Vísir - 11.02.1974, Blaðsíða 24

Vísir - 11.02.1974, Blaðsíða 24
Handslökkvitœki og árvekni björguðu Kassagerðinni —munaði litlu að stórbruni yrði „Varla hœgt aðanda vegna snjókófsins — Stórhríð ó Akureyri um helgina. w Ofœrð um allan bœ, og sums staðar 2ja metra hóir skaflar Þeir á Akureyri fengu svo sannarlega að finna fyrir veðrinu um helgina. //Það var varla hægt áð anda vegna snjókófsins," sagði lögreglan þegar við ræddum við hana í morg- un. Bílar sátu fastir á f jöl- mörgum stöðum, og þó að gerðar væru tilraunir til þess að losa þá, fennti þá óðar í kaf á nýjan leik. Menn héldu sig mest inni viö, sagði fréttaritari okkar á Akur- eyri, Arnar Einarsson, þegar við höfðum samband við hann i morgun. Engin umferð var nema vegheflar og snjóbilar. Stórhriö hófst á iaugardaginn um hádegi og stóð þar til um klukkan fimm i morgun, en þá fór aö stytta upp. Núna er fegursta veður á Akureyri, en ófærð um allan bæ. Snjóruðningstæki fóru í gang þegar i gærmorgun snemma, en hálfilla gekk að ryðja og moka vegna hriðarinnar. I morgun var að sjálfsögðu verið að moka og ryðja alls staðar. Var mæting góð i skólum og vinnustöðum, þrátt fyrir ófærðina. A laugardag var haldið skiðamót á Akureyri i Hliðarfjalli en það fór út um þúfur vegna veð- urs, og tók það tvo tima að kopia fólki niðureftir i bæinn. Tveir dansleikir voru haldnir, i Sjálf- stæðishúsinu og Alþýðuhúsinu, og varð að flytja fólk með aðstoð Flugbjörgunarsveitar og snjóbila heimleiðis. Sömuleiðis úr leikhúsinu. Var þeim flutningum ekki lokið fyrr en klukkan að verða sex morgni sunnudags. Nokkrum smásamkomum var hreinlega aflýst vegna veðursins. Anzi hvasst var á köflum og skóf þá mjög mikið. Er þetta versta veður sem gengið hefur yfir i vetur hvað ófærð snertir, og eru viöa mannhæðar skaflar og vel það i bænum. Sums staðar má jafnvel finna 2ja metra háa skafla, og skóf til dæmis mikið á flugvellinum. En fljúga átti til Akureyrar i morgun og var þá búið að ryðja brautir. A nokkrum stöðum skóf fyrir dyr, og voru dæmi um það þegar byrjað var að ryðja á götum. Rafmagn var i góðu lagi þrátt fyrir hamaganginn i veðrinu, og lét engan bilbug á sér finna alla helgina. Oðru máli gegndi um sjónvarpið, sagði Arnar. „Það fer fljótt að bera á truflunum ef bliðan fer af, en þeir eru vist að koma fyrir sterkari og betri sendi hér núna”. — EA „Þaö er tvímælalaust fyrst og fremst árvekni vaktmannsins, og kunnátta hans á notkun handslökkvitækja sem hefur komið I veg fyrir aö þetta yrði alvarlegra”, sagði Rúnar Bjarnason slökkviliðsstjóri i viðtali við Visi í gær. Eldur kviknaði á pappalager Kassagerðar Reykjavikur um miðjan dag i gær. Eldurinn kom upp við þakið á lagernum, þannig aö brunaaövörunarkerfi hússins varð hans ekki vart. Vaktmaður er i húsinu, og fann hann brunalykt. Þegar hann kom að eldstaðnum logaði glatt i pappanum, og hafði eldurinn teygt sig niður undir gólf. Vörðurinn notaði tvö hand- slökkvitæki á eldinn og tókst að vinna talsvert á eldinum. Hringdi hann að þvi búnu i slökkviliðið. „Við kölluðum samstundis út aukalið, þvi þegar kviknar i svona fyrirtækjum, er ekki þorandi að taka neina áhættu”, sagði Rúnar slökkviliðsstjóri ennfremur. Skemmdir af völdum eldsins urðu ekki miklar. Rúnar sagði að óhætt væri að hrósa Kassa- gerðinni fyrir sérstaka árvekni I brunavarnamálum. Slökkvitæki eru um allt húsið, og svo bruna- aðvörunarkerfi. Vaktmenn hafa og sótt sérstök námskeið i með- Þarna upp undir þakinu kviknaði eldurinn, Hann breiddist svo út á furöanlegan hátt, þ.e.a.s. niður eftir pappastæöunni. Tii að fullvissa sig um að eldur leyndist ekki neinsstaðar, var klæðningin á þakinu rifin frá að hluta. ólafur Sigurðsson vatkmaður með slökkvitækið sem hann notaði til að halda eldinum í skefjum. Þetta tæki er vatnstæki, en Ólafur notaði einnig kolsýru- tæki. Ljós. Bjarnleifur ferð slökkvitækja hjá slökkvi- liðinu. -OH ^ ji ;jp Mánudagur 11. febrúar 1974. Afbrotamál á glapstigum — ýmsar smáskýrslur, en engin heildarskýrsla, segir yfirsakadómart „Auðvitað er það mikil vöntun að hafa ekki fullkomnar talna- skýrzlur um ástandið i afbrota- málum hér á landi. Ef það ætti að vinna slíka skýrslu, hvort sem er fyrir Reykjavik eingöngu, eða allt landið, þá þyrfti til sérstakan , mannskap”, sagði Halldór Þorbjörnsson yfirsakadómari i Reykjavik i viðtali við blaðið. Það kom fram í erindi sem Hildigunnur Ölafsdóttir hélt á fundi um afbrotamál unglinga fyrir nokkru að afbrotaskýrslur eru ekki til yngri en frá ’68. „Án þess að ég viti gjörla hvaða skýrslur það eru sem Hildigunnur á þarna við, þá get ég þó sagt að hjá Sakadómi Reykjavikur hafa verið gerðar ýmsar skýrslur á undanförnum árum. Við höldum einnig gögnum til haga, sem varðveita upplýsingar. En það er ekki um neina fullkomna skýrslu að ræða”, sagði Halldór ennfremur. Fjárveiting hefur aldrei verið fyrir hendi til gerðar skýrslu um afbrotamál. Hagstofan hefur gefið út dómsmálaskýrslu, en seinasta árið sem sú skýrsla fjallar um, er ’68 og siðan hefur dómsmálaskýrsla ekki sést. Útkoma dómsmálaskýrslu Hagstofunnar féll einnig niður i nokkur ár. „Við hjá Sakadómi höfum dómsmálaskrá, og skrá yfir afgreidd mál. Ahuginn á að koma afbrotatölum á hreint er mikill. Það þyrfti að gera það, svo við getum t.d. fengið samanburð viö erlendar skýrslur af sama tagi”, sagði Halldór að lokum. —óH LOKUÐ INNI í TVO TÍMA — búðarhurðin var opin, en skelltist í lás þegar konan var komin inn Bank i rúðu náöi eyrum vegfar- anda, sem gekk niður Banka- strætið klukkan rúmlega fimm á laugardaginn. Hann leit i kringum sig til að athuga hvaðan hljóðið kæmi. Sá hann þá að kona stóð fyrir innan dyrnar á verzluninni Foss, sem stendur i Bernhöftstorfunni. Bankaöi hún sem ákafast i rúðuna. Með bendingum og hrópum tókst henni að gera manninum skiljanlegt að hún væri lokuð inni. Maðurinn fór niður á Miðborgarlögreglustöð, og tilkynnti þetta. Strax var hafizt handa um að finna verzlunar- eigandann, en það gekk erfiðlega. Loks haföist þó upp á honum og hann kom og opnaði. Varö konan frelsinu ákaflega fegin, þvi þá hafði hún þurft að dúsa inni i verzluninni i tvo klukkutíma. Astæðan fyrir innilokuninni var sú að konan kom aö verzluninni opinni eftir hádegið á laugar- deginum. Gekk hún inn i þeim erindum að gera innkaup. Hurðin skellst á eftir henni, og læstist. Aðeins er hægt að opna með lykli, og varð konan þvi að gjöra svo vel að biðaþar.til hjálp barst. Verzlunareigandinn viður- kenndi aö gleymzt hefði aö læsa hurðinni þegar verzlunir var yfir- gefin um hádegið. —ÓH Varnarmálin: VIÐRÆÐUR DRAGAST ENN Enn dragast viðræður islcnzkra og bandariskra stjórnvalda um varnarmálin. Talað hafði verið um það fyrir jólin, aö næsta lota viðræðnanna mundi veröa fljótlega upp úr áramótum. Hannes Jónsson, blaðafulltrúi rikisstjórnarinnar, sagði í morgun, að ekki hefði verið ákveðiö, hvenær fulltrúar rlkjanna ræddust viö næst. Aug- ijóst er, að það verður ekki i bili. Þing Norðurlandaráðs stendur 16.-20. þessa mánaðar, og verða þar einir fjórir Islenzkir ráðherrar. Verður þvi vafalaust ekki af viðræðum um varnarmál fyrr en eftir þann tfma. Hannes sagði annars um varnarmálin, að „stefnan væri óbreytt og staðan óbreytt”. — HH

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.