Vísir - 04.03.1974, Blaðsíða 24

Vísir - 04.03.1974, Blaðsíða 24
VISIR Verðhœkkanir ó landbúnaðarvörum: Smjörið hœkkar mest I haust var samið um verð á landbúnaðarvörum til tveggja ára, en i þvi samkomulagi fólst, að verðlagsgrundvöllur, landbúnaðarafurða skyldi endur- skoðaður á þriggja mánaða fresti. Hagstofan reiknar siðan út breytingar á verði rekstrarvara og siðan eru hækkanir byggðar á upplýsingum frá Kjara- rannsöknanefnd, að þvi er Ingi Tryggvason, blaðafulltrúi Búnaðarfélagsins tjáði Visi i morgun. Landbúnaðarvörur hækkuðu i verði um helgina, og fylgir hér á eftir skrá yfir helztu hækkanir ásamt forsendum fyrir þeim hækkunum: Mjólk i litra hyrnum hækkar úr 25.30 kr. i 32.60 kr. Mjólk i tvcggja litra fernum úr 51.90 i 66.50 kr. Hjómi i pelahyrnum úr 55.00 kr. i 66.70 kr. Skyr kostaði 61.30 hvert kg , en kostar nú 73.00 kr. 1. fl. smjör var 356.00 kr. kg , en verður 464.00 kr. 45% ostur i hálfum og heilum stykkjum kostaði 255.00 kr., en verður 313.00 kr. 30% ostur var á 202,00 kr., en veröur 246,00 kr. 1. fl. dilkakjot: Súpukjöt i 1. fl. var 256.00 kr. en verður 315.00 kr. Ileil læri voru á 256.00 kr., kg , en verður 326.00 kr. Heilir skrokkar, sneiddir niður fyrir neytendur kostuðu 219.00 kr. kg , en verða nú á 269.00 kr. KartöBur hækka úr 148.00 kr. kg. i 182.00 kr. 5 kg. Mánudagur 4. mar/. 1974. FIMMTÁN ÁRA KÆRÐI NAUÐGUN Fimmtán ára gömul stúlka kærði þritugan mann nú um helg- ina fyrir nauögun. Seinna dró hún l'ramhurð sinn aðeins til baka, og sagði, að eiginlcga hefði ckki ver- ið um nauðgun að ræða, heldur nauðgunartilraun, því manninum hafi ekki teki/t að koma fram ætlun sinni. Stúlkan var fengin I hús mannsins, undir þvi yfirskini að hún ætti að vera barnfóstra. Hann er giftur, en kona hans var úti við vinnu þessa nótt. Ekki kom til þess, að stúlkan þyrfti að gæta barna, en dvöl hennar i húsinu stóð fram til klukkan sex um morguninn. Hún fór þá úr húsinu, sem hún hafði dvalist i, og heim til sin. Stuttu seinna kom hún ásamt móður sinni á lögreglustöðina i Reykjavik og kærði nauðgun. Kvað hún manninn hafa verið drukkinn, og haft samfarir við sig. Við læknisskoðun kom ekki i ljós, að hún hefði haft samfarir, eða verið beitt ofbeldi. Dró hún þá úr framburðinum, og sagði að tilraun mannsins hefði ekki tekizt. Maðurinn var úrskurðaður i varðhald og situr enn inni. -ÓH. Þcssi kjötskrokkur er um 15 kg að þyngd. Yfirleitt kaupa neytendur ámóta kindaskrokk og þennan, og fyrir hækkun var hann á 219 kr. hvert kg. Nú kostar hvert kg 269 — allur skrokkurinn hefur hækkað um 800 krónur. Þeir hafa nóg að gera I kjötverzlununum við að svara I simann og skýra frá nýjum og hærri prísum. Kjarnfóður hækkaði um 9,16%. Kostnaður við vélar, svo sem bensln, oliur, viðgerðarkostnað- ur, hækkaði um 14.14%. Flutningskostnaður hækkaði um 1,97%. Annar kostnaður (þ.e. raf- magn, smávörur, fasteignagjöld o.fl.), hækka í um 16.39%. Hækkun launa var 26.91%—þ.e. grunnkaupshækkunin núna og hækkun á visitölu — þá er lika inni i þessu hækkanadæmi hækk- un, sem stafar af leiðréttingu á fjármagnskostnaði — 1%. Hækkun til bænda nemur 17.97% og þar i er vinnuliðurinn langstærstur — en ýmsir liðir hækkuðu ekki núna. Til dæmis hefur enn ekki komið nýtt verð á áburði. Þá varð og hækkun á vinnslu og dreifingu, kostnaði og siðan er reiknað með hækkun smásöluálagningar, en smásölu- álagning á landbúnaðarvörur er yfirleitt lág, en mismunandi vegna rýrnunar varanna. Smásöluálagning á smjör er t.d. 8% — lægsta prósentutalan af öllum álagningarvörum. Niðurgreiðslur til bænda eru óbreyttar að krónutölu, og þess vegna er hlutfallsleg hækkun landbúnaðarvaranna misjöfn. Þar sem niðurgreiðslutalan er há, verður hækkunin lika mikil — sem dæmi má nefna smjörið. Sex manna nefnd samþykkti þessar hækkanir samhljóða. Fulltrúar bænda i nefndinni eru þrir, þeir Ingi Tryggvason, Gunn- ar Guðbjartsson og Einar Ólafs- son. Fulltrúar neytenda eru Torfi Ásgeirsson, Pétur Sigurðsson. sem er varaform. Sjómannafél. Reykjavikur og Geir Þorsteins- son. ASt hefur rétt á að skipa mann i þessa nefnd, en hefur ekki gert svo að undanförnu, og þess i stað skipar viðskiptaráðuneytið þriðja manninn. — GG. Árabar í boði stúdentaráðs „Flugvélarán áhrifaríkasta vopnið" ,,Ef Palestinumenn þurfa að gripa til vopna i frelsisbaráttu sinni við Israelsmenn, er áhrifa- rikast fyrir þá að ræna flugvél- um", sagði Amin frá Súdan, sem er túlkur 5 fulltrúa frá arabiskum stúdentasamtökum, sem eru i boði Stúdentaráðs Háskóla ts- lands og dveljast hér á landi nú. 1 hópnum er stúdent frá trak, annar frá Alsir og tveir frá Sýr- landi, auk Amins frá Súdan og fulltrúa frá International Union of Students, sem hefur höfuö- bækistöðvar i Prag i Tékkóslóva kiu. Ferð Arabanna er skipulögð af alþjóðastúdentasamtökunum i Prag og sagði Amin, að tilgang- urinn með ferðinni væri að stuðla að frekara samstarfi við Stúdentaráð Háskóla tslands. Ætlunin væri að fara til tveggja eða þriggja Vestur-Evrópulanda sömu erinda. Amin sagðist ekki hafa fylgzt náið með siöustu atburðum fyrir botni Miðjarðarhafs, þar sem hann hefði dvalizt lengi erlendis. Benti hann á, að hann væri aðeins túlkur sendinefndarinnar. -BB- SKOLUM LQKAÐ I OLAFSVIK VtGNA VtÐURS — Símasambandslaust þangað og á Hellissand í morgun. „Snarvitlaust veður Stykkishólmi i „Hér er alveg snarvitlaust veður”, varð einum aö orði sem Visir ræddi við i Stykkishólmi i morgun. Þar voru 9 vindstig klukkan 7 i morgun, og raf- magnslaust var i hálfum bæn- um. A mörkunum var að hægt væri að hafa skólana opna. „Við höfum haft það fyrir reglu hérna, að foreldrarnir ákveöa sjálfir, hvort hægt er að hleypa börnunum I skólann”, sagði skólastjóri barnaskólans, þegar við ræddum við hann. „Hins vegar tökum við þá ábyrgð á þeim, þegar þau fara heim. Annars veit ég um tvö eða þrjú, sem urðu að fara aftur heim i morgun til þess að skipta um föt, þvi þau fuku um koll i rokinu.” Rafmagnsmálum virðist mjög ábótavant ef eitthvað er að veöri i Stykkishólmi, að sögn einnar starfsstúlku Pósts og sima, og sagði hún mjög marga ergilega vegna þess. I. Ólafsvik var skólum lokað i morgun. Þangað og á Hellis- sand var simasambandslaust vegna rafmagnstruflana i morgun. Hafa ibúar þar þvi sjálfsagt fengið aö finna fyrir stormi og stormur var sums staðar á Vestfjörðum. 9 vindstig voru á nokkrum stöðum, að sögn Veðurstofunn- ar, til dæmis i Kvigindisdal og á Horni. 8 vindstig voru einnig á nokkrum stöðum. Veður er hgldur hægara á Austfjörðum, og mikil hlýindi eru miðað við árstima, hitastig er frá fjórum upp i sex stig á landinu. Á Norður- og Austur- landi var úrkomulaust, en rign- ing vestan til. Spáð er óbreyttu veðri, sunn- an hvassviðri eða stormi með dálitilli rigningu. —EA Skoðanakönnun A-listans: Hörður og Stefón draga sig í hlé í Þeir Kjartan Jóhannsson og Finnur Torfi Stefánsson munu hafa orðiö hlutskarpastir i skoðanakönnun Alþýðuflokks- manna I Hafnarfirði. Skoöanakönnunin fór fram siöastliðinn föstudag og laugar- dag, en talning fór fram i gærdag. Formaður uppstillingarnefndar, llörður Zóphaniasson skólastjóri. fékkst ekki til að veita upplýsing- ar um kjörsóknina, er Visir leit- aði til hans I morgun. Þess má geta, að Hörður og Stefán Gunnlaugsson, fyrrver- andi bæjarstjóri I Hafnarfirði, gáfu ekki kost á sér i þessari skoðanakönnun. Iiafa þeir hugsað sér að draga sig I hlé næsta kjör- tlmabilið. -ÞJM GULLFOSS I FERÐUM TIL OG FRÁ MEKKA — „Gamla góða" flaggskipið okkar íslendinga nú orðið hvítt að lit og siglir um Rauðahafið Nú er „gamli góði” Gullfoss orðinn hvitur að lit og kominn i siglingar um Rauða- hafið, að þvi er segir i frétt frá Jóhannesi Guðmundsyni, frétta- ritara Visis i Hodeidah. Gullfoss var á sinum tima seldur til Libanon, en fljótlega hefur hann verið seldur þaöan aftur, þvi núna siglir hann undir fána Saudi-Arabiu og heitir „Mecca”. Enn má þó sjá á skrokknum stafina, sem mynda oröin „Gullfoss-Reykjavik”. Þeir stafir eru nefnilega upphleyptir. Siglir Gullfoss núna með far- þega frá Hodeidah og fleiri höfnum við Rauðahafið til Jedda i Saudi-Arabiu. Allir eru farþegarnir á leið til og frá Mekka og af þeirri ferðaáætlun dregur skipið nafn sitt. Allir eru farþegar skipsins Múhameðstrúarnienn, eins og gefur auga leiö. A6 jafnaöi eru farþegar skipsins frá 1000 til 1500 og eru ekki allir jafn vandfýsnir hvað val á svefn- plássi áhrærir. Sofa menn I lest- um og á dekki jafnt sem farþegarými skipsins. Maður skyldi þó ætla, að enginn farþeganna þurfi aö skjálfa af kulda. -ÞJM r ú

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.