Vísir - 22.09.1972, Side 4

Vísir - 22.09.1972, Side 4
4 Visir Föstudagur 22. september 1972 Frá vöggu til grafar Fallegar skrey tingar Blómvendir i míklu úrvali. v Daglega ný blóm Mikið úrval af nýium vörum. — Gjorið svo vel að lita inn. Sendum um allan bæ mösiN GLÆSIBÆ, simi 23523. Sérkennari — Heyrnaruppeldisfræðingur Heyrnardeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavikur óskar eftir að ráða heyrnar- uppeldisfræðing eða kennara með góða undirstöðu i specialpedagoik. Möguleikar eru á, að veitt verði fjárhagsaðstoð til frekara sérnáms siðar. Upplýsingar gefur forstöðumaður heyrnardeildar i sima 22400. Heilsuverndarstöð Reykjavikur. Menntamálaráðuneytið gengst fyrir námskeiði í Gagnfræða skóla Austurbæjar fyrir væntanlega iðnaðarmenn, sem ekki hafa lokið miðskólaprófi, og eru orðnir 18 ára. Innritun á námskeiðið fer fram i skólan- um föstudaginn 22. september kl. 17-18. Mikilvægt er, að allir sem óska að sækja námskeiðið, mæti til innritunar, eða stað- festi fyrri umsókn með simskeyti. Menntamálaráðuneytið. í jáijiIí Berjatiminn liðinn Nú er berjatiminn liðinn að þvi er okkur er fortalið, en nætur- frostin munu hafa gert útaf við blessuð berin. bessi huggulega mynd úr berjamó er þvi til að minna okkur á liðna sæludaga nú i haust úti i guðsgrænni náttúr- unni, sem er nú ekki lengur iða- græn, en þó ekkert verri fyrir það. Nýja safnaðarheimilið tekið i notkun. „Gullið” heldur áfram. Næsta sumar mun Gullfoss örugglega halda áfram sigling- um, segir i frétt frá Eimskip. Greinilega hefur félagið sett skip- ið á sölulista til að þreifa sig áfram og kanna hvaða verðmæti hér er um að ræða. „Eimskipa- félagið telur litlar horfur á, að svo hagstætt kauptilboð komi i skip ið, að af sölu þess verði”, segir i fréttatilkynningunni, ,,og þvi hef- ur félagið ákveðið að reka það næsta sumar, eins og áður hefur verið sagt frá i fréttum”. Grensássókn mun eignast nýtt safnaðarheimili á sunnudaginn kemur. Þá mun biskup Islands vigja heimilið með guðsþjónustu kl. 11, en um kvöldið heldur kirkjukór Grensássóknar kirkju- tónleika undir stjórn Arna Arinbjarnarsonar. Heimilið verð- ur til sýnis milli 14 og 18 á sunnu- daginn og eru allir velunnarar sóknarinnar velkomnir. Heildar- kostnaður við bygginguna er orð- inn um 11 milljónir króna, en nokkuð vantar upp á að heimilið sé fullbúið. Vonast er til að það verði áður en langt um liður. Sóknarprestur i Grensáspresta- kalli er sr. Jónas Gislason, en for- maður sóknarnefndar Guðmund- ur Magnússon, skólastjóri. „Landgrunnið allt”. Um leið og fulltrúaráð Heim- dallar hvetur landsmenn til að standa saman og tryggja fullnaðarsigur i landhelgismálinu i ályktun fundar fulltrúaráðsins 14. september, telur ráðið að harma beri að þeirri stefnu skyldi ekki fylgt að friða landgrunnið allt. Fullnaðarsigur vinnist ekki fyrr en það verði gert. Óvenjuleg fyrirhyggja. Það var minnst á jólin i Vísi á dögunum. Mörgum þótti slikt ótimabært. En þeir hjá innkaupa- deild SIS eru á öðru máli. Tveir fulltrúar deildarinnar eru nefni- lega nýkomnir frá Þýzkalandi þar sem þeir voru að kaupa inn vöru, — fyrir næsta sumar! Það sem þeir keyptu voru ýmsar sportvörur og garðáhöld og vél- knúnar sláttuvélar. Stjórnunarfræðslan Kynningarnámskeið um stjórnun fyrirtækja Á vetri komanda mun Stjórnunarfræðslan halda tvö námskeið i Reykjavík á vegum iðnaðarráðuneytisins. Fyrra námskeiðið hefst 2. október og lýkur 10. febrúar 1973. Siðara námskeiðið hefst 15. janúar og lýkur 26. mai 1973. Námskeiðið fer fram i húsakynnum Tækniskóla íslands, Skipholti 37, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, kl. 15:30 til 19:00. Námskeiðshlutar verða eftirfarandi: Fyrra námskeið Siðara námskeið Undirstöðuatriði almennrar stjórnunar 2. okt. — 6.okt. 15. ian. —19. ian. Frumatriði rekstrarhagfræði 9. okt. —20. okt. 22. ian.— 2- febr. Framleiðsla 30. okt. —10. nóv. 12. febr. —23. febr. Sala 13. nóv. —24. nóv. 26.febr.— 9.marz Fjármál 27. nóv. —15. des. 19.marz— 6. april, Skipulagning og hagræðing skrifstofustarfa 17. jan. —22. jan. 30.april— 4.mai Stjórnun og starfsmannamál 22. jan. — 9. febr. 4. mai— 23. mai Stjórnunarleikur 9. febr. —10. febr. 25. mai—26. mai Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu Stjórnunarfélags Islands, Skipholti 37, Reykjavik. Simi 82930. Umsóknir þurfa að berast fyrir 28. september 1972.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.