Vísir - 30.10.1972, Blaðsíða 11

Vísir - 30.10.1972, Blaðsíða 11
Vísir .Mánudaeur ,'iO. október 1972. Yisir Mánudagur :i(t. október 1972. - og FH leikur til úrslita í Bikarkeppni KSÍ Gustav meistari Gústav Agnarsson, menntskælingurinn ungi, varö Norðurlandameistari í lyftingum í þungavigt um helgina og náði mjög góð- um árangri. Norfturlandameistaramótiö i lyítingum var háð i Stavangri i Noregi um helgina. Gústav keppti i ungíingai'lokki á mótinu og nú var þar keppt i tviþraut i fyrsta skipti. Gústav lyfti samtals 307.5 kiló- um og sigraöi örugglega — jafn- framt þvi, sem þetta er bezti árangur, sem hann hefur náð. Ilinn tvitugi Gústav er i mikilli framför og var ánægjulegt að hann skyldi fá þetta tækifæri til að sýna hæfni sina. Hann brást sannarlega ekki þeim vonum, sem við hann voru bundnar — en forráðamenn lyftingasamtak- anna hór voru nokkuð öruggir um það fyrir fram, að hann mundi sigra i unglingaflokknum á mót- inu. Ungu FH-ingarnir í knattspyrnunni gera það ekki endasleppt. Þeir eru enn taplausir eftir leiki sumarsins i 2. deild og bikarkeppninni og gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Keflvíkinga i undanúrslita- leiknum i Hafnarfirði í gær 2-0. Mjög verðskuldaður sigur, sem fagnað var vel af áhorfendum, sem voru á annað þúsund. i * tj* Leikurinn átti að fara fram á laugardag, en dómarinn Einar Hjartarson taldi vöilinn ekki boð- legan þá vegna þess hve blautur hann var og var leiknum frestað til sunnudags. Þa voru allar aðstæður mun betri og lið FH sterkari aðilinn i leiknum. Keppnisvilji var meiri — ungu piltarnir i FH léku betur og uppskáru eftir þvi. Þeir skoruðu eitt mark i hvor- um hálfleik. Á 43. min. i fyrri hálfleik fékk Leifur Helgason knöttinn eftir mikla sóknarlotu FH og lyfti honum yfir varnar- mennina og i markið. A 17. min. i siðari hálfleik komst FH i 2-0. Það var Ólafur Danivalsson, sem skoraði. Þorsteinn Ólafsson hálf- varði, en hélt ekki knettinum, sem skoppaði i markið, enda mik- ill snúningur á honum. Keflvikingar komust af og til i færi, en það var eins og neistann vantaði — liðinu tókst ekki aö sameinast i lokaátökunum. Enn einu sinni mega Keflvikingar þvi bita i það súra epli að tapa i undanúrslitum bikarsins. Lið P'H er mjög ungt — tveir elztu menn liðsins 23ja ár, tveir þeir yngstu 17 ára - og á eftir að ná langt. Efniviður er góður og loksins er nú að koma fram gott knattspyrnulið i Hafnarfirði. Mál var til komið. Strákarnir voru góðir i þessum leik — léttari, og létu boltann ganga, en mót- herjarnir. Þeir voru einnig harðir ef á þurfti að halda og kappið var i bezta lagi. Sennilega ereinhver leikþreyta hlaupin i Keflvikinga eftir strangt og viðburðarikt sumar. Sóknar- linan var i leiknum. Vörnin stóð sæmilega fyrir sinu , en átti af og til i erfiðleikum með fljóta FH- inga, þar sem bakverðirnir voru oft vel virkir i sókninni. Það er mikill kostur hjá FH að þar eru allir virkir i sókn og vörn — það er ekki beðið eftir knettinum. Stórgóður leikur Dýra Guð- mundssonar, miðvarðar FH, vakti athygli i leiknum. Hann var sterkari i þessum leik, en hinir kunnu landsliðsmiðverðir Keflavikur. Ólafur Dauivalsson skorar annað markFH Ljósm. BB. , ,Við höíðum Álafoss gólíteppi ágömluíbúðinni, og reynslan af þeim réðiþví að við völdum Álafoss teppi aftur núna.“ Dæmigerö tilvitnun vióskiptavina okkar vió a i a r“ kaup á nýjum teppum. Ástæóan er wjiton- / \ I / \ I—I 1 vefnaður Álafoss gólfteppanna, á honum / \ I / \ | V J \\ J byggjast gæói'þeirra. ÞINGHOLTSSTRÆT! 2. SÍMI 22091 umboðsmenn um allt land Hafa ekki tapað á leiktímabilinu! m m Oll fjölskyldan saman Frá 1. nóvember til 31. marz gilda fjölskyldufargjöld Loftleiða, þau leysa margan vanda. Nú getur öll fjölskyldan skroppið saman í: Viðskiptaferðalagið Vetrarfríið Jólaheimsóknina Afslátturinn nemur 50% fyrir maka og börn milli 12 og 26 ára. Ferðaskrifstofurnar og umboðsmenn Loftleiða um allt land veita upplýsingar, taka á móti farpöntunum og selja farmiða. 10FTIEIDIR Einar formaður Einar Th. Matthiesen, Hafnarfirði, var kjörinn formaður Handknattleiks- sambands islands á ársingi þess á laugardaginn i stað Valgeirs Ársælssonar, sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Voru Valgeiri þökkuð mikil störf fyrir HSi. Ársþingið var haldið i félags- heirpilinu á Seltjarnarnesi á laug- ardag. Hvað merkast i störfum þingsins var, aö samþykkt var með miklum meirihluta, að fjölga um eitt lið i 1. deild, og veröa Haukar og Grótta að keppa um það sæti. Auk Valgeirs gekk Rúnar Bjarnason úr stjórn, en hana skipa nú auk Einars, Jón Ásgeirs- son, Jón Kristjánsson, Sveinn Kagnarsson, Stefán Ágústsson, Birgir Lúðviksson og Jón Er- lendsson. — Tveir þeir siðasttöldu komu inn i stjórnina. Sigurbergur Sigsteinsson svifur inn úr horninu og skorar eitt af mörkum Fram í gærkvöldi. I.jósm BB. Framarar fundu lyktina af annarri umferðinni! - fengu ekki ó sig mark í 20 mínútur og unnu upp 4 marka forskot Dananna - en Stadion sigraði Framarar verða ekki í 2. umferð Evrópubikarsins, fremur en hin fyrri skiptin, sem félagið hefur verið með i keppninni. Sem betur fer, liggur manni við að segja, þvi leikmenn Fram eru svo langt frá þvi að vera upp á sitt bezta. Það sýnir tap- ieikurinn gegn danska liðinu Stadion i gærkvöldi. Stadion á nú leiki i næstu umferð, en vart er hægt að spá þeim miklu gengi þvi liðið er fremur lélegt, skyttulaust og eiginlega allslaust af öllum gæðum handknatt- leiksins. En átakalaust varð það alls ekki fyrir þá Stadion-menn að sigra Fram. Eftir að Fram hafði méð heppni og stórglæsilegri markvörzlu með sér i fyrrileiknum, var staðan hnífjöfn og leikurinn i gærkvöldi var einnig hnif- jafn i seinni hálfleik og Framarar sáu glitta i 2. umferðina svo um munaði. Framarar voru leiðandi lengst af i fyrri hálfleik, en eftir 20 minútna leik var eins og botninn dytti úr öllu saman. Danirnir jafna i 5:5 og komast yfir i 8:5 á 3minútum. Og i hálfleik var staðan heldur óálitleg eða 11:7 fyrir Stadion. Mikil spenna var i leiknum og finnsku dómararnir sáu þann kost vænstan að sussa svolitið á báða markverðina, Þorstein og Petersen. Seinni hálfleikurinn var hins vegar dálitið furðulegur. Þá fór allt að ganga i óhaginn fyrir Dönum. t rétt tæpar 20 minútur skoruðu þeir ekki eitt einasta mark, en skot þeirra höfnuðu hvað eítir annað i Framvörninni, eða þá Guðjón Erlendsson, sem var nú kominn i mark Fram, klófesti boltann og átti hann ágætan leik um þetta leyti. Svend Lund fékk það verkefni aö gæta Axels. Hins vegar fóru Framarar snyrtilega framhjá þessum yfir- frakka Axels og átti Sigurður Einarsson stærstan þátt þar i. Og Lund varð yfirmáta brotlegur og var visað af velli strax i upphafi leiksins. Og það fékk Gylfi Jóhannsson lika að reyna (þ.e. 2 min. af leikvelli) en lik- lega hafa þeir visað honum ranglega af velli og ruglað honum saman við einhvern annan leikmann Fram. Eftir 11 minútna leik hafði Fram jafnaö i 11:11. Það mark skoraði Björgvin, kom brunandi upp á sinum mikla spretti, stökk upp þar sem hann var úti við hliðarlinu nálægt punktalinunni, og skoraði glæsilega með langskoti, sem er óvenjulegt að sjá til hans. Axel bætti svo við 12:11 og Þorsteinn varði vita- kast Stadion eftir spaugleg viöskipti við dómara, þegar hann var að klæöa sig úrblússu sinni i mestu makindum. 13:11 fengu menn að sjá dæmt af, Sigurður Einarsson hafði stigið á lin- una. En nú var eins og Bleik væri brugðið, Framarar voru ekki lengur hinir sömu og fyrstu 20 minúturnar og nú skorar Gunnar Nielsen og Leif Nielsen skorar 13:12 fyrir Stadion. Axel jafnar með hálfgerðu heppnismarki þegar tæpar 7 minútur eru eftir, — en Danir eiga lokaorðið og of mikið dregið af Frömurum til að búast ms;tti við neinu úr þeirri átt. Nicolai Agger, langbezti leikmaður Stadion skorar næstu tvö mörk. Lokaorðið áttu Stadionmenn með marki Gunnars Nielsens 30 sekúndum fyrir leikslokin og 16:13 sigur Stadion og áframhaldandi þátt- taka þeirravarstaðreynd. Danir höfðu sem sé makkað rétt, látið Framara um fjárhagslegu hliðina, fengið skemmtiferð til Islands sér að kostnaðarlausu og 2. umferðina i Evrópubikarnum lika. Þeir tóku áhættu, en tókst það sem þeir hafa ætlað sér. Hins vegar er ekki laust við að einhverjar fagnaðarstunur hafi hrotið af vörum þeirra, sem sjá um fjárhagslegu hliðina hjá Fram, þvi önnur umferð hefði mögulega getað orðið þeim dýrt „spaug.” -JBP „Haustið eftir meistaratignina" hjá Fram Stilltir á tuttugu mínútur! ,,Þaö viröist segin saga meö okkur”, sagði Ingólfur Óskarsson fyrirliöi Fram i gærkvöldi, ,,haustið eftir að við verðum íslands- meistarar erum viö mánuði siðar i fullri þjálfun en ella. llverju er um að kenna er ekki gott að segja.” Það er óhætt að taka undir þetta álit Ingólfs. Þetta hefur komið i ljós með Framarana. Satt að segja var erfitt að þekkja hina leikreyndu Framara i þessum leik, og greinilega voru fáir leikmanna þeirra i nægilega góðri þjálfun. Landsliðsmenn þeirra báru raunar af. Ekki gat ég séð að leik- þreyta plagaði þá, öllu heldur vantaði þá hæfa samherja. Tuttugu minútur virtist hámarkið fyrir þá, og það gerðist i báðum hálfleikjum. Siðustu 10 minútur beggja hálfleikjanna duttu Framara niður, og það reið bagga- muninn. Oft á tiðurri varð leikur Framara nánast vandræðalegur og talsvert var um misheppnaðar sendingar, sem fóru i greipar and- stæðinganna. Liklega var þetta einn slakasti Evrópubikarleikur og leikir sem við höfum séð hér á landi. Hvorugt liðið mundi sækja gull i greipar mótherja i A-Evrópu eða Þýzkalandi með leikjum sem þessum. Björgvin Björgvinsson, Axel Axels- son og Sigurður Einarsson voru beztu menn Fram, en Þorsteinn og Guðjón vörðu nokkuð misvel i markinu, áttu sinar góðu tilraunir, en mistókst þess á milli herfilega. Þetta lið hefði ég viljað sjá 3-4 vikum siðar gegn Stadion og þá hefði ég ekki verið smeykur um þá gegn Stadion. Danska liðið er fremur slakt, og raunar vantar allt i liðið til að það sé af einhverjum gæðaflokki. Nicolai Agger er langbezti léikmaðurinn, en Lasse Petersen er ágætur markvörður og skapmaður mikill eins og sjá mátti. Gunnar Nielsen 2, Leif Nielsen 1 og Svend Lund og Tonnny Jörgensen áttu og góða spretti. En i sjálfu sér er Stadion með allra lélegustu liðum, sem við höfum tekið á móti frá Danrhörku og raunar mesta furða hvað Gert Andersen galdraði út úr liðinu. Mörkin fyriir Stadion: Agger 6 (eitt úr vitakasti), Lund 3, Jörgensen 3, Gunnat Nielsen 2, Leif Nielsen 1 og Frandsen 1. Axel Axelsson 4, Gylfi Björgvin Björgvinsson Óskarsson, Sigurður og Sigurbergur Sig- Mörk Fram Jóhannsson 4, 2, Ingólfur Einarsson 1 steinsson 1. Finnsku dómararnir Kurt Anders- son og Georg Krutelew dæmdu leikinn alveg sæmilega vel. -JBP-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.