Vísir - 15.02.1974, Qupperneq 3
Visir. Föstudagur 15. febrúar 1974.
3
Fimm
til Siglu-
fjarðar
Fimm Ioðnuskip munu nú vera
á leið til Siglufjarðar með loðnu.
Þessi skip eru Halkion, Vörður,
ísleifur, Tálknfirðingur og
Sigurður — reyndar hefur
Sigurður ekki enn tilkynnt sig til
Siglufjarðar, en liklegt er talið, að
han ætli þangað með 700 tonn.
25 skip tilkynntu afla i nött og
morgun, samtals um 2500 tonn, en
flest þessara 25 skipa eru með
litinn afla, um og innan við 100
tonn, sem fara i frystingu.
16 loðnuskip eru nú á leið til
hafna á Austfjörðum, og munu
landa á hinum ýmsu höfnum þar.
—GG
^SVRl
stöðugri
samkeppni
við einka-
bílinn"
— segir Eiríkur
Ásgeirsson, forstjóri.
- SVR býr sig undir
að kaupa 38 nýja
strœtisvagna. — Verið
að gera verð-
samanburð fró
fimm verksmiðjum
,,Við teljum okkur alltaf
vera i samkeppni við einkabil-
inn og þar af leiðir, að við
þurfum að svara þeim kröfum
með nýjum og fuilkomnum
strætisvögnum, Okkar hlut-
verk er það að hamla á móti
hinni miklu bilaeign”, sagði
Eirikur Asgeirsson, forstjóri
SVR, i viðtali við Visi i
morgun.
,,Það er á áætlun okkar fyrir
næstu fjögur ár að kaupa 38
nýja strætisvagna”, sagði
Eirikur ennfremur. „Siðan á
siðasta vori höfum við tekið
tiu nýja vagna i notkun. Með
næstu tiu vögnum, sem við
vonumst til að komnir verði á
götuna i haust, getum við
fjölgað ferðum og bætt við
leiðum”.
Og Eirikur las áætlun varð-
andi notkun hinna tiu vagna:
„Fimm af þessum vögnum
koma i stað jafnmargra
gamalla vagna, sem verða
teknir úr umferð. Þá 13 ára
gamlir. Tveir vagnar fara á
nýja leið i Breiðholt III, norð-
austur hluta, og bæta þarf
einum vagni á leið 2 og auka
tiðni á leiðunum 5 og 7”.
Vagnarnir tiu, sem siðast
komu á götuna, eru allir af
gerðinni Volvo, en óákveðið
er, frá hvaða verksmiðjum
næjtu vagnar verða.
„Á siðasta ári var látin fara
fram verðkönnun, en siðan
hefur þetta verið i athugun hjá
tæknimanni strætisvagnanna
og verðsamanburði hjá inn-
kaupastofnuninni”, útskýrði
Eirikur i viðtalinu við Visi.
„Nú liggja niðurstöður þeirra
athugana fyrir borgarráði, en
þar verður tekin endapleg
ákvörðun um kaupin”.
Verðsamanburður var
gerður á vögnum frá eftir-
töldum fimm aðilum: Scania
Vabis frá Isarn, MAN frá
Kraft, Benz frá Ræsi, GMC frá
Sambandinu og Volvo frá
Velti.
„Allar þessar tegundir
uppfylla þær kröfur, sem við
gerum til búnaðar al-
menningsva gna ”, sagði
Eirikur Asgeirsson. „Þeir eru
allir gerðir fyrir borgar-
umferð og með þeim
sérbúnaði, sem óskað er
eftir”.
„VORUM LATNIR SITJA
Á HAKANUM
g B — segja kaupmenn, sem sameinuðust um
" M kaup á kjötiðnaðarstöð og sláturhúsi til að
fá þá kjötvöru, sem þeir óskuðu
„Þegar þessi ákvörðun var
tekin af kaupmönnum að fara út i
kjötsölu og kjötvinnslu, var að
skapast hið mesta ófremdar-
ástand með framboð á kjöt-
vinnsluvörum á Reykjavikur-
svæðinu. ' Margar af þeim
tegundum, er kaupmenn verzluðu
að jafnaði með, voru ekki til i þvi
magni, er óskað var eftir, og var
þetta sérstaklega áberandi yfir
sumarmánuðina. Tvær stærstu
kjötvinnslurnar áttu, eða voru i
tengslum við verzlanir, sem voru
látnar ganga fyrir með það magn,
sem framleitt var, og aðrir urðu
þá að sitja á hakanum”.
Þetta sagði Jón Júliusson kaup-
maður i verzluninni Nóatún,
þegar Visir rabbaði við hann, en
nokkrir kaupmenn hafa nú sam-
einazt um að kaupa kjötvinnsluna
Búrfeli og heitir það félag sem
kaupmennirnir hafa stofnað
Búrfell hf. Er tilgangur félagsins
að reka kjötvinnslu og kjötsölu og
aðra skylda starfsemi, einnig
sláturhús og verzlun.
Um leið og kjötvinnslan var
keypt, var einnig keypt sláturhús
að Minniborg, Grimsnesi. Einnig
var keypt sláturhús i Vik i
Mýrdal, en það er rekið sem sjálf-
stætt fyrirtæki undir nafninu
Sláturhúsið Vik hf. Sláturhús
þessi sjá kjötvinnslunni fyrir
hráefni til vinnslunnar, en einnig
selur fyrirtækið dilkakjöt til kjöt-
verzlana, v.eitingastaða og
mötuneyta.
„Þessu vildu kaupmenn að
sjálfsögðu ekki una,” sagði Jón i
framhaldi af fyrrnefndu, þ.e. að
sitja á hakanum”, og var þá ekki
annað fyrir hendi en að koma upp
eða kaupa slikt fyrirtæki og var
það gert”.
Auk þess að sjá hluthöfum
sinum og öðrum kaupmönnum
fyrir kjötvinnsluvörum”, sagði
Jón, verður að leitast við að
skapa hagræðingu fyrir kaup-
menn i kjötvinnslunni, þannig að
ýmislegt, sem hingað til hefur
verið framleitt i verzlununum
sjálfum, mun með timanum
færast yfir til kjötvinnslunnar.
Verður þetta sjálfsagt gert i enn
rikara mæli eftir þvi sem
mannekla i kjötvinnsluiðnaðinum
vex sem allt útlit er fyrir.
Jón sagði, að undirtektir þær,
sem framleiðsluvörur fyrir-
tækisins hefðu hlotið siðan
breytingin átti sér stað, gefi
tilefni til mikillar bjartsýni. Hann
sagði einnig að vinnslan yrði
skipulögð á næstunni, og má þvi
búast við að framleiðslan verði
fjölbreyttari.
t stjórn félagsins eiga sæti Jón
Júliusson, Guðlaugur Guðmunds-
son og Þórður Þorgrimsson.
—EA
UNDIR HRAUN í FYRRA
- NÚNA UNDIR SNJÓ!
Akureyringar kippa sér
tæpast upp við éljaganginn, sem
veðurstofan spáir, að verði fyrir
norðan i dag. Eftir öll ósköpin,
sem dundu yfir, kallast élja-
gangur sjálfsagt „sunnudags-
veðrátta” þar fyrir norðan.
Myndirnar hér fyrir ofan og
hér fyrir neðan sýna, hvernig
snjó hefur kyngt niður. Efri
myndin er tekin i Háalundi, en
þar standa viðlagasjóðshúsin.
Vestmannaeyingar, sem misstu
hús sin undir hraun um sama
leyti i fyrra, virða nú fyrir sér
hús sin á Akureyri á kafi i snjó.
Neðri myndin er tekin i Birki-
lundi og sýnir það, sem stendur
upp úr einum snjóskaflinum af
bifreið. OUi það nokkrum erfið-
leikum við snjómoksturinn eftir
að slotaði, hversu margir bilar
höfðu yerið yfirgefnir á miðjum
akvegum i bænum. Nú hefur
tekizt að opna greiðfæra leið um
helztu götur bæjarins, en viðast
er þó ennþá skiðafæri...
—ÞJM/Arnar
Vill fá
einkaleyfi
á hníf
— Hafnfirðingur hefur
gert hníf, sem klippir
burt allt sem kemur
í skrúfur skipanna
„Fyrsta skrúfuhnifinn smiðaði
ég fyrir sex árum og siðan hef ég
gert þá æði marga til viðbótar. Ég
hef svona verið að reyna mig
áfram núna loksins tel ég orðið
timabært að fá einkaleyfi á
gripnum”, sagði Sveinbjörn
Ólafsson, sem starfandi er hjá
skipasmiðastöðinni Dröfn, en er
lærður rennismiður.
„Þessi skrúfuhnifur, sem ég hef
hannað, er settur utan um
skrúfuna og klippir allt úr henni,
sem i hana kemur”, útskýrði
Sveinbjörn. „Hnifurinn er i sjálfu
sér ekki svo dýr i smiðum, en
erfitt er að koma við fjöldafram-
leiðslu og á meðao aðeins er
smiðað fyrir innanlandsmarkað.
verður að smiða hvern grip sér-
staklega”.
Sveinbjörn kvaðst vita, að
skrúfuhnifur væri kominn á
markaðinn i Danmörku, en fram-
ieiðendurnir þar ytra færu sér
ennþá afar hægt og þvi væri litið
komið i notkun af skrúfuhnifum
þeirra.
—ÞJM
Húsgagna-
sýning í vor
Húsgagnameistarafélag
Reykjavikur og Meistarafélag
húsgagnabólstrara efna til hús-
gagnasýningar i sýningarhöllinni
i Laugardal dagana 18.-28. april
n.k.
Tilgangur húsgagnaviku er
eins og áður sá að gefa fram-
leiðendum húsgagna og innrétt-
inga kost á að kynna nýjungar i
framieiðslu sinni fyrir hús-
gagnakaupmönnum og almenn-
ingi. Allir framleiðendur
húsgagna og innréttinga geta
tekið þátt i sýningunni, eftir þvi
sem húsrúm leyfir. Gert er ráð
fyrir þvi, að ýmsar hliðargrein-
ar, sem snerta húsgagna- og inn-
réttingaiðnaðinn, verði kynntar á
sýningunni.
Allar frekari upplýsingar um
tilhögun sýningarinnar eru
gefnar i sima 30250.
HÚSCAGNAVIKA
1974