Vísir - 15.02.1974, Síða 11
Vísir. Föstudagur 15. febrúar 1974.
m
Muhammed Ali tilkynnti
skyndilega í gær, að ekkert
yrði úr leik hans við Jerry
Quarry, bezta hvita þunga-
vigtarmanninum i hnefaleik-
um. Ali bar við þreytu.
Ali hefur tvivegis keppt við Qarry og
sigrað heldur auðveldlega á rot-
höggum. Sérfræðingar segja, aö ekki
sé um neina þreytu hjá Ali aö ræða.
Þegar George Foreman, heims-
meistari, og Ken Norton keppa i
Venezúela i næsta mánuði — og Ali
stillir nú allt upp á að fá leik við Fore-
man — ef hann heldur titilinum —
strax eftir þá keppni. ,,Ég ætla að
vinna titilinn aftur — siðan hætti ég”
sagði Ali.
24 lið í
skólamóti
Knattspyrnumót skólanna — hið
sjötta i röðinni — hefst nú um helgina.
Alls taka liö frá 24 skólum þátt i
keppninni viðs vegar að af landinu.
Tveir K-ikir veröa á laugardag. Kl.
14.00 leikurá Kópavogsvelli Þinghólts-
skóli og Háskóli tslands, og kl. 15.20 á
sama velli. Verzlunarskóli tslands og
Vélskóli tslands.
A sunnudag verða tveir leikir á
sama velii. Kl. 14.00 leika Menntaskól-
inn i Kópavogi við lþróttakennara-
skólann, en kl. 15.30 Vighólaskólinn við
Kennaraháskólann.
Auk þessara liöa eru lið frá Mennta-
skólanum i Hamrahlið, Gagnfræða-
skóla Austurbæjar, Menntaskólanum i
Reykjavik, Gagnfræðaskóla Garða-
hrepps, Vogaskóla, Stýrimannaskóla,
Lindargötuskóla, Menntaskólanum,
Laugarvatni, Héraðsskóla Laugar-
vatni, Tækniskóla tslands, Mennta-
skólanum Akureyri, Menntaskólanum
við Tjörnina, Laugalækjarskóla,
Menntaskólanum tsafirði, Iðnskóla
Akureyrar og Hliðardalsskóla, I
keppninni.
Ráögert er að fyrstu umferö ljúki
helgina 23.-24. febrúar — en það lið,
sem tapar leik er úr keppninni. Það á
við fyrstu umferðina. Þá veröa eftir 12
skólar og cftir það þarf tvo tapleiki til
að falla út.
Kynningar-
rit um blak
BLAK 74, blakkynningarrit og leik-
skrá tslandsmótsins i Blaki 1974, er
komið út. Ritiö er rikulega mynd-
skreytt og fjölbreytt að efni. Þar er
sagtfrá tslandsmótum frá upphafi, er-
iendum mótum og úrslit þeirra færö i
töflur. 1 þvi er skrá um alla blakdóm-
ara með simanúmerum og starfsmenn
blaksambandsins, auk margs annars
efnis.
Guðmundur Arnaldsson blaðafull-
trúi blaksambandsins hefur safnað
efni og myndum I ritið og ritstýrir þvi.
Ármann-Þór
ó þriðjudag
Fjórir leikir i tslandsmótinu i hand-
knattleiknum, sem orðið hefur að
fresta siðustu vikurnar, verða leiknir i
Laugardalshöllinni næstkomandi
þriðjudagskvöld.
Einn þeirra er úr 1. deild karla, en
þá leika Armenningar þar við Þór —
leik, sem tvivegis hefur verið frestað.
Fvrsti leikurinn hefst kl. 7.00 og
verður i 2. flokki kvenna milli Fylkis
og KR. Siðan leika Þróttur og Armann
i 2. flokki karla, og Fylkir og Grótta I 2.
deild karla. Siöasti leikurinn verður
svo sá i fyrstu deildinni milli
Armanns og Þórs. Sá leikur er afar
þýðingarmikill fyrir Akureyringana —
ef þeir sigra i leiknum hafa þeir
vissulega möguleika á að halda sæti
sinu i 1. deild, en tap þýðir raunveru-
lega fall niður i 2. deild næsta kcppnis-
timabil.
hmbhwmmbbhi
SSKS'
ón: Hallur Stmonarson
Vísir. Föstudagur 15. febrúar 1974
f
|pC~,
M
-
>
/•
Sigraði ég virkilega, hrópaði Fabienne Serrat, Frakklandi, þegar hún
fékk þær fréttir, að hún hefði orðið sigurvegari samanlagt i alpagrein-
um kvenna á heimsmcistaramótinu i St. Moritz i siðustu viku. Það voru
önnur gullverðlaun hennar i keppninni — hún sigraði í fyrstu keppnis-
greininni á mótinu, stórsvigi. A myndinni með henni er Michel Jacot,
Frakklandi, sem hlaut silfurverðlaun i svigi.
28 í EINLIÐALEIK
Á BORÐTENNISMÓTi
— Reykjavíkurmótið verður hóð um helgina
Reykjavikurmót i borðtennis
hefst i Laugardalshöllinni á
laugardag, 16. febrúar kl. 3.30. Þá
verður keppt i einliöaleik ungl-
inga, tviliðaleik karla, einliðaleik
kvenna og tvenndarkeppni.
A sunnudag heldur mótið áfram
á sama stað og hefst kl. 1.30. Þá
Grœnt liós í Falun
Svium hefur tekizt það —
brekkur og göngubrautir I Falun,
þar sem heimsmeistarakeppnin i
norrænum skiðagreinum hefst á
morgun, — eru að fyllast af snjó."
Tugþúsundum tonna af snjó hefur
verið dreift þar um siðustu daga.
Brazzarnir ótt-
ast Júgóslavana!
— Fyrsti leikur heimsmeistaranna í knattspyrnu, Brazilíu,
verður gegn Júgóslövum. í sama riðli
leika einnig Skotland og Zaire
— Júgóslavia hefur
mjög sterku liði á að
skipa - já, Slavarnir eru
með eitt bezta lið, sem
ég hef séð leika knatt-
spyrnu, sagði þjálfari
heimsmeistara Brazilíu
i Frankfurt i gær eftir að
Júgóslavia hafði sigrað
Spán og þar með tryggt
sér rétt i úrslitakeppn-
ina. Vestur-Þýzkalandi.
Og hann bætti við. Það
hefði verið miklu auð-
veldara að fá Spán-
verja i riðilinn. Ég var
mjög hrifinn af Júgó-
slövunum — þeir verða
erfiðir fyrir Braziliu-
menn.
Fyrsti leikurinn I heims-
meistarakeppninni i Vestur-
Þýzkalandi i sumar verður ein-
mitt milli Braziliu og Júgóslaviu
og á leikvellinum I Frankfurt —
þeim leikvelli, sem reyndist
Júgóslövum svo vel gegn Spán-
verjum. Sá leikur verður 13. júni.
Auk Braziliu og Júgóslaviu er
Skotland og Zaire einnig i riðl-
inum.
— Þetta verður erfiðasti
riðillinn — þrjú mjög sterk lið,
sagði þjálfari Brazzanna enn-
fremur. Við hefðum viljað mæta
flestum öðrum liðum en þvi
skozka — Skotar hafa alltaf staðið
sig vel gegn okkur — og auk þess
fáum við nú einnig að glima við
Júgóslavana. Lið Zaire (áður
belgiska Kongó) hef ég ekki séð —
en reikna ekki með miklu af þvi.
Afrikuþjóðir eiga enn nokkuð
langt i land i knattspyrnunni, þó
svo sigrar Zaire gegn Marokkó
hafa verið mjög sannfærandi.
Þrátt fyrir þessi ummæli
þjálfara Braziliu er almennt
reiknað með, að Brazilia komist
heldur auðveldlega gegnum
riðilinn. Þá hallast flestir aö þvi,
að ttalia og Vestur-Þýzkaland
muni eiga i litlum erfiðleikum I
sinum riðlum —- en þriðji riðill er
afar opinn. Ef hollenzka lands-
liðinu tekst vel upp gæti það hæg-
lega komizt i úrslit i HM — lið,
sem hefur Johan Cruyff i sinum
röðum verður alltaf hættulegt
Uruguay hefur einnig góðu liði á
að skipa og það land hefur náð
góðum árangri yfirleitt á HM.
Sviar lenda þvi i erfiðri raun
þarna i 3. riðli.
Augu heimsins munu beinast að
Vestur-Þýzkalandi isumar frá 13.
júni til 7. júli. Heimsmeistara-
keppnin i knattspyrnu vekur orðið
litlu minni athygli en Olympiu-
leikar. Til hliðar er verðlauna-
gripurinn, sem nú verður keppt
um i fyrsta skipti á HM — og að
neðan er riðlaskipunin og i hvaða
borgum verður leikið. Og þeir eru
þar lika i horninu, vinirnir Tip og
Tap — tákn keppninnar.
Latchford dýrastur!
verður keppt i einliðaleik karla
tviliðaleik unglinga og tviliðaleik
kvenna. úrslitaleikir i flokkunum
hefjast kl. fimm.
Þátttaka er góð — til dæmis eru
28 keppendur i einliðaleik karia,
11 pör i tvenndarkeppni. Þá eru
keppendur 29 i einliðaleik i
unglingaflokki.
— Everton keypti miðherja Birmingham í gœr fyrir
upphœð, sem nemur 350 þúsund sterlingspundum
Norðmenn völdu i gær þá fjóra,
sem keppa fyrir Noreg i skiða-
stökkinu. Valið var afar erfitt, en
þeir Finn Halvorsen, Lars Grini,
Odd Grette og Johan Sætre
hrepptu sætin.
Bob Latchford, mib-
herji Birmingham, varð
i gær dýrasti leikmaður
Englands. Liverpool-lið-
ið Everton keypti hann
þá fyrir upphæð, sem
talin er nema 350 þús-
und sterlingspundum —
greiddi Birmingham 100
þúsund sterlingspund-
um i peningum, og lét að
h
rm
Wt,Á
auki tvo leikmenn upp i
Latchford, þá Howard
Kendall og Arthur
Styles.
Þessi sala á Bob Latchford i
gær til Everton kom mjög á óvart
— ekkert hafi kvisazt út, aö
Enskir í
hœttu!
England og Holland gerðu jafn-
tefli I UEFA-keppni unglinga-
landsliða i Birmingham I gær 1-1
og enska liðið er nú i hættu að
komast ekki í úrslitakeppnina i
Sviþjóð i vor. tsland hefur þegar
tryggt sér þátttöku þar.
Richard Turner, Ipswich,
skoraði strax á fjórðu min. fyrir
England I gær, en Schwanenburg
jafnaði fyrir Holland I siðari
hálfleik. t riðli meö þessum
þjóðum er Wales einnig. England
vann Wales 1-0 I West Bromwich
fyrir nokkrum vikum — en eftir
jafnteflið i gær eru taldar miklar
likur á að Holland komist i úr-
slitakeppnina i Sviþjóð.
Þaö er von þeir brosi, kapp-
arnir á myndinni. David
Zwilling, Austurríki, cr bor-
inn á háhesti af löndum
sinum eftir að hann hlaut
gullverðlaunin I bruni i
heimsmeistarakeppninni í
St. Moritz. Þau úrslit voru
mjög óvænt, þvi Zwilling —
þó hans sé frábær skiða-
maður — hefur aldrei fyrr
sigraö i meiriháttar bruna-
keppni. Til vinstri er landi
lians Franz Klammer, sem
hlaut silfurverðlaun — og
1 gull samanlagt i keppninni.
ISW
framkvæmdastjórar liöanna
stæðu I samningum.
Bob Latchford er ungur maöur
— skeggjaði miöherjinn, sem við
höfum svo oft séð I sjónvarps-
þáttum f vetur. Hann lék i enska
landsliðinu — ieikmenn 23ja ára
og yngri — í vetur, og bróðir hans
Peter var einnig i liðinu. Hann er
markvöröur hjá West Bromwich.
Þriðji bróðirinn, Dave Latchford,
er einnig kunnur leikmaður — var
j aðalmarkvörður Birmingham,
I þar til liðið keypti Gary Sprake i
i vetur frá Leeds fyrir 100 þúsund
: sterlingspund.
I Mesta sala áöur á leikmanni á
i Englandi var, þegar Derby
County keypti David Nish frá
! Leicester fyrir 250 þúsund sterl-
; ingspund.
Howard Kendall, sem Birming-
ham fékk ásamt Arthur Styles frá
Everton, er meðal þekktustu leik-
! manna Englands. Everton keypti
hann fyrir nokkrum árum frá
Preston, en með þvi liði hafði
Kendall verið yngsti leikmaður,
17 ára, sem leikið hefur i úrslita-
leik ensku bikarkeppninnar.
Fyrir nokkrum mánuðum var
Kendall mjög orðaður við enska
landsliðið og átti þá skinandi leiki
með Everton. En hann meiddist
þá og er nýlega kominn aftur inn i
aðallið Everton. Howard Kendall
er metinn á 170 þúsund sterlings-
pund — og hann tók við fyrirliða-
stöðunni hjá Everton, þegar Alan
Ball var seldur til Arsenal. Hann
er framvörður og það er einnig
hinn ungi Arthur Styles, sem
fylgir honum til Birmingham.
Hann er metinn á 80 þúsund pund
og hefur leikið milli 30-40 leiki i
aðalliði Everton.
Þó Bob Latchford sé ungur aö
árum hefur hann lengi leikið i
aðalliði Birmingham. 1 vetur
hefur hann skorað 17 mörk — en
alls hefur hann leikið rúmlega 150
leiki með Birmingham og skorað
75 mörk i deildakeppninni.
Völlurinn ónýtur
— segir fyrirliði Vestur-Þýzkalands, Franz Beckenbauer, um
leikvöllinn í Munchen, þar sem úrslitaleikur HM á að fara fram
— Það er varla hægt
að leika knattspyrnu á
þessum velli — hann er
beinlinis ónýtur — og
hér á að leika úrslitaleik
heimsmeistarakeppn-
innar i júli, sagði hinn
frægi fyrirliði vestur-
þýzka landsliðsins i
■knattspyrnu, Franz
Beckenbauer, i gær og
átti þar við Olympiu-
IAIM 74
Heimsmeistarakeppnin
13. júní — 7, júlí 1974 j
leikvanginn i Munchen.
Beckenbauer veit hvað hann er
að segja. Olympiuleikvangurinn
er heimavöllur liðs hans, Bayern
Munhen — og er oft kallaður
manna á miili, Beckenbauer-leik-
vangurinn. Bayern Munchen er
nú i efsta sæti i 1. deildinni þýzku
— en með liðinu leikur einnig sá
frægi Gerd Muller, mesti marka-
skorari heims nú.
— Ég veit, að völlurinn er
orðinn afleitur, sagði vallar-
stjórinn i Munchen, þegar
Beckenbauer bar fram
ásökun sina. Það hefur verið
leikið alltof mikið á vellinum
siðan hann var tekinn i notkun
nokkru fyrir Olympiuleikana 1972
En — bætti hann við — tæknin er
orðin svo mikil i sambandi við
velii, að okkur ætti ekki að verða
skotaskuld úr þvi, að koma vell-
inum i gott lag fyrir heims-
meistarakeppnina.
Leikir i fjórða riðli heims-
meistarakeppninnar verða að
nokkru háðir i Munchen. I þeim
riðli leika Italia, Argentina, Pól-
land og Haiti — ttalir eru taldir
öguggir að komast upp úr riðl-
inum en hvaða land fylgir þeim er
ekki gott að segja. Argentinu-
menn hafa löngum verið sterkir
— en Pólverjar, Olympiumeistar-
arnir, reyna áreiðanlega sitt til að
koma enn á óvart. Haiti, sem
leikur i fyrsta skipti i úrslitum
HM, á auðvitað enga möguleika
gegn þessum sterku liðum.
Ætla að
leika!
Leikmennirnir niu frá hollenzka
liðinu Ajax, sem hótuðu þvi að leika
ekki með Hollandi i h c i m s -,
meistarakeppninni i knattspyrnu i
Vestur-Þýzkalandi i sumar, vegna
þess, að hollenzka knattspyrnu-
sambandið stóð ekki við þær
greiðslur, sem leikmönnunum var
lofað ef þeir kæmust i úrslita-
keppninni. hafa hætt við að hætta.
Þeir vonast nú bara eftir því að
komast i hollenzka landsliðið,
þegar það leikur á HM:
Forráðamenn holienzka knatt-
spyrnusambandsins ræddu við
leikmennina nú i vikunni og eftir
þann fund var tilkynnt að allur
ágreiningur væri úr sögunhi. Ilins
vegar var ekki skýrt nánar frá þvi
tilboði,, sem knattspyrnu-
mönnununi var gert — en það hefur
áreiðanlega verið gott. Holland er i
:!. riðli i undankeppni HM og hefur
mikla möguleika að komast áfram.
Það er kannski jafnasti riðillinn —
auk llollands leika Uruguay,
BúlgarÍ£j.og Sviþjóö i riðiinum.
Þriðja Hljóm-
skólahlaupið
Illjómskálahlaup ÍR fer fram i 3ja
sinn á þessum vetri nk. sunnudag 17.
febrúar, og hefst það eins og undanfar-
in hlaup við Hljómskálann kl. 14,00.
Færðin i Hljómskáiagarðinum hefur
litið breytzt til batnaðar ennþá, en
ÍR-ingar vænta þess, að fleiri mæti til
keppninnar en siðast og um fram allt
að þeir, sem koina til hlaupsins, komi
timanlega til skráningar.
Búast við
miklu af
meistara
sínum!
Heimsmeistarakeppnin i Falum
hefst á morgun og þar binda Norð-
menn miklar vonir við Pal Tyldum,
Oly mpiumeistarann i 50 km
skiðagöngu á leikunum i Sapporo 1972.
Hann hlaut einnig silfurverðlaun þar i
30 km skiðagöngu og 4x10 km skiöa-
boðgöngu. Myndin hér að neðan var
tekin af Olympiumeistaranuin fyrir
nokkrum dögum, þegar hann keppti á
Bul-mótinu i Osló — og sýndi þar
„gamla takta”, sem gætu vel gert
hann að heimsmeistara i Falum.
Gifurlegur áhugi er I Noregi á
HM-keppninni og hafa þúsundir Norð-
manna að undanförnu streymt til
Falum.