Vísir - 19.04.1975, Blaðsíða 16

Vísir - 19.04.1975, Blaðsíða 16
16__________________________________________________________________________________________________________________________Vísir. Laugardagur 19. apríl 1975 n DAG | Q KVÖLD | Q □AG | Q KVÖ L 51 Q □AG | Þa6 gengur á ýmsu i laugardagsmynd sjónvarpsins. Með eitt aðalhlutverkið fer Liz Taylor. Hér sjáum við hana lengst t.v. I hlutverki ungu stúlkunnar Mary koma inn á heimili Dayfjöiskyldunnar i New York I fylgd frænku sinnar. Sjónvarp kl. 21,50: Pabbi UZ TAYLOR MED EITT ADALHLUTVERK í LAUGARDAGSMYNDINNI Þá gefst sjónvarpsáhorfend- um tækifæri til að sjá hina margumtöluðu Eiizabeth Tay- lor eins og hún leit út á sinum yngri árum. Sjónvarpið sýnir i kvöld mynd frá árinu 1947, sem heitir á frummálinu Life with Father eða Pabbi. Auk Taylor fara með aöal- hlutverk Irene Dunne, William Powell og Jimmy Lydon. Leik- stjóri er Michael Curtis. Mynd þessi sem er bandarisk gamanmynd, er byggð á leikriti eftir Howard Lindsay og Russel Crouse. Myndin gerist i New York um 1880 og fjallar um fjölskylduna Day. Fjölskyldufaðirinn vill stjórna heimilinu með harðri hendi, en hann er leikinn af William Powell. Eiginkona hans Winnie, sem Irene Dunne leikur, getur þó svolitið tekið I taumana. Hjónin eiga fjóra syni sem viröast eiga auðvelt með að koma fjölskyldunni i klandur. Elzti bróðirinn á eftir að koma til meö að verða yfir sig ást- fanginn af stúlku sem heitir Mary (Liz Taylor), en hún kemur inn á heimilið með frænku sinni. Frænkan er skyld fjölskyldu- föðurnum. Við fylgjumst svo með ýmsu sem upp kemur á heimilinu, til dæmis lýsir fjölskyldufaðirinn þvl yfir að hann hafi ekki veriö skirður. Kemur það miklu róti á heimilislifið... Myndin hefst klukkan 21.50. —EA Útvarp kl. 19,35: Viltu hœtta að reykja? — kveiktu þá á útvarpinu í kvöld Nú er rekinn mikill áróður gegn reykingum, og veitir vist stórreykingamönnum ekkert af þvi að fá smáspark. Þeir sem eru að reyna að hætta og láta áróðurinn einhver áhrif á sig hafa, ættu að kveikja á útvarpinu klukkan 19.35 i kvöld. Þá hefst nefnilega erindi sem heitir „Barátta gegn reykingum fyrr og nú”. Það er Bjarni Bjarnason læknir sem flytur þar fyrra erindi sitt. —EA Sjónvarp kl. 21,20: NORDJAZZ-KVINTETTINN í SJÓNVARPSSAL í KVÖLD Þá fáum við loks að heyra og sjá Nordjazz kvintettinn i sjón- varpssal. Sjónvarpiö tók upp þátt með þessum ágæta kvint- ett, þegar hann var hér á ferð fyrir skömmu siðan, og sýnir I kvöld, klukkan tuttugu minútur yfir niu. Kvintettinn skipa Kjell Jans- son frá Sviþjóð, Nils Petter Nyr- en frá Noregi, Ole Kock Hansen frá Danmörku, Pekka Pöryry frá Finnlandi og Pétur östlund frá Islandi. Stjórn upptöku annaðist Andrés Indriöason. Myndin sýn- ir atriði úr þættinum. —EA IÍTVARP # LAUGARDAGUR 19. april 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 tþróttir. Umsjón: Jón Ásgeirsson. 14.15 Að hiusta á tónlist, XXV. Atli Heimir Sveinsson sér um þáttinn. 15.00 Magnús Bjarnfreösson kynnir dagskrá útvarps og sjónvarps. 16.00 Fréttir. 16.15 Veður- fregnir. tslenzkt mál. Jón Aðalsteinsson Jónsson cand. mag. flytur þáttinn. 16.40 TIu á toppnum. örn Petersen sér um dægur- lagaþátt. 17.30 Framhaidsleikrit barna og unglinga: „Sadako viil lifa” Börje Nyberg samdi upp úr sögu eftir Karl Bruckner. Þriðji þáttur. Leikstjóri: Sigmundur örn Amgrimsson. Persónur og leikendur: Sögumaður, Bessi Bjarnason. Sasaki, Sigurður Karlsson. Yasuko, Margrét Guðmundsdóttir. Shigeo, Einar Sveinn Þórð- arson. Sadako, Þorgerður Katrin Gunnarsdóttir. Ofusa, Valdimar Helgason. Shibuta, Karl Guðmunds- son. 18.00 Söngvar I léttum dúr. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Barátta gegn reykingum fyrr og nú. Bjarni Bjarna- son læknir flytur fyrra er- indi sitt. 20.00 Hijómplöturabb. Þor- steinn Hannesson bregður plötum á fóninn. 20.45 „Sólgeisli” smásaga eft- ir Sigurð A. Magnússon. Höfundur les. 21.10 Þjóðlög frá ýmsum iönd- um. 21.50 „Þangaö vil ég fljúga” Margrét Helga Jóhanns- dóttir leikkona les úr nýrri ljóöabók Ingibjargar Har- aldsdóttur. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög. 23.55 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. Sunnudagur 20. april 8.00 Morgunútvarp. Séra Sigurður Pálsson flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög. 9.00 Fréttir. Útdráttur úr for- ustugreinum dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. 11.00 Messa I Hallgrimskirkju Prestur: Séra Ragnar Fjal- ar Lárusson. Organleikari: SJÓMVARP • Sunnudagur 20. apríl 18.00 Stundin okkar. Meðal efnis er sænsk kvikmynd um fimm litla, svarta kettl- inga og teiknimynd um Robba eyra og Tobba tönn. Þá verður fjallað um um- ferðarreglur, og Glámur og Skrámur láta til sin heyra. Loks sjáum við brúðuleik- þátt Umsjónarmenn Sig- riöur Margrét Guðmunds- dóttir og Hermann Ragnar Stefánsson. 18.55 Hlé 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Pagskrá og augiýsingar 20.30 Fimleikar. Fyrri hluti sjónvarpsupptöku, sem gerð var i Laugardalshöll siöastliðinn þriðjudag á fyrstu sýningu sovésku fim- leikameistaranna, sem dvalið hafa hér undanfarna daga á vegum Fimleika- sambands tslands. 21.05 Bertram og Lisa. Sjón- Páll Halldórsson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veöurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.20 Um Islenzkar barnabæk- ur. Silja Aöalsteinsdóttir cand. mag. flytur slðara há- degiserindi sitt. 14:15 Staldraö við á Eyrarbakka; þriðji og siðasti þáttur. Jónas Jónasson litast um og ræðir viö fólk. 15.10 Miðdegistónleikar: Frá erlendum tónlistarhátiðum I fyrra.Flytjendur: André Navarra, Tom Krause, Irw- in Gage, Ruggiero Ricci, og Filharmóníusveit hollenzka útvarpsins. Stjórnandi: Jean Fournet. 16.15 Veöurfregnir. Fréttir. 16.25 Breytingar á Islenskri stafsetningu. Páll Bjarna- son cand. mag stjórnar um- ræðuþætti. Þátttakendur: Árni Böðvarsson cand. mag. Jón Guðmundsson menntaskólakennari, Vé- steinn ólason, lektor, og Þórhallur Vilmundarson prófessor. 17.20 Arne Domenerus og Rune Gustafsson leika á saxófón og gltar. 17.40 Útvarpssaga barnanna: „Borgin viö sundiö” eftir Jón Sveinsson (Nonna). Hjalti Rögnvaldsson les (6). 18.00 -Stundarkorn með harmonikuleikaranum Mogens Ellegard .Tilkynn- ingar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir Tilkynningar. 19.25 „Þekkirðu land?” Jónas Jónasson stjórnar spurn- ingaþætti um lönd og lýði. Dómari: ólafur Hansson prófessor. Þátttakendur: Vilhjálmur Einars- son og Pétur Gautur Kristjánsson. 19.45 Sónata I F-dúr (K497) eftir Mozart. Christoph Eschenbach og Justus Frants leika fjd’rhent á pianó. 'I 20.15 Brynjólfur Jóhannesson leikari. Fluttir þætiir úr nokkrum leikritum og lesið úr endurm inningum Brynjólfs. Klemenz Jónssbh leiklistarstjóri flytur inn,- gangsorð. 21.15 Tónlist eftir Smetana.aJ Filharmónlusveitin I Brno leikur Tékkneska dansa; Frantisek Jileik stjórnar. b. Sinfóniuhljómsveit útvarps- ins I Miinchen leikur „Hákon jarl”, sinfóniskt ljóö op. 16; Rafael Kubelik stjórnar. 21.40 Einvaldur i Prússiandi. Jón R. Hjálmarsson skóla- stjóri flytur lokaerindi sitt: Friörik mikli. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir. Danslög Hulda Björnsdóttir dans- kennari velur lögin. 23.25 Fréttir I stuttu máli. Dagskrárlok. varpsleikrit eftir Leif Pan- duro. Leikstjóri Palle Kjær- ulff-Schmidt. Aðalhlutverk Peter Stein, Frits Helmuth og Ghita Nörby. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. Þetta erhið fyrra af tveimur sam- stæðum leikritum um mannleg samskipti i nú- timaþjóðfélagi. Leikritiö um Bertram og LIsu gerist I dönskum smábæ, þar sem miklar framkvæmdir eru á döfinni og kjörið tækifæri fyrir þá, sem vilja, að fikra sig upp metoröastigann. Greint er frá einkalifi þeirra einstaklinga, sem viö sögu koma, baráttu þeirra og vináttu, gleði þeirra og raunum. Seinna leikritið, sem heitir Anna og Páll, er á dagskrá á miðvikudaginn, og gerist það I óliku um- hverfi i Kaupmannahöfn, en persónur eru sumar hinar sömu og i Bertram og Lisa. (Nordvision — Danska sjón- varpið) 22.45 Að kvöldi dags. Séra Ölafur Skúlason flytur hug- vekju. 22.55 Dagskrárlok

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.