Vísir - 15.06.1972, Blaðsíða 11
Einn dýrosti atvinnumaður
Dana keppir við KR-krakkana
- en Arne Sörensen og Henning Enoksen sjó um
þjólfunarhliðina í œfingabúðum liðsins í Köge í nœstu viku
Þaö kemur sér oft vel aö
vera ungur, t.d. þegar
flogið er til útlanda.
Þannig fengu flestir KR-
inganna, sem halda utan í
æfingabúöir eftir helgina,
farmiða á sérstökum ung-
lingafargjöldum og fengu
þannig ódýra utanferð, —
meðalaldur leikmann-
anna 18, sem fara utan er
undir 21 ári. Engin furða
þótt við hofum tekið upp
nafnið ,,KR-krakkarnir"
á þetta Ijónspræka lið.
KR-liðið, sem hefur
staðið sig vel í 1. deildinni
ætlar að brúa eyðu, sem
myndast i 1. deildar-
keppninni næstu dagana,
heldur til Grevestrand
sem er við Kögeflóa í um
30 kílómetra fjarlægð frá
Kaupmannahöfn.
„Viö leggjum aöaláherzluna á
æfingarnar, sem munu standa
frá 10 á morgnana til 6 á dag-
inn”, sagði Bjarni Felixson,
einn af fararstjórunum i þessari
för, en með honum verða þeir
örn Steinsen og Baldur Marias-
son.
t Grevestrand eru það sann-
kallaðir fótbolta,,greifar”, sem
taka á móti liöinu, landsliðs-
þjálfarinn Arne Sörensen, einn
bezti þjálfari Danmerkur, og
ekki má gleyma Köge-liðinu,
sem um þessar mundir er efst i
1. deildinni i Danmörku ásamt B
1903 með 15 stig eftir 11 leiki, en
deildarkeppnin er þarmeð
hálfnuð og leikmenn fá sumar-
fri.
En þaö eru fleiri i sumarfrium
en danskir knattspyrnumenn,
þar á meðal verður kappinn
Jörgen Kristensen i leyfi heima
i Höge og að sögn Bjarna Felix-
sonar stendur til að Kristensen
verði með Köge-liðinu i leiknum
á móti KR á þriðjudagskvöldið.
Verður hann þá tryggður fyrir
200 þús. danskar krónur, eða
hátt á þriðju millj. isl. króna
fyrir þann leik einan.
Kristensen var nýlega seldur
Feyenoord i Hollandi frá
Spörtu, sem einnig er hollenzkt
liö. Við þá flutninga gat Daninn
lagt nær 16 milljónir isl. króna
inn á bankareikninginn sinn.
Enoksen þjálfar
Þá er eftir að geta hins þjálf-
ara KR-inganna, Henning
Enoksens, hins fræga knatt-
spyrnumanns úr silfurliðinu á
Olympiuleikunum i Róm. Hann
hefur siöan getið sér gott orð
sem þjálfari og skrifað og rit-
stýrt bókum um knattspyrnu,
sem komið hafa ÚtvTöa um lönd,
m.a. hér á Islandi (knatt-
spyrnuhandbókin, sem kom út i
hitteöfyrra).
Annan leik mun KR-liðið
leika. Farið verður til Abenrá á
Jótlandi og leikið þar við úr-
valsliö s-józka knattspyrnusam-
bandsins þriðjudaginn 27. júni.
Hætti landsliðsæfingum
fyrir KR-ferðina
Allir leikmenn KR, nema
Halldór Björnsson, munu fara
utan. Magnús Guðmundsson,
markvörður gaf landsliðsæfing-
ar m.a. upp á bátinn til að kom-
ast heldur með félögum sinum i
þessa ferö.
„Þetta er fjárfesting upp á
framtiðina”, sagði Bjarni
Felixson, „við erum meö ungt
liö i mótun og hugsum fyrst og
fremst um framtiðina”.
—JBP
Jörgen Kristensen er hér 1
landsieik Dana og Finna fyr-
ir viku, — hann skorar hér
annaö mark Dananna, sem
unnu 3:0, neglir framhjá
markverði Finnanna og öðr-
um bakverðinum.
„Lifum á víxlum
til að reka
sumarstarfið"
- Húsafellshátíðin skilur
kassann hjá UMSB eftir
í 800 þús. kr. skuld
Húsa fellshátiðin hefur
mörgum virzt álitlegur
tekjustofn fyrir íþrótta-
fólkið i Borgarfirði. „Betra
að svo væri", sagði Vil-
hjálmur Einarsson, for-
maður UMSB i samtali í
gær. „Við lifum á víxlum
þetta sumar til að geta
haldið úti eðlilegu starfi".
Vilhjálmur kvað skuldir sam-
bandsins vera um 800 þúsund
krónur, m.a. vegna þeirra fimm
Húsafellshátiða, sem sambandið
hefur gengizt fyrir. Vilhjálmur
kvaöst hafa gefizt upp á að
stjórna mótinu áfram, 5 slik mót
væru hverjum manni nóg, en
mótið yrði haldið áfram á sama
grundvelli og fyrr, enda hefur
UMSB varið miklu fjármagni til
mannvirkjagerðar þarna efra og
að sögn Vilhjálms þyrfti litiö sem
ekkert að gera I sumar til að
halda þar gott mót.
Borgfirðingarnir hafa lagt tals-
vert fé i mannvirkjagerð á
Varmalandi, þar á þeirra
„stadion” að standa I framtiðinni
og stendur sú mannvirkjagerð
nokkuö vel, en þarna á að koma
ágætur grasvöllur fyrir knatt-
spyrnu auk hlaupabrauta og
annars sem til þarf.
LEIKA ÞJÓÐVERJARNIR
RÚSSA ENN JAFN GRÁn?
- liðin mœtast í úrslitum Evrópubikarsins
Það verða V-Þjóðverjar
og Sovétmann, sem berjast
um Evrópubikaratignina í
ár, — lið þessara þjóða
unnu leiki sina i gærkvöldi i
undanúrslitunum i Brussel
og Antwepen. Og óneitan-
lega virðast Þjóðverjarnir
sterkari eftir að þeir unnu
Rússana með 4:1 i vigslu-
leik Olympíuleikvangsins í
Munchen á dögunum.
V-Þjóðverjarnir áttu annars i
meiri vandræöum meö Belgana
en gert hafði verið ráð fyrir og 60
þús. áhorfendur sem fylltu leik-
vanginn fengu að sjá spennandi
leik.
Það var Gerd Miiller sem
tryggði liöi sinu aðgöngumiðann
að úrslitunum. Hann skoraði á 24.
minútu og aftur á 72. minútu. En
heimamenn áttu þó góð tækifæri á
að jafna eftir fyrra markið, en
tókst ekki. 1 seinni hálfleik sóttu
Belgarnir enn meir en fyrr og
undir lok leiksins var stöðug
Fó brúna
litinn á
íþróttaskólanum
Ekki amalegt að sjá, — þarna eru nokkrir krakkar I Iþróttaskólanum
þeirra Höskuldar og Vilhjálms Einarssonar í Reykholti I Borgarfirði að
fá sér sinn skerf á sólbrúnku. Ain er aö visu dálitið köld fyrst I stað, en
svalar prýðilega. Þeir félagar leggja mikla alúð við að kenna krökkun-
um undirstööuatriöi Iþrótta, og hafa um árabil átt miklum vinsældum
að fagna, en nú er 12. ár þeirra félaga I þessari grein að hefjast.
pressa á v-þýzka markið. 1 fyrri
hálfleik var þessu öfugt varið, þá
var eins og B num væri stillt
upp við vegg g á þeim dundi
stöðug skothrið. Einkum var það
þýzki fyrirliðinn, Franz Becken-
bauer sem stýrði liöi sinu og var
uppistaðan i liðinu i fyrri hálfleik.
Mark Belganna var skoraö þeg-
ar 6 minútur voru eftir af leiknum
af Poglenius.
1 leiknum i Brussel var þaö
Anatolij Konkov, sem skoraði
sigurmark Rússanna gegn Ung-
verjum. Markið skoraði hann eft-
ir 9 minútna ieik i seinni hálfleik
eftir misheppnaða sendingu til
markvarðarins ungverska. Ann
ars voru það Ungverjarnir, sem
sóttu meira i þessum leik. Ekki
hvað sizt sóttu þeir i seinni hálf-
leik. Rothöggið á liðið kom þó
þegar vitaspyrna fór i súginn og
aðeins 4 minútur voru eftir af
leiknum. Ahorfendur i Brussel
voru aðeins um 4000 talsins.
NÁMH) FYRST
- AFREKIN SVO
- segir danski tugþrautarkappinn
Steen Smidt-Jensen sem nú er meðal
þeirra beztu í heiminum
Nafnið Steen Schmidt Jensen
þekkja margir áhugamenn um
frjálsar iþróttir hér á landi.
Fyrir 3-4 árum kom hann hingað
á Norðurlandamót i tugþraut og
keppti við Valbjörn Þorláksson.
Þá voru þeir keppinautar, en i
dag er Steen Smidt einn af beztu
tugþrautarmönnum i heimi.
Um siöustu helgi setti hann
nýtt danskt met i tugþraut, 7754
stig, sem er eitthvert mesta af-
rekið i dönskum frjálsíþróttum
frá upphafi vega.
Og þetta gerir hann án þess aö
lita á iþróttir sem aðalatriðið, —
það er námið sem er i fyrsta
sæti hjá honum. Þjálfari Steen
Schmidts, Kai Steendahl segir
m.a.:
„Ég lagði á það áherzlu við
Steen að hann hugsaði fyrst og
fremst um námið, þvi hann á
nær tvö ár eftir i læknanámi og
stendur frammi fyrir erfiðu
prófi.”
A Olympiuleikunum i Mexikó
hafnaði Daninn i 8. sæti en fyrir
þá leika þjálfaði hann i marga
mánuöi tvisvar á degi hverjum
og skömmu fyrir leikana allt aö
6-10 tima á dag.
Og hvað um Munchen?
„Með 7754 stig verð ég varla
framar en i 15.-20. sæti. Hins-
vegar vildi ég gjarnan vera
kominn yfir 8000 stig og i
Múnchen geri ég mér vonir um
8150 stig. Hvort þetta er raun-
hæft, verður timinn einn að
skera úr um”, sagði Steen
Schmidt-Jensen.
Metið sem Steen setti um
helgina i Arósum var ekki sett
við sem ákjósanlegust skilyrði.
Fyrri daginn var ausandi regn,
og engum datt annað i hug en
að góður árangur væri úr
sögunni. Samt stökk hann 2.03
metra i hástökkinu og I síðustu
greininni, 1500 metrunum
erfiðu, þurfti hann 4.36.0 til að
slá metið, — og i mark kom
hann á 4.27.2 staðráðinn i aö
bæta metið enn i næstu keppni
við betri skilyrði.
FRÁ BOTNI f KVÖLD?
Enn einn spennandi leikur i 1.
deildinni er I kvöld, — það er Laugar-
dalsvöllurinn sem verður vettvangur
leiks Vikings og Vals. Vikingar hafa til
þessa ekki sýnt mikla snilli i leikjum
sinum, en vitað er að liöið býr yfir
betri leik en fram hefur komið.
Spurning hvort liðið fer ekki aö berjast
af meiri krafti nú, þegar það er farið
að sjá fram á fallbaráttu?
Valsmenn eru reyndar ekki langt á
undan Vikingum á stigatöflunni með
aðeins 2 stig, Vikingar með eitt og
einir i neösta sætinu.
Ekki er óliklegt að Valur og
Vikingur sýni okkur hörkuleik, um
mikiö er at tefla, þvi vinni Valur, hefur
félagiö kvatt hættusvæðiö i bili a.m.k.
og er komið meðal efstu liðanna að
stigum.
Staðan er annars þessi:
Keflavik 3 2 1 0 6:2 5
Fram 3 2 1 0 4:1 5
Akranes 3 2 0 1 6:3 4
KR 4 2 0 2 6:6 4
Breiöabl 4 1 1 2 5:10 3
Valur 3 0 2 1 4:5 2
Vest.m. 3 1 0 2 4:5 2
Vikingur 3 0 1 2 0:3 1
< ■ ■' ■ ■■m.
Vikingar geta sótt eins og hér i Eyjum, — én i kvöld verða þeir aí
skora sin fyrstu mörk.
ÍÞRÓTTIR FYRIR ALLA - EDA SUMA?
Iþróttirá (slandi eru ekki leng-
ur bundnar við stjörnurnar ein-
göngu. Keppnisíþróttir eru
ágætar og nauðsynlegar, en
íþróttir eiga að vera almenn-
ingseign. En eru þær það?
Vissulega er langt frá því að
svo sé.
Norræna sundkeppnin hefur í
sumar gert stórt strik í reikn-
inginn. Fjöldi manns stundar
sund daglega eða oft i viku og
fær sitt trimm á þann hátt, en
þó er einn hópur manna, sem
hefur gleymzt í þessu tilliti, —
það eru þeir ógæfusömu sem
stríða við lömun eða fötlun.
I öllum menningarlöndum
heims er fyrir löngu farið að
keppa í íþróttum fyrir lamaða
og fatlaða. Þeir geta stundað
vissar greinar sér til mikillar
ánægju og gagns.
SKILUR BIKAR EFTIR
HJÁ GOLFMÖNNUM
Einn þeirra golfmanna, sem mjög hefur
verið iðinn við golfvöllinn undanfarin sumur
er bandariski ambassadorinn, Luther
Replogle, sem senn er á förum frá íslandi.
Hefur hann eignast marga kunningja og
vini i hópi golfmanna, jafnt keppenda sem
annarra.
Kvaðst hann vilja skilja eftir smá gjöf til
islenzkra golfmanna þegar hann færi, er það
stór og veglegur silfurbikar, sem keppa á
um árlega. Hér tekur Pétur Björnsson við
gjöf ambassadorsins.
Svo sterk er þessi hreyfing viða
ytra, að keppni fer fram milli ein-
stakra þjóða. Margir hinna fötl-
uðu stunda svo iþróttir aðeins sér
til heilsubótar og ánægju, en ekki
með keppni fyrir augum.
Fyrir hverja Olympiuleika fara
fram Olympiuleikar fatlaðra og
lamaðra og I ágústmánuði verða
þeir haldnir i Heidelberg i Þýzka-
landi. Eru hin ýmsu lönd nú að
undirbúa lið sin, m.a. má benda á
að Norðmenn senda 30 þátttak-
endur á leikana, 10 konur og 20
karlmenn.
Og hvaða iþróttagreinar eru
svo stundaðar af þessu fólki, sem
fæstum hér á landi dettUr einu
sinni i hug að bendla við Iþrótta-
iðkun? Sund, skotfimi með bog-
um, borðtennis, ýmsar greinar
frjálsra iþrótta, lyftingar, og
hraöakstur á hjólastólum svo
eitthvaö sé nefnt.
Nú hefur tþróttasambandiö
sýnt sig i þvi að hafa áhuga á
iþróttuin fyrir hinn almenna
borgara ekki siður en stórstjörn-
una, — og á lof skilið fyrir. Við
komum hugmyndinni áfram til
ÍSi og þeirra félaga, sem mcst og
bezthafa barizt fyrir málum lam-
aðra og fatlaðra. E.t.v. geta þau
unnið þarft og gott verk með þvi
að hjálpa til viö að koma
starfsemi sem þessari af stað.
JBP-
Danir yfir 5 metrana i
gær
Það er af sem áður var, meðan
við vorum ofjarlar Dana I
frjálsum . 1 gær stökk fyrsti
Daninn yfir 5 metrana i stangar-
stökki, Flemming Johansen bætti
danska métiö um 5 sentimetra I
5.04.1 Abo i Finnlandi náði Simola
góöum árangri I kúluvarpi,
varpaði 19,82 metra á móti I gær-
kvöldi, en i Tammerfors varpaði
Yrjölæ 19,56.
1.45.4 i 800
A-Þjóðverjinn Kieter Fromm
náði bezta tima ársins i 800 metra
hlaupi i gærkvöldi, hljóp á 1.45.4 á
móti i A-Berlin i gærkvöldi.
Landi Fromm, Annelise Erhardt.
hljóp 100 metra grindahlaup á
bezta árstima i heiminum á sama
móti, hljóp 12,7 sekúndum
Fótboltamenn fangels-
aðir
Tveir knattspyrnumenn voru
dæmdir i 13 og 15 mánaða fangelsi
i Aþenu fyrir aö hafa ráðizt á
knattspyrnudómara og lögreglu-
þjóna á eftir, þegar reynt var að
ganga á milli. Leikurinn sem
fram fór var milli Aris og
Panathinaikos.
Norðmenn betri, en...
Jú, viö vorum betri, en...Sama
sagan hjá Norömönnum og okkur
ættingjunum þeirra. Alltaf þetta
litla ,,en”. I gær unnu Uruguay-
menn þá á Ulleval-leikvanginum
meö l:0enda þótt Norömenn ættu
skinandi leik og væru betri
áðilinn. Markið kom þegar 3 min
voru til leiksloka.
UNGMENNABÚÐIR
ÍÞRÓTTIR OG LEIKIR
Foreldrar athugið:
Vegna mikillar eftirspurnar héfur verið
ákveðið að efna til auka námskeiðs fyrir 8
til 11 ára börn að Varmá i Mosfellssveit i
júli 1972.
Kenndar verða íþróttir og leikir, farið i
gönguferðir og kvöldvökur haldnar af
þátttakendum.
14 til 19 júli fyrir 8 til 11 ára.
24 til 29 júli fyrir 8 til 11 ára.
Námskeiðisgjald er krónur 1950.
Tekið á móti pöntunum og nánari upp-
lýsingar gefnar i sima 16016 og á skrif-
stofu UMSK Klapparst. 16.
Ungmennasamband Kjalarnesþ.
Ungmennafélagið Afturelding