Vísir - 15.02.1974, Blaðsíða 9
Vlsir. Föstudagur 15. febrúar 1974.
cTVlenningarmál
Hvernig fréttir eru drepnar
tJtvarpsráð ætlar að færa
kvöldfréttatimann aftur á þann
tima, sem hann hafði i haust verið
á um alllangt skeið. Þessi
ákvörðun mun hafa verið tekin að
afstaðinni skoðanakönnun meðal
hlustenda um vinsældir nýja
frcttatímans klukkan hálfsjö.
Það verður að teljast virðingar-
vert af þvi mikla ráði að þreifa
fyrir sér um heppilegasta til-
högun dagskrártimans, og ef ég
man rétt, þá vakti það i upphafi
fyrir ráðinu að nýta sem bezt
hlustunartlmann um kvöld-
matarleytið á degi hvcrjum.
Ég held að það hafi tekizt i vet-
ur að nýta timann, sem skapaðist
um sjöleytið, nokkuð vel. Það
kom t.d. fram i vetur athyglis-
verð nýbreytni i dagskránni, sem
sannarlega má ekki niður falla,
þótt fréttirnar verði aftur færðar
til gamla horfsins.
Ýmsir þættir, erindi og um-
ræðuþættir um neytendamál,
skutu upp kollinum suma viku-
daga úr þvi klukkan varð sjö. Og
hvað sem segja má um neytenda-
þættina, þ.e. vinnubrögðin við þá,
þá er hitt staðreynd, að það varð
ekki fyrr en i vetur, að útvarpið
sneri sér að mjög þýðingarmiklu
atriði eða skyldu við hlustendur:
að veita neytendum nauðsynlega
þjónustu með umræðum um mál-
efni þeirra og ábendingar varð-
andi sitthvað, sem lýtur að dag-
legu lifi i neyzluþjóðfélagi.
Miðvikudagarnir i vetur hafa
oft verið góðir „útvarpsdagar”
hvað þessi mál snertir, t.d. var
siðasta miðvikudag á dagskrá
sérlega góður umræðuþáttur und-
ir stjórn Gerðar óskarsdóttur.
Gerður og gestir hennar fjölluðu
um stöðu fatlaðra innan skóla-
kerfisins, en að þeim þætti lokn-
um tók Ólafur Jensson við og
ræddi um húsnæðis- og bygginga-
mál.
Klukkan hvaö
er hlustað?
Það liggur i augum uppi, að það
skiptir miklu á hvaða tima til-
teknum dagskrárliðum er raðað,
en i haust brá svo við, þegar
kvöldfréttatiminn hafði verið
færður fram um hálftima, að
óánægjuraddir urðu háværar, og
m.a. munu fréttamenn útvarps-
ins hafa látið frá sér heyra I þessu
sambandi. Þeir voru að vonum
óánægðir yfir þvi að fá ekki nema
fimmtán minútur á bezta
hlustunartimanum til að koma
frá sér fréttum dagsins.
Ég er ekki svo viss um, að þessi
kvöldfréttatimi, sem enn er við
lýði, sé svo afskaplega slæmur.
Og það jafnvel þótt niðurstaða
skoðanakönnunar hafi verið nei-
kvæð gagnvart þessari tilraun út-
varpsráðs. Hins vegar held ég, að
veðurlýsingin, sem af einhverjum
ástæðum er óhagganlega sett
klukkan korter fyrir sjö, hafi
mikilstil eyðilagt tilraunina. Væri
ekki hægt að færa þann daglega
raunalestur á annan tima — eða
bara útvarpa lýsingunni á sér-
stakri veðurbylgju?
Fréttamenn ættu
sjálfir aö lesa
Og þar sem fréttatiminn að
kvöldinu verður væntanlega
lengri á næstunni, þá held ég að
væri ekki úr vegi að halda áfram
með þá ráðstöfun, sem upp var
tekin fyrir ekki svo löngu: að láta
fréttamenn sjálfa lesa fréttirnar.
'Frá upphafi hafa þulir lesið
allt, sem lesið er i útvarp af hálfu
þeirrar stofnunar, þ.e. auglýsing-
ar, tilkynningar, fréttir og kynn-
ingar.
Ég held, að það orki ákaflega
drepandi á allar fréttir að láta
þulina lesa þær — með fullri virð-
ingu fyrir þulunum, þá held ég að
raddir þeirra hljómi of ópersónu-
lega, mikilvægi fréttanna glatast
við það að lenda i höndum ein-
hvers tengiliðs milli fréttamanns
og hlustanda.
Fréttamenn hafa eitt boðorð:
Þeir skrifa allar fréttir með þvi
hugarfari, að um sé að ræða aðal-
frétt dagsins. Það hlýtur að orka
niðurdrepandi fyrir fréttamann
að heyra frétt sina hálfvegis eyði-
lagða, eða litið úr henni gert i
lestri.
Þessu til viðbótar kemur svo
það, að manni virðist, að frétta-
menn og þulir komi hverjir öðr-
um næsta litið við. Það er eins og
um sé að ræða tvær sambands-
lausar deildir. Gott dæmi um
UTVARP
EFTIR GUNNAR GUNNARSSON
þetta var i hádegisfréttunum á
miðvikudaginn. Þulurinn las
frétt, þar sem sagði frá handtöku
Solsentisins. Þetta var ekki glæný
frétt, en sitthvað kom þó fram,
sem ekki hafði heyrzt áður. t
miðjum fréttatima skýtur svo
fréttamaðurinn viðauka við
Solsenitsin-fréttina — þ.e. frétt-
inni um að rithöfundurinn væri
kominn til Þýzkalands. Þessi við-
auki var frétt dagsins.og átti að
hætta öðrum lestri i bili, en leggja
alla áherzlu á þessa nýju frétt.
En þulurinn las stuttlega við-
bótina, hélt siðan áfram með
fréttaromsu dagsins. Siðan, þeg-
ar rollunni var lokið, tók þulurinn
aftur til við gamla frétt af
Solsenitsin, þ.e. handtökufrétt-
ina, og gat nýju fréttarinnar eins
og i framhjáhlaupi. Málið komst
til skila, og kannski er þetta i lagi,
en útvarpið verður að temja sér
fagmannlegri vinnubrögð.
Útvarpsráð ætti að snúa sér að
þvi að breyta svona skipulags-
atriðum á næstunni, þegar það
losnar við áhyggjur af frétta-
timanum á kvöldin.
Varnarmálin
afgreidd
Það er nokkuð gaman að erind-
um þeim, sem nú ganga annan
hvern dag eða svo um varnar-
málin. Útvarpið virðist allt i einu
hafa vaknað til skyldu sinnar, og
mér virðist þetta nokkuð viðun-
andi lausn að láta tvo menn, einn
úr hvorri fylkingu, reifa viðhorf
sin og annarra i erindi.
En eigi að siður sakna ég mjög
fréttaskýringarþátta um varnar-
málin. Fréttamenn hlýtur að
langa til að fjalla ýtarlega u.m
þær dylgjur og væringar sem
stöðugt eru á lofti út af þessu her-
liði.
Sjónvarp:
Nú hefur hafið göngu sina á
nýjan leik framhaldsmynda-
flokkur frá Bretlandi. ,,Valda-
tafl”, er, að ég held, einhver hinn
leiðinlegasti framhaldsþáttur,
sem sjónvarpinu hefur tekizt að
krækja i.
Segir i þættinum frá einhverj-
um fáránlegum bisnisskörlum,
sem enn hafa ekki vaxið upp úr
stuttbuxunum, þeir eru sifelld-
lega að bitastum peninga, völd og
stöður. Einhvern veginn er þessi
þáttur svo fjarri almennu áhuga-
sviði, að ég get ekki litið á hann
nema sem óþarfa peningaeyðslu.
Kannski voru þeir Hammond-
bræður litlu skárri, en i þeirra
viðskipta- og fjölskylduflækjur
var þó blandað áhugaverðari
þáttum daglegs lifs, eins og til-
finningum venjulegs fólks, að
ekki sé minnzt á allt kvennastand
þeirra merku bræðra. Og vel á
minnzt: urðu einhver mistök við
innkaup þess þáttar? Allt i einu
PETER BARKWORTH — þessi karl fer að verða okkur sjónvarps
glápurum vel kunnur. Hann lifði fram undir lok „Mannaveiöa”, og nú
er hann aftur kominn á krcik, reyndar næsta uppvakningslegur, í
„Valdatafli”.
var hætt i miðju kafi, þegar mað-
ur hélt, að stóri bróðir ætlaði að
taka sig á i öllu skirlifinu og ná
frillu föður sins. Lif okkar sjón-
varpsglápara ruglast fullkom-
lega, ef svona er komið fram við
okkur. En kannski er þetta bara
gott — það spruttu allt i einu upp
fjári fjörlegar umræður i strætó.
Allt i einu kom i ljós, að hinn
þegjandalegi hópur, sem daglega
sást i vagninum, átti sér eitt sam-
eiginlegt áhugamál: Uppáferðir
Hammondanna i sjónvarpinu.
Sendum gegn póstkröfu hvert sem er
ftWMI
wt
m
Föt með og
án vestis
Smokingar -
Skyrtur - Peysur -
Leðurjakkar -
Stakar buxur -
Allar gerðir af
gallabuxum og
jökkum
Stuttir og síðir
kjólar - Stutt og
síð pils - Kápur -
Jakkar - Buxur -
Blússur - Peysur -
Bolir úr velúr