugsan
legt ,að einhverjar þeirra verði
skornar niður þegar nánar verð
ur fjallað um málið“, sagði Run
ólfur Þorgeirsson, deildarstjóri í
Sjóvá, þegar við spjölluðum við
hann í vikunni »g fleiri um
tjón af völdum bifreiðaárekstra.
Hver bifreið er þó tryggð fyr
ir upphæð sem nemur „aðeins“
3 milli. kr.
Þessi bifreiðaárekstur varð í
Vatnsskarði 3. júlí sl., þegar svo
sorglega vildi til, að kona og
kornungt barn fórust.
Jafnfram því sem árekstrum
efur fjiilgað, hefur fjöldi hinna
slösuðu þó aukizt enn meir á
fyrri hluta þessa árs miðað við
sama tíma i fyrra. Svo virðist
um leið sem tjón í hverjum á-
rekstri sé epn meira en fyrr.
Þetta þýkir benda til þess að
árekstrar fari harönandi, en nán
ar er um þetta skrifað i blaðinu
í dag. — G-P
Tjón af órekstrum
hafa stóraukizt
— Sjá bls. 9
ASTANDiÐ YRÐI RAUN-
VERULEGA ENN VERRA
— segir Knútur Otterstedt urh „linuna norður"
• Sem kunnugt er af fréttum eru I út af því spunnizt umræður um
uppi ráðagerðir um lagningu framhald á virkjunarframkvæmd-
raflínu norður yfir hálendið og hafa | um í Laxá. Unnið er nú að fyrri
Mártha Louise
skal hún heita
55
Óiafur Noregskonungur tilkynnti
ríkisstjórninni i morgun, að hin ný-
fædda dóttir Haralds krónprins og
Sonju krónprinsessu skulj heita
Martha Louise. Forsætisráðherra
óskaði konungsfjölskyldunni og
hinni nýfæddu prinsessu hamingju
og, að hún mætti verða konungs-
fjölskyldunni til gleði og þjóðinni
hjartfólgin.
Prinsessan mun skírð I höfuð þeirri
konu, sem ber hæst af konum í
sögu Noregs á öldinni, Márthu
Sofíu Lovisu Dagmar Thyra er var
krónprinsessa frá 1929 til dánar-
dægurs 5. apríl 1954. Hún var
sænsk en giftist Ólafi þá krónprinsi
sem nú er konungur.
Þótt Marthu-nafnið hljómi ekki
norskt, munu Norðmenn fagna því,
að prinsessan verði skírð eftir þess
ari vinsælu konu segir I fréttum.
Nafnið Louise er hefðbundið 1
sögu norsku konungsættarinnar. —
Móðir Hákonar konungs og báðar
ömmur hans báru þetta nafn. — HH
áfanga Laxárvirkjunar, sem er
rennslisvirkjun, en Alþingi hefur
ekki veitt heimild fyrir síðari á-
fanga en f þeim áfanga á að byggja
stíflu, og byggist fyrri hlutinn raun-
verulega á því að gerð síðari
áfanga komi einnig til fram-
kvæmda.
Knútur Otterstedt, framkvæmda-
stjóri Laxárvirkjunar, sagði í sam-
tali við Vísi I morgun, að meöan
ekki yrði byggö stífla í. Laxá mætti
alltaf búast við rennsíistruflunum
í ánni. Ef lögð yrði ejn lína norður,
og hætt við síðari áfanga Laxár-
virkjunar yrði ástandið raunveru-
lega verra en nú er.
Ef kæmi slæmt veður, sem ylli
skemmdum á linunni norður myndi
slíkt veður að sjálfsögðu einnig
hafa áhrif á rennsli Laxár Qg því
yrði að koma til mikið varaafl ef
ekki ætti að skapast neyðarástand.
Að öðru leyti sagðist Knútur ekki
hafa fengiö nákvæmar fréttir af
línulögn norður, og gæti því lítið
sagt um niálið aö svo komnu máli.
— SG.
Þrir flugvélar-
farmar utan
með knattspyrnu-
óhugamenn
Keflavíkurliðið á sér aðdál
endur ekki síður en snilling-1
amir hjá Tottenham, sem hér j
kepptu í sumar. Hátt á þriðja ,
hundrað manns munu fylgja
Keflavíkuriiðinu utan til
London, þegar það fer til að I
keppa við Tottenham, seinni |
leikinn í Evrópubikarnum.
Eins og menn muna' kom dá-
góöur hópur aðdáenda Totten-
ham upp með liðinu í sumar. \
— Það var mikið spurt um
þessar ferðir, ’ sagði Hafsteinn 1
Guðmundsson, formaður ÍBK, en I
við gátum ekk; selt fleir; sæti.
Það hefði verið hægt, ef við hefð
um haft fleiri ferðir í leigu- 1
flugi. Alls verða fa'mar þrjár i
'eiguferðir vegna leiksins. — i
Leikmennirnir sjálfir fara með ,
botu Flugfélagsins, en aðdá-
endurnir fljúga ýmist með flug I
félaginu eða BEA.
Leikurinn fer sem kunnugt er '
fram á þriðjudag. — Auk hans
sagð; Ha'fsteinn að þarna væri
hægt að sjá marga spennandi
leika —JH
I