Vísir - 20.10.1973, Qupperneq 5
Visir. Laugardagur 20. október 1973.
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón Guðmundur Pétursson
• • •
Óeirðir í
Bangkok
Þetta er ein af fáum frétta-
myndum, sem borizt hafa frá
óeiröunum i Bangkok um helg-
ina sem var. Stúdentar sjást hér
bera lik eins féiaga sinna, en
hann haföi falliö fyrir kúlum
hermanna. Fáninn, sem þeir
bera, er blóöi drifinn. Stúdentar
fylltust mikilli heift yfir „svik-
um hersins”, eins og þeir köll-
uðu það, þegar skotiö var inn i
hóp þeirra, um það leyti er
hóparnir voru að tvistrast hver
til sins heima. Þeir sinntu ekki
skriðdrekum og vopnuöu
herliði, sem sent var gegn þeim.
5 fjölbýlishús í eldi
Þessi svarti reykjarbólstur stafar frá ibúöarhverfi i Chelsea i Massachusettes-riki i Bandarikjunum,
þar sem kom upp mikill eldur. A timabili logaði i fimm fjölbýlishúsum, og slökkviliöiö fékk ekki heft út-
breiðslu bálsins. Kallaö var til hjálpar slökkviliö úr nærliggjandi héraöi til þess aö verja húsin. Hvass-
viöri var, og torveldaöi þaö slökkvistarfiö.
Forsetar
.
Þaö veröur ekki annað séö en vel fari á meö þeim forsetanum og
væntanlegum varaforseta Bandarikjanna, Gerald Ford. Ford er
þegar farinn að sitja ríkisfundi, þótt eftir eigi aö bera tilnefninguna
undir öldungadeildina til þess að fá hana samþykkta. — Sést Nixon
á myndinni setja Ford inn i málið, sem tekið verður fyrir á fundi I
þaö sinnið.
Einhvers staðar sunnarlega i Libanon þyrptust ibúarnir i þorpinu
Nabatiyeh út til aö virða fyrir sér þetta flak af Phantom-orustuþotu
tsraels, sem Sýrlendingar höföu skotiö niður. Menn héldu sig þó,
eins og sjá má á myndinni, i hæfilegri fjarlægö til vonar og vara, ef
eitthvaö væri ósprungið eftir i flakinu.
Bretar eru æfir i garö Araba fyrir aö ætla aö taka fyrir oliuflutning
til ýmissa vestrænna rikja.'ef þau styöja tsrael. Engu aö siöur halda
þeir áfram að þjálfa egypzka flugmenn i meöferö þyrilvængja á
borð við Sea King, sem hér sjást i Exeter i Devonshire.
Pósturinn, strákar! Vinsælasti maöur i Sinaieyöimörkinni er sá,
sem deilir út bréfunum aö heiman. tsraelsku hermcnnirnir á mynd-
inni gefa honum varla ráörúm til þess aö opna póstpokann.
tsraelskir hermenn sjást hér vera aö ferma skriödreka sinn skot-
færum einhvers staöar i Sýrlandi, en ef vel er aö gætt, má sjá I
gegnum grindur körfunnar eina hænu, sem varla er ,,standard”-út-
búnaöur skriödreka.