Vísir - 15.02.1974, Side 4
4
Visir. Föstudagur 15. febrúar 1974.
ÍSLENZKAN IDNAD
VELJUMISLENZKT
Þakventlar
ÞAKRENNUR
J. B. PÉTURSSON SF.
ÆGISGÖTU 4 - 7 T* 13125. 13126
Annar vélstjóri
eða maður vanur þorskanetaveiðum
óskast á MB Valþór KE nú þegar.
Simi 92-2792 og 2639.
Flóomarkaður
Flóamarkaður verður i safnaðarheimili
Langholtssóknar á morgun, laugardag, kl.
2-7.
Mikið af góðum fatnaði, m.a. rúskinns-
fatnaði, einnig gamlir munir.
Fjáröflunarnefnd
Styrktarfélags vangefinna.
Hve lengi viltu
biða
eftir f réttunum?
Viltu fá þærheim tilI þín samdægurs? Eða viltu bíða til
næsta morguns? VÍSIR flytur fréttir dagsins í dag!
AP/IMTB ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN
Hóta að taka af lífi
ofursta, ef ekki....
Skæruliðasamtök
marxista í Argentínu
hótuðu í gær að taka af líf i
ofursta, sem þeir hafa í
haldi — nema þeir fái að
vita örlög tveggja skæru-
liða, sem yfirvöld
handtóku nýlega.
„Jorge Ibarzabal verður
liflálinn, ef nýjar upplýsingar
berast ekki innan 48 klukku-
stunda”, hljóðaði yfirlýsing
byltingarhers alþýðunnar á leyni-
legum blaðamannafundi, sem
efnt var til.
Ofurstinn var tekinn til fanga
20. jan. i átökum skæruliða og
stjórnarhermanna i herstöðinni
við Azul.
Þingmenn Peronista vörpuðu
skuldinni á Hector Campora,
fyrrum forseta og fyrirrennara
Perons, vegna þeirrar öldu
hryðjuverka vinstrisinnaðra
skæruliða, sem veður yfir
Argentinu. 1 málgagni þings-
flokks Peronista er komiztsvoað
orði, að vikja beri Campora úr
Peronistahreyfingunni.
Campora er ambassador
Argentinu i Mexico. — Hann
ruddi Peron braut i forsetastól-
inn, með þvi að bjóða sig fyrst
fram til forsetakosninga, hljota
útnefningu, breyta lögunum til að
leyfa Peron heimkomu, segja
siðan af sér og efna til nýrra
kosninga, til þess að Peron gæti
sjálfur komizt að.
Þegar Campora sagði af sér
forsetaembætti á sinum tima,
talaði hann máli vinstra armsins
innan samaka Peronista. Flestir
þeirra vinstrisinnuðu embættis-
manna, sem hann setti til starfa,
hafa siðan verið látnir vikja.
„Talaði sem evrópskur
þjóðernissinni,"
— segir Pompidou um frammistöðu Jobert og hellir úr skúlum
reiði sinnar yfir Nixon og Bandaríkjamenn
George Pompidou
Frakklandsforseti neri
Nixon Bandarikjafor-
seta þvi um nasir, að
hann hefði efnt til orku-
málaráðstefnunnar til
að herða tök og áhrif
Bandarikjanna á þeim
hluta Evrópu, sem
ávallt hafði verið
Amerikanasinnuð.
Norska fréttastofan segir, að
Frakklandsíorseti hafi sleppt sér
á fundi ríkisstjórnarinnar á mið-
vikudag og látið Nixon hafa það
óþvegið.
Þar hafi Pompidou fullyrt, að
niðurstöður orkumálaráðstefn-
unnar væri meiriháttar ósigur
félögum Frakklands í Evrópu, en
ekki þó fyrir Evrópu í heild.
„Sovétrikin hafa sýnt hæfni
sina til þess að stýra leþprikjum
sinum, og nú vilja Bandarikin
gera slikt hið sama i Vestur-
Evrópu”, hefur fréttastofan eftir
Pompidou.
Pompidou harmaði, að alþjóð-
leg samvinna i dag færi fram i
skugga leyniviðræðna Nixons for-
seta og Brezhnevs hins rúss-
neska. „Undir þessum samtölum
er framtið heimsins komin”,
sagði hann.
A orkumálaráðstefnunni i
Washington varð Jobert utan-
rikisráðherra Frakklands einn á
báti gegn fulltrúum Banda-
rikjanna og hinum ellefu þátt-
tökufulltrúunum. „Það stafaði af
þvi, að Michel Jobert var sá eini,
sem sig upp á móti Bandarikja-
mönnum og þeirra markmiði”,
sagði Pompidou
„Jobert talaði ekki sem
franskur þjóðernissinni, heldur
miklu fremub sem evrópskur
þjóðernissinni”, sagði Pompidou.
Fulltrúar öryggisráðstefnunnar i Washington i'kvöldveröaboði i Hvlta húsinu. Sjá má þá sitja hlið viö
liliö starfsbræðurna, Henry Kissinger og Jobert (t.v. á myndinni hér fyrir ofan).
UTSALA -
Seljum nœstu daga lítið gölluð
húsgögn vegna brunaskemmda
- MIKILL AFSLÁTTUR -
UTSALA
Trésmiðjan
VÍÐIR
Laugavegi 166 Sími 22222 og 22229