Vísir - 08.07.1974, Síða 10
Vlsir. Mánudagur 8. júll 1974.
Visir. Mánudagur 8. júli 1974.
11
Umsfón: Hallur Símonarson
Ekki hœttur -
síður en svo!
Þaö hefur vakiö undrun
margra, aö Erlendur Valdi-
marsson skuli ekki hafa veriö
meö I þeim frjálsiþróttamótum,
sem fram hafa fariö til þessa i
sumar. Var fólk almennt fariö
aö halda, aö þessi afreksmaöur
okkar væri hættur aö keppa.
„Nei, ég er ekki hættur — siö-
ur en svo” sagöi Erlendur, er
viö spuröum hann aö þessu I
gær. ,,Ég verö meö I Reykja-
víkurleikjunum, sem hefjast á
Laugardaisvellinum I kvöld, og
er þaö fyrsta mótiö, sem ég tek
þátt í nú i sumar.
Ég hef ekki tekiö þátt i mótum
I sumar vegna þess, aö ég taldi
tilgangslaust aö vera aö remb-
ast viö aö æfa og keppa viö þær
aðstæöur, sem boöiö var upp á.
Nú hefur þetta lagazt — maður
fær aö kasta I Laugardalnum
þrisvar I viku, og þessi marg-
þráöi kastvöliur er vist aö fara
aö sjá dagsins Ijós.”
Nokkur von á meti á næst-
unni?.... „Það er varla, ég hef
ekki fengið kast, sem orö er á
gerandi nú upp á slðkastið — en
maöur veit aldrei, hvenær þetta
getur komiö”.
— klp —
Sigruðu Sovét
sinna beztu
Þó aö margir af beztu frjáls-
Iþróttamönnum USA tækju ekki
þátt i landskeppninni viö Sovét-
rikin, vegna innbyröis deilna
bandarisku frjálsiþróttasam-
bandanna, sigruöu Bandarikin
örugglega i karlakeppninni —
hlutu 117 stig gegn 102 stigum
Sovétrikjanna. Keppnin var háö
I Durham i Noröur-Karolinu um
helgina.
Konur kepptu einnig, og þar
sigruðu þær sovézku með yfir-
buröum — hlutu 90 stig gegn 67
stigum USA. Samanlagt hlutu
Sovétrikin þvi 190 stig gegn 184.
Góður árangur náðist viöa.
Ludmila Bragina setti nýtt
heimsmet I 3000 m hlaupi
kvenna — hljóp vegalengdina á
8:52,7 min. og bætti eigiö met
um þrjú sekúndubrot.
Mesta athygli vakti, að
Olympiumeistarinn Valery Bor-
sov varð aðeins 3ji i 200 m
hlaupinu — keppti ekki i 100
metrunum — og að tveir Banda-
rikjamenn fóru fram úr sovézka
spjótkastaranum, Janis Lusis, i
siðustu köstum sinum i keppn-
inni.
Tvitugur spretthlaupari,
Reggie Jones, sigraöi i báðum
spretthlaupunum og var mjög
óvænt, aö hann skyldi sigra nýja
heimsmethafann Sveve Willi-
ams I 100 m. í 200 m fékk hann
slæmt viðbragð, en dró Borsov
uppi og rann fram úr honum á
siðustu metrunum. Sama gerði
einnig Mark Lutz. Allir fengu
sama tima 20,8 sek. — en Jones
hljóp 100 m á 10,2 sek. og Willi-
ams varð annar á 10,3 sek.
Hollendingurinn Arie van Haan er aöeins of seinn til varnar — en hinn þýzki leikmaður á
ara
Gerhard Muller, miöherji Þýzkalands, skoraöi sigurmarkiö i úrslitaieiknum á HM I gær ■
myndinni er Ule Hoeness. Simamynd AP i morgun.
Bezti úrslitaleikur
sögu heimsmeistarokeppninnar
— þegar Vestur-Þjóðverjar sigruðu Hollendinga með 2:1 ó Olympíuleikvanginum í Munchen í gœr.
Stöðug sókn Hollendinga í síðari hólfleik gaf ekki uppskeru.
tJrslitaleikurinn I heims-
meistarakeppninni i Múnchen i
gær haföi allt til aö bera, sem
prýöa má einn knattspyrnuleik —
ótrúlega spennu fram á siöustu
VERZLIÐ ÞAR SEM VARAN ER GOD OG VERÐIÐ HAGSTÆTT
STJÖRNU ★ LITIR
%
Armúla 36 AAálningarverksmiðja Sími 8-47-80
sekúndu, vitaspyrnu á fyrstu
minútu, sem Hollendingar náðu
forustu úr, siöan önnur, sem
Vestur-Þjóöverjar jöfnuöu úr.
Þýzkir yfirburöir i fyrri hálfleik
og forusta I leikhléi 2-1, — siöan
nær stööug sókn HoIIendinga
allan siöari hálfleikinn, en án
árangurs. Sepp Maier bjargaöi þá
liði sinu meö snilldarmarkvörzlu
— og I lokin stóöu vestur-þýzku
leikmennirnir uppi sem sigur-
vegarar,' heimsmeistarar — I
annaö sinn, sem Vestur-Þýzka-
land veröur heimsmeistari I
knattspyrnu I þremur úrslita-
leikjum. Sigur einnig fyrir 20 ár-
um — i Bern 1954 gegn Ungverj-
um. Veröugir sigurvegarar I frá-
bærum leik, sem lengi veröur I
minnum haföur.
Þetta er bezti úrslitaleikur i
44ra ára sögu heimsmeistara-
keppfiinnar, sagði fram-
kvæmdastjóri FIFA, Helmut
Keiser, eftir leikinn —
„draumaknattspyrna” langa
kafla.
Hin þýzka framkvæmdaná-
kvæmni setti þó aðeins niður —
hornfánana vantaði, þegar leik-
urinn átti að hefjast — og hann
hófst þvi tveimur min. of seint.
Ótrúlegt, þegar Þjóðverjar eru
annars vegar. En hvilik byrjun,
þegar leikurinn svo hófst.
Hollendingar byrjuðu með
knöttinn — léku rólega á milli sin
fram á vallarhelming Þjóðverja.
Margar sendingar — siðan
skyndilega hraðinn settur i botn.
Johan Cruyff fékk knöttinn send-
ann inn i vitateig — en gæzlu-
maður hans, Berti Vogts, felldi
hann. Enski slátrarinn frá
Wolverhampton, Jack Taylor,
sem dæmdi leikinn, benti þegar á
vitaspyrnupunktinn. Kjarkmenni
að dæma viti á heimaliðið þegar
eftir 58. sek.
„Ég titraði allur, þegar ég hljóp
að knettinum — það var fyrsta
spyrna min i leiknum” sagði
Johan Neeskens, sem tók vitið
fyrir Holland. Hann skoraði
örugglega — en Sepp Maier, hetja
V-Þýzkalands i leiknum, sagði:
Ég var hissa aö mér skyldi ekki
takast að verja vitaspyrnuna —
en knötturinn fékk aðra stefnu, en
ég reiknaði með, þar sem
Neeskens spyrnti i grasrótina um
leið og knöttinn. Þetta var ekki
viti, sagði fyrirliði V-Þýzkalands
Beckenbauer, atvikið átti sér stað
utan teigsins. 1-0 fyrir Holland.
Þetta var ekki eina atvikið, þar
sem Taylor sýndi fram á að hann
er kjarkmenni. Þremur min.
siðar dró hann fram gula spjaldið
— bókaði Berti Vogts, en þrátt
fyrirþessa byrjun varð Vogts sig-
urvegari i viöureigninni við
Cruyff. „Hann er góður leik-
maður, en mjög ólöglegur”, sagði
Cruyff eftir leikinn. — Við lékum
undirgetu, bætti hann við, eins og
skólastrákar um tima i fyrri hálf-
lei, og þab var ekkert að segja
við hinum þýzka sigri. Ég dró mig
aftur i siðari hálfleik, en sú leik-
aðferð heppnaðist ekki.
En áfram hélt leikurinn og
markið setti vestur-þýzka liðið
ekki úr jafnvægi. Það fór að ná
tökum á leiknum eftir að i byrjun
hafði virzt sem það væri að „elta
skugga”. Þar voru áhorfendur,
sem að miklum meirihluta voru
Þjóðverjar, þeim hjálplegir. Það
var pipt og öskrað á Hollendinga i
hvert skipti, sem þeir voru með
knöttinn — Cruyff sérstaklega i
siðari hálfleik — en svo kváöu við
fagnaðarhrópin, þegar þýzku
leikmennirnir höfðu knöttinn.
„Hollendingar kvörtuðu mjög
undan þvi hvernig miðarnir á
leikinn voru seldir”, sagði þulur
BBC.
Kantmennirnir þýzku, Hoeness
og Hoelzenbein, fóru að gera usla
i vörn Hollands — og bakvörður-
inn hættulegi Paul Breiter átti
skot, sem Jongbloed varði i horn.
Þá var van Hanegem bókaður —
Hollendingar viluðu ekki fyrir sér
að brjóta á sóknarmönnum
Þýzkalands. A 25. min. lék
Hoelzenbein i gegn — en Janssen
braut á honum. Viti. Bakvörður-
inn skeggprúði stillti knettinum á
punktinn. — Ég átti eiginlega ekki
að taka vitið, sagði Breitner á
eftir, en ég var næstur knettinum
Framhald á bls. 12
Milljónir Vestur-Þjóðverja
voru enn I hátiðarskapi i morgun
— gleöskapurinn hófst þegar eftir
úrslitaleikinn og það var algjör
„karneval-semning” um allt land
eftir að Vestur-Þjóðverjar voru
orðnir heimsmeistarar. Sumir at-
burðirnir hafa haft sorglegan
endi — cn þýzka lögreglan hefur
séð i gegnum hendur sér i sam-
bandi við margt sem skeö hefur á
þessari gleöinnar stund.
A elliheimili i Mainz — rétt við
Frankfurt — fékk gamall maður
hjartaslag, þegar Johan
Neeskens skoraöi úr vitaspyrnu
Hollands á fyrstu minútu leiksins.
Ungt par i Hannover reiknaði
með að allir íbúar borgarinnar
væru uppteknir af úrslitaleiknum
og sjónvarpssendingum frá hon-
um. Þau brustust þvi inn i mat-
vörubúð — en einasti maðurinn i
götunni, sem ekki hafði áhuga á
fótbolta, sá til þeirra og kallaöi I
lögregluna. Hún kom á vettvang,
þegar pariö var aö yfirgefa
verzlunina með „fullan” bil af
vínflöskum og matvörum. Margir
hafa lofað ýmsu ef Vestur-
Þjóðverjar sigruðu — frium bjór
og öli, jafnvel sterkari drykkjum,
og enn I morgun var stöðugur
straumur á þessa staði. Vestur-
Þýzkaland er undirlagt af gleði.
Sama er ekki aö segja um Hol-
land — þar var viða sorg, og i
staðinn fyrir dans á götum sátu
sjónvarpsáhorfendur áfram við
tæki sin og reyndu að „gleyma”.
Ekki þó allir — tveir náungar,
annar i Nijmegen hinn i
Vageningen — köstuðu sjón-
varpstækjum sinum út á götu og
mölbrutu þau, þegar dómarinn
hafði blásið i leikslok. Þá fengu
tveir Iiollendingar hjartaslag við
tæki sin.
Komst tvisvar á
verðlaunapallinn!
— Steingrímur Davíðsson stóð sig vel
á Norðurlandamóti unglinga í sundi
Steingrimur Daviösson, piltur
inn ungi úr Kópavogi, stóö si{
mjög vel á Noröurlandamóti ung
linga I sundi, sem fram fór
Karlsstad i Sviþjóö um helgina
Hann hlaut silfurverðlaun I 100 m
bringusundinu og varö I þriöj:
sæti I 200 m bringusundinu.
Það var Sviinn Uld Dernhagen,
sem sigraði Steingrim á báðum
vegalengdum. í gær synti hann
lOOmá 1:14.2 min. Steingrimur
varð annar á 1:16.1 min. og Jan
Færgh, Sviþjóð þriðji á 1:17.5
min. í 200 m. bringusundinu sigr-
aði Ulf á 2:14.93 min. Færgh varð
annar á 2:45.12 min. og
Steingrimur 3ji á 2:45.72 min.
Sænska sundfólkiðhafði algjöra
yfirburði á mótinu — sigraði i 25
af 28 greinum, sem keppt var i.
Finnland hlaut tvenn gullverð-
laun, og Danir ein — Norðmenn
urðu þvi af gulli eins og við — og
urðu að láta sér nægja fern
silfurverðlaun. Agætur árangur
náðist i keppninni og nokkur
landsmet sett — einkum hjá
norsku keppendunum.
r r
ERU OANÆGÐIR MED
FURDUVÆGAN DÓM!
Við sögðum frá þvi um daginn,
að einum af leikmönnum Leiknis
hafi verið visað af leikvelli i leik
Þróttar og Leiknis i öðrum Aust-
fjarðariðlinum fyrir að stjaka
við dómaranum, og siðan að rifa
rauöa spjaldið hans I tætlur, er
hann visaði honum útaf fyrir til-
tækið.
Aganefnd KSl hefur nú fjallað
um málið og fékk leikmaðurinn,
sem heitir Eirikur Stefánsson,
aðeins einn leik i keppnisbann
fyrir þetta alvarlega brot.
Knattspyrnudómarar á Aust-
fjörðum eru yfirleitt mjög óán-
ægðir með þennan dóm Aga-
nefndar — segja hann allt of
vægan, þvi að þarna hafi gerzt al-
varlegur atburður. Hafa þeir haft
á orði, að þeir muni mótmæla
honum á einhvern eftirminni-
legan hátt, en hvernig það veröur
gert, hafa þeir ekki látið uppi.
klp-
Grzengorz Lato
markakóngur HM
Grzegorz Lato, sem skoraöi
sigurmark Póllands I leiknum
gegn Brasiliu á laugardaginn,
varö markhæsti maöur HM-
keppninnar.
Hann skoraöi 7 mörk I keppn-
inni — tveim mörkum meira en
næstu menn, sem voru þeir Johan
Nesskens, Hollandi, og Andzej
Szarmach, Póllandi, sem voru
báöir meö 5 mörk.
Annars litur taflan fyrir mark-
hæstu menn HM-keppninnar
svona út:
Grzegorz Lato, Pólland 7
Johan Neeskens, Holland 5
Andrzej Szarmach, Póll. 5
Ralf Edström, Sviþjóð 4
Gerd Muller, V-Þýzkal. 4
Johnny Rep, Hollandi 4
Johan Cruyff Hollandi 3
Rivellino, Brasiliu 3
PaulBreitner, V.Þýzkal. 3
Kazmierz Deyna, Póllánd 3
ReneHouseman, Argentina 3
Sepp Maier
stórkostlcg markvarzla.
HM-lið AP
Fréttamenn AP, sem fylgzt hafa meö
heimsmeistarakeppninni, völdu eftir keppn-
ina tvö lið — þaö sem að þeirra áliti voru
beztu menn I hverja stööu. Niðurstaðan varö
þannig: Fyrsta liðið. Hellström, Sviþjóö,
Vogts, V-Þýzkalandi, Pereira, Braziliu,
Beckenbauer, V-Þýzkalandi, Breitner, V-
Þýzkalandi, Neeskens, Hollandi, Babington,
Argentinu, Overath, V-Þýzkalandi, Rcp og
Cruyff, Hollandi, og Gadocha PóIIandi.
Annað liðið: Tomaszweski, Póllandi,Suurbi-
er, HoIIandi, Figueroa, Chile, Gorgon, Pól-
alndi, Buljan.Júgóslaviu, Bremner, Skot-
landi, Rivellino, Brazilíu, Marinho, Braziliu,
Lato og Szarmach, Póllandi og Sandberg,
Sviþjóð.
V-Þjóðverjar
drengilegastir
Vestur-þýzka landsliöið varð ekki aðeins
heimsmeistari i knattspyrnu, heldur hlaut
það einnig bikar þann, sem forseti V-Þýzka-
lands gaf og afhcntur var þvi liði, sem sýndi
„drengilegastan” leik. V-Þýzkaland hlaut
þar 32 stig. Pólland varö I ööru sæti meö 30
stig. Þá HoIIand meö 26 stig og Sviþjóö I
fjórða sæti meö 30 stig. Þá Holland meö 26
stig og Sviþjóð i fjórða sæti með 25 stig. V-
Þýzkaland og Pólland sigruðu í sex leikjum I
keppninni —töpuöu aðeins einum hvort land
— og ekkert land komst I gegnum HM án
þess að tapa leik. Holland vann fimm leiki —
eitt jafntefli gegn Svium og svo tap i siðasta
leiknum.
Fó stórkostlegar
móttökur í dag!
Þrátt fyrir tap i úrslitaleiknum verður hol-
lenzku leikmönnunum fagnað með stórkost-
legri móttöku, þegar þeir koma heim til Hol-
lands i dag. Stóri flugvöllurinn i Amsterdam
verður notaður i þvi sambandi — jafnvel
„stórmenni” eins og Bernard prins og Kurt
Waldheim, framkvæmdastjóri SÞ, verða að
lenda á öðrum flugvöllum, er þeir koma til
Hollands i dag. Farið verður með hollenzku
leikmennina um götur Amsterdam, þar sem
talið er að mikill fjöldi muni hylla þá, og svo
verður haldið til ráðhússins i Haag, þar sem
rikisstjórnin heldur veizlu fyrir leikmenn.
Eins og kunnugt er, hefur Holland ekki fyrr
komizt i úrslit á HM.
Miðaverðið féll,
féll og féll!
Braskarar með miða á úrslitaleik HM
fengu skell margir hverjir, þegar þeir sátu
uppi með miða áúrslitaleikinn i lokin — gáfu
jafnvel frá sér miöa eftir aö leikurinn var
hafinn. 1 siöustu viku var miðaveröið komið
upp i 60 þúsund krónur — cn „sölumennirnir”
vildu litið selja. Biöu þcir fram á úrslita-
daginn og eftir „innrás” Hollendinga. En þaö
komu ekki nema 3000 Hollendingar — og
þegar úrslitastundin nálgaðist I gær, voru
miðarnir fallnir heldur betur — seldir á
tvöföldu verði, og þegar klukkan nálgaðist
þrjú, var hægt að fá miöa fyrir þaö, sem
braskararnir keyptu þá á upphaflega.
Agirndin varö þvi mörgum braskaranum aö
falli þarna i Múnchen.