Vísir - 22.09.1972, Page 10
10
Vísir Föstudagur 22. septeniber 1972
Visir Festudagur 22. september 1972
11
Ernirnir œfa gegn
vél í borðtennis!
t»á er vélmenni komið inn
i islen/kar iþróttir — vél,
sem kemur i stað mótherja i
borðtennis og getur spýtt út
úr sér S0 kúlum á minútu
með miklum hraða og alls-
konar snúningum og siðan
er boðtennisleikarans að slá
kúluna til baka i þar til gert
net við vélina — Stiga
ilobol. ()g það þarf mikinn
snilling til að halda i við
liana.
Við litum inn á æfingu hjá Borð-
tennisfélaginu Erninum i gær, þar sem
verið var að reyna vélina i fyrsta
skipti. Barna voru fyrir forustumenn
félagsins, þeir Sigurður Guðmunds-
son, formaður, Birkir b. Gunnarsson,
gjaldkeri, og Björn Finnbjörnsson, rit-
ari, en þeir voru meðal niu stofnenda
þess 23. april 1970. Siðan hel'ur félaga-
fjöldinn meir en tifaldazt — er nú kom-
inn yfir hundraðið — og áhuginn er svo
mikill að lagt var út i að kaupa „vél-
mennið” fyrir 120 þúsund krónur frá
Sviþjóð, en vélin um gjörbreyta allri
æfingaaðstöðu hjá félagsmönnum.
Það eru 16 hraðastillingar á vélinni
— mesti hraðinn er áttatiu kúlur á
minútu, sem sennilega enginn ræður
við, en það er hægt að láta kúlurnar
koma með minni hraða. Mótspilari
vélarinnar getur haft stjórn á henni —
stöðvað hana með þar til gerðri teng-
ingu og rofa, sem hann heldur á, þvi
annars er ha-tta á. að hinar 200 kúlur,
sem hægt er að koma fyrir i einu, spýt-
istút um allt gólf. Framan á vélinni er
nokkurs konar armur. sem orsakar
allskonar snúninga. en þeir eru hvað
þýðingarmestir i þessari erfiðu iþrótt.
barna framkallast snúningar. sem við
getum ekki gert. sögðu forráðamenn
félagsins og þeir skapa mikla æfingu
og með henni getur leikmaður æft
upp ákveðna veika punkta hjá sér.
Þessar borðtennisvélar hafa viða
verið teknar i notkun eriendis — eink-
um þó i Japan, Kina og Sviþjóð, og þær
ryðja sér stöðugt meira til rúms —
enda er ping-pong, friðariþróttin, ein
hver vinsælasta iþróttagrein, sem nú
. er iðkuð. Tizkuiþrótt ef svo má að orði
komast.
Myndirnar, sem Bragi Guðmunds-
son tók á æfingunni i gær, segja mikla
sögu. A þeirri efri er Sigurður Guð-
mundsson i keppni við vélina, sem
miskunarlaust þeytir til hans kúlun-
um, en Björn Finnbjörnsson stendur
að baki vélarinnar. Þarna er sem sagt
tæknin i framkvæmd. A neðri mynd-
inni sjást félagarnir þrir, Birkir, Björn
og Sigurður, talið frá vinstri, við fyrsta
æfingaborð Arnarins, sem er heldur
hrörlegt á að lita við hliðina á borði
vélarinnar, en hefur þó skilað miklum
árangri.
Fyrsta ár félagsins voru nokkrir
æfingatimar i Laugardalshöllinni. Nú
er starfsemin orðin svo mikil, að
Gunnar Guðmannsson, framkvæmda-
stjóri hallarinnar, hefur skapað borð-
tennismönnum sérstaka aðstöðu i sal i
kjallara hallarinnar, og þar æfa þeir 38
tima á viku á fjölmörgum borðum, og
nú fá þeir einnig tækifæri að glima við
vélmennið.
■
Bsáii!
HkftS
lÉHSliÉiPI
■
■ : •
$mm
Nú förlaðist Blikunum
flugið í Bikarkeppni KSÍ
— og Haukar flugu brott með sigurinn til Hafnarfjarðar í gœrkvöldi
Þaö stendur ekki á
óvæntu úrslitunum í Bikar-
keppni KSi — i gærkvöldi
flugu Blikarnir úr Kópa-
vogi út úr keppninni fyrir
baráttuglöðum Haukum úr
Hafnarfiröi, sem einmitt
beittu þvi vopni, sem
reyndist Breiöabliki svo vel
i sumar — mikilli baráttu-
gleöi, þar sem mótherj-
unum var aldrei gefinn
stundarfriður til að byggja
upp spil — og þetta var
meir en Breiöablik réð viö.
Haukar sigruöu í leiknum
meö 1—0 og eru því komnir
i aðra umferð ásamt FH,
Víking, Keflavík og KR.
Enn eru þrír leikir eftir í 1.
umferð aðalkeppninnar,
Þróttur-Akranes, Ármann-
Valur, og IBA-iBV.
Leikur Breiðabliks og Hauka
var háður i fljóðljósum á Mela-
vellinum i gærkvöldi og dró að þó
nokkra áhorfendur. Og þeir fengu
góða skemmtun — mikinn bar-
áttuleik — þó svo allir hafi ekki
verið ánægðir með útslitin að leik
loknum.
Eftir aðeins tiu minútur tókst
hinum marksækna miðherja
Hauka-liðsins, Lofti Eyjólfssyni,
að brjótast i gegn og skora fyrir
liö sitt — og það reyndist sigur-
markið i leiknum!! Þrátt fyrir
miklar tilraunir Blikanna til að
jafna muninn tókst það ekki og
Haukar eru þvi ásamt hinu
Hafnarfjarðarliðinu FH komnir i
2. umferð.
Einn leikmaður öðrum fremur
átti þátt i þessum sigri Hauka-
liðsins. sautján ára markvörður
Axel Magnússon, sem hvað eftir
annað sýndi snilldarmarkvörzlu i
leiknum og hlaut mikið lof hjái
Sigursœlir
Þróttarar
í Höfn!
i sumar hélt 4. flokkur Þróttar i
handknattleik til Danmcrkur. þar
sem flokkurinn tók þátt i svoköll-
uðu „Copenhagen cup”-móti mcð
milli 3 og li þúsund þátttakendum.
Stóð flokkurinn sig mjög vel og
sigraði i sinum riðli eftir hörku-
spennandi leik gegn Lugi frá Svi-
þjóð. l.auk leiknum með sigri
Þróttar 7-3 eftir að staðan i hálf-
lcik var 5-4 fyrir Lugi. Aðrir leikir
i riðlinum fóru þannig. Þróttur-
Taastrup 10-2 Þróttur-Irsta 10-7. í
undanúrslitum lék liðið gegn
þvsku liði. Handevitter, sem sið-
an sigraði i inótinu. Tapaði Þrótt-
ur þeim leik 0-8. Hrósaöi einn
fararstjóri þýska liðsins
Þróttaralinu fyrir góðan lcik og
mikla skothörku.
áhorfendum. Þar er maður fram-
tiðarinnar, en þessi ungi piltur er
til þess að gera nýbyrjaður að
leika i markinu hjá Haukum.
Honum urðu ekki á mistök i leikn-
um i gærkvöldi —- sinum fyrsta
leik i flóðljósum.
Breiðablik sótti meir i fyrri
hál'leiknum og þó leikmenn liðs-
ins fengu sjaldan tækifæri til að
byggja upp leik sinn vegna ákafa,
flýtis og dugnaðar mótherjanna,
fengu þeir þó sæmileg tækifæri til
að skora — en skot þeirra á
markið réð Axel öll við.
Siðari hálfleikurinn var jafnari
i þessum mikla baráttuleik og þá
fengu Haukarnir einnig sin tæki-
færi. Þeir áttu hörkuskot i þverslá
i eitt sinn — og einn traustasti
leikmaður liðsins, Jóhann
Larsen, komst frir að marki
Breiðabliks, en brást bogalistin i
skotstöðunni.
Lokaminútur leiksins var
spennan i hámarki — Breiðablik
sótti, en Haukar hugsuðu aðeins
um að halda þvi marki, sem þeir
höfðu yfir og það tókst. Blikunum
tókst ekki að jafna og fá fram-
lengingu, en það hefði sennilega
reynzt Haukum hættulegt.
Já, Bikarkeppni KSt hefur
þegar boðið upp á óvænt úrslit og
þarna féll annað lið úr 1. deild út
úr keppninni. tslandsmeistarar
Fram eru einnig fallnir út — og
kannski bjóða þeir þrir leikir,
sem enn eru eftir i fyrstu umferð-
inni upp á fleiri óvænt úrslit.
„Það er ég, sem
dreg fólkið að
— segir Cassius Clay, sem vill nú ólmur
gegn heimsmeistaranum Joe Frazier
fú að berjast
Nú viI ég fá tækifæri á
Joe Frazier—ná af honum
heimsmeistaratitlinum í
þungavigtinni, og um leið
þyngja pyngju mína með
,,stóru peningunum", sem
fást i slikum leik, sagði
Cassius Clay — Múhameð
Cassius Clay
Ali i Nqpv York i gær,
þegar blaðamenn ræddu
við hann eftir keppnina við
Floyd Patterson. En senni-
lega verður,Clay að bíða
fram á næsta ár með að ná
fram hefndum á Joe Frazi-
er — eina hnefaleikaran-
um, sem hann hefur tapað
fyrir.
— Joe Frazier og George Fore-
man standa nú i samningum um
keppni um heimsmeistaratitilinn,
sagöi Harry Markson, forseti
hnefaleika hlutafélagsins i
Madison Square Garden, og bætti
við. að ef af þeim leik verði, fari
hann fram i nóvember. Það yrði
aðeins þriðji leikur Frazier siðan
hann vann Clay 8. marz 1971 og
alþjóðahnefaleikasambandið er
nú orðið langeygt eftir þvi að
Frazier fari að verja titil sinn.
Hnifurinn stendur i kúnni i samn-
ingum við skattayfirvöldin.
Hins vegar hefur Cassius Clay
mikið verið i hringnum og rakað
saman peningum. Hann hefur nú
unnið átta leiki i röð, sem gefið
hafa af sér tvær milljónir dollara.
Clay vill mæta Frazier á jafn-
réttisgrundvelli — hluturinn verði
50—50 til hvors. „Það er nefnilega
ég, sem dreg að áhorfendur, en
ekki Frazier”, sagði Clay og
Joe Frazier
sjálfsálit hans hefur litið dofnað
með árunum.
Miklir baktjaldasamningar
eiga sér stað i heimi hnefaleik-
anna og þessi Markson, sem við
minntumst á fyrr, sagði á blaða-
mannafundinum i gær, að
Madison Square Garden gæti ekki
boðið i leik milli Frazier og Clay,
þar sem Jack Kent Cooke i
Kaliforniu hefði samninga úm
leikinn. Þessi Cooke vill halda
leik kappanna i Inglewood Forum
— iþróttahöll, sem hann á i
Kaliforniu, en hins vegar segir
Yank Durham, framkvæmda-
stjóri heimsmeistarans Frazier,
að meistarinn vilji ekki keppa i
Kaliforniu. ,,Ef Cooke sannfærist
um þessa ákvörðun Fraziers og
að hann muni ekki keppa við Clay
i Kaliforniu, er möguleiki — að
minnsta kosti vonum við það —
að keppnin verði háð i Madison”,
sagði Markson að lokum.
t sambandi við keppni Clay og
Floyd Patterson á miðvikudag
má geta þess, að Patterson var
mikið yfir á stigum eftir fimm
fyrstu loturnar og það var ekki
fyrr en i þeirri sjöttu, sem Clay
fór eitthvað að vinna á — en
meiðslin settu svo lok á leikinn.
Cassius Clay mun nú halda til
Suöur-Afriku og þar verður næsti
leikur hans. Hann mun keppa við
A1 Jones, Bandarikjunum, i
Jóhannesarborg 18. nóvember. j
Það er ekki bara hann Baldur okkar Jónsson vallar stjóri, sem
þarf aö dytta að vellinum sinum — þeir fengu nóg að gera i Miinchen
á dögunum. þegar allskonar keppni var háð þar á Oly mpiuleikvang-
inum. Hér sjást nokkrir vallarstarfsmenn þar eftir keppnina í
hindrunarhlaupi á hestum — sennilega myndi Laugardalsvöllurinn
ekki þola slíkan álroðning, en hvaö um þaö — á sunnudag leika
Vestmannaeyingar þar gegn iiorsku Vikingunum frá Stafangri
þrátt fyrir ýmsar hrakspár i vikunni.
Fyrir þá voru leikarnir búnir! Þau voru mörg óhöppin á Olympiuleikunum I Munchcn, sem breyttu
draumum margra keppenda á örskammri stund. Þarna er atvik frá hjólrciðabrautinni. Vestur-þýzkir
kappar, Júrgen Barth og Kainer Múller, hafa falliö á hjóli slnu og hinir pólsku mótherjar þeirra gátu
ekki komið i vcg fyrir ákeyrsluna.
Það er bjart fram-
undan hjó Víkingum
— sigur í 1. og 2. flokki ú Haustmótinu
Þrátt fyrir fall Vikinga
niður í 2. deild nú fyrir
skömmu er bjart framund-
an i knattspyrnunni hjá
Víking. Félagið á mikið af
efnilegum leikmönnum i
yngri flokkunum, sem eiga
eftir að gera garðinn fræg-
an — hefur reyndar sjaldan
eða aldrei verið betur sett á
þvi sviði en nú.
i gær fengust úrslit i öðrum
aldursflokki á llaustmótinu og
þar bar lið Vikings sigur úr být-
um —og sigraði cinnig á Keykja-
vikurmótinu fyrst i sumar — og
fyrr i vikunni lauk keppni i 1.
flokki og þar sigraöi Vikingur
cinnig.
i gærkvöldi lék Vikingur til
úrslita við KK i 2. flokki og sigraði
með eina markinu, scm skorað
var i lciknum. Þetta var leikur
skemmtilegra liða og til gamans
má geta þess, að i liöi KK léku
vist einir sjö leikmenn, scm léku
ineð 1. deildarliði KK i sumar.
Úrslit i 1. flokki fengust á
máuudagskvöld og þá vann Vik-
ingur Fram mcð 3-1. Vikingsliðiö
tapaði ekki leik i mótinu og þaö,
sem kannski er meira um vert — i
liöinu cru margir bráðefnilegir
leikmcnn, scm standa á þröskuldi
mcistaraflokks — en lltið er um
lcikmenn, scm raunvcrulega eru
hættir knatlspyrnunni eins og oft
vill brenna við i þessum flokki.
Fram varð
meistari
i gær var úrslitaleikurinn i 3.
aldursflokki á islandsmótinu
háður — var forleikur fyrir leik
Breiðabliks og Hauka i Bikar
keppni KSl.
Til úrslita léku Fram og KR og
fóru leikar þannig að lið Fram
varð islandsmeistari — sigraöi
með 1-0. 1 kvöld verður úrslita-
lcikurinn i 5. flokki á islands-
mótinu. Til úrslita lcika Vikingur
og Þróttur.