Vísir - 04.03.1974, Síða 1

Vísir - 04.03.1974, Síða 1
VISIR (>4. árg. — Mánuclagur 4. marz 1974. — 53. tbl. Gullfoss orðinn Lokuðu skólum í hvítur, — og í flutningum til Mekka . . — baksiða morgun vegna óveðurs — baksíða «■■«<* RISAÞOTA DRCIFÐIST flugslysi YFIR 15 m SVÆÐI Byrjað að höggva Varla hafa menn fengið nokkrar krón- ur útborgaðar i kauphækkunum, þegar stórt stykki er höggvið úr kjarabót- unum með hrikaleg- um verðhækkunum. Búvörur hækka i dag töluvert meira en kaupið hefur hækkað. Á einni viku hefur hver hækkunin rekið aðra, bensin og olia, farmgjöld og fleira. Þetta er að- eins byrjunin. Stjórnvöld ætla að láta verðbólguskrúf- una rása. Sjá leiðara á bls. 6 Fimmtán ára kœrir nauðgun baksíða Aðkoman i Ermenonskógi fyrir utan Paris var hræöileg. Siökkviliðsmenn og lögregluþjónar söfnuðu llkamsleifunum i plastpoka og urðu þeir oft að taka sér hvild frá þvi óhugnaniega starfi. Brakið úr vélinni, farangurinn og siöast en ekki sizt fólkið sjálft var dreift um allan skóg. „Hún fór mjög hratt niður. Hávaðinn frá þess- um risafugli vakti athygli mina. Ég leit upp og sá vélina fara beint niður með ofsahraða. Ég missti sjónar af henni, þegar hún hvarf á bak við nokkur tré. Síðan gaus upp mikið eld- haf." Þetta er lýsing Maurice Lhote á þvi, hvernig tyrkneska risaflug- vélin DC-10 hrapaði til jarðar rétt fyrir norðan Paris gær. Lhote og kona hans voru um hádegisbilið á sunnudagsgöngu i skóginum, þar sem slysið varð og 345 manns biðu bana. Lýsingar björgunarmanna á slysstaðnum eru mjög dapurleg- ar, þvi að vélin tættist algjörlega i sundur og brot úr henni og annað dreifðist yfir 15 kilómetra svæði. Taliö er vist, að allir i vélinni hafi farizt samstundis og likin splundruðust um slysstaðinn. I Tyrklandi varð þjóðarsorg, og Pompidou Frakklandsforseti sendi samúðarkveðjur til Tyrk- landsforseta og Breta- drottningar, en flestir farþeganna voru Bretar, sem fóru um borð i vélina vegna verkfalls á Heathrow-flugvelli við London. Fréttir i morgun hermdu, að ekki væri óliklegt, að sprengjum hefði veriö komið fyrir i flug- vélinni ?f hryðjuverkamönnum. I ööru mesta flugslysi sögunnar fórust um helmingi færri eða 176 manns. Nánar er sagt frá flugslysinu á bls. 5. -BB- Hvað finnst samningamönnum um verðhœkkanirnar? „HRÆDDUR UM AÐ KJARABÆTURNAR VERÐI FLJÓTT TEKNAR AF FÓLKINU — segir Runólfur Pétursson, sem átti sœti í 30 manna samninganefnd ASÍ „Þetta eru háar og ## eru Ijótar tölur. Ég er hrædd ur um, aö kjarabæturnar veröi fljótt teknar af fólkinu," sagði Runólfur Pétursson, formaður Iðju, félags verk- smiðjufólks í morgun um hækkun á verði land- búnaðarvara. Hækkunin er talsvert yfir 20 prósent og fer allt upp i rúm 30 prósent. Þetta er talsvert meiri hækkun en kauphækkunin varð i siðustu kjarasamningum. En höfðu samningamennirnir ekki gert ráð fyrir, að kauphækkunin færi að miklu leyti út i verðlagið? spyrjum við Runólf. Runólfur segist ekki hafa búizt við svona voðalegum og skjótum hækkunum. Samninga- menn hafi ekki talið, að verðbólgan tæki svo fljótt við. ,,Ég óttast, að kauphækkunin verði fljót að fara út i verðlagið,” segir hann. „Þetta er vist þvi miður aðeins for- smekkurinn. Meira kemur á eftir.” Runólfur átti sæti i samninga- nefnd ASt. Verðlagningu búvara er þannig háttað, að verðið hækkar til samræmis við kauphækkanir og aðra kostnaöaraukningu. Það kemur þvi ekki á óvart, þótt verðið hækki sem svarar kauphækkun, en þessi mikla hækkun búvara kemur á óvart. Runólfur minnti á veröhækkun á bensini og aðrar hækkanir á þessari tæpu viku, sem liðin er frá kjarasamning- um. Snorri Jónsson, forseti Alþýöusambandsins sagði i morgun, að ASl hefði ekki átt fulltrúa i nefndinni, sem verð- leggur búvörur, siðan i fyrra. Þá hefði verðhækkun búvara verið flýtt, þannig aö hún fylgdi kaupinu strax, ella hefðu þær ekki hækkað fyrr en eftir þrjá mánuði. -HH. m

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.