Vísir - 11.02.1974, Síða 11
Sportvöruverzlun
íngólfs U8kar»8onar
Klapparvlig 44 — Slml 117*1 —
☆
PUMA
íþróttatöskur
Póstsendum.
PUMA
handboltaskór
og æfingaskór
ALLAR STÆRÐIR
Verð frá kr. 1637.
1. deild
kvenna
Einn leikur var háður i 1. deild
kvenna i gær. FH og Valur léku i
iþróttahúsinu i Hafnarfirði og
sigraði Valur 17-15.
Staðan er nú þannig:
Fram 6 6 0 0 81-48 12
Valur 6 5 0 1 97-68 10
FH 7 3 1 3 95-88 7
Armann 6 3 1 2 75-72 7
KR 5 2 0 3 57-62 4
Vikingur 6 1 0 5 57-77 2
Þór 6 0 0 6 47-93 0
Haraldur
sigraði!
Haraidur Korneliusson sigraði i
gær á Nýársmóti TBR i
badminton i Aiftamýrarskóla.
Leikið var i einliðaleik og sigraði
Iiaraldur Friðleik Stefánsson,
KR, i úrslitum eftir þrjár lotur,
13-15, 15-5 og 15-5. Nánar á
morgun.
JVxel bœtti markametiðHMi9ur
í veturum þrjú mörk!
— skoraði 14 mörk gegn Haukum og Fram sigraði með 33-20 í
Hafnarfirði i gœrkvöldi
Markakóngurinn Axel
Axelsson, Fram, var
heldur betur í ham í
íþróttahúsinu í Hafnarfirði
i gærkvöldi. Haukar máttu
ekki líta af honum augna-
blik — þá lá knötturinn í
marki þeirra. Axel skoraði
14 mörk í leiknum, þar af
m*...
aðeins fjögur úr vitaköst-
um — og bætti þvi marka-
skorunina mjög hjá
einstökum leikmanni í leik
á mótinu. Og Fram sigraði
auðvitað auðveldlega 33-20.
Hörður Sigmarsson, Haukum,
var einnig afar skotharður i
leiknum — skoraði 11 mörk — eða
eins mikið og leikmenn i mótinu
hafa gert bezt áður, þeir Axel,
Einar Magnússon, Viking, og FH-
ingarnir Gunnar Einarsson og
Viðar Simonarson, og Björgvin
Björgvinsson, Fram — og auðvit-
að er afrek hans mest, ekkert
þessara 11 marka Björgvins var
skorað úr vitum.
'Nú, um leik Hauka og Fram er
ekki mikið að segja — þetta er
lélegasti leikur, sem Haukar hafa
leikið i mótinu — hrein leikleysa á
köflum, varnarleikur og mark-
varzla alveg i molum. Það er
alvarlegast með markvörzluna,
þvi landsliðsmaðurinn Gunnar
Einarsson stóð lengstum i marki
— og brást alveg. Hann og Ólafur
Benediktsson, Val, sem eiga að
verja mark Islands á HM ásamt
Hjalta, eru þvi miður i miklum
öldudal.
Svolitið jafnræði var með liðum
framan af i gærkvöldi — jafnt upp
i 3-3, en siðan stakk Fram mót-
herja sina af. Komust fimm
mörkum yfir eftir rúmar 20 min.
og juku muninn siðan stöðugt til
leiksloka. 13-6 stóð i hálíleik. Auk
Axels átti Guðjón Erlendsson
ágætan leik i marki Fram — mun
betri en landsliðsmarkvörðurinn
hinu megin — og Björgvin Björg-
vinsson átti einnig stórleik að
venju. Haukar réðu ekkert við
Framara, sem voru sterkir i
vörn þrátt fyrir tuttugu mörkin,
sem Haukar skoruðu, en i slikri
leikleysu, sem var á köflum, vilja
mörkin oft hlaðast upp á báða
bóga. Aðeins Hörður Sigmarsson
lék af eðlilegri getu i ieiknum hjá
Haukum og Elias Jónasson undir
lokin.
Raunverulega eina, sem hélt
manni vakandi, voru mörk Axels
— hreint furðulegt hvað hann þarf
litið athafnasvæði — og skotin,
booommmm.
Mörk Fram skoruðu Axel 14 (4
viti), Björgvin 6, Sigurbergur 3,
Ingólfur 3, Pétur Jóhannsson 3,
Arnar 2, Stefán og Hannes Leifs-
son eitt hvor. Fyrir Hauka skor-
uðu Hörður 11 (6 viti), Elias 4,
Guðm. Haraldsson 2, Stefán Jóns-
son, Ólafur ólafsson og Sturla
Haraldsson eitt hver. Dómarar
Magnús Pétursson og Valur
Benediktsson.
Norðmaðurinn S t e n
Stensen, sem er 26 ára, varð
heimsm eistari I skauta
hlaupum i Inzell i gær —
hlaut 173.150 stig, cftir harða
keppni við Hollendinginn
Kuipers, sem hlaut 173.305
stig. Sviinn Claeson varð 3ji
með 174.763 stig. Honum
gekk illa i siðustu grein, 10
km, en þar sigraði Stensen á
15:18.55 min. Nánar á
morgun.
Jafntefli
Norðmanna
Norðmenn gerðu jafntefli
við Austur-Þjóðverja i lands-
leik i Berlin i gær, 19-19,.
Þjóðverjar höfðu yfir 12-9 i
hléi. A laugardag sigruðu
Austur-Þjöðverjar i fyrri
landsleik þjóðanna mcð 26-18
(13-8). Frammistaða Norð-
manna kom mjög á óvart
gær, þvi lið Austur-Þjóð
verja er talið hafa mikla
sigurmöguleika á HÍVI fyrst i
næsta mánuði.
Axel Axelsson
Þróttur
r
vann IBK
Aðeins einn leikur var háður i 2.
deild karla i handboltanum um
helgina. í Njarðvikum sigraði
Þróttur IBK með 21-12. Leik
Fylkis og Gróttu var frestað fram
i næstu viku. Staðan er nú þannig:
HIRBF0C0
Meistari í
þungavigt
Hiab-Foco kraninn er byggður rneð þekkingu og reynslu tveggja stórvirkustu
kranafyrirtækja Svíþjóðar. Enda eru Hiab-Foco kranar vafalaust með þeim traust-
ustu sem völ er á.
Lyftigeta: 0-5 tonn. Armlengdir frá 1,7m til 8,95m. Hiab-Foco er staðsettur
fyrir miðjum palli. Þunginn hvílir á miðri grind, en armlengdin er hin sama beggja
vegna bílsins. Stjórntækin eru beggja megin.
Snúningsgeta Hiab-Foco er 360 gráður. Fullkomin varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Þróttur
KR
Grótta
KA
Breiðablik
ÍBK
Fylkir
Völsungur
SUÐURLANDSBRAUT 16 SIMI 35200