Vísir - 22.07.1974, Page 20

Vísir - 22.07.1974, Page 20
VISIR Mánudagur 22. júli 1974. Þjóðhátíðir að Búðum og í Hafnarfirði: Minnismerki um Öm Arnarson ÞjóOhátiðin á Búöum var I alla staöi eins vel heppnuö og mögu- legt var. Er þaö mál manna, aö Snæfellingar ættu aö halda árlega hátiö á Búöum héöan i frá. Ýmis skemmtiatriði voru þar á meðal t.d. frumsaminn poppleik- ur „Kyljur”. Fjallar hann um Bárðar sögu Snæfellsás. Textann samdi Kristinn Kristjánsson frá Hellissandi, en lögin 3 ungir piltar frá sama stað. Guðrún A. Simon- ar söng, og sýning hestamanna á þarfasta þjóninum vakti verö- skuldaða athygli. Veðrið var mjög gott. Ekki sást vin á nokkr- um manni. t Hafnarfiröi fór þjóðhátiðin fram i bezta veöri. Heiöursmerki sjómanna var vigt, og afhjúpaöi Rannveig Vigfúsdóttir ekkja Sigurjóns Einarssonar skipstjóra merkiö. Þá var annað minnis- merki gamalt akkeri vigt, er þaö um örn Arnarson skáld. Byggða- safn var opnað i húsi Bjarna ridd- ara Sivertsen, og var opnuð um leið sýning á sjóminjum i næstu húsum. Þá var sýning á bilum og tækjum á Thorsplani. —- EVI. Framsóknar- menn rœða bréf Geirs Þingflokkur Framsóknar- flokksins mun koma saman i dag kl. 16 og verður þá fjallað um bréf Geirs Hallgrimssonar frá þvi á föstudag, þar sem óskað er eftir viðræðum við flokkinn um sam- vinnu við stjórnarmyndun. Al- þýðuflokkurinn mun einnig boða til fundar i þingflokki sinum, en ekki er Visi kunnugt um hvenær sá fundur verður haldinn. Nánari frétta af stjórnarmynd- un er þvi ekki að vænta fyrr en þessir flokkar hafa tekið ákvörð- un á fundum sinum.— JBP — Höldum sólinni að minnsta kosti í dag! Menn geta aö öllum likindum notiö sólarinnar I Keykjavlk I dag. Þaö er bara verst, aö þaö skuli vera mánudagur, þvi þá eru flestir borgarar við vinnu. Veöur- guðir hefðu mátt vera örlltiö hag- sýnni og leyfa sólinni að skina um heigina. En hvaö um þaö, veöurfræöing- ar spá noröan eða noröaustan kalda i dag, og bjart veður aö mestu. Þessi spá gildir um Reykjavik og nágrenni. Noröan átt er ríkjandi á landinu og I morgun var noröaustan kaldi og svolitil rigning noröanlands. Austanlands var hægara en á Vestfjörðum var skýjaö. — EA. . „MJÖG LEIÐUR YFIR ÞESSU" — sagði Taylor skipstjóri í morgun við fréttamann Vísis ó Seyðisfirði — Kona Taylors fékk taugaófall er hún fékk fréttir af atburðinum ,,Ég er mjög leiður yfir þessu, en að öðru leyti vil ég ekkert tjá mig um máiið. Ég hef fyrirmæli frá eigend- um skipsins um að segja ekkert fyrr en réttarhöldunum er lok- ið”,sagði RichardTayl- or skipstjórinn á togar- anum C.S. Forester er blaðamaður Visis ræddi við hann um borð i skipi hans. Taylor sagði samt að hann vildi aö réttarhöldin tækju sem allra styztan tima vegna þess að ef togarinn yrði lengur I höfn en 2-3 daga yrði sumt af fiskinum ónýtur, þegar til Englands kæmi. Hann sagðist ekki búast við að afli eða veiðarfæri yrðu tekin af honum, þótt dómur félli á þann veg að afli og veiðarfæri skuli gerð upptæk, heldur bygg- ist hann við að þau yrðu metin og síðan fengi hann að fara. Kona Taylors fékk taugaáfall, erhún frétti af viðureigninni, en Taylor sagði að hún væri á bata- vegi. Hann sagði að þegar varð- skipið hefði komið að þeim i fyrstu hefði hann veriö sofandi i herbergi sínu. Hann sagðist samt vita að það skyti honum ekki undan ábyrgð á landhelgis- brotinu. Formleg kæra kemur til bæj- ^ arfógetans, Erlends Björnsson- ar, um hádegi. Sagði Erlendur að mjög erfitt væri að segja hversu langan tima málið tæki. Ef sakborningurinn játar alveg strax þá gæti dómur jafnvel verið fallinn á morgun. Ef játn- ing liggur ekki fyrir yfirheyrslu þarf að leiða fram vitni og rann- saka málið. Fulltrúi saksóknara Bragi Steinarsson kemur til Seyðisfjarðar um hádegi. Er- lenduf sagði að vanalegast væri að I brotum sem þessum væri afli og veiðarfæri gerð upptæk, togarinn er með um 200 tonn, en sektin færi eftir stærð skipanna. Hann vildi þó ekki gizka á nein- ar tölur. Réttarhöldin byrja kl. 3. Brezku togarasjómennirnir eru mjög óhressir yfir að vera á Seyðisfirði. Þeir eru ekkert á- nægðir með viðtökur fólksins. Var þeim meinaður aðgangur að veitingastað þar sem þeir ætluðu að fá sér kaffi. Hvar- vetna eru þeir litnir hornauga, þó að ekki hafi þeir orðið fyrir aðkasti. ÓH/EVI. „Hefði ekki hœtt fyrr en togarinn var sokkinn eða stöðvaður" „Meiningin meö eftirförinni og skothrföinni var aö stoppa skipiö og ná brotamanninum. Ég, heföi ekki, hætt fyrr en togarinn var annaöhvort sokk- inn eöa stöövaöur”, sagöi Höskuldur Skarphéöinsson, skipherra á Þór, er hann var spuröur hvert takmarkiö heföi veriö. Hann sagðist hafa stefnt aö þvi fyrst að skjóta á stýrisvél- ina, siðar datt þeim i hug að skjóta á aöalvélina og I þriðja lagi að skjóta neðansjávar, þannig að sjór færi i vélarrúm- ið. Það vakti athygli, hvað Höskuldur sendi marga vopn- aða menn um borð i togarann. Hann sagði, að ástæðan fyrir þvi væri, að eir.u sinni hefði hann lent i þvi sem stýrimaður að vera sendur um borð I togara, sem sigldi siðan með hann innanborðs til Englands. Þess vegna tæki hann enga áhættu hvað það snerti. „Það er að sjálfsögðu ekki góð liðan að taka ákvörðun, sem jafnvel getur leitt til mann- skaöa”, sagði Höskuldur, þegar hann var spurður að þvi, hvernig honum hefði liðiö að gefa þessar fyrirskipanir. Skytturnar um borð, Friðgeir Olgeirsson og Guöjón Arn- grlmsson, sögðu, að ef nokkrir hefðu veriö hræddir á meöan á þessu stóð, þá væru það þeir, sem stóðu á bak viö byssuna og áttu á hættu að eiga mannslif á samvizkunni. Fróðir menn segja, að kraft- urinn af skotunum sé svo mikill, að þegar kúlan fer inn I hlið skipsins, kemur hún út hinum megin. Þyrfti ekki fleiri en 20-30 kúiur til að taka skipið I tvennt. Skemmdir inni I togaranum eru mjög miklar. Kúlur hafa rif- ið og tætt og þar sem er litið og sakleysislegt gat utan frá að sjá eru skemmdirnar öllu meiri innanborðs. Mæfti llkja þvl við, að skotið hefði verið úr risa- stórri haglabyssu. — ÓH/EVI. Kúlnagötin á hinum glæsilega togara Taylors (Ljósm. Vfsis ólafur Hauksson.) Stefnan tekin á ísland Kannski heföi fréttamynd af landnámsmönnum aö halda af staö úr sinum norsku heima- byggöum fyrir 1100 árum oröiö eitthvaö i líkingu viö þessa. NTB sendi myndina um heigina, en hún sýnir þegar teinæringar létu I haf frá Rivedal i Fjaler viö Sunnfjörd i Noregi. Einmitt þaöan er taliö aö Ingólfur Arnarson hafi látiö i haf á sinum tima I þvi skyni aö gerast ts- lendingur. örn og Hrafn heita bátarnir, sem eru nú komnir vel á vcg og samkvæmt nýjustu fréttum frá þeim gengur allt bærilega. Hingað koma bátarnir 4. ágúst n.k. — JBP.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.