Vísir - 23.09.1971, Side 13
V íSIR. Fimmtudagur 23. september. 1971.
• •••!»• • •• • • • • • • • • • • • • ••-• •• •••• • • •• •••-••• • ••••• ♦••••• •'•••'
13
►■•••••'••-•••• ••• •• ••• • •• ••• • • • • ••••••••••••••••••••
Afgreiðslutími verzlana er í brennidepli en nýja reglugeröin tekur gikB L október.
í opnunarmálinu
eða skipulag stórverzlana?
— fveir matvörukaupmenn lýsa afstöbu sinni
til nýju reglugerbarinnar um afgreiðslutima
verzlana
„TJétt áður en reglugerðin um
afgreiðslutímann var sett
va'r ekki langt í það, að stórt
fyrirtæki hér i borg færi að
opna verzlanir sínar á kvöldin.
Það hefði þýtt það. að þeir kaup
menn, setn :byrjuöu á því að
hafa oþtö utan venjulegs" verzt*
unartíma hefðu misst aðstöðu
sfna. Það var að verða algjört
öngþveiti.“.Þetta segir Kolbeinn
Kristinsson matvfjrukaupmaður
í viðtali, sem Fjölskyldusíðan
átt; við hann um afgreiðslufima
verzlana.
Nú styttist smám saman í 1.
október, þegar hinn nýi af-
greiðslutími tekur gildi sam-
kvæmt reglugerð.. Fjölskyldusíð
an tnun leita álits nokkurra aö-
ila un; þett^^álja^byrjup.
á kaUpmannastéttinni.
Kolbeinn ' segir" ennfremur:
„Rekstrargrundvöllur þeirra
kaupmanna, sem nú hafa opið
er byggður á þvi. að hinar verzl
anirnar eru lokaðar. Ef opnunar
tíminn væri gefinn frjáls myndi
það leiöa til þess af sjálfu sér,
að vöruverð hækkaði því vakta
vinna er dýrari en dagvinna.“
— Er réttur neytandans skert
ur með nýja afgreiðslutíman-
um?
„Nei, hann er ekki skertur,
hann mun aukast við það að all
ar verzlanir verða opnar til
klukkan tíu tvö kvöld í viku í
stað hinna fáu matvöruyerzlana,
sem hafa haft opið utan af-
að mun
auliasLn"
greiðslutímansfi við
þjónustutíminn
— Munu kaupmenn verða eins
ginnkeyptir fyrir því að hafa op
ið á þriðjudagskvöldum og
föstudagskvöldum?
„Nei það áfrt ég ekki. Það seg
ir sig sjálft að föstudagurinn er
settur inn sem markaðsdagur
þar sem verzlunum er lokað
klukkan tólf á laugardögum og
opna ekki fyrr en klukkan niu
á mánudagsmorgni, og það er
því eðlilegt að hafa lengur opiö
á föstudagskvöldum til að mæta
meiri eftirspurn vegna helgar
innar, sem er þá framundan."
— Hvað finnst þér um opn-
unartima opinberra stofnana?
„Þaö er dálítið furðulegt. að
þjónustustofnanir skuli loka
klukkan fjögur á föstudögum og
opna ekkj aftur fyrr en 8.30 á
mánudagámorgnum — eina þjón
ustan á þessum tíma er elsku
leg rödd í s’imsvaranum, sem
segir til um lokunartímann. Þaö
er eina þjónustan sem maður
fær þar. Bankamir loka seinni
partinn á föstudögum og með
þeirri lokun kom ný þjónusta á
■verzlanimar, að annast alla
þjónustu með ávísanagreiðslu
og peningaskipti, sem hafði það i
för með sér m. a. að fá á sig
margar falskar ávfsantr."
— En opnunart’imi söluturna
og verzlunarvamingurinn, sem
fæst þar?
„Þeir háfa verið til hér síðan
1920 og eru staðreynd. Þeir
eru eðlilega byggðir upp sem
smáþjónustufyrirtæk} en ekki
sem matvöruverzlun. Þeir hafa
það, semfólk vanhagar e.t.v. helzt
um á þeim tVma, sem þeir em
opnir fram yfir verzlunartíma
eins og gos og munaðarvörur.
í okkar þjóðfélagi er ísskáp
urinn nærri hvers manns eign,
matvörum er vei pakkað og
geymast í 2—3 daga f Vsskáp,
og það er hægt að gera sín
innkaup einu sinni til tvisvar í
viku í stað þess að vera að
hlaupa' út í búð mörgum sinn-
um á dag. Það þarf skipulagn
ingu á mörgum sviðum, meira
• að segja- með inrikauþ til heimil
isins, og alveg eins þarf að hafa
skipulag V lokunarmáiinu og ég
held þvi fram að það sé gert
með þessar; reglugerð."
Tj’inar Bergmann matvörukaup-
■L< maður verður næst fyrir
svörum.
— Hvað verður um litlu verzl
animar, þær, sem hafa haft
opið utan venjulegs afgreiðslu
tíma með nýju reglugerðinni?
„Þær hverfa, og gamla kon-
an, sem kemur á morgnana bæði
sér tií heilsubótar og hressing-
ar missir kaupmanninn sinn. og
barnið, sem sent er tii káup-
mannsins á horninu missir hann
einnig. Með þessu svari vitna
ég í þennan þátt mála í Svíþjóð.
Þar sakna nú neytendur kaup-
mannsins, en hann varð að
hverfa fyrir skipulagðri stór-
verziun."
— Hefð; kaupmaðurinn stað-
izt samkeppnina, ef afgreiðslu
tíminn hefði verið gefinn frjáls?
„Kaupmaðurinn á horninu
stenzt miklu fremur frelsi en
allir aðrir. Kaupmaðurinn á
hominu rekur fjölskylduverzlun
og er betur viðbúinn að mæta
tapi og leggja meira á sig en
sá, sem kaupir allan vinnukraft,
eða þangað til borg eða rtki er
búið a'ð skapa einhverjum þá
aðstöðu, að viðskiptavinurinn
verður aö verzla þar nauðugur
viljugur. Það virðist allt benda
til þess, að þessi reglugerð sé
sniðin eftir hugmyndum stór-
verzlana."
— Nú hefur heyrzt, að stór-
verzlanir ha'fi ætlað að opna
utan venjulegs verzlunartíma, ef
nýja reglugerðin hefði ekki kom
ið til sögunnar.
„Það held ég að sé fyrir-
sláttur Ef allar matvöruverzl-
anir í borginni hefðu opnað, þá
hefði hafizt barátta upp á Hf
og dauða, og fjölskyldufyrirtæk-
ið hefði sigrað að 1okum.“
— Telurðu þá að persónulegu
tengslin skipti meira máli en
vöruúrval stórverzlana?
„KaUpmaðurinn er fjölskyldu-
vinur og getur verið ríkur þátt-
ur f uppeldi bamsins, sem kem
ur daglega og mótast af kurt
eisi og heiðarleika hans. Börn
em ekki send í stórverzlanir 4
margra kílómetra fjarlægð.“
— Hváða álit hefúr þú á
opnunartíma opinberra þjónustu
fyrirtækja og banka?
„Það er bráðnauðsynlegt, að
opnunartími opinberra stofnana
verði sá, að þau veiti svipaöa
fyrirgreiðslu og bankarnir. Og
það má benda á það að við inn
heimtu opinberra gjalda hefur
verið auglýst að opið sé til þess
og þess tíma, þá hefur verið
mögulegt að lengja opnunar-
t'ima.“ ,-SB
Sendisveinn óskast
hálfan daginn, eftir hádegi, þarf að hafa hjól.
Vinsamlegast komið í afgreiðsluna.
(Uppl. ekki í síma).
Ódýrari
en aárir!
SHODfí
LEIGAH
AUÐBREKKU 44-46.
SlMI 42600.
ATVINNA
Starfsstúlka og unglingspiltur, helzt utan af
landi, óskast í Skíðaskálann í Hveradölum.
Uppl. í ákíðaskálanum um símstöð, og í síma
36066.
AuglýsiB / Vísi
atmrukaupmenn í Reykjavík
Þeir matvörukaupmenn í Reykjavík, sem óánægðir eru með samþykkt og framkvæmd reglugerðar um af-
greiðslutíma verzlána í Reykjavík mætið á fundi á Loftleiðahótelinu (Snorrabúð) í dag, fimmtudag
klukkan 8.30. NEFNDIN (
m