Vísir - 11.02.1974, Blaðsíða 7
Visir. Mánudagur 11. febrúar 1974.
cTWenningarmál
Auðvitað var hún fermd
Stefán Júliusson:
ÍIAUSTFERMING
Skáldsaga
Setberg 1973. 160 bls.
Að sinum hætti er
þetta lipurlega stiluð og
saman sett skáldsaga —
það má vel vera að hún
sé best af bókum Stefáns
Júliussonar um ung-
linga á gelgjuskeiði frá
undanförnum árum.
Þær eru orðnar fjórar
talsins. Og þar fyrir
utan hefur Stefán skrif-
að einar sjö, átta skáld-
sögur handa börnum og
unglingum.
Aö sinum hætti segi ég af þvi að
mér finnst um býsna litinn raun-
verulegan skáldskap að ræða i
Haustfermingu. Sjálfsagt er at-
burðarás og fólk i sögunni frjáls
tilbúningur höfundarins. En hvort
tveggja er til þess samið að leiða
vandamál fyrir sjónir lesandans
og benda á lausn þess. Þannig séð
er það mesta sólskinssaga sem
Stefán Júliusson segir þótt sögu-
efnið sé vissulega alvörugefið,
byggt á raunverulegum vanda-
málum.
Ferming,
barnshöfn,
gifting
Eins og undanfarnar sögur
Stefáns Júliussonar fjallar
Haustferming um ungling á glap-
stigum, Sólveigu sem á að fara að
fermast, en er i rauninni full-
þroska stúlka, fjarska fönguleg.
Sólveig hefur lent i solli og vand-
ræðum, tollir ekki i skóla né vinnu
né sveitinni fyrir austan hjá
frænda sinum. Móðir hennar vill
endilega að hún fermist, en Sól-
veig neitar að ganga til prestsins.
Það verður málamiðlun þeirra að
fá Ásgrim kennara hennar úr
barnaskóla, til að búa Sólveigu
undir ferminguna. Það er á meðal
annarra orða eftirtektarvert hve
Stefán Júliusson lætur sig ferm-
ingu miklu skipta: ef ég man rétt
fyrri sögu hans, Sólarhring,
spannst mikið mál úr þvi hvort
pilturinn i þeirri sögu ætti eða ætti
ekki að láta fermast. Og auðvitað
var hann fermdur!
En frá þessari handleiðslu og
farsællegum lyktum hennar segir
sem sé sagan. Ásgrimur, fjarska
vanafastur, kannski svolitið
skoplegur piparsveinn, er tregur
til i fyrstunni, en lætur smám-
saman ánetjast þessu viðfangs-
efni, sumpart af umkomuleysi
móður hennar, en sumpart og
einkum af þokka Sólveigar sjálfr-
ar, svo barnslegar og kvenlegar i
senn. Nú kemur upp úr kafinu að
Sólveig hefur ekki bara lent i
solli, hassi, áfengi, og reykingum
með unglingum á sinum aldri. og
meira að segja með könum, held-
ur er hún orðin ólétt. Það er að
visu allt i siðsemi: hún hefur
eignast kærasta um sumarið á
undan og er nú barnshafandi eftir
hann. En meinið er að kærasti
veit hvorugt, að hún á að fara að
fermast, er ólétt, hann veit ekki
betur en hún sé sextán ára gömul.
Það verður nú hlutskipti
Ásgrims, með fermingarundir-
búningnum, að leiða unglingana
saman á rétta götu, kenna þeim
að gera sér grein fyrir sinum eig-
in tilfinningum hvort til annars.
Það tekst nú bærilega. Og svo er
að sjá sem eitthvað hafi hlánað
innra með piparsveininum við
þessi viðskipti. Að sögulokum
hefur hann fengið augastað á
móður Sólveigar gervilegri
ekkju á fertugsaldri, og sann-
kristinni konu. Undir ferming-
unni mætast hendur þeirra — og
þau fundu bæði og vissu að þetta
handtak var til frambúðar.
Ótti,
angist,
lotning
Ef taka ætti Haustfermingu
fyrstog fremst sem einhvers kon-
ar úttekt eða útlistun unglinga-
vandamáls er sá ljóður á sögunni
að vandkvæði Sólveigar virðast
rista tiltölulega grunnt og vera
auðleyst. Það er að skilja að laus-
ung hennar og villingsháttur stafi
einkum af óhæfilégu sjálfræði og
cftirlæti miklu i bernsku, það sem
hana skortir er föðurlegur agi og
forsjá. Það lætur Ásgrimur henni
i té. Og það er að sjá sem kærasti,
barnshöfn, lerming nægi til að
koma henni á rétta braut: að
sögulokum hefur hún uppi áforrn
um að snúa sér nú að skólanámi
sinu meðan fæðingarinnar er beð-
ið. Sólveigu skortir hvorki greind
né dugnað ef hún viil taka til þess
og býr i rauninni við ákjósanlegar
kringumstæður, elskandi móður
og frændfólks, fyrir nú utan
tilvonandi stjúpa. Áreiðanlega
hiilir i framtiðinni undir trúlofun
og giftingu — þegar hinir ungu og
efnilegu foreldrar hafa þroska til
þess.
Sem skáldskapur, saga liður
Haustferming einnig baga fyrir
þessa efnislegu einfeldni, hversu
auðleysur vandi hennar i rauninni
er. Hitt er samt verra að höfundi
er ansi ósýnt um persónusköpun,
mannlýsingar hans verða aldrei
nema einfaidar manngervingar,
einkum látnar uppi með siendur-
teknum kækjum og talsháttum.
Ásgrimur kennari segir ,,uhm’’,
..stúlkan góð” og „pilturinn góði”
og svo ,,hóf hann upp hægri hönd-
ina”. Séra Guðmann segir
,,satt að segja næsta” i annarri
hverri setningu eða svo. Lýsing
Sólveigar samanstendur einkum
af glannalegum orðaforða og
Stefán Júliusson.
klæðaburði, föngulegum likams-
vexti hennar. Pilturinn er litið
nema koldökkur lubbinn. móðirin
ekkert nema kvenlegt umkomu-
leysi. Hún mænir agndofa á Ás-
grim þegar gengið hefur í'ram af
honum og hann tekur til við að
typta dóttur hennar ,.með heljar-
höggum" — i tillitinu ótti og ang-
ist og vottur lotningar um leið.
segir þar. Það er i stystu máli
fjarska torvelt að festa trú á
persónum sögunnar sem lifandi
fólki, vanda þess sem raunveru-
legum vanda.
Þar fyrir er efni Haustferming-
ar skýrlega lýst og sagan greið-
lega rakin til loka. Ritháttur
Stefáns Júliussonar ér jafnati
settlegur. alveg útmálandi. segir
hug sögufólks til botns til að efnið
verði nógu ljóst. Unglingum sög-
unnar er lýst af góðvild. vilja til
skilnings en forðast fordæmingar.
og sjálfsagt má segja að sögulok-
in tjái ..trú á æskuna". manndóm
hennar þegar á reynir. Samt eru
viðhorf sögunnar við uppeldis- og
hjúskaparmálum furðu ihalds-
söm ef að er gáð. Og er ..trúin á
æskuna” eins og henni er hér lýst.
nokkuð annað en skálkaskjól —
leið að vikja frá sér raunveruleg-
um unglingavandamálum okkar
daga sem vissulega væri verðugt
viðfangsefni i skáldskap?
/ FYRSTU PCRSÓNU
EFTIR ÓLAF JÓNSSON
Hrafn Gunnlaugsson:
ASTARLJÓÐ
llelgafcll 1973. 80 bls.
DJÖFLARNIR
Almenna bókafélagið 1973. 61 bls.
Hrafn Gunnlaugsson
er undarlega hávaða-
samur ungur höfundur.
Það sem mest hefur
kveðið að af ljóðagerð
hans var lika flokkur
ástarljóða sem höfundur
flutti á sinum tima i
sjónvarpi ásamt með
POPP-músik. Með öll-
um sinum fyrirgangi,
eða ef til vill vegna hans,
varð ansi gaman að
þessum sjónvarpsþætti.
Hrafn hefur lika vakið á sér
eftirtekt fyrir hluttöku sina i ýms-
um útvarpsþáttum, þar á meðal
hinu vinsæla útvarpi Matthildar,
og hann hefur samið leikrit fyrir
útvarp og sjónvarp. Sjónvarps-
leikrit hans, Klámsaga af sjón-
um, fékk i fyrsta lagi meðmæli
dómnefndar i leikritakeppni
Leikfélags Reykjavikub á 75 ára
afmæli þess, og i öðru lagi þá upp-
hefð sem kemur að utan, vin-
gjarnlegar blaöaumsagnir um
sýningu leiksins i sænska sjón-
varpinu. skilvislega þýddar og
birtar i blöðum hér heima.
Þvi miður sá ég ekki Klámsögu
af sjónum þegar hún var sýnd i
sjónvarpinu. Aftur á móti heyrði
ég i fyrra ,,farsa fyrir útvarp”
eftir Hrafn ærustufullan gaman-
leik sem sumpart minnti á upp-
átækin i Matthildi, fullur með
smellnar og kostulegar hug-
myndir, en úrvinnslan að mig
minnir öll á ringulreið.
Brjálað, brjálað
Þau tvö kver sem Hrafn Gunn-
laugsson birti fyrir jólin eru sem
sé engan veginn fyrstu verk hans
fyrir almenningssjónum þótt þau
séu hans fyrstu bækur. Og fyrir
utan þao sem fyrr var talið hefur
hann birt sitthvað efni i blöðum
og timaritum. En nýju bækurnar,
ljóðasafn og stutt saga, riða eng-
an baggamun um orðstir hins
unga höfundar, bæði tvö formlitil
mælskuverk. Satt að segja valda
Astarljóð Hrafns beinum von
brigðum, svo öldungis ögunarlaus
Hrafn Gunnlaugsson.
sem þau eru, bæði mál og still
þeirra og allt hugmyndafar, að
þvi leyti sem i það verður ráðið.
Mér að minnsta kosti fannst
flokkur hans, Ástarljóð til litlu
reiðu sólarinnar minnar, miklu
áheyrilegri i sjónvarpinu, en þau
reynast læsileg á bókina, ef til vill
af þvi að þar gafst aldrei ráðrúm
til að staldra við einstakar
hendingar né heil ljóð. Fyrir-
gangur his munnlega flutnings,
myndefnið og tónlistin dró i svip
dul á það hversu veikgerður text-
inn sjálfur er.
Þar fyrir má þaö vera að styrk-
ur Hrafns felist i sjálfri mælsk-
unni, tilraun hans að yrkja hvers-
dagsmáli, dagsdagiegu myndefni
i og með ibornara ljóðmáli — ef
honum bara tækist að koma við
efnið aga forms:
Allt er brjálað. Brjálað.
Fugíarnir hrjálast i trjánum og
skrikja sig liása
og kófsvcittur klakinn stynur
af sólsting.
Allt er brjálað. Brjálað.
En cg stökkvi kaldri skynsemi
á brennandi ást mina
og brosi hæversklega
i þykkum frakka
mcð fallcgt bindi
i bursluðum skóm
meö brot i buxum
og uppbúinn sakleysissvip,
segir t.d. i fyrsta ljóðinu i þessum
flokk, og þessi sami tviveðrung-
um tilfinninga- og hversdagslifs
kemur miklu viðar við sögu i
ljóðum Hrafns. En mikið vantar
enn á að honum takist að semja
þessu né öðrum viðfangsefnum
sinum sannfærandi ljóðmál.
Grænn i framan
Ástir, lifsnautn koma eins og
vonlegt er mikið við sögu i ljóðum
Hrafns Gunnlaugssonar, einatt
sem kynferðis-og brennivinsmál.
Sama gildir um sögu hans. Djöfl-
ana sem að stofni til gæti verio
raunsæisleg frásaga um' sumar-
ævintýri i sveitinni, lifsþreyttan
borgarbúa sem finnur endurlausn
og fuilnægju sina i faðmi sak-
lausrar sveitastúlku i sögunni
öðru nær hjá Hrafni. Hinn ein-
kennilegi mælingamaður sem frá
er sagt i sögunni verður öllu held-
ur fyrir þvi að heillast á vald
trölla og vætta i sögunni i gervi
kotkarls og sveitastelpu. Þeirra
viðskipti verða nú heldur en ekki
hrikaleg og lýkur með tröllslegu
fyllirii: þaðan flýr sögumaður að
lokum. grænn i framan og með
spýjuna i kverkunum, útbrunninn
draum sinn um hina hreinu, fögru
og náttúrlegu ást — ef þaö var þá
það sem hann dreymdi.
Það sem hún nær með öfgum
sinum og ærustu. finnst mér þó
rr.eira gaman að sögunni en ljóð-
unum. En ansi er sögumaður
sjálfur óljós, óskilgreind figúra —
rétt eins og fyrsta persóna ljóð-
anna að sinu leyti.
Djöflarnir er mjög snoturlega
gert litið kver i nýju smábókar-
sniði scm vonandi er að Almenna
bókafélagið haldi áfram á fleiri
bókum. Ástarljóð eru hins vegar
úrgefin i tötralegasta venjusniði
ljóðabóka.
Snyrtivörunómskeið
Kaupmannasamtök islands gangast fyrir
námskeiði fyrir það fólk sem hefur áhuga
á snyrtingu og störfum i snyrtivöruverzl-
unum.
Á námskeiðinu verður m.a. kennd með-
ferö og notkun snyrtivara, auk þess verða
helztu tegundir snyrtivara kynntar. Nám-
skeiöiö stendur yfir frá 16. febrúar til
mánaðamótanna april-mai. Lágmarks-
aldur þátttakenda er 18 ár. Þátttaka til-
kynnist á skrifstofu Kaupmannasamtaka
islands að Marargötu 2, Reykjavik, i sima
1!):}!)() og 15841 dagana 12., 13. og 14. febrú-
ar.
Kaupmannasamtök íslands.