Vísir - 11.02.1974, Page 13
12 Vlsir. Mánudagur 11. febrúar 1974. VIsir- Mánudagur 11. febrúar 1974. -|3
Axel nálgast
100 mörkin!
Tveir leikir voru háðir í 1. deild
islandsmótsins í handknattleik í
gærkvöldi í iþróttahúsinu í Hafnar-
firði. Úrslit urðu þessi.
FH-Víkingur 21-18
Haukar-Fram 20-33
Staöan er nú þannig:
FH 11 11 0 0 260-185 22
Fram 12 6 3 3 261-230 15
Valur 11 6 2 3 216-197 14
Víkingur 12 5 2 5 262-260 12
Haukar 11 2 4 5 201-233 8
Ármann 10 2 3 5 147-161 7
i R 11 2 3 6 213-236 7
Þór 10 1 1 8 181-239 3
Markahæstu leikmenn eru nú:
Axel Axelsson, Fram 98/39
Einar Magnússon, Víking, 86/45
Viðar Símonarson, FH 74/13
Hörður Sigmarsson, Haukum, 73/25
Gunnar Einarsson, FH, 70/21
Ágúst Svavarsson, i R 57/1
Sigtryggur Guðlaugs, Þór, 53/25
Björgvin Björgvinss. Fram, 51
Guðjón Magnússon, Víking, 49
Vilhj. Sigurgeirsson, i R, 49/27
Gisli Blöndal, Val, 48/17
Stefán Jónsson, Haukum, 40/4
Þorbjörn Jensson, Þór, 38
Vilberg Sigtryggsson, Árm, 36/9
Hermann Gunnarsson, Val, 32/13
Gunnl. Hjálmarsson, ÍR, 31/1
ólafur H. Jónsson, Val, 31
Hörður Kristinsson, Árm, 30/12
Stefán Þórðarson, Fram, 30
Ólafur ólafsson, Haukum, 29/16
Þórarinn Ragnarsson, FH, 27/3
Aðalst. Sigurgeirsson, Þór, 26/6
Árni Gunnarsson, Þór, 26/1
Ólafur Einarsson, FH, 26
Bergur Guðnason, Val, 23/11
Gunnst. Skúlason, Val, 23
Guðjón Marteinsson, iR, 22
Ingólfur Óskarsson, Fram, 22/1
Jón Ástvaldsson, Ármanni, 22
Páll Björgvinsson, Víking, 22
Stefán Halldórsson, Víking, 22
Auðunn óskarsson, FH, 21
Ágústögmundsson, Val, 20
Skarphéðinn óskarsson, Vfk. 20
Ásgeir Eliasson, ÍR, 19
Benedikt Guðmundsson, Þór, 19
Björn Jóhannesson, Ármanni, 19
ólafur friðriksson, Viking, 18
Jón Sigurðsson, Víking, 17
ólafur Sverrisson, Þór, 17
Guðm. Haraldsson, Haukum, 15
Stefán Gunnarsson, Val, 15
Árnór Guðmundss. Haukum, 14
Jón Karlsson, Val, 14/1
Sigurb. Sigsteinsson, Fram, 14
Arnar Guölaugsson, Fram, 13
Birgir Björnsson, FH, 13
Ragnar Jónsson, Ármanni, 12
Þórarinn Tyrfingsson, ÍR, 12
örn Sigurðsson, FH, 12
Olfert Naby, Ármanni, n
Sigfús Guðmundsson, Víking, 11
Pálmi Pálmason, Fram, 10
Sig. Jóakimsson, Haukum, 10
Þorst. Ingólfsson, Ármanni, 10/1
Nú verður gert hlé á mótinu þar
til 16. marz, nema hvað Þór og IR
leika á Akureyri nk. laugardag —
einnig er liklegt, að leikur
Armanns-Þórs verði háður
einhvern næstu daga.
Milljónaferð til London
fyrir aðeins kr. 16.500,00
í febrúarmánuði iðar stórborgin af
lífi og fjöri. Þess vegna býður
British Airways vikudvöl í London
-frá sunnudegi til sunnudags- á sér-
stöku verði. Innifalið í verðinu: Flug-
ferðir, gisting í 7 nætur, og morgun-
verður. Brottfarar-tími flugsins, frá
Reykjavík er eftir hádegi á sunnudög-
um.
Ferðalangar fá ókeypis afsláttarbók,
sem veitir þeim rétt á 10% afslætti í
fjölmörgum verzlunum, veitingahúsum,
og skemmtistöðum, auk ókeypis
aðgangskorts í næturklúbbum og
diskótekum. í London verða hátíöa-
skrúðgöngur með fjörugu fólki, klæddu
búningum löngu liðinna daga, sérstök
tízkusýning á nútíma hönnun og efn-
um Lundúnatízkunnar. Þá má ekki
gleyma Dickens Festivalinu í Southwark
- kvikmyndir, upplestrar, sérsýningar,
o.fl. Alltaf eitthvað nýtt á hverjum
degi.
Þessi einstaka ferð er sannkölluð
milljónaferð, en veróið er frá
kr. 16.500.00.
Upplýsingar og farseölar hjá feröaskrifstofunum.
British airways
i
Ifoull be in good hands.
keppnina var hann dæmdur úr
leik.
Eftir keppnina sagði Thoeni.
Ég fékk aldrei neinn rythma i
rennslið hjá mér i fyrri umferð-
inni eftir mistök á öðru hliði. Ég
keyrði á fullu frá byrjun i þeirri
siðari og allt heppnaðist.
Já. áhorfendur l'engu þá að sjá
mikinn snilling. „Villtur dans”
Thoeni niður brekkurnar gerði
það að verkum að áhorfendur
stóðu með öndina i hálsinum.
,,Hann hlýtur að detta” sögðu
margir hinna 15 þúsund áhorf-
enda — en Thoeni stóð allt, hvað
glannalega, sem hann renndi sér
og sigurinn varð hans.
italski skiðasnillingurinn var hinn inikli meistari i heimsmeistara-
kcppninni i St. Moritz og gerði sér litið fyrir i gær og sigraði i sviginu.
Ilætti þar á allt i siðari umferðinni og það heppnaðist. Myndin hér að
ofan er tekin i St. Moritz.
tslandsmeistarar FH 1974. Efri röð frá vinstri Ingvar Viktorsson, form. handknattleiksdeildar FH, Boði Björnsson, liðsstjóri, Viðar Simonarson, Gils Stefánsson, Arni Guðjónsson,
Þórarinn Ragnarsson, Auðunn Óskarsson, Jón Gestur Viggóson, Kristófer Magnússon, liðsstjóri, og Hallsteinn Hinriksson, sem þarna fékk góða afmælisgjöf. Fremri röð Erlingur
Kristensson, Birgir Björnsson, fyrirliði, Magnús Óiafsson, Hjalti Einarsson, Birgir Finnbogason, Gunnar Einarsson og ólafur Einarsson. Ljósmynd Bjarnleifur.
íslandsmeistarqr í 10. sinn!
— FH sigraði Víking í gœrkvöldi og er búið að tryggja sér íslandsmeistaratitilinn í 10. sinn
þó liðið eigi þrjá leiki eftir í 1. deild íslandsmótsins. Glœsilegur yfirburðasigur
Miklir eru yfirburðir FH-inga i
handboltanum. Liðið er orðið
tsiandsmeistari — I tiunda sinn —
þó svo það eigi enn þrjá leiki eftir
i 1. deildinni. t gærkvöldi sigraði
FH Viking með 21-18 i iþrótta-
húsinu i Hafnarfirði og þeim sigri
var vel fagnað af troðfullu húsi
áhorfenda. Já, fögnuður var
mikili — og það var ástæða til.
Sjaldan eða aldrei hefur lið
sigrað i isiandsmótinu með jafn
miklum yfirburðum — eða sýnt
jafn snjallan leik og FH-liðið
hefur gert i flestum leikja sinna.
Liðið, sem margir vildu afskrifa,
þegar keppnin hófst i haust, hefur
verið algjört yfirburðalið I
mótinu. Ellefu sigrar — i ellefu
leikjum, og markatalan frábær.
Þar meö er FH orðið íslands-
meistari i tiunda sinn eða oftar en
nokkuð annað félag — og fyrir
einn mann sérstaklega voru þetta
merk timamót. Birgir Björnsson,
fyrirliði FH, varð Islandsmeistari
i tiunda sinn — eins og félagið, en
það sigraði fyrst 1956 — siðast
1971. Valur hefur sigrað 9 sinnum,
Fram 8 sinnum, Armann 5
sinnum, og IR og KR og Haukar
hafa sigrað einu sinni hvert félag.
Það er mikil ástæða til að óska
FH-ingum — og þá einkum Birgi
— tilhamingja með þennan glæsi-
lega árangur.
Leikurinn, sem tryggði FH
titilinn I gær er þó sennilega sizti
leikur liðsins i mótinu. Vikingar
tóku þá Viðar Simonarson og
Gunnar Einarsson ,,úr umferð”
með þeim árangri að Gunnar
skoraði ekki mark utan af velli —
Viðar aðeins tvö. Við þetta
riölaðist leikur FH — leikurinn
var heldur illa leikinn i heild eins
og oft vill verða, þegar sliku er
beitt — eins og Vikingar gerðu —
en hins vegar er það eina ráðið til
að hafa einhvern heimil á FH-
ingum Liðið sigraði og sá sigur
var sætur — en hefði þó sennilega
hvergi unnizt nema i Hafnarfirði.
Áhorfendur höfðu mikil áhrif á
leikinn með hrópum sinum, þar
sem þeir beittu áhrifum sinum
mjög gegn mótherjum FH —
einkum þó Einari Magnússyni,
fyrirheldur fljótfærnislegt brot —
eftir að illa hefði verið brotið á
honum, og enginn maður var eins
hart leikinn og Einar i leiknum.
Það getur verið erfitt að leika
undir stöðugum aðfinnsluhrópum
áhorfenda — og það hafði áhrif,
Einar lét verja frá sér þrjú viti.
En hróp áhorfenda hófðú þó
hvað mest áhrif FH i hag á annan
dómara leiksins, Jón Friðsteins-
son, sem varð hreint dæmigerðor
„heimadómari” — lét stjórnast á
hrópunnm. FH fékk „fljúgandi
Birgir Björnsson skorar eitt af
þremur mörkum sinum I gær-
kvöldi og hann varð tslands-
meistari I 10. sinn innanhúss.
Ljósmynd Bjarnleifur.
start” hjá Jóni — skoraði þrjú
fyrstu mörk sin i leiknum úr vita-
köstum (Gunnar) og komst i 3-0.
Það einkennilega við þessi vita-
köst Jóns var, að meðdómari
hans, sá ágæti dómari Karl
Jóhannsson, dæmdi i tveimur til-
fellanna aðeins aukaköst á Viking
og var hann þó alveg á þeim stað,
þar sem brotin voru framin. Jón
sem útidómari — langt úti á velli
— tók af honum völdin og dæmdi
viti!!!
Já, FH komst i 3-0 og hafði þrjú
mörk yfir fram yfir miðjan f.h. 5-
2. en Vikingar sigu á — þrátt fyrir
slæma skotnýtingu linumanna —
og jöfnuðu i 6-6. Leikurinn var
afar jafn fram að hléi — liðin
skiptust á forustu og 9-9 var I hálf-
leik.
Mikið jafnræði var lengi vel i
siðari hálfleik — allt upp i 15-15 en
svo seig FH fram úr lokakafla.
Birgir Finnbogason átti þá
snilldarleik i marki FH — varði
meðal annars tivegis viti Einars.
Hann kom þá i stað Hjalta — sem
einnig varði vel — og ef til vill er
Birgir okkar bezti markvörður
nú. Hreinn snillingur I siðustu
leikjum.
Eftir 24. min. stóð 19-16 fyrir
FH og þá var sigur liðsins I höfn
— oglokatölur urðu 21-18. tþrótta-
húsið i Hafnarfirði beinlinis
„sprakk” eftir leikinn — svo
mikill var fögnuðurinn eins og
vera ber. Hafnfirzku áhorfendur-
nir kunnu vissulega að styðja lið
sin.
Ólafur Einarsson, FH komst
vel frá þessum leik og skoraði sjö
mörk — blómstraði, þegar
Gunnar bróðir hans og Viðar voru
i gæzlunni. Þá áttu Birgir og
Auðunn einnig athyglisverða leik
og skoruðu 3 mörk hvor. Viðar
skoraði 4 (2 viti) Gunnar 4 (allt
viti), en aðrir leikmenn FH
skoruðu ekki i leiknum. Einar var
markhæstur Vikinga með 7 mörk
(4 víti) og átti góðan leik, þrátt
fyrir harða gæzlu. Hins vegar
slapp hinn landsliðsmaður
Vikings, Guðjón Magnússon, ekki
úr gæzlunni og skoraði ekki I
leiknum. Stefán Halldórsson og
Ólafur Friðriksson skoruðu 3
mörkhvor, Sigfús, Skarphéðinn 2
hvor og Páll 1.
Markvarzla FH var mun betri
en Víkings i leiknum — en þó er
þetta sennilega bezti leikur Sigur-
geirs Sigurðssonar siðan hann
byrjaði hjá Viking — og með
jafnari dómgæzlu, sem Karl
slapp þó vel frá, hefði þetta orðið
hörkuleikur hvað úrslit snertir.
— Ég hafði engu að tapa — var i
niuiida sæti eftir fyrri umferðina
— og hætti þvi á allt I þeirri siðari
og það heppnaðist, sagði heims-
meistarinn margfaldi, Gustavo
Thoeni, italiu, eftir að hann varð
heimsmeistari i svigi I St. Moritz i
gær. Hann varð þvi mestur snill-
ingur i keppninni eins og svo oft
áöur — sigraði i báðum þeim
greinum, sem hann keppti í —
sviginu og stórsviginu.
Og meira en það. Gustavo
sigraði með yfirburðum I sviginu,
þar sem landi hans Piero Gros,
sem var beztur I fyrri umferðinni,
„keyrði” út Ur braútinni i þeirri
siðari. Það varð hlutur margra i
keppninni. Af 114, sem hófu
keppnina, féllu yfir 60 út — þar á
meðal allir Norðmennirnir — og
ekki hafa fréttastofur minnst á
árangur islenzku keppendanna.
Timi Thoeni Var 1:09.98 min. og
þetta er fyrsta svigkeppnin, sem
hann sigrar i i vetur. Annar varð
David Zwilling, Austurriki, sem
varð HM-meistari i bruni, á
1:10.76 min. og þriðji varð
Olympiumeistarinn frá Sapþoro,
Spánverjinn Fernando
Fernandez Ochoa á 1:11.56 min
Hansi Hinterseer, Austurriki,
náði 3ja bezta timanum — en eftir
að dómnefnd kom saman eftir
ÍR tapaði
aftur!
Allt gengur nú á afturfótunum
hjá ÍR-ingum i körfuboltanum. A
laugardaginn tapaði liðið öðru
sinni i vikunni I 1. deiidinni og nú
fyrir Armanni. Eftir mjög
tvisýnan leik sigruöu Armenning-
ar með 87 stigum gegn 84. Þá léku
Umf. Njarðvikur og Skarphéðinn
og sigruðu Njarðvikingar með 77
stigum gegn 70. i 2. deild karla
vann Snæfell, i Stykkishólmi, Þór
með 51-44 og er eina liðið, scm
ekki hefur tapað leik. Leikið var á
Akureyri.
Heimsmet
Bandarikjamaðurinn George
Woods bætti aftur heimsmetið i
kúluvarpi innanhúss á laugar-
daginn. Það var á móti i
Kaliforniu og Woods varpaði yfir
22 metra — nánar tiltekið 22.01
metra. Það er betra en heims-
metið utanhúss.
Fögnuður var ósvikinn i iitla-
puttalandinu Lichtenstcin — allir
20 þúsund ibúar landsins tóku þátt
i gleðinni — þegar fréttir bárust
af heimsmeistarakeppninni I St.
Moritz. Og landsmenn höfðu
ástæðu til að fagna. Keppendur
þeirra höfðu náð betri árangri en
mörg stórveidin I skiðaiþróttinni
— litla landið á landamærum
Austurrikis og Sviss hafði hlotið
gullverðlaun, silfurverðlaun og
bronsverðlaun á HM-mótinu.
Hreint ótrúlegt.
Hin 19 ára Hanny Wenzel, sem
fædd er i Þýzkalandi, en rikis-
borgari i Lichtenstein, gerði sér
litið fyrir á föstudag og sigraði i
svigkeppni kvenna. Fyrstu gull-
verðlaun, sem nokkru sinni hafa
fallið i skaut Lichtenstein i meiri
háttar keppni. Hanny var
tveimur hundruðustu úr sekúndu
á eftir Michele Jacot, Frakklandi,
eftirfyrri umferðina, en var mun
betri i þeirri siðari og sigraði
nokkuð örugglega. Timi hennar
samanlagt varð 94.63 sek., en
Jacotvarð önnur á 95.15 sek. 1 3ja
sæti Lisa-Maria Morerod, Sviss,
á 95.29 sek. Þá kom Serrat,
Frakklandi, á 95.61 sek. — en hún
varð heimsmeistari samanlagt —
sigraði i stórsviginu — hlaut
0.14093 stig. Þar varð Hanny
Wenzel önnur með 25.31 stig og
Monika Kaserer. Austurriki, 3ja
með 27.44 stig. Fjórða varö Judy
Crawford, Kanada, 45.83, og
fimmta Toril Förland, Noregi,
54.52 stig.
Heimsmeistari karla saman-
lagt varð Franz Klammer,
Austurriki, og hann þurfti ekki
annað en renna sér niður brekk-
urnar i sviginu i gær til að hljóta
þann titil eftir að hættulegasti
keppinautur hans, Italinn
Stricker, hafði keyrt út Ur braut-
inni. Klammer hlaut 67.88 stig
samanlagt. Annar varð Andrej
Bachleda, Póllandi, með 78.35
stig og þriðji Wolfgang
Junginger, Vestur-Þýzkalandi,
með 89.01 stig.
Christa Zeckmeister, hin 16 ára
vestur-þýzka stúlka, sem verið
hefur bezt i sviginu i vetur, var
meðal þeirra, sem féllu úr i
sviginu, og sama henti einnig
hina frægu önnu Mariu Moser-
Pröll — enda er hún alltaf heldur
slök I sviginu.
David Zwilling, Austurriki, sem
aldrei hefur sigrað á stórmóti i
bruni, gerði sér litið fyrir og varö
heimsmeistari i bruninu I St.
Moritz á laugard. Hinn 24ra ára
Austurrikismaður var i sérflokki
— meira en sekúndu á undan
næsta manni, en það var landi
hans Franz Klammer. Timar
1:56.98 min. og 1:58.01 min. Mjög
á óvart kom, að Willy Frommelt,
Lichtenstein, varð i 3ja sæti á
1:58.14 min. Hann kom i veg fyrir
þrefaldan austurriskan sigur, þvi
fjórði varð Karl Cordin á 1:58.25
min. Fimmti Besson, Italiu, á
1:58.43 min. Siðan komu Grabler,
Astraliu, 1:58.46, Anzi, ítaliu,
1:58.48 min. og Murrey, Kanada,
á 1:58.60 min. Vesti, Sviss, 1:58.
61 min. og tiundi varð
Norðmaðurinn Erik Haker á
1:58.70 min. Keppnin var sem
sagt gifurlega hörð.
Vonbrigði Svisslendinga urðu
gifurleg. Roland Collombin, sem
talinn var sigurstranglegastur,
féll úr — og Russi, sem varði titil
sinn, varð aðeins nr. 13.
David Zwilling sagði eftir
keppnina, að tveimur dögum
fyrir brunið hefði hann verið að
hugsa um að gefa eftir sæti sitt i
austurriska liðinu, þar sem hann
taldi sig ekki nógu góðan. Á
æfingu á föstudag skipti hann hins
vegar um skoðun — og sigraði
svo. Stórsvigið er hans sérgrein,
og hann hefur aldrei fyrr náð
umtalsverðum árangri i bruni —
og keppnin er hörð um sætin i liði
Austurrikis. Landið varð bezta
þjóð HM-keppninnar með þrenn
gullverðlaun — þrenn silfur-
verðlaun og tvenn bronzverðlaun.
Hœttí á allt
og sigraði!