Vísir - 11.02.1974, Page 21
Vísir. Mánudagur 11. febrúar 1974.
n □AG | D KVÖLD | Q □AG 1
21
***********************************************
Sjónvarp, kl. 20,55:
EKKI ER ALLT SEM SÝNIST...
„í heimi Adams", heitir leikrit
sjónvarpsins í kvöld
Leikrit þaö sem sjónvarpið
sýnir i kvöld er áreiðanlega
nokkuð athyglisvert. Dóra Haf-
steinsdóttir, þýðandi þess, sagði
okkur, að sér fyndist það nokkuð
kaldhæðnislegt fyrir hina
miðaidra kynslóð, og væri eins
konar ádeila á þá sem keppa að
þvi fyrst og fremst að ná sér i öll
lifsins gæði og þægindi.
Leikrit þetta heitir í heimi
Adams og er eftir danska rit-
höfundinn Leif Panduro, sem
sjálfsagt margir kannast við.
Leikritið fjallar um
lögfræðing sem heitir Adam.
Adam er maður á fertugs- eða
fimmtugsaldri, og hefur komið
sér geysilega vel fyrir i lifinu,
að minnsta kosti virðist manni
það i upphafi leikritsins.
Hann er forstjóri trygginga-
fyrirtækis, sem reyndar er
hlutafélag, en honum virðist
ganga vel, og virðist eiga allt
það sem hugurinn girnist. En
smátt og smátt eftir þvi sem á
leikritið liður kynnumst við bet-
ur hans persónulega lifi.
Eiginkona hans er á
geðveikrahæli. Læknir þess
hælis vill þó ekki meina að hún
sé veik lengur, heldur treysti
hún sér ekki til heimilis sins á
nýjan leik til þess að búa með
manni sinum, en vill þó heldur
ekki'snúa algjörlega við honum
baki.
Dóttir hans er löngu stungin
af að heiman, sætti sig ekki við
heimilisástandið. Sitt af hverju
kemur siðan i ljós. Unglingspilt-
ur sést öðru hverju i leikr. og
virðist hann elta Adam. Það
liður að þvi að Adam fer að taka
hann upp i bilinn til sin, en sitt-
hvað reynist bogið við piltinn.
Ekki borgar sig að segja
meira frá efninu, en leikritið
hefst kl. 20.55.
-EA.
Leif Panduro, danski rithöfund-
urinn, samdi leikrit það sem
sjónvarpið sýnir i kvöld, ,,t
heimi Adams.”
Sjónvarp, kl. 20,30:
Hvernig má forða dýra-
tegundum frá aldauða?
Það er þeim fyrir beztu, heitir brezk fræðslumynd sem er
meðal efnis á dagskrá sjónvarpsins i kvöld.
Mynd þessi fjallar um rannsóknir á hegðun og hátterni villtra
dýra I Ameriku, með það fyrir augum, að forða vissum tegund-
um frá aldauða.
Sjálfsagt er þarna fróðlegt efni á ferðinni, og meðfylgjandi
mynd á vel við. Myndin hefst klukkan 20.30 og stendur til
klukkan 20.55. Þýðandi er Guðrún Jörundsdóttir.
-EA.
★
í
★
I
★
i
k
t
i
!
r*
m
Nt
..r
rá
U
Spáin gildir fyrir þriðjudaginn 12. febrúar
llrúturinn,21. marz-20. april. Heldur þunglama-
legur dagur, hætt við að þvermóðska einhvers
náins i fjölskyldunni valdi þér leiðindum eða
jafnvel tjóni, beint eða óbeint.
\autið,21. april-21. mai. Þú ættir að gefa þvi ná-
inn gaum að hlutur þinn i einhverjum ágóða
verði ekki gerður minni en þér ber. Yfirleitt
munu peningamálin þarfnast aðgæzlu.
Tviburarnir, 22. mai-21. júni. Það litur út fyrir
að þú hafir heppnina með þér, að minnsta kosti
fram eftir deginum, til dæmis að þér takizt að
koma ár þinni vel fyrir borð.
Krabbinn,22. júni-23. júli. Þér verður boðin þátt-
taka i einhverju, fyrirtæki eða öðru, sem þér lizt
ekki nema i meðallagi á, en mundir þó sjá eftir
seinna ef þú prófaðir það ekki.
Ljónið,24. júIi-23 ágúst Þú hefur áhuga á ýmsu
þessa dagana, sem litur út fyrir að standa i sam-
bandi við breytt eða nýtt viðhorf þitt gagnvart
framferði vissra aðiía.
Meyjan.24. ágúst-23. sept. Svo virðist sem mjög
fast sé lagt að þér að skipta um skoðun á ein-
hverjum málsatriðum. Láttu ekki telja þig á
þess háttar gegn sannfæringu þinni.
Vogin,24. sept.-23. okt. 1 dag ættirðu að gera þig
ánægðan með það sem þú hefur, en ekki hælta á
neitt i þeim tilgangi að auka það, þar eð það mun
enn ekki timabært.
Drckinn, 24. okt.-22. nóv. Þetta verður allgóður
dagur fram eftir, en þó er ekki útilokað að þú
verðir i eitt skipti fyrir öll að taka afstöðu til
hvimleiðrar hnýsni vissra aðila.
Koginaðurinn. 23. nóv.-21. des. Dagurinn getur
orðið dálitið þreylandi áður en lýkur. Þú ættir
þvi ekki að leggja of hart aö þér fyrst i stað, svo
þú getir aukið átakið.
Steingeitin',22. des.-20. jan. Þú skalt ekki leggja
of mikla áherzlu á hið ytra útlit hlutanna i dag,
en gefa því meiri gaum að þvi hvort þeir séu
vandaðir að allri gerð.
Valnsberinn, 21. jan.-19. febr. Morguninn getur
orðið nokkuð erfiður, en svo ætti allt að ganga
betur, og ættirðu að haga starfsáætlun þinni allri
nokkuð samkvæmt þvi.
Kiskarnir,20. febrúar-20. marz. Allgóður dagur,
en peningamálin þó enn að einhverju leyti i
óvissu. Beittu rólegri ihugun i þvi sambandi, en
treystu ekki á sérstaka heppni.
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
i
¥
¥
♦
•¥
¥
•¥
■¥
•¥
■¥
•¥
•¥
■¥
■¥
•¥
■¥
X
★
★
★
★
★
★
★
★
★ .
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
•¥
■¥
■¥
■¥
¥■
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
i*-**-****-******-***-******************************
Bjóðum yður
IÍTVARP •
Mánudagur
11. febrúar
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Búnaðarþáttur. Frá
setningu búnaðarþings að
morgni sama dags.
14.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Sfðdegissagan: „Dyr
standa opnar” eftir Jökul
Jakobsson. Höfúndur les
(9).
15.00 Miðdegistónleikar: Þýzk
tónlist. Hyman Bress og
Charles Reiner leika Fiðlu-
sónötu i G-dúr op. 78 eftir
Johannes Brahms. Kathl-
enn Ferrier syngur laga-
flokkinn, „Frauenliebe und
Leben” op. 42 eftir Robert
Schumann, John Newmark
leikur á pfanó.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphornið.
17.10 „Vindum vindum vefjum
band”. Anna Brynjúlfsdótt-
ir sér um þátt fyrir yngstu
hlustendurna.
17.30 Framburðarkennsla i
esperanto.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veður-
fregnir. 18.55 Tilkynningar.
19.00 Veðurspá. Daglegt mál.
Helgi'J. Halldórsson cand.
mag. flytur þáttinn.
19.10 Neytandinn og þjóðfélag-
iö.Hvað gera félagasamtök
fyrir neytendur? — Sigriður
Haraldsdóttir talar.
19.25 Um daginn og veginn.
Pétur Sumarliðason kenn-
ari flytur erindi eftir Skúla
Guðjónsson bónda á Ljót-
unnarstöðum.
19.50 Blöðin okkar. Umsjón:
Páll Heiðar Jónsson.
20.00 Mánudagslögin.
20.30 Bréf frá frænda. Jón
Pálsson frá Heiði flytur.
20.50 Endurtekið tónlistarefni:
„Leiðsla” eftir Jón Nordal.
Hljómsveitin Harmonien I
Björgvin leikur, Karsten
Andersen stj. Arni
Kristjánsson tónlistarstjóri
flytur inngangsorð.
21.20 istenzkt mál. Endurtek-
inn þáttur Asgeirs Blöndals
Magnússonar cand. mag.
frá laugard.
21.30 Utvarpssagan: „Tristan
og ísól” eftir Joseph Bédier.
Einar 01. Sveinsson
prófessor íslenskáði. Kristin
Anna Þórarinsdóttir leik-
kona les (3).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma hefst. Lesari:
Valbjörg Kristmundsdóttir
á Akranesi.
22.25 Eyjapistill.
22.45 Hljómplötusafnið i
umsjá Gunnars Guðmunds-
sonar.
22.40 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SJÚNVARP •
Mánudagur
11. febrúar
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Það er þeim fyrir bestu.
Bresk fræðslumynd um
rannsóknir á hegðun og
hátterni villtra dýra i
Ameriku með það fyrir aug-
um að forða tegundum frá
aldauða. Þýðandi Guðrun
Jörundsdóttir.
20.55 í heimi Adams.
Sjónvarpsleikrit eftir
danska rithöfundinn Leif
Panduro. Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir. Aðal-
persóna leiksins er mið-
aldra lögfræðingur, Adam
að nafni. Hann vinnur hja
stóru tryggingafyrirtæki og
þykir þar góður starfskraft-
ur. En einkalif hans er
undarlegt á margan hátt.
(Nordvision—Danska
sjónvarpið).
22.30 Dagskrárlok.
& TÉKK - KRISTALL
Skólavörðustig 16 simi 13111