Vísir - 23.09.1971, Page 5
VlSIR. Fimmtudagur 23. september. 1971
3
■=
ís-Ss;vý..xX-:v>:|
■: ■.; ■
■
Melavöllurínn haðaður
flóðljósum annað kvöld
Þáær framundan stór-
viöburður í reykvískri
knattspyrnu — fyrsti
leifcurinn í flóðljósum
ver&ir háður annað
kvðid á Melavelinum. —
Það er mjög ánægjulegt
að þessum áfanga skuli
nú hafa verið náð, sem
skapar knattspyrnu-
mönnum betri aðstöðu.
Þaö er talsvert annað að horfa
á knattspymu við flóðljós eða
venjulega dagsbirtu. Leikurinn
virðist liraðari í flóðljósunum,
að minnsta kosti þar sem lýs-
ingin er góð En sjón er sögu
rikari og ástæða til að hvetja
fólk til að sjá leikinn annað
kvöid.
Eins og kom fram í blaöinu í
í gær voru ljósin reynd á þriðju
dagskvöld og lýstu þau vel upp
gamla Melavöllinn — en mikið
í- þau lagt. Hver pera kostar
9000 kr. og eru 32 slíkar í ljós
kösturunum og mynda samfellt
ljósahaf yfir völlinn.
Liðin, sem mætast annað
kvöld i fyrsta fljóðljósaleik Reyk
víkinga eru úrvalslið Reykja-
vikur og pressulið. — Úrval
KRR er þannig sktpað:
Magnús Guðmundsson, KR, Jó-
hannes Atlason, Fram Baldur
Scheving, Fram, Marteinn Geirs
son, Fram, Sigurbergur Sigsteins
son, Fram, Jóhannes Eðvalds-
son, Val, Gunnar Gunnarsson,
Víkingi, Kristinn Jörundsson,
Fram, Baldvin Baldvinsson, KR,
Ásgeir Eh'ásson, Fram og Ingi
Bjöm Aibertsson, Val.
Lið blaðamanna verður þann-
ig skipað: Sigurður Dagsson,
Val Róbert Eyjólfsson, Val Sig
mundur Sigurðsson, KR, Bjöm
Árnason, KR, Sigurður Jónsson,
Val, Þórir Jónsson Val, Guðgeir
Leifsson, Víkingi, Hafliði Péturs
son, Vikingi, Eiríkur Þorsteins
«on Víkingi, Erlendur Magnús-
son Fram og Ágúst Guðmunds
son, Fram. Varamenn verða vald
ir sameiginlega fyrir bæði liðin.
Háa eindálka myndin sýnir
möstrin ásamt Ijósaútbúnáðin-
um, stóra myndin var tekin, þeg
ar flóðljósin voru reynd. Baldur
Jónsson, vallarstjóri, er þar ann
ar frá hægri, ásamt þremur raf-
virkjameisturum sem að lögn
Ijósanna unnu. Lengst til vinstri
er Hjörleifur Þórðarson, lands
liðsnefndarmaður í handknatt-
lejk — hskn.
Reykjavíkurmótið í hand
knattleik hófst í gærkvöldi
— og í hinum þremur leikj
um í meistaráflokki var
leikinn betri handknattleik
ur en undanfarin ár í byrj
un keppnistímabils. Greini
Iegt er að leikmenn hafa
stundað æfingar vel. Ekki
var neitt um óvænt úrslit
nema kannski fyrir suma,
að Víkingur vann stórsigur
gegn KR.
Fram — Árniann 22—14
Fvrsti leikur kvöldsins var milli
Fram og Ármanns. Fram vann ör-
ugglega með átta marka mun og
það var aöeins fyrst í leiknum, sem
Ármenningar veitti Fram ein-
hverja keppni, en síðan náðu leik
menn Fram öllum völdum. Hörður
Kristinsson lék með Ármanni og
mun gera það í vetur, en gengut
ekki í annað hvort Hafnarfjarðar-
Iiðið eins og mjög hefur verið
rætt um að undanförnu. Hörður
er fluttur til Hafnarfjarðar.
Flest mörk Fram í leiknum skor
að; Axel Axelsson. Liði var með
flesta sína beztu leikmenn nemá
Guðjón Jónsson og Þorstein Björns
son, en Þorsteinn hefur ekkert æft.
Hjá Ármanni skoraði Olfert Náby
mest. *
ÍR — Þróttur 15—11
Lengi vel leit út fyrir, að Þrótt-
ur mundi þarna koma á óvart og
liðið hafði forustu þar til um miðj-
an siðari hálfleik, en þá tókst ÍR
að jafna og sigraði siðan með fjög
urra marka mun. í hálfleik var
staðan 5—5 og skoraöi Halldór
Bragason þá öl] mörk Þróttar. —
Liðið komst síðan í 8—5, en þá
fóru ÍR-ingar að s'iga á — og loka-
kafla leiksins skoruðu þeir 10
mörk gegn þremur. Halldór skor-
aði sjö mörk fyrir Þrótt í leiknum,
en Brynjólfur var markhæstur ÍR-
inga með fimm mörk.
Víkingur — KR 23-10
Á Islandsmótinu utanhúss nýlega
sigraöi KR Víking með 13 marka
mun — nú sneru Víkingar dæminu
við og sigruðu með þrettán marka
mun. KR byrjaði þó mjög vel í
leiknum og skoraði fjögur fyrstu
mörkin. Síðan var staðan 5—1,
en þá tóku VYkingar heldur betur
sprett og skoruðu 12 mörk í röð
án þess KR skoraði eitt einasta. —
Staðan var orðin 13—5 og sigur
Víkings í húsi. Guðjón. Páll og
Einar, sem skoraði flest mörk, 6,
léku mjög vel í liði Víkings og Jón
Sigurðsson (Jónssonar, fyrrum for
manns landsliðsnefndar) vakti at-
hygli í Vikingsliðinu. Hann lék
þarna sinn fyrsta ]eik f meistara-
flokki og skoraði þrjú mörk.
KR-Iiðið, án Ottesena, var held-
ur sviplítið í leiknum. Mesta at
hygli vaktí nýliðinn Þorvarður Guð
mundsson (Jónssonar óperusöngv-
ara), sem skoraði fjögur mörk.
— hsím.
Sovét vann N-lrland 1:0
Nokkrir landsleikir í Evrópu- riðlinum með 8 stig eftir 4 leiki,
keppni landsliða voru háðir í gær ,Spánn hefur 4 eftir 3 leiki, N-Ir
kvöldi. I Moskvu sáu 100 þúsund Mand 4 eftir 4 Teiki, og Kýpur ekk-
áhorfendur — sennilega vegna ert stig.
George Best — Sovétríkin sigra | I Krakow i Póllandj sigruðu Pól
Norður-írland með 1—0. Eina mark jverjar Tyrki meö 5—1. Þjóðverjar
ið var skoráð úr vítaspyrnu á 43. eru efstir í riðlinum með 7 stig
mín, af Muntyan. Sovét er efst í eftir 4 leiki, Pólland með 5 eftir
3, Tyrkland 3 eftir 4 leiki og Al-
bania ekkert stig.
Rúmenía vann Finnland með 4—0
í Helsinki V gærkvöldi. — Þar er
Tékkóslóvakía efst með 7 stig eft-
ir 4 leiki. Rúmenía hefur 5 stig eft
ir 3 Ieiki Wales 3 stig eftir 3
leikj og Finnland 1 stig úr 5 leikj-
wn.