Vísir - 08.07.1974, Blaðsíða 12
12
Vlsir. Mánudagur 8. júli 1974.
HB
Akureyringar gáfu þjálfara
sínum beztu afmœlisgjöfina
Leikmenn 1. deildarliös
Akureyrar gáfu hinum danska
þjálfara sinum, Jack Johnsons,
góöa afmælisgjöfá laugardaginn,
en þá átti hann fimmtugsafmæli.
Þeir sigruöu eitt af efstu liöunum
I deildinni — KR — meö þrem
mörkum gegn tveimur........ og
skoruöu öll mörkin i leiknum
sjálfir.
Þeir tóku leikinn mjög alvar-
lega og voru strax ákveönir i aö
gera sitt bezta. Þeir áttu llka mun
meir I leiknum — sérstaklega i
fyrri hálfleik, en þá sóttu þeir
mikið og áttu mörg tækifæri til aö
skora.
Ekkert gekk i þá áttina fyrr en
á 36. mín., að Sigbjörn Gunnars-
son tók hornspyrnu og Siguröur
Lárusson skallaöi i netiö,— Þetta
var fyrsta mark Akureyringa á
heimavelli i ár.
Og ekki var löng bið eftir næsta
marki. Aftur var Sigbjörn á
ferðinni — I þetta sinn með góða
sendingu á Jóhann Jakobsson,
sem skoraði með hnitmiðuðu
skoti.
KR-ingar komu mun ákveðnari
til leiks i siðari hálfleik og sóttu
þegar fast. A 7. mln. hálfleiksins
bar sókn þeirra ávöxt — vinstri
útherji — nafnið vissu bara KR-
ingar, þvi númerið sást ekki
vegna þess að skyrtan huldi það,
skaut að marki Akureyringa.
Steinþór Þórarinsson ætlaði að
bjarga, en tókstekki betur en svo,
að hann sendi boltann I eigið
mark.
Við markið hljóp enn meira
kapp i KR-inga, og þeir fengu
a.m.k. tvö gullin tækifæri til að
skora. Það tókst þeim ekki, en
aftur á móti gerðu Akureyringar
það.
Var það fallegasta mark
leiksins — og liklega það eina,
sem sást verulega fallegt i þess-
um leik. Framlina Akureyringa
spann sig þá i gegnum KR
vörnina og lauk samleiknum með
fallegri sendingu Arna Gunnars-
sonar á Gunnar Blöndal, sem tók
boltann viðstöðulaust og af-
greiddi hann i netið.
KR-ingarnir voru ekki á að
gefast upp við þetta og héldu
áfram að berjast. Þeim tókst að
minnka bilið á siðustu sekúndu,
en Benedikt markvörður sló
boltann inn i markið hjá sér eftir
vel tekna hornspyrnu.
Sigur Akureyringa var
sanngjarn i þessum leik. Þeir
voru mun liflegri en áður og
ákveðnir á boltann. Þeirra beztu
menn voru þeir Siguröur Lárus-
son, Gunnar Blöndal og Sigbjörn
Gunnarsson, sem var með góðar
sendingar.'
KR-ingar vöktu enga hrifningu
frekar en oft áður á Akureyri —
og liklega enn minni nú. Liðið
leikur leiðinlegan fótbolta og þar
að auki grófan. Sá eini, sem eitt-
hvað skar sig úr hjá þeim i þess-
um leik, var Atli Þór Héðinsson.
Hinir voru allir ósköp áþekkir.
Dómari leiksins var Þorvarður
Björnsson, og hefur hann oft
dæmt betur á Akureyrarvellinum
en i þetta sinn.
A.E.
Hann er enn að tala við þá. Viov
verðum að gera eitthvað.
3"
Bezti úrslitaleikurinn
Framhald af 11. siðu.
og allt i einu datt mér i hug, að
enginn annar skyldi fá að taka
það. Hoeness eða Muller er
vitakóngur liðsins — en, bang,
knötturinn lá i markinu 1-1
Eftir jöfnunarmarkið náði
þýzka liðið yfirhöndinni — sýndi
snilldarknattspyrnu og það var
aðeins spurning hvenær það
skoraði. Bonhof, sá þýzki leik-
maðurinn, sem langmest hefur
komið á ovart, og Overath léku
Vogts alveg frian, en Jongbloed
varði skot hans — og svo náði V-
Þýzkaland forustu á 43. min.
Skyndisókn, tveir sóknarmenn
gegn tveimur varnarmönnum,
Bonhof sendi knöttinn á Gerd
Muller og sá „litli” var ekki lengi
að senda knöttinn i mark — raun-
verulega i eina skiptið, sem hann
slapp frá hollenzku varnar-
Brazilíumenn fóru
heim tómhentir!
— Pólverjar sigruðu í keppni um 3ja sœtið á HM
Pólverjar hlutu þriöju verölaur
i hcimsmeistarakeppninni, sendv
braziliskuheimsmeistarana heim
tómhenta, þegar þeir sigruöu
Braziliu 1-0 á Olympluieikvang-
inum I Munchen á laugardag, aí
viöstöddum tæplega 80 þúsund
áhorfendum. Eina mark ieiksins
skoraöi Lato, þegar 15 mln voru
til leiksloka. Þaö var sjöunda
mark hans IHM, og varö hann þvi
markhæstur leikmanna. Næstii
PUMA —
ÆFINGAGALLAR
Verð frá kr. 3000
5400
Póstsendum.
Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarssonar
hiippantlg M — Slml 11783 — RaykJavOi
komu þeir Szarmack, PóIIandi oj
Neeskcns, Hollandi með fimm
mörk hvor.
Leikurinn var afar litlaus og til
mikilla vonbrigða fyrir hina fjöl-
mörgu áhorfendur eftir alla leik-
ina skemnrtilegu vikurnar á und-
an. En slik ; er segin saga,þegar
keppt er um 3ja sætið — liðin sem
þá leika, hafa ekki náð sér eftir
vonbrigðin að hafa ekki komizt i
úrslit.
Pólland hafði fjóra leikmenn i
liði sinu, sem urðu Olympiu-
meistarar á sama velli 1972, og
sýndi yfirleitt betri’ leik en brazi-
lisku leikmennirnir. Miðherji
pólska liðsins Szarmach átti þó
slakan leik — og var greinilega
ekki búinn að ná sér eftir meiðsl-
in, sem hann hlaut og urðu til
þess, að hann missti af hinum
þýðingarmikla leik við V-Þjóð-
verja sl. miðvikudag. Hann var
tekinn út af I byrjun siðari hálf-
leiks.
Brazilia fékk sitt bezta tæki
færi á 62. min, þegar Jairzinho
fékk knöttinn aðeins sex metra
frá marki — en spyrnti knettin-
um i stöngina — og 10 min siðar
komst Valdomiro i gegn, en á sið-
ustu stundu tókst Kasperczak að
ná i peysu hans og hélt honum
föstum. Dómarinn sýndi honum
gula spjaldið — áminning, en
flestir áhorfenda álitu, að hann
hefði átt að fá það rauða — brott-
vikningu. En svo skoraði Lato
mark sitt — og á siðustu min.
bjargaði Leao glæsilega skoti frá
þessum hættulega framherja og
flestir voru dauðfegnir þegar
leiknum lauk.
Pólverjar geta vissulega verið
ánægðir með frammistöðu sina á
HM. Þeir unnu alla leiki — nema
einn, gegn vestur-þýzku heims-
meisturunum, og þeir skoruðu
flest mörk allra liða i keppninni.
Sigurinn á laugardag var vissu-
lega verðskuldaður.
— Nei, ég er ekki hræddur að
fara heim til Braziliu aftur, þó að
við höfum ekki aðeins tapað
heimsmeistaratitlinum, heldur
3ju verðlaununum lika, sagði
þjálfari braziliska liðsins, Zagalo,
eftir leikinn. Það hafa fyrr verið
þjálfarar hjá Braziliu, sem tapað
hafa HM-leikjum, og eru allir á
lifi. Ég hef ýmislegt að benda á —
heimsmeistaratitil 1958 og liðs-
stjórn 1970. Það var skiljanlegt að
leikurinn væri slakur — það er
ekki hægt að ná upp stemmningu
fyrir slikan leik. Við komum aftur
eftir 4 ár i Argentinu — ekkert
land „framleiðir” jafn mikið af
góðum leikmönnum og Brazilia.
Ég er ánægður að viö höf-
umsýnt fram á, að sóknarleikur á
enn rétt a sér i alþjóðlegri knatt-
spyrnu, sagði þjálfari Pólverja.
Gorski — synd, að við skyldum
ekki leika við Hollendinga i úrslit-
um. Blaðamenn báðu hann að
velja fimm beztu leikmennina á
HM og hann varð við þvi: Johan
Cruyff, Hollandi, Franz Becken-
bauer, V-Þýzkalandi, Sanro
Mazzoía, Italiu, den Hanegan,
Hollandi og Deyna, Póllandi.
— hslm.
mönnunum, þar sem Rijsbergen
gætti hans mjög vel, þar til hann
varð að yfirgefa völlinn I s.h.
vegna meiðsla. Þá tók Janssen
við hlutverki hans — en sóknar-
maður settur inn, de Jong. í leik-
hléi var Resenbrink tekinn út af
og Kerkhof kom i stað hans.
Resenbrink var greinilega ekki
„heill” eftir meiöslin, sem hann
hlaut gegn Braziliu. Þá skeði það
atvik, þegar liðin voru að fara af
velli i leikhléinu, að Cruyff var
bókaður. Hann fór að tala við
Taylor, dómara, sem bandaði
honum frá sér — en Cruyff hélt
áfram, þar til Taylor dró fram
gula spjaldið. Slöast i hálfleikn-
um kom Beckenbauer mjög við
sögu — var nærri að skora báðum
megin, fyrst úr aukaspyrnu, og
svo i eigið mark, en knötturinn fór
rétt framhjá stöng.
Hollendingar komu inn á eins
og „hungraðir úlfar” i siðari hálf-
leiknum. Eftir fyrstu sóknar-
lotuna, sem var þýzk, og Bonhof
skallaði rétt framhjá, yfirtóku
þeir leikinn. Allt var miðað við
sóknina — og þá slapp þýzka
markið oft furðulega. Fyrst þegar
Maier yfirgaf mark sitt á röngum
tima eftir hornspyrnu — Kerkhof
spyrnti i markið, en Breitner
tókst að skalla frá marklinu.
Þrisvar sýndi Maier stórkostlega
markvörzlu — varði frábæran
skalla frá Hanegem, siðan
kastaði hann sér á fætur
Neeskens og náði knettinum — en
mesta afrekið vann hann, þegar
Cruyff skallaði knöttinn fyrir fæt-
ur Rep, sem var 3-4 metra frá
marki. Hörkuskot hans varði
Maier i horn — og Rep átti tvi-
vegis skot, sem struku stangir —
að utanverðu.
Já, Hollendingar sóttu mjög en
allt kom fyrir ekki — Maier og
þýzku vörnina réðu þeir ekki við
og undir lokin greip talsvert
vonleysi um sig meðal þeirra.
Þýzka liðið var af og til hættulegt
i skyndisóknum — Muller sendi
knöttinn i mark Hollands, en var
rangstæður, og yfirleitt var rang-
stöðutaktik Hollendinga frábær I
leiknum. Eins og „einn heili” hjá
varnarmönnunum — en fimm
min. fyrir leikslok sluppu Hol-
lendingar vel. Hoelzenbein var
felldur innan vitateigs — það virt-
ist greinilegt viti, sagði þulur
BBC, en nú var Taylor búinn að fá
nóg af svo góðu i sambandi við
viti, og dæmdi ekkert. Leiktiminn
rann út — fögnuður var geysileg-
ur, þegar vestur-þýzku leik-
mennirnir tóku við verðlaunum
sinum úr hendi kanslarans eftir
leikinn---og Hollendingum var
einnig fagnað mjög, þegar þeir
fengu „silfrið”.
1 leiknum fékk Vestur-Þýzka-
land 9 hornspyrnur, 17 auka-
spyrnur eftir brot, 1 vítaspyrnu,
eina aðvörun (Vogts) — átti sjö
skot á mark, fjögur framhjá og 6
aukaspyrnur aðrar. Holland fékk
11 hornspyrnur, 12 aukaspyrnur,
1 vitspyrnu, þrjár aðvaranir
(Hanegem, Cruyff og Neeskens),
— átti lOskotá mark, fimm fram-
hjá og 16 aukaspyrnur.
-hsim.
Tveir reknir út af!
— er Ármann sigraði Völsung í 2. deild
Armenningar fögnuðu inni-
lega, þegar þeir sigruðu Völsunga
frá Húsavik í 2. deildinni á Ar-
mannsvellinum á iaugardaginn.
Þeir töldu fullvist, að þessi sigur
nægði þeim til að komast úr
fallhættunni, en það var öðru nær.
ísfirðingar léku einnig stóran leik
og náðu sér I tvö stig, þannig að
staðan er áfram sú sama fyrir
Armann.
Þeir léku vel á móti Völsungum
— voru með nýja leikaðferð, sem
hinir áttuðu sig ekki á — og óðu I
gegnum vörnina hjá þeim hvað
eftir annað.
Þeir skoruðu mark á 15. min.
Jens Jensson var þar að verki.
Húsvikingarnir jöfnuðu snemma i
siðari hálfleik, Július Bessason
skoraði, eftir að boltinn hafði ver-
ið að þvælast milli hans og annars
sóknarmanns Völsunga við
markið, — og ætluðu þeir aldrei
að koma honum i netið.
Mikið kapp hljóp I liðin við
þetta mark, og var allt gert til að
ná forustunni. Það tókst Ar-
menningum loks á lokaminútum
leiksins, er einn Völsungurinn
greip boltann á marklinu. Halldór
Björnsson fyrrum þjálfari
Völsunga, tók vitaspyrnuna.
Hann þekkti réttu leiðina fram
hjá markverði Völsunga I svona
tilfellum og skoraði örugglega
sigurmark Ármanns i leiknum.
Mikið kapp var i sumum leik-
mönnunum — og vináttan ekki
mikil. Nokkrum sinnum sauð upp
úr — einu sinni svo vel, að dóm
arinh visaði tveim leikmönnum
út af. Voru það þeir Hermann
Jónasson og Viggó Sigurðsson,
sem höfðu heldur betur orðið
ósáttir og létu fætur og hendur
kanna getu hvor annars. -klp