Vísir - 17.05.1974, Síða 13
Visir. Föstudagur 17. mai 1974.
13
„ABBA" MEÐ LAGIÐ
„WATERLOO" LEGGJA
EVRÓPU AÐ FÓTUM SÉR
Danski rithöfundurinn Poul Vad
og Thor Vilhjálmsson
Það hefur varla farið
fram hjá neinum, sem
horfði á islenzka sjón-
varpið, þegar það sýndi
frá sönglagakeppni
sjónvarpsstöðva i
Evrópu á dögunum,
hvaða lag fór með sigur
af hólmi i þeirri keppni.
Ef einhver hefur verið svo
óheppinn að missa af þeim þætti,
hefur sá hinn sami ekki komizt
hjá þvi að heyra lagið i óskalaga-
þáttum útvarpsins, þar sem það
nýtur mikilla vinsælda.
Lagið heitir „WATERLOO” og
er sungið og spilað af sænsku
hljómsveitinni ABBA, sem
dregur nafn sitt af fornöfnum
meðlima hennar- Agnetha,
Benny, Björn og Annifrid.
Engu munaði, að Sviar sendu
ekki lag i þessa keppni. Forráða-
menn sænska sjónvarpsins sögðu,
að það væri of dýrt að vera með.
En þeir endurskoðuðu afstöðu
sina á siðustu stundu og sendu
ABBA með lagið
„WATERLOO”....Og nú sjá þeir
ekki eftir þvi.
Talið er, að um 500 milljónir
manna og kvenna á öllum aldri
hafi horft á beinu útsendinguna
frá Brighton i Englandi. Siðan
hefur þátturinn verið sendur til
fjölda annarra landa og alls
staðar vakið mikla hrifningu,
sérstaklega þó lagið
„WATERLOO” og útfærsla og
sviösframkoma Svianna á þvi.
Svarti hatturinn, sem Annifrid
Lyngstad var með, er „lukku-
tröll” hljómsveitarinnar. „Án
hans værum við ekki neitt og
gætum ekki sungið eitt einasta
lag”, segja fjórmenningarnir.
. Þeir eru nú á ferðalagi um Svi-
þjóð, þar sem þeir troða upp i
öllum stærstu samkomuhúsum
landsins — og ef nægilega stórt
hús er ekki fyrir hendi, syngja
þau undir berum himni.
Hápunktur hverrar sýningar er,
þegar þau syngja
,,WATERLOO”...þá ætlar allt um
koll að keyra.
Að lokinni söngför um Sviþjóð
■munu f jórmenningarnir og
stjórnandinn i Napoleon-búningn-
um fara i ferðalag um Evrópu,
sem taka mun a.m.k. þrjá
mánuði...er búizt við, að mót-
tökurnar þar verði ekki siðri en
i Sviþjóð.
—klp
Agnetha, Benny, Björn og
Annifrid i sinum skrautlegu
búningum fagna sigri að lokinni
keppni um „bezta lagið i Evrópu
1974”.
Sænska hljómsveitin „ABBA” ásamt stjórnandanum og höfundi lagsins „WATERLOO”, sem sigraöi I
sönglagakeppni sjónvarpsstööva I Evrópu.
lesa úr eigin verkum i Norræna húsinu
laugardaginn 18. mai kl. 16:00. — Enn-
fremur segir Poul Vad frá dönskum nú-
timabókmenntum.
Allir velkomnir. NORRÆNA
HUSIÐ
Auglýsing
um framboðsfrest í Reykjavík
Yfirkjörstjórn við Alþingiskosningarnar,
sem fram eiga að fara 30. júni nk. skipa:
Páll Lindal borgarlögmaður,
Hjörtur Torfason hæstaréttarlögmaður,
Jón A. ólafsson sakadómari,
Sigurður Baldursson hæstaréttarlögmað-
ur,
Sigurður Guðgeirsson prentari.
Framboðslistum skal skilað til oddvita
yfirkjörstjórnarinnar, Páls Lindal borg-
arlögmanns, eigi siðar en miðvikudaginn
29. mai nk. Fylgja skal tilkynning um,
hverjir séu umboðsmenn lista.
Yfirkjörstjórn Reykjavikur, 15. mai 1974.
AAatráðskona óskast
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra óskar
eftir matráðskonu að barnaheimili sinu að
Reykjadal i Mosfellssveit i júni, júli og
ágúst. Skriflegar umsóknir berist til
félagsins fyrir 20. mai.
Stjórnin.
Stakir teningar,
póker teningar,
Yatzy blokkir,
spilapeningar,
bikarar
Frimerkjamiðstöðin,
Skólavörðustig 21 A
Sími 21170
Langavoqi
Sími 13008
HUÓMTÆKIN KOMIN
Ótrúleg gœði — ótrúlsgt verð
Laugavegi
Sími 13008