Tíminn - 19.04.1966, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 19. apríl 1966
RdHQOH TÍMINN ÍÞRÓTTIR
13
KR fallið
í 2. deild?
Fátt getur hindrað fall liðsins úr þessu
Alf-Reykjavík, mánudag.
Fátt virðist nú geta hindrað,
að KR leiki í 2. deild í íslandsmót-
inu í handknattleik næsta ár. Ár-
menningar kræktu í tvö þýðingar-
Sveit ÍR vann
Steinþórsmótið svokallaða, sem
er 6 manna sveitakeppni í svigi,
var háð í Hamragili við ÍR-skál-
ann s.l. sunnudag og hófst keppn-
in kl. 2 e.h Úrslit urðu þau, að
sveit ÍR sigraði á samanlögðum
tíma 721,5 sek.
í sveit ÍR voru þeir Eyþór
Haraldsson, Guðni Sigfússon, Har-
aldur Pálsson, Sigurður Einarsson
Framhald á 14. síðu.
mikil stig gegn Haukum á sunnu-
dagskvöld og hafa með því hlot-
ið 6 stig, en KR er á botninum
með 4 stig og hefur Ieikið alla
sína leiki. Einasta von KR er, að
félagið vinni kæruna vegna leiks-
ins við FH og sigri í endurtekn-
um leik.
En þótt KR vinni kæruna, er
mjög ósennilegt, að liðið vinni FH
og svo er því við að bæta, að
Ármann á eftir einn leik, gegn
Val, og gæti hæglega hlotið stig
út úr þeim leik.
Kannski verður fall til þess, að
KR gerir átak í handknattleiks-
málum sínum. KR á marga hæfa
menn í stjórn handknattleiksdeild
arinnar og ættu þeir að leggja
áherzlu á yngri flokkana, en þar
er KR í miklum öldudal og fær
Framhaid á bis. 15.
Fram-stúlkurnar björg
uðu Ármanní frá falii
Alf-Reykjavík, mánudag.
Nú er öllum leikjum í 1. deild-
ar keppni kvenna í handknattlefk
Iokið, nema hvað Valur og FH
eiga eftir að leika úrslitaleikinn,
og ljóst að Breiðablik er fallið
niður í 2. deild.
Á laugardagskvöld voru leiknir
tveir leikir í deildinni og mættust
LEK SINN
150. LEIK
Áður en leikur Ármanns og
Víkings í 1. deild kvenna hófst
að Hálogalandi sl. laugardags-
kvöld afhenti fyrirliði Víkings-
Sigríði Kjartansdóttur Ár-
manni, fagran blómvönd í til-
efni af því, að þessi leikur var
hinn 150. í röðinni, sem Sigríð-
ur lék með meistaraflokki Ár-
manns.
Sigríður hefur um mörg ár
leikið með meistaraflokki Ár-
manns við góðan orðstír og orð
ið íslandsmeistari með félag-
inu. Hún hefur einnig tekið þátt
í landsleikjum með góðum ár-
angri. íþróttasíða Tímans ósk-
ar Sigríði til hamingju með
þennan áfanga á íþróttaferli
sínum. — alf.
Armann og Víkingur í fyrri leikn-
; um. Víkingur sigraði með 9:6 eft-
ir hörkuspennaniii leik, og var
því ljóst, að allt var undir Fram
komið, hvort Ármann héldi sæti
j sínu í 1. deild, en Ármann var
i með 2 stig, næst neðst, aðeins
1 Breiðablik var með færri stig, 1
stig. Og í síðari leiknum áttu
Breiðablik og Fram að leika og
tækist Breiðablik að sigra var Ár-
mann dottið.
Það leit sannarlega ekki út fyr-
ir, að Ármann mundi halda sæti
sínu í 1. deild eftir fyrri hálfleik-
inn hjá Fram og Breiðablik, en
Breiðabliksstúlkurnar höfðu sýnt
skínandi leik og höfðu jdir 6:3.
En staðan átti eftir að breytast,
og einnig vonleysissvipurinn á Ár-
manns-stúlkunum, því Fram-stúlk-
urnar tókg, leikinn í sínar hend-
ur í síðari hálfleik og unnu hann
8:1. Urðu því lokatölurnar 11:7.
Með þessum úrslitum voru
Breiðabliksstúlkurnar fallnar nið
ur í 2. deild, en þeim til huggun-
ar skal sagt, að ekkert kvennalið
hefur tekið eins mikhim framför-
um í vetur og lið þeirra. Nú er
um að gera fyrir þær að leggja
ekki árar í bát, heldur stefna að
því að vinna sæti í 1. deild aftur
að ári.
Eftir sigur gegn S<bke City á
laugardag skortir Liverpool nú
aðeins eitt stig til að hljóta meist-
aratitil, því helzti keppinauturinn,
Burnley, tapaði á sama tíma fyrir
Aston Villa. Baráttan á botninum
harðnar stöðugt. Endanlega er nú
útséð að Blackburn fellur niður,
en stóra spurningin er, hvaða lið
annað dettur. Hér koma úrslitin
á laugardag:
1. deild:
Aston ViHa — Burnley 2rl
Blackpurn — WBA 0:1
Blackpool — Nottingh. F. 0Æ
Fulham — Sheff. W. 4r2
Leeds — Everton 4:1
Leicester — Newcastle 1:2
Liverpool — Stoke 2:0
Sheff Utd. — Manch. Utd. 3:1
Sunderland — Ohelsea 2:0
Tottenham — Northampton 1:1
West Ham — Arsenal 2:1
2. deild:
Bristol C. — Ipswich frestað
Bury — Preston 5:0
Cardiff — Middlesbro frest
Coventry — Birmingham 4:3
Derby — Leyton O. 4:1
Manchester C. — Bolton 4:1
Norwich — Charlton 2:0
Framhald á bls. 15.
Leikur gegn A-Þjóó-
verjum út um þúfur?
Líklegt að KSÍ reyni að fá íra í staðinn
Alf-Reykjavík, mánudag.
Eins og komið hefur fram
fréttum, hafði Knattspyrnusam-
band íslands ráðgert landsleik við
Austur-Þjóðverja í Reykjavík á
sumri komanda. Nú mun hins veg-
ar vera ljóst, að ekkert verður úr
þessum fyrirhugaða leik, eftir því,
sem blaðið bezt veit, en KSÍ mun
ekki hafa treyst sér til að ganga
að þeim skilmálum, sem Austur-
Þjóðverjar settu.
Þess í stað hefur stjórn KSÍ nú
þreifað fyrir sér um landsleik gegn
áhugamönnum Norður-frlands og
þykir líklegt, að leikur gegn þeim
fari fram í Rvík 8. ágúst. Verða
því 3 landsleikir háðir í Reykja-
vík næsta sumar. Sá fyrsti verður
gegn Dönum, leikmenn 23ja ára
og yngri, í júní, leikur gegn írum
væntanlega í ágúst — og loks
verður leikið gegn áhugamönnum
Frakklands í september.
Jón Árnason, TBR
Reykjavíkurmótið í badmintem
Jón Árnason sigraði Óskar
í mjög jöfnum úrslitaleik
Reykjavíkurmeistaramótið í bad
minton var haldið í íþróttahúsi
Vals laugardaginn 16. og sunnu-
daginn 17. apríl. Þátttakendur
voru rúmlega 40 frá þremur fé-
löguan, Tennis- og badmintonfé-
lagi Reykjavíkur, Knattspyrnufé-
lagi Reykjavíkur og Skandinavisk
boldklub.
Á laugardag fór fram undan-
keppni og voru leiknir samtals
36 leikir þann dag og keppt fra
kl. 3. um daginn til klukkan 8.15
um kvöldið. Er þetta hin mesta
þolraun fyrir þá sem komast í úr-
slit og taka þátt í mörgum grein-
um
Ýmsir snarpir leikir fóru fram
á laugardag og munaði oft litlu,
hver sigraði og komst áfram eða
féll úr leik, en í badmintonmót-
um er jafnan útsláttarkeppni.
Úrslitaleikir voru svo leiknir á
sunnudag í Valsihúsinu og hófst
sú keppni kl. 14.00.
1. Reykjavíkurmeistarar í
tvenndarkeppni urðu Lovísa Sig-
urðardóttir og Jón Árnason TBR,
Sigruðu þau hjónin Jónínu Niel-
jónfusardóttir og Lárus Guð-
mundsson í jöfnum og skemmti-
legum leik með 15:9, 13:15, 18:16.
Eins og sést af tölunum, þurfti
aukalotu til að útkljá keppnina.
Nokikuð háði það f þessum leik
sem og öðrum úrslitaleikjum, að
boltarair virtust nokkuð harðir,
Jónma var oft mjög góð við net-
ið, en það dugðl ekki til að vega
upp á mótí fajnnm hættulegu bolt-
um frá Jóni bakhandarmegin við
andstæðrngana. Lárus sló einnig
meira af boltum út fyrir völlinn
en góðu hófu gegnir og hefur það
sennilega stafað af hraða boltanna.
2. Reykjavíkurmeistarar í tví-
liðaleik kvenna urðu Hulda Guð-
mundsdóttir og Lovísa Sigurðar-
dóttir T.B.R. sigruðu þær Jónínu
Níeljóníusardóttur og Rannveigu
Magnúsdóttur með 15:6 og 15:11.
Þessi leikur var léttur og fjör-
ugur og engan veginn eins ójafn
og-tölurnar sýna. Alltof mikið
var um langar sendingar en lítið
um stutta bolta. Líktist leikurinn
á köflum að því leyti meira ein-
liðaleik en tvíliðaleik. Erfitt er
að gera upp á milli keppenda í
þessum leik. Allar eru þær þraut-
reyndar í íþróttinni, en sendingar
Huldu voru mjög hnitmiðaðar og
gerðu raunar út um sigurinn í
leiknum.
3. Reykjavíkurmeistari í einliða-
leik kvenna varð Lovísa Sigurðar-
dóttir T.B.R. Sigraði hún Jónínu
Níeljóníusdóttur í afar jöfnum
leik með 11:10 og 11:8
í fyrri lotunni var Jónína yfir
10:7, þannig að ekki munaði miklu
að hún ynni fyrri lotuna og hefði
þá þurft aukalotu til að fá úrslit.
Framhald á bls. 15.
YFIRLÝSING
Vegna skrifa á íþróttasíðum
Tímans og Alþýðublaðsins að
undanförnu um styrktarleik
vegna „Herferðar gegn hungri“
viljum við tveir undirritað-
ir, sem að þeim hafa staðið,
gefa eftirfarandi yfirlýsingu:
Við teljum ekki heppilegí,
að frekari umræður um þetta
nál fari fram, enda þótt skoðan-
ir okkar á sjálfu málefninu séu
óbreyttar og andstæðar sem
fyrr, en berum fulla virðingu
fyrir sjónarmiðum hvor ann*
ars.
Eins og jafnan, þegar ritdeil-
ur eiga sér stað, er ýmislegt
sagt, sem betra hefði verið
ósagt. Öll stóryrði í garð hvors
annars eru hér með dregin til
baka.
Reykjavík, 18. apríl 1966
Einar Björnsson
Alfreð Þorsteinsson.
Þróttur
upp?
Alf-Reykjavík. — f kvöid, þriðju-
dagskvöld, fæst að öHum líkind-
um úr því skorið, hvaða lið vinn-
ur keppnina í 2. deild fslandsmóts-
ins í handknattleik, en þá leika
Þróttur og ÍR. Staða Þróttar er
langbezt og nægir Þrótturum jafn-
tefli til að hljóta sigur I keppn-
inni, en vinni ÍR, þurfa 3 lið að
keppa aftur, þ.e. Þróttur, ÍR og
Víkingur, um efsta sætið.
Auk leiksins f 2. deild milli
Þróttar og ÍR, fara fram nokkrir
leikir í yngri flokkunum í kvöld
Fyrsti leikur hefst kl. 20.15.
Unnu styttuna til eignar
S.l. föstudagskvöld fór fram úr-
slitalcikur milli Rvíkurúrvals og
varnarliðsmanna í hinni árlegu
keppni í körfuknattleik. Svo fóru
leikar, að Reykjavík sigraði með
73:64, og vann um leið til eignar
hina fögru styttu, sem kepp't var
um.
Á myndinni hér að ofan sést
Kolbeinn Pálsson, KR, fyrirliði
Reykjavfkur, með styttuna. Kol-
beinn stóð sig vel í leiknum og
átti stóran þátt í sigrinum. Ánægj-
an yfir unnum sigri leynir sér
ekki. Og við tökum undir og ósk-
um reykvískum körfuknattleiks-
mönnum til hamingju með sigur-
inn.