Vísir - 17.12.1974, Blaðsíða 12
Risarnir gáfu ekki kost á sér
íslenzka landsliðið í körfuknattleik, sem leikur í fjögurra landa keppninni í Kaupmhöfn, hefur verið valið.
QöOÖC • •
NESCO
Er ekki mál til komið,
að þú eignist þinn einkaheim,
Marantz einkaheim!?
NESCO HF
Leiöandi fyrirtæki á sviöi sjónvarps-útvarps- og hljómtækja.
Verzlun Laugavegi 10 Reykjavik. Simar: 19150-19192-27788
Leikmaður
Real kœrður
Tvö spænsk félög, sem leikiö
hafa viö Real Madrid aö undan-
förnu i 1. deildinni á Spáni, hafa
kært hið fræga félag fyrir að nota
leikmanninn Martinez — en ein-
hver vafi leikur á þvi, að hann sé
spænskur rikisborgari, Það voru
Danir, scm fyrst hreyfðu þessu
máli eftir að hafa tapað fyrir
Spáni I Evrópukeppninni —
en Martinez lék þá gegn þeim og
þess má geta, að hann skoraði
bæði mörk Real Madrid gegn
Fram á Laugardalsvelli i haust í
Evrópukeppni bikarhafa.
Martinez er frá Argentinu og
stendur Real i þeirri trú, að for-
eidrar hans séu spánskir, og þvi
ekki þörf á rikisborgararétti fyrir
hann á Spáni. Tveir erlendir leik-
menn mega leika með félagi i leik
á Spáni og ef Martinez telst út-
lendingur” er lið Real ólöglegt I
nokkrum leikjum, þvi vestur-
þýzku leikmennirnir Breitner og
Netzer leika þar einnig.
Real Madrid tapaði stigi á
heimavelli á sunnudag. Gerði þá
aðeins jafntefli gegn Real
Sociedad 1-1, en hefur þriggja
stiga forskot á annað liðin i 1.
deild, meistara Barcelona. Lið
Cruyff og Co. lék á heimavelli á
sunnudag og vann Granada með
2-1. Espanol, sem er frá
Barcelona, og er nú i þriðja sæti
gerði jafntefli i Valencia 1-1.
Hercules vann Las Palmas 3-1.
Salamanca og Atletico Madrid
gerðu jafntefli 1-1, en Atletico
Bilbao vann Elche 3-0. —hsim
íslenzka landsliðið i körfu-
knattleik, sem tekur þátt i 4ra
landa keppninni I Kaupmanna-
höfn i byrjun næsta mánaðar
hefur verið valið. 1 liðinu eru 12
leikmenn, og eru tveir þeirra nú i
fyrsta sinn valdir I landsliðið I
körfuknattleik, þeir Stefán
Bjarkason UMFN og Ingi
Stefánsson ÍS.
Segja má að liðið sé með lægra
móti — „risarnir” i Islenzkum
körfubolta, þeir Bjarni Gunnar ÍS
og Kristinn Stefánsson KR, gáfu
ekki kost á sér — en liðið er samt
nokkuð sterkt, a.m.k. á pappirn-
um að sjá.
Það verður skipað eftirtöldum
mönnum:
Birgir Guðbjörnsson, KR
Stefán Bjarkason, UMFN
Þórir Magnússon, Val
Jóhann Magnússon, Val
Torfi Magnússon, Val
Agnar Friðriksson, IR
Ingi Stefánsson, 1S
Kolbeinn Pálsson, KR
Jón Sigurðsson, Arm.
Kristinn Jörundss. IR
Kári Mariasson, Val
Þorsteinn Hallgrimss., SISU.
Kolbeinn Pálsson, sem er fyrir-
liði liðsins hefur leikið flesta
landsleikina eða 36 talsins, en
næstur kemur Þorsteinn Hall-
grimsson, sem leikur með danska
liðinu SISU, og er I efsta sæti i
dönsku deildinni, með 34 lands-
leiki.
—klp—
Fram hlaut flesta meist-
ara í Reykjavíkurmótinu
Fram varðekki að ósk sinni um
.aö sigra I öllum yngri flokkunum i
Reykjavikurmótinu I handknatt-
leik, sem lauk um helgina. Fram
hafði sigur 1 þrem flokkum af sex,
sem þá var keppt i, og á
möguleika á að bæta þeim fjórða
við, en þar verður að fara fram
aukaleikur á milli Fram og KR.
Framararnir sigruðu með yfir-
burðum i 2. flokki karla, þar sem
þeir léku siðasta leikinn við KR.
Þeir sigruðu einnig KR i 1. flokki
karla, en Vikingur sigraði i sinum
leik, sem var gegn Leikni, og
nægði það Vikingunum til að
sigra i þeim flokki.
Fram og KR léku einnig i 3.
flokki karla, og varð jafntefli 6:6.
Eru félögin þar jöfn að stigum og
verða að leika aukaleik um fyrsta
sætið. I 4. flokki karla sigraði
Fram Viking eftir framlengdan
leik 12:7 (6:6 eftir venjulegan
leiktima) og varð þar með
Reykjavikurmeistari I þeim
flokki.
I 3. flokki kvenna var Fram
einnig i úrslitum og mætti IR.
Þeim leik lauk með sigri Fram
3:2. I 2. flokki kvenna varð hið
unga lið Fylkis úr Árbæjarhverfi
Reykjavikurmeistari, með einu
stigi meira en Fram.
Sigurvegarar i einstökum
flokkum i Reykjavikurmótinu
urðu sem hér segir:
M.fl. kvenna: Valur
1. fl. kvenna: Valur
2. fl. kvenna: Fylkir
3. fl. kvenna: Fram
M.fl. karla: Fram
1. fl. karla: Vikingur
2. fl. karla: Fram
3. fl. karla: (óútkljáð)
4. fl. karla: Fram klp—
JÓLAKORT
á ensku fyrir
vini erlendis