Vísir - 19.01.1972, Page 2
/
Atvinnuboxari vígður
til preststarfa
í tuttugu og þrjá tlaga hrakt-
ist 6 ára gömul tslpa alein og
matariaus í niödimmum skógi þar
til skógarstarfsmaður fann hana
af tilviljun. Þá var hún svo að-
framkomin, að hún gat vart svo
mikið sem hvíslað.
Elmira Idajatow er nafn telp-
unnar, en heimili hennar í þorpi
rétt suð-austur af Kákasus. Hún
hafði'farið inn í skóginn í þeim
erindum að tína fáein ber. Er
hún hafði ekki skilað sér heim
á tilsettum tíma og farið var að
óttast um hana var hafin skipu-
leg leit að henni, en án árangurs.
Loks urðu menn úrkula vonar
um að Elmira litla ætti nokkurn
tíma eftir að finnast. Gert var
ráð fyrir, að hún hefði orðið úlf-
um eða skógarbjörnum að bráð.
En af stakri tilviljun, sem fyrr
segir, var það, að skógarhöggs-
maður einn gekk fram á telpuna
tuttugu og þrem dögum eftir að
hún hvarf að heiman frá sér.
— Telpan lá á fleti, sem
hún hafði gert sér úr trjágrein-
um, og slá sína hafði hún breitt
upp yfir höfuð sér. ’Eftir nokk-
urra daga umönnun á sjúkra-
húsi hafði Elmira loks náð sér
það vel eftir útileguna, að hún
var fær um að segja frá ævin-
týri sínu. — Ég borðaði berin,
sem ég hafði tínt, og ég drakk
rigningarvatn. En er liða tók á
útivistina varð ég svo veikburða,
að ég gat ekki gengið lengur, svo
ég hreiðraði um mig þar sem ég
var komin. Nokkrum sinnum
kom stór hundur til mín og lagð-
ist við hlið mér. Hann sleikti
mig líka í framan. Á nóttinni
varð ég voða hrædd og breiddi
þá slána mína upp yfir höfuð.
Boxíþróttin hefur um langan
aldur þótt heldur viðurstyggileg
íþrótt að margra áliti og þá eink-
um að mati prestastéttarinnar,
sem ekki getur sætt sig við að
menn séu að kýla svona hver
annán niður sér til gamans.
Þetta sé lífshættulegur leikur,
og það sé ekki fallegt að leika
sér svona að lífi sínu og ann-
arra.
Sex ára
í skógi
Jimmy Robinson, 34 ára gam-
all Birmingham-búi, og atvinnu-
boxari lét lengi daufheyrast við
orðum guðsorðamannanna, en
hefur nú heldur en ekki snúið
frá villu síns vegar. Það er ekki
nóg með að hann hafi yfirgefið
hringinn, hann hefur lagt box-
hanzkana með öllu á hilluna og
snarað prestshempunni þess í
stað yfir axlir sér. Hér eftir ætl-
ar hann að hafa það að atvinnu
sinni, að útbreiða fagnaðarer-
indið.
Meðfylgjandi mynd sýnir Kob-
inson blessa móður sina skömmu
eftir að hann hafði verið vígð-
ur til rómversk-kaþólskra prest-
starfa í kirkju einni í nágrenni
Birmingham.
Nú er það ekki til að slá viðskiptavininn niður, sem Jimmy
Robinson lyftir hendi sinni. O, sei, sei, nei ...
telpa
í 23
alein
daga
Fuzz
Raquel Welch vill ekki fyrir
nokkurn mun tína af sér spjar-
irnar í kvikmyndum. Raquel,
sem er kynbomba og kyntákn
allra tíma, og á frægð sína og
frama að þakka líkamsfegurð
sinni — einvörðungu segja sum-
ir —, hún hefur nú tekið þá
ákvörðun, að sniðganga allt
strípl eftirleiðis. Hollywood-leik-
stjóranum Ed Feldman líkar það
ekki alls kostar vel. Hann er blátt
áfram bálvondur yfir þessum
duttlungum leikkonunnar. Það
var við töku kvikmyndarinnar
„Fuzz“, sem hann fór fram á það
við hana, að hún léti bæði
brjóstahaldarann og nærbuxurn-
ar falla. Það var eilítið meira en
getið hafði verið um í kvik-
mynd,ahandritinu og Raquel
þverneitaði að láta að vilja Feld-
mans. Þegar svo kvikmyndagerð-
arhiéhhiriiir'ljýfjilðu að nöldra
lét hún sem hún heyrði ekki til
þeirra.
Nú er að rísa voldugt minnis-
merki um de Gaulle fyrrum
Frakklandsforseta. Það volduga
minnismerki — sem við sjáum
líkan af hér að ofan — er verið
að reisa í bænum Colombey Les
Deux Eglises, þar sem de Gaulle
bjó sín slðustu æviár.
Merkið verður 43,5 metra hár
Lothringen-kross, gerður úr ljós-
rauðu graníti. Lothringen-kross-
inn með sínum tveim örmum var
einmitt það sameiningartákn,
sem de Gaulle hélt á lofti í síð-
ari heimsstyrjöldinni.
Krossinn mun kosta sem svar-
ar 80 milljónum Islenzkra króna
og verður reistur fyrir fé, er
safnaðist I landssöfnun á dögun-
um.
Svona minnast
Frakkar
de Gaulle
)
)
)