Vísir - 19.01.1972, Qupperneq 3
1 S I R . Miðvikudagur 19. januar 1972.
í MORGUN UTLONDI MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Umsjón Haukur Helgason:
Tilboð NATO í Möltu
komið í 2.5 milljarða
Gerviarmur við fœribandið
Hann er kallaður Jónatan, þessi gervihandleggur, sem starfslið Hans von Mauldau í Rossdorf
V-Þýzkalandi hefur smíðað og á að vera hluti af heilum „gervimanni“. Um 1990 væntir höfundur
þessarar nýjungar, að Jónatan muni vera kominn til starfa við færiböndin og leysa mann ' -0
undan því.
Fyrirmyndin var mannshandleggur. Málmhlutar koma í stað beina, litlar vélar í stað vöðva og
stálvírar í stað fingra.
Fyrirskipanirnar á Jónatan að fá frá tölvu, sem er prógrammeruð eftir viðfangsefninu.
Fimm liða málmhönd Jónatans mun geta unnið hin flóknustu verk meö fíngerðri snertingu, og
hefur hinn 39 ára Mauldau bætt með þessu tækni sem hefur verið notuð I kjamorkurannsókna-
stöðvum.
Ráð NATO varð í gær sam-
mála um nýtt tilboð til Möltu. |
Mun verða boðið um 2500 millj
ónir ísl. króna. Framkvæmda
stjóri Atlantshafsbandalagsins ’
Joseph Luns og brezki hermála
ráðherann Carrington hitta Dom j
Mintoff forsætisráðherra Möltu j
enn í dag í Róm til að reyna að
semja um kröfur Möltu um hærri
leigu fyrir herstöðvar.
Mintoff hafði áður hafnað til-
boði upp á um 2000 milljónir
króna í ársleigu. Upphaf.'egar
kröfur hans voru nærri 4000
milljónir króna.
Mintoff afturkallaði úrslita-
sem hann hafði sett um
að ar yrðu á brott með her
sinn frá Möltu fyrir 15. þessa
mánaðar. Voru þá taldir batna
möguleikar á samkomulagi um
deilumar.
Brezka stjórnin segir, að ekki
komi til greina nein hækkun á
þeim hlut, sem Bretar beri af
leigukostnaði. Bretar hafa hins
vegar ekkert á móti því, að önn
ur ríki leggi meira að mörkum
til að hajda herstöðvum á Möltu.
Væntanlega munu Bandaríkin
og Ítalíu bera mestan hluta við
bótarbyrðanna. Vestur-Þjóðverj
ar munu einnig tilbúnir að taka
á sig eitthvað af reikningi
Mintoffs.
NATO-sérfræðingar kalla eyj
una Möltu „gagnlega en ekki
lífsnauösynlega“ í vamarkerfi
sínu. NATO vill hindra, að Sovét
nenn eða önnur Varsjárbanda-
lagsríki , hreppi stöðvar á eyj-
unni, sem liggur miJli Sikileyjar
og Afríkustrandar, á mikilvægri
siglingaleið.
NYTT MÆ lí M0RDMAL
Blaðamaðurinn, sem afhjúpaði fjöldamorðin
i Mæ Le, segir, að jbar hafi 350 verið myrtir
og milli 60 og 165 i öðru horpi
Meðan ein bandarísk her
deild framdi fjöldamorð á
almennum borgurum í
þorpinu Mæ Le í Suður-
Víetnam, framdi önnur
sams konar stríðsglæpi í
öðru þorpi, Mæ Ke, í
þriggja kílómetra f jarlægð.
Bandaríski blaðamaðurinn
Seymour Hersh fullyrðir
þetta í grein í tímaritinu
The New Yorker í dag.
Hersh segir, að aljs hafi um
350 almennir borgarar verið
myrtir í Mæ Le, sem er tvöföld
sú tala, sem hefur veriö gefin
upp. í Mæ Ke hafi fjöldi hinna
myrtu verið einhvers staðar
milli 60 og 165.
Hersh fékk árið 1970 hin
virtu Pulitzerverðlaun í Banda-
ríkjunum fyrir frábæra blaða-
mennsku, en þá hafði hann flett
ofan af upprunalega Mæ Le
málinu. Fjöldamorðin í Mæ Le
ollu mótmæjaöldu gegn stríðinu
í Víetnam, bæði innan Banda
ríkjanna og utan.
William Calley liðsforingi er
hinn eini, sem hefur hlotið dóm
fyrir fjöldamorðin. Aðrir, sem
ákærðir voru, hafa verið sýkn
aðir hver af öðrum.
Talsmenn bandaríska her-
málaráðuneytisins vildu ekkert
segja um fullyrðingar Hersh í
morgun.
Blaðamaðurinn segir að hapn
byggi grein sína á fuljkomnu af
riti af skýrslum, sem svokölluð
Peers-nefnd hefur samiö. Nefnd
in var skipuð til að athuga upp
runalegar sakargiftir í Mæ Le
málinu. Hún drégur nafn af
William Peers yfirliðsforingja,
sem stjórnaði rannsókninni.
Hersh segir enn fremur, að
hann hafi fengið sams konar
upplýsingar hjá öðrum aðilum.
Auk þess hafi hann átt viðtöl
við fjölda hermanna og embætt
ismanna, sem hafi þekkt máJa-
vöxtu.
Sænska ríkið græðir 1.8
milljarða á myntinni
Brezkur sjóliði ber brúði sína um borð í herskipið Euryalus
til brúðkaupsveizlu. Keith Welch og Möltustúlkan Henrietta
Mallia tóku skyndiákvörðun um giftingu, áður en Mintoff ræki
piltinn úr landi.
Nýir fimm krónu peningar — hætt við
eins og tveggjaeyringa
Sænska ríkið mun græða
meira en 100 milljónir
sænskra króna (1,8 millj-
arð íslenzkra) á breytingu
á peningakerfi, sem hófst
um áramótin, samkvæmt
útreikningum, sem voru
birtir í Stokkhólmi í gær.
Eins, tveggja og fimm aura
peningarnir hafa til þessa verið
alger fyrirtæki, þar sem það
kostaði tvöfalt að framleiða aur
ana miðað við verðgildi þeirra.
Nú hverfa tvær lægstu myntirn
ar alveg, og framleiðslukostnað
ur fimmeyringa er minni en verö
gildi þeirra.
Mestan hagnað hefur mynt-
sláttan þó af nýju fimm krónu
peningunum, sem aðeins kostar
50 sænska aura að framleiða.
Reiknað er með, að í ár verði 25
milJjón fimm krónu peningar
settir á markaðinn, og mun
nettóhagnaður ríkisins verða af
því um 1,8 milljarðar ísl.
Eins og tveggja aura pening-
arnir verða Jeknir úr umferð
smám ’samari, þegar þeifc berast
bönkunum.