Vísir - 24.03.1973, Síða 5

Vísir - 24.03.1973, Síða 5
5 Vlsir. Laugardagur 24. marz 1973. AP/NTB ÚTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson Fyrir utan skrifstofur verkalýðsfélaganna I Kaupmannahöfn hefur verið ös manna undanfarna daga. þar sem menn hafa verið að vitja verkfallsstyrksins, skrafa saman og spyrja tiðinda. Eins og gcngur og gerist verða menn þyrstir af sliku, og þá kcinur einn „öllari” sér vel. \ j * V 4 j rnm JM-Jt í VERKFALLI Fyrstu ummerki þessarar stærstu vinnudcilu I Danmörku (siðan 1936) gátu mcnn séð niðri við höfnina. Þar sem alla daga er jafnan ys og þys, en allt er nú eins og lamað. Var „Svarti september" á stjái? Það varð uppi fótur og fit á flugvellinum i Róm i vikunni, þegar fannst þar taska með vél- byssu og handsprengjum. En við nánari athugun fundust þrjár töskur til viðbótar I flug- stöðvarbyggingunni (farþega- salnum) á við og dreif. Grunur leikur á þvi, að þarna hafi félög- uniiir Svarta september brostió kjarkur, þegar þeir sáu vopna- leitartækin, og tekið þann kost- inn að skilja föggurnar cftir. ■ „Hvíta bókin" lögð fram Wiliiam Whitelaw, irlandsmálaráðherra, hampar hér á lofti „Hvitu bókinni’’ svo- nefndu, sem lögð var fram i vik- unni, en hún hefur að geyma nýjustu áætlanir og tiliögur Breta um framtiðarlausn deil- unnar i Norður-irlandi. Það er ekki fyrsta „bókin”, eins og þessar tillögur liafa verið nefnd- ar, sem lögð hefur veriö fram. Engin þeirra hefur þó hingað til reynzt nógu haldgóö. Vetrarstríð í auðu Þessi mynd er dæmigerð fyrir æfingaaðstöðu norskra soldáta, sem i samvinnu við Nato vinna nú að æfingaáætlun, sem gengur undir dulnefninu „Brauö- karfan”. Hermennirnir eru að æfa hernað að vetrarlagi og þar er gert ráð fyrir sleða- og skiða- notkun, en jörð hefur veriö auð i Noregi að undanförnu, og þeir verða að draga sleðana i snjó- leysi.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.