Vísir - 15.02.1974, Page 8
8
Vlsir. Föstudagur 15. febrúar 1974.
Fiskur-fiskveiöar
og fiskveiðimörk
Meðfylgjandi mynd sýnir þú
Jón Bola og Deutschland iiber
alles, tvo togara, sem liggja i
höfn. Myndin er úr nýútkominni
bók Socialistisk forlag, Demos.
Fjallar bókin um rányrkju i
Norður-Atlantshafi. fslenzkir
höfundar hafa látið af hendi
rakna greinar i bókina, Ingvar
Hallgrimsson skrifar um veiðar
við fsland, Þröstur Ölafsson um
samvinnu landa i N-Atlantshafi,
og Stefán Jónsson og Jónas Arna-
son rita sameiginlega grein um
samvinnu við veiðar og sölu
fisks.
Stúdentaráð mótmælir
Stjórn SHl hefur fordæmt
harðlega handtöku sovézka rit-
höfundarins Alexanders
Solzhenitsin og þá ákvörðun
svoézkra stjórnvalda að gera
hann landrækan.
,,Með þessu örþrifaráði sinu
hafa sovézkir ráðamenn loks
viðurkennt, að staðhæfingar Solz-
henitsins um skort á almennum
mannréttindum og tjáningafrelsi
i Sovétrikjunum hafi við rök að
styðjast”, segir i ályktun ráðsins,
sem barst blaðinu i gær.
Einn kemur þá
annar fer
Um sama leyti á miðvikudags-
morgun, þegar flutningaskipið
Vestri sökk út af Akranesi,
bættist nýtt flutningaskip far-
skipaflotanum, Suðurland. Skipið
er 1840 tonn fulllestað við 16.5 feta
djúpristu og er keypt hingað 9 ára
gamalt frá finnsku skipafélagi af
nýstofnuðu skipafélagi, Nes-skip
hf. Það -gerist nú æ tiðara að
hlutafélög séu stofnuð um eitt
flutningaskip og virðist nóg um
verkefni fyrir skipin og fátt
heyrist um kvartanir um erfiðan
rekstrargrundvöll frá þessum
litlu félögum, sem fæst hver
munu hyggja á samkeppni við
risana. Á myndinni eru þeir Þor-
valdur Jónsson, skipamiðlari,
einn eigenda skipsins og sá sem
sjá mun um útgerðina fyrir með-
eigendur sina, og skipstjórinn
Gunnar Magnússon. Bakvið þá er
unnið að losun farmsins, sem
tekinn var heim fyrir Hafskip.
Tónverk 7 ungra
tónskálda utan
Það mun vera i fyrsta sinn i ár,
sem ungum tónskáldum á íslandi
er gefinn kostur á að vera með i
norrænni tónlistarhátið, sem
fram fer i lýðháskólabænum
Framnes i Sviþjóð. Dómnefnd
skipuð Atla Heimi Sveinssyni,
Magnúsi Blöndal Jóhannssyni og
Ragnari Björnssyni hefur valið 7
verk, sem kynnt verða frá
Islandi. Verk þessi eru eftir þá
Jónas Tómasson, Askel Másson,
Þorstein Hannesson, Karólinu
Eiriksdóttur, Snorra Sigfús
Birgisson, Þorstein Hauksson og
Bergljótu Jónsdóttur.
Ekki allir kvarta
Það kemur fyrir að félags-
fundir lýsa yfir ánægju með það
sem gert er. Þetta telst þó oftast
til tiðinda, þvi venjulega eru
ályktanir funda gerðar i
þveröfugu skyni. Tæknifræðinga-
félagið sendi okkur eftirfarandi
ályktun:
„Almennur fundur i Tækni-
fræðingafélagi Islands haldinn að
Hótel Sögu þ. 24. janúar 1974 sam-
þykkir að lýsa ánægju sinni með
þá grein i fjárlögum yfirstand-
andi árs, sem fjallar um
húsnæðismál Tækniskóla íslands,
og leggur fundurinn áherzlu á, að
staðið verði við þau loforð um
úrbætur, sem þar koma fram,
þannig að hægt verði, ekki siðar
en á hausti komanda að hefja
kennslu i nýju, fullnægjandi
húsnæði”.
Til vinstri
við vinstri
Það eru ekki fagrar
lýsingarnar sem svokallaðir
marx-leninistar hafa verkalýðs
foringjum okkar. Þessir ungu
menn, sem eru til vinstri við allt
sem áður var talið til vinstri, hafa
skorað á forustumenn Alþýðu-
sambandsins að mæta sér i kapp-
ræðum um vandamál verkalýðs-
stéttarinnar og á sá fundur að
fara fram á morgun kl. 16 i
Lindarbæ. „Tilgangur fundarins
er fyrst og fremst að veita verka-
mönnum kost á að bera saman
by ltingarsinnaða pólitik
kommúnista og pólitik sósial-
demókratanna, sem miðast við
það að viðhalda rikjandi arðráns-
skipulagi og kúgun á verkalýðs-
stéttinni”, segja þeir marx-
leninistar.
lengi viltu
bíða eftir
fréttunum?
VtSIR flytur helgar-
fréttirnar á mánu-
• Degi fyrr en önnur dagblöð.
(gerist áskrifendur)
Fyrstur með
fréttirnar
vism
1 x 2 — 1 x 2
24. leikvika — leikir 9. feb. 1974.
Úrslitaröðin: 221 — 122 — 111 — XX2
1. VINNINGUR: 10 réttir — kr. 121.500.00
1303 19325 41803
2. VINNINGUR: 9 réttir — kr. 1.700.00
121 9935 19813 35546 37491 39277 41209
1136 10572 19876 35648 37981 39277 41402
1652 10583 20134 35680 38111 39286 41807
1710 12165 21329 35728 38202 39536 42051
1759 13118 21753 35901 38202 39666 42059
3115 13319 22053 36038 38204 39692 42097
3948 13606 22263 36129 38235 39737 42114
4264 15318 22968 36347 38247 40007 42122
4851 + 17154 23150 36557 38285 40253+ 42122
6046 18315 23540 36977 38636 40345 42193 +
6471 18364+ 23872 + 37226 38888 40623 42345
6652 18556 24125 37227 38905 40913 42348
8037 '18739 24475 37428 39236 41207
4- nafnlaus
Kærufrestur er til 4. mars kl 12 á hádegi. Kærur skulu
vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum
og aðalskrifstofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef
kærur verða teknar til greina.
Vinningar fyrir 24. leikviku verða póstlagðir eftir 5 mars.
Handhafar nafnlausra seðla verða að framvisa stofni
eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og
heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR — iþróttamiðstöðin — REYKJAVIK
Viljum ráða
rafsuðumenn og lagtæka menn til fram-
leiðslustarfa.
Vélaverkstæði J. Hinriksson,
Skúlatúni 6.
Simar 23520 og 26590.
Heimasimi 35994.